Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1992, Blaðsíða 17
16
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992.
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992.
25
Iþróttir
Stór stund 1 íslenskum körfuknattleik:
Frábær sigur
gegn Litháum
- eftir framlengingu og góðan leik vann ísland, 111-104
Isleiiska landsliöið í körfuknattleik
sannaöi rétt eina ferðina hvers það er
megnugt um þessar mundir þegar liðið
sigraði hið geysisterka hð Litháa í lands-
leik þjóðanna í Laugardalshölhnni í
gærkvöldi. Lokamínútur leiksins voru
þvílíkar að ekki mátti sjá hvort liðið
ætlaði að hafa sigurinn enda fór svo að
framlengingu þurfti th og þar reyndust
íslendingar sterkari.
íslenskur körfuknattleikur er á hraðri
uppleið en gott gengi í undanfórnum
leikjum sýnir það svo ekki verður um
vihst. Samkvæmt styrleikahsta eru Lit-
háar sagðir tefla fram öðru sterkasta
landsliðinu í Evrópu í dag þannig að sig-
urinn á þeim í gærkvöldi er einn stærsti
sigur hjá íslendingum frá upphafi.
íslenska liðið mætti
ákveðið til leiks
Þetta var önnur viðureign þjóðann en
Litháar sigruðu í fyrri leiknum í Grinda-
vík. Þar þótti íslenska liðið sýna afbrags-
leik á köflum en í gærkvöldi gerði liðið
enn betur. íslenska liðið mætti ákveðið
leiks og var með yfirhöndina nánast all-
an fyrri hálfleik. Litháar náðu þá aðeins
að komast yfir í tvígang á einu stigi.
Vamarleikurinn var góður og leikið af
skynsemi í sókninni, boltinn látinn
ganga og ekki skotið nema í öruggum
færum þegar svo bar undir. Hraðaupp-
hlaup voru nýtt þegar þau gáfust og
gengu í flestum thvikum upp. Þessi mót-
spyma kom hinu leikna hði Litháa oft í
opna skjöldu og á köflum vissu þeir vart
sitt rjúkandi ráð.
í síðari hálfleik virtist leikurinn ætla
að snúast við en þá náðu Litháar um
tíma átta stiga forskoti en íslenska hðið
var ekki að baki dottið. Baráttuandinn
kom í hðið á ný og þá var ekki sökum
að spyrja. íslendingar jöfnuðu og kom-
ust yfir þegar skammt var th leiksloka
og lokakafh venjulegs leiks var í einu
orði sagt æsispennandi. Litháum tókst
að jafna metin áður en leiktíminn fjaraði
út'og þurfti því að framlengja.
Framlengingin var
frábærlega leikin
í framlengingu sýndi íslenska hðið sinn
besta leikkafla sem undirritaður hefur
séð. Liðið lék stífa pressuvörn og áttu
Litháar í mestu erfiðleikum að koma
boltanum í leik, þess í stað náði íslenska
hðið boltanum og skoraði með þeim
hætti í þrígang. Þar var Teitur Örlygsson
fremstur í flokki og var hrein umm að
horfa th hans. Með þessum vamarleik
mátti htháíska hðið sín hths í framleng-
ingunni og frábær íslenskur sigur varð
staðreynd í lokin. Fögnuður leikmanna
sem og áhorfenda var að vonum mikhl
í leikslok enda áttu örugglega fæstir von
á þessum úrshtum.
Engum blöðum er um að fletta að þetta
hð sem teflt er fram í dag er það sterk-
asta sem við höfum átt. Ef rétt verður á
spöðum haldið getur hðið náð enn lengra
og að því verður að vinna markvisst.
Allir verða að leggja hönd á plóginn,
leikmenn og þeir sem standa fyrir utan
leikvöhnn.
Teitur örlygsson lék sem engih á loka-
kafla leiksins og einnig voru þeir Guð-
mundur Bragason og Magnús Matthías-
son atkvæðamikhr. Jón Kr. Gíslason var
sömuleiðis sterkur, lék af yfirvegun og
stjórnaði spihnu eins og honum er ein-
um lagið. Annars eiga ahir hðsmenn
hrós fyrir framgang sinn. Torfi Magnús-
son landshðsþjálfari er að gera stórgóða
hluti með liðið og gaman verður að fylgj-
ast með hðinu í þeim stórverkefnum sem
bíðaánæstumánuðum. -JKS
Teitur Örlygsson átti stóran þátt i frábærum sigri á Litháen i körfuknattleik í gærkvöldi. Teitur var
ógnandi á lokakaflanum en alls skoraði hann 24 stig og var stigahæstur ásamt Magnúsi Matthiassyni.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Stærsti sigurinn
undir minni sQóm“
- sagði landsliðsþjálfariim Torfi Magnússon
„Þetta smah mun betur saman en í
fyrri leiknum. Pressuvömin kom Lit-
háum mjög á óvart en það virkaði eins
og vítamínsprauta á liðið þegar Teitur
stal knettinum tvívegis í röð. Það er ekki
í fyrsta skiptið sem Teitur hreinlega
vinnur leik fyrir okkm-. Ég held að ég
geti sagt að þetta sé besta hðið sem við
höfum unnið undir minni stjóm,“ sagði
hinn hógværi landshðsþjálfari Torfi
Magnússon eftir leikinn í samtali við
DV.
„Ég fæ ekki annað séð en að stígandinn
er mikih í hðinu. Við fáum góðan undir-
búningi fyrir Norðurlandamótið en þar
gefst tækifæri til að sanna að þessi sigur
hafi ekki verið tilviljun," sagði landshðs-
þjálfarinnTorfiMagnússon. -JKS
Handknattleikur:
Valsmenn fengu
frest í kærumálinu
- málið tekið fyrir eftir viku
Nú er ljóst að ekki liggur fyrir niður-
staða í kærumáh Víkinga vegna bikar-
leiksins við Val fyrr en 1 fyrsta lagi eftir
viku. Valsmenn fengu í gær frest til mánu-
dags th að skila greinargerð í máhnu en
þeir áttu upphaflega að skila henni fyrir
klukkan 16 í gær.
„Víkingar skhuöu sinni greinargerö,
mjög ítarlegri, á þriðjudag og ég var að fá
í hendur greinargerð frá dómurum leiks-
ins. Valsmönnum fannst þeirra frestur
vera of stuttur og við vorum sammála því
og veittum þeim því frest th mánudags,"
sagði Valgarður Sigurðsson, formaður
dómstóls HSÍ, í samtali við DV í gær.
Munnlegur málflutningur
ferfram 30. janúar
Að sögn Valgarðs fer munnlegur málflutn-
ingur fram fimmtudaginn 30. janúar og
þá verður máhð dómtekið en hann sagði
ólíklegt að endanleg niðurstaða lægi fyrir
fyrr en einhveijum dögum síðar.
Eins og áður hefur komið fram, lögðu
Víkingar fram kæru vegna þess að tekin
voru leikhlé í framlengingum leiksins, en
samkvæmt reglugerðum á þá ekkert hlé
að vera á mihi hálfleikja. Valur vaim leik-
inn eftir tvær framlengingar, 26-25, en það
verður sem sagt ekki ljóst fyrr en eftir viku
hvort það verður Valur eða Víkingur sem
mætirFHíbikarúrshtaleiknum. -VS
4-2, 14-5, 25-19, 28-24, 30-31,
36-33 (47-47). 55-59, 63-70, 71-79,
82-84, 91-88, 93-93. 99-101,
103-101, 107-101, 111-104.
Stig íslands: Teitur Örlygsson
24, Magnús Matthíasson 24, Guð-
mundur Bragason 23, Jón Kr.
Gíslason 12, Tóraas Holton 10,
Pétur Guðmundsson 6, Jón Amar
Ingvarsson 6, Nökkvi Már Jóns-
son 2, Valur Ingimundarson 2,
Sigurður Ingimundarson 2.
Stigahæstir Litháen: Darius
L'ikmitias 31, Vaidas Jurgilas 19,
Alvydas Pazorazdis 16.
Dómarar: Leifur Garðarsson og
Kestutís Pilípauska, voru rajög
góðir.
Áhorfendur: Um 600.
Badminton:
Góð byrjun
Evrópumót unghnga í badminton
hófst í Tékkóslóvakíu í gærkvöldi.
|slendingar eru þar á meðal þátttak-
enda og í fyrsta leik sigraði hðið
Austurríkismenn, 4-3.
Þessi sigur gefúr uriglingunum ör-
ugglega byr undir báða vængi en
mótið stendur yfir aha helgina.
JKS
JBandaríska . sjónvarpsstöðin
ABC skýrði frá því í fréttatíma
seint í gærkvöldi að tveir leikmenn
ástralska landshðsins í körfuknatt-
leik myndu ekki leika með ef ástr-
alska hðið mætti því bandríska á
ólympíuleiknum í Barcelona í sum-
ar. Astæðuna sögöu þeir vera
Magic Johnson en eins og flestum
er kunnugt er hann smitaður af
eyðni. Leikmennirnir telja sig eiga
á hættu að smitast af eyðni en
læknar, sem viðtöl voru tekin við
í fréttatímanum, sögöu hkurnar
fyrir því vera hverfandi og nánast
óhugsandi.
Þrátt fyrir að Magic Johnson sé
hættur að leika heldur hann sér í
góðu formi. Hann hefur verið val-
inn í landshðið sem keppir á
ólympíuleiknum enda lögðu aðrir
leikmenn þess þunga áherslu að
hann yrði valinn.
Drazan Petrovic, Króati sem leik-
ur meö New Jersey Nets, sagði í
viðtali I gærkvöldi að hann styddi
Magic Johnson og það yrði heiður
fyrir sig að fá að leika á raóti hon-
um á óiympíuleiknum.
Þess má geta að áhorfendur hafa
vahð Magic Johnson í byijunarlið
vesturstrandarinnar í All Star
leiknum sem verður í Orlando 9.
febrúar næstkomandi.
-JKS
stúfar
Meistaramót íslands í
atrennulausum stökk-
um verður haldið
Réttarholtsskóla
Reykjavík á morgun, laugardag,
og hefst klukkan 14. Keppt er í
langstökki, þrístökki og hástökki,
bæðií karla- ogkvennaflokkum.
Stórmótið I snóker
víðareníFirðinum
f DV í gær var sagt frá alþjóðlega
mótinu í snóker, Pepsí-open, sem
hefst í dag, en þar kom fram að
það færi fram í Fjarðarbilhard í
Hafixarfirði. Það rétta er að úr-
shtaleikimir fara þar fram á
sunnudag, flögurra manna úrslit-
in he0ast klukkan 10 og úrshta-
leikurinn á eftir. Fyrsta umferð-
in, sem hefst klukkan 13 í dag, fer
hins vegarfram í Snóker í Mjódd,
BS-bihiard í Faxafeni, Ingóifsbill-
iard á Hverfisgötu og í Knatt-
borðsstofu Suðumesja í Kefiavik.
Önnur umferð veröur leikin á
sömu stööum og hefst klukkan
15 í dag. Síðan heflast 16 manna
úrshtin klukkan 10 í fyrramáhð
og þau verða á Billiardstofunni
Klöpp og Ingólfsbilhard og sömu-
leiðis 8 manna úrslitin sem verða
síðar á morgun.
Góð verðlaun á
snókermótínu
Góð verölaun eru í boði á Pepsí-
open þvi sigurvegarinn fær 3.200
dollara í sínn hlut sem em ríflega
180 þúsund krónur. Fyrir 2. sætið
eru 1.600 dollara verðlaun, 800
dollarar fyrír 3.-4. sæti, 400 doh-
arar fyrir 5.-8. sæti og 200 dollar-
ar fyrir 9.-16. sæti. Þá era 400
dollara verðlaun fyrir hæsta skor
í mótinu.
Sterkur Belgi
meðal keppenda
Tveir mjög öflugir Bretar verða á
meðal keppenda á Pepsí-open,
Lee Grant Qg Peter Ebdon, eins
og DV sagði frá í gær. Af öðram
má nefna Steve Lemmens frá
Belgíu, sem er stigahæstur á Usta
„World Open Snooker Rankings"
af þeim sem hingaö koma, og
Bretann Lee Richardson.
Seles og Fernandez
mætast C úrslitaleik
Það verða Monica Se-
les frá Júgóslavíu og
Mary-Joe Femandez
frá Bandaiikjunum
sem mætast í úrslitaleiknum í
kvennaflokki á opna ástralska
meistaramótinu í tennis. í gær
vann Seles léttan sigur á Arantxa
Sanchez Vicario frá Spáni, & 2 og
6-2, en Femandez sigraði Gabri-
elu Sabatim frá Argentínu ó vænt,
6-1 og 6-4. Sabaíini hafði unniö
sex síöustu viöureignir þeirra.
Monica Seles er talin mjög sigur-
strangleg í úrslitaleiknum enhún
á titilinn að veija síðan í fyrra.
Jemson í bílslysi
Nigel Jemson, leik-
maöur með enska
knattspymuhðinu
Sheffield Wednesday,
slasaðist í bílslysi í fyrradag.
Hann sat fastur í bilflakinu og
það þurfti að skera þaö í sundur
til að ná honum út. Jemson skarst
nokkuð og verður ekki með Wed-
nesday alveg á nsestunni.
Olsen áfram
með Brondby
Morten Olsen hefur gert nýjan
þriggja ára samning við danska
knattspyrnufélagið Brondby en
hann hefur verið þjálfarí hðsins
í tvö ár. Olsen, sem er leikja-
hæsti iandshðsmaður Dana frá
upphafi, sagðist hala fengið gimi-
leg tilboð frá erlendum félögum
en vfijað halda áfram að byggja
upp hjá Brondby.
Valdimar Grímsson komst vel frá leiknum gegn Búlgörum og skoraði grimmt
úr hraðaupphlaupum.
Handboltamótið 1 Austurríki:
Búlgarar voru
lítil hindrun
- ísland sigraði, 23-18
„Þetta var öraggur sigur hjá okkur
allan tímann. Það er erfitt að leika
gegn Búlgömm því sóknir þeirra eru
langar. Ég notaði marga leikmenn í
þessum leik til að spara kraftana fyr-
ir leikinn gegn Ungveijum. Ég er
hæfilega bjartsýnn fyrir þann leik
en við vinnum að því markvisst að
leggja þá að velli. Það verður mark-
varslan sem kemur th með að ráöa
úrshtum í þeim leik,“ sagði Þorberg-
ur Aðalsteinsson landsliðsþjálfari i
samtah við DV eftir sigurleikinn
gegn Búlgaríu, 23-18, á sex landa
handknattleiksmótinu sem nú stend-
ur yfir í Austurríki.
ísland var með undirtökin ahan
tímann, komst í 4-0 og 7-3 en Búlgar-
ar jöfnuðu, 7-7 og 8-8. ísland seig
fram úr á ný, var yfir (13-10) í hálf-
leik og náði síðan fimm marka for-
ystu, 19-14. Búlgarir minnkuðu mun-
inn í 19-16 en þá komu þrjú íslensk
mörk í röð og þar með vom úrshtin
ráðin.
Mörk íslands: Valdimar Grímsson
9/2, Gunnar Beinteinsson 5, Geir
Sveins'son 3, Kristján Arason 2,
Bjarki Sigurðsson 2, Einar G. Sig-
urðsson 1 og Sigurður Bjamason 1.
Guðmundur Hrafnkelsson stóð í
markinu allan tímann og varði 11/1
skot. Liðið var eins skipað og gegn
Egyptum.
Jón Kristjánsson leikur ekki með
á móti Ungverjum í dag en hann fór
eftir leikinn í gær til aö spila með
Uði sínu í Þýskalandi, Suhl. Hann
kemur til baka aftur th að leika gegn
Portúgal og Austurríki. Siguröur
Bjamason þarf einnig að fara th
Þýskalands en verður á móti Austur-
ríki í síðasta leik mótsins.
-JKS/VS
Úrsht leikja í gærkvöldi á 6 landa
mótinu í Austurríki:
ísland - Búlgaría..........23-18
Ungverjaland - Egyptaland ...25-18
Austurriki - Portúgal......30-24
Staðan:
Ungverjal ....2 2 0 0 49-38 4
Austurríki..2 1 1 0 53-47 3
ísland......2 1 1 0 50-45 3
Búlgaría....2 0 1 1 41-46 1
Egyptaland.2 0 1 1 45-52 1
Portúgal....2 0 0 2 44-54 0
Körfubolti:
Stórsigur
Haukastúlkna
Haukastúlkur tóku létta æfingu
fyrir leikinn gegn ÍBK nk. fimmtudag
er þær léku gegn KR í gærkvöldi.
Stúikumar úr Hafnarfirði hreinlega
yfirspiluðu lið KR og sigmðu með 24
stiga mun, 56-32.
Stig Hauka: Eva 16, Hanna 12, Ásta
10, Hafdís 7, Dóra 2, Hildur 2 og Þor-
björg 2.
Stig KR: Helga 10, Kristín 7, Anna
5, Guðrún 4, Sólveig 2, María 2 og
Alda 2.
-ih
Arndís leikur
með Arsenal
Arndís Ólafsdóttir, knattspyrnu-
kona úr KA, er heldur betur aö gera
það gott með Lundúnahðinu Arsenal
þessa dagana. Amdís hélt utan í
haust þeirra erinda aö gæta bama
og fljótlega komst hún að því að
næsta hð sem bauð upp á kvennafót-
bolta var stórhöið Arsenal.
Þaö tók Arndísi aðeins þijá leiki
með varahðinu aö komast í aðahið
félagsins. „Liðið er í efsta sæti norð-
ur-Lundúnadeildar og er nokkuð ör-
uggt að við fórum upp,“ sagði Amdís
í samtali við DV. „Við lékum bikar-
leik gegn hði sem er í þriðja sæti 1.
deildar og rétt töpuðum, 1-0. Efsta Uð
1. deildar er Doncaster Behs, og í því
^ hði eru eiginlega ekkert nema lands-
Uðskonur.
Tvær stelpur úr Arsenal verða lík-
lega í landshðshópnum sem leikur
geg íslandi í vor, markmaðurinn og
vinstri kantspilarinn. Markmaöur-
inn, Lesley Shipp, er stór og stæðileg
stúlka sem er mjög góð og kantspilar-
inn, Michehe Curley, er örvfætt en
nokkuð mistæk. Ef hún er mæh-
kvarði á getu landshðskvennanna þá
held ég að þær séu ekkert yfirburða-
snjahar."
Amdís sagði að hún myndi vænt-
anlega koma heim í maí og leika með
KA.
-ih
_____________íþróttir
Sport-
stúfar
Þórarinn Sigurðssan, DV, Þýskalandi:
Æfingaferð Eyjólfs
Sverrissonar og félaga
í Stuttgart til Tyrk-
lands á dögunum var
heldur misheppnuð. Þeir þurftu
að skipta um hótel vegna dapurs
aðbúnaðar og æfingasvæðið sem
þeir fengu var lélegt. Ljósi punkt-
urinn var þó sigur á 1. deildar
hði Trabzonspor, 2-0, en þar
skoruðu Fritz Walter og Maurizio
Gaudino mörkin.
Stuðningsklúbbur ÍA
stofnaður í Reykjavík
Stuðningsmenn Knatt-
spyrnufélags ÍA á höf-
uðborgarsvæðinu ætla
að stofna stuðnings-
mannaklúbb næsta fimmtudags-
kvöld, 30. janúar. Stofnfundurinn
verður haddinn að Hótel Loftleiö-
um og hefst klukkan 20.30. Stofn-
un klúbbsins hefur lengi veriö í
bígerð og fékk byr undir báða
vængi eftir leik KR og ÍA í bikar-
keppninni síðasta sumar.
Þriðja leik frestað
Upphaflega áttu ís-
lendingar og Litháar
að leika þriðja lands-
leikinn á Sauðárkróki
í kvöld en í gær var ljóst að af
honum gat ekki orðið. Vegna mis-
taka í flugbókun varð þriðja
leiknum aflýst en Litháar áttu
bókað flugfar snemma á laugar-
dagsmorgun frá Kaupmannhöfn
til Litháen.
Ghana í úrslit
Afríkuleikunum
Ghana er komið í úrslit
á Afríkuleikunum í
knattspymu en í und-
anúrslitaleiknum í
gær sigraöi Ghana lið Nígeríu-
manna, 2-1, í Dakar. Abedi Pele
og Pohey Prince gerðu mörk
Ghana í leiknum en Mutiu
Adepoju eina mark Nígeríu.
Ghana mætir Uöi Fílabeinstrand-
arinnar í úrslitaleiknum, en það
vann Cameroon í vítaspyrnu-
keppni í undanúrslitum í gær.
Úrshtaleikurinn verður á sunnu-
daginn kemur.
NBAínótt:
Naumt hjá
LALakers
Fimm leikir fóm fram í NBA-
deildinni í körfu í nótt og urðu
úrshtin sem hér segir:
Minnesota - Detroit.100-111
Houston - LA Chppers.109-%
Denver - Utah Jazz.115-111
Seattle - Portland..109-113
Sacramento - Lakers.105-108
• K.C. Jones hefur verið rekinn
frá Seattle Supersonics. Við
þjálfarastarfinu tekur George
Karl sem áður var aðalþjálfari
spánska hðsins Real Madrid.
Edbergí
úrslitin
Svíinn Stefan Edberg leikur til
úrshta á opna ástralska meistara-
mótinu í tennis. Hann vann Wayne
Ferreira frá S-Afríku í nótt, 7-6,
(7-2), 6-1 og 6-2. Edberg mætir Jim
Courier í úrshtum en í undanúr-
slitum gaf Hollendingurinn Ric-
hard Krajicek leikinn gegn Couri-
er vegna meiösla. í kvennaflokki
leika Monica Seles og Mary-Joe
Femandez í úrshtum.
-SK
a
Gunnar Már í KA
Gunnar Már Másson, knatt-
spymumaður úr Val, ákvað í gær-
kvöldi að leika með 1. deildar liði KA
á Akureyri næsta sumar. Gunnar er
marksækinn sóknarmaður og ætti
að verða Akureyrarhðinu góður hðs-
auki.
Gunnar Már er tvítugur og varð
þriðji markahæsti leikmaður Vals í
1. deildinni síðasta sumar.
Samt átti hann ekki fast sæti í lið-
inu en skoraði öh mörkin eftir að
hafa komið inn á sem varamaður og
lék sama leik í fyrri bikarúrshta-
leiknum gegn KR.
Gunnar markahæstur
í Bandaríkjunum
Gunnar Már varð markahæsti leik-
maður bandarísku háskólakeppn-
innar á keppnistímabilinu þar, sem
er nýlokiö. Hann skoraði 43 mörk í
22 leikjum fyrir Huntingdon háskól-
ann í Alabama, fleiri en nokkur ann-
ar í öhum deildum bandarísku há-
skólakeppninnar í vetur.
Gunnar skoraði einu marki meira
en Sharp frá Bretlandi, sem gerði 42
mörk fyrir Melbourne háskóla, en
Sharp lék fleiri leiki þar sem Melbo-
ume komst lengra í úrshtakeppni.
Þeir Ágúst Gylfason og Snævar
Hreinsson úr Val leika einnig með
Huntingdon, eins og DV hefur áður
sagt frá.
„Við leikum í svæðisdeild en þar
sem háskólinn er of fámennur og
ekki nógu fjársterkur getum við ekki
unnið okkur upp í þijár efstu deildir
háskólakeppninnar, sama hve vel
gengur. Okkur hefur hins vegar
gengið vel í leikjum við 1. deildar
háskóla og það hafa verið jafnir leik-
ir,“ sagði Gunnar Már í spjalli við
DV.
Gunnar Már heldur á ný áleiðis til
Bandaríkjanna í dag en kemur heim
í byrjun maí og byrjar þá strax að
æfa með KA.
-VS