Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1992, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1992, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992. Fréttir Fjármálaráöherra gefur tóninn vegna komandi kjarasamninga: Stef nan hef ur verið mörkuð og henni verður fylgt segir óhyggilegt aö lækka þjónustugjöld og álögur á almenning „Nú liggur fyrir heilsteypt stefna ríkisstjómarinnar í ríkisfjármál- um næsta árs og stjórnarmeirihlut- inn hefur samþykkt hana. Stefnan hefur veriö mörkuö og aö sjálf- sögöu munum viö fylgja henni. Sú vaxta- og verðlagsþróun sem lagð- ur hefur verið grunnur að ætti aö geta orðið forsenda raunsærra kjarasamninga þar sem hægt verð- ur að verja sem allra mest kaup- mátt þeirra sem lakast em settir," segir Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra. Þó fárlög fyrir árið 1992 hafi verið afgreidd frá Alþingi fyrir jól átti ríkisstjórnin þó enn eftir að hnýta ýmsa lausa enda til að tryggja framgang laganna. Þeirri vinnu lauk í gær með samþykkt lánsfjár- laga og umdeilds bandorms, sem felur í sér sértækar ráðstafanir í ríkisfjármálum. Að vonum var fjármálaráðherra ánægður með þessi verklok er DV ræddi við hann í gær. Hans bíður þó erfitt viðfangs- efni því launafólk krefst þess að fjárlögin verði endurskoðuö, kaup- máttur aukinn og þjónustugjöld lækkuð. Að sögn Friðriks hefur það þekkst um margra áratuga skeið að aðilar vinnumarkaðarins hafi leitað til ríkisstjóma til að liðka fyrir kjarasamningum. Hann segir núverandi ríkisstjórn reiðubúna til að ræða við þessa aðila ef það kynni að greiða fyrir samningum. Til dæmis sé það ljóst að ríkisstjómin vilji lækka vexti sem fyrst. Friðrik segir hins vegar lítið svigrúmið til að lækka álögur og minnka kostn- aðarþátttöku almennings í opin- berri þjónustu. „Verði fjárlögin tekin upp til þess að auka hallan myndum við aðeins búa til nýjan vanda sem væri ill- viðráðanlegri en sá sem við stönd- um nú frammi fyrir. Það væri óhyggilegt aö mínu áliti." Friðrik segir að í nálægum lönd- um hafi ríkisstjórnir valið að auka kostnaðarþátttöku almennings í opinberri þjónustu þegar aðhalds- aðgerða hefur verið þörf í velferð- arkerfum þeirra. Á Norðurlöndun- um hafi til dæmis allir stjórnmála- flokkar, einnig þeir sem standa lengst til vinstri, áttað sig á gildi þjónustugjalda. Annars vegar leiði gjaldtakan til minni kostnaðar viö þjónustuna og hins vegar dragi það úr eftirspuminni eftir henni. -kaa Friða Á. Sigurðardóttir á heimili sínu i gærdag þar sem hún var umvafin blómum og tók brosandi á móti ham- ingjuóskum. DV-mynd Hanna. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Kom mér í opna skjóldu - segirFríðaÁ. Sigurðardóttir „Það kom mér gjörsamlega í opna skjöldu þegar mér var tilkynnt að ég fengi þessi verðlaun. Ég gerði mér að sjálfsögðu grein fyrir því að mögu- leikinn var fyrir hendi þar sem bókin var tilnefnd en ég reiknaði samt aldr- ei með að fá verðlaunin." Það var á fréttamannafundi í Norr- æna húsinu í gærdag sem tilkynnt var að Fríða Á. Sigurðardóttir fengi Bókmenntaverðlaun Norðurlanda- ráðs í ár fyrir bók sína Meðan nóttin líður. Þetta er ekki fyrsta viöurkenn- ingin sem fellur til Fríðu fyrir þessa rómuðu skáldsögu hennar. Hún fékk í janúar í fyrra Hin íslensku bók- menntaverðlaun og í febrúar Menn- ingarverðlaun DV. Einn þeirra sem tilnefndir voru í ár var Ingmar Bergman og var hún spurð hvort hún hefði lesið bók hans. „Ingmar Bergman er einn þeirra listamanna sem ég dái hvað mest, sérstaklega fyrir kvikmyndir sínar. Eg hafði ekki lesiö bókina eftir hann sem tilnefnd var en ég hef lesið ævi- sögu hans og var ákaflega hrifin af henni. Ég hef samt undanfarið verið að afla mér annarra verka sem til- nefnd voru og lesa einstök þeirra." Aðspurð hvort von væri á nýrri skáldsögu frá henni á þessu ári kvað Fríða svo ekki vera: „Ég er að vinna aö nýrri bók en ég hef alltaf verið óttalega seinvirk og verð örugglega að vinna við bókina þetta ár og næsta líka. Bækur þurfa sinn tíma.“ Rökin, sem dómnefndin færði fyrir ákvöröun sinni, eru svohljóðandi: „Bókin er ögrandi, nýskapandi og býr um leið yfir ljóðrænni fegurð. í verk- inu er horfið aftur til fortíðarinnar í leit að lífsgildum sem eiga erindi við samtíma okkar. Bókin gerist að hluta til í stórbrotinni náttúru Hornstranda og náttúrulýsingar eru hluti af töfrum textans. í verkinu er ekki reynt aö skapa þá blekkingu að viö getum skil- ið til fullnustu veruleika formæðra okkar og forfeðra. Textinn setur spumingarmerki við hefðbundna söguskoðun, hefðbundna frásögn og venjubundna málnotkun. Fríða Sig- urðardóttir lýsir í ljóðrænum texta þessarar bókar þörf okkar fyrir sögu og frásögn um leið og bókin lýsir hve erfitt það er að komast að eingildum sannleika um líf og list.“ Fríöa Á. Sigurðardóttir er fjórði íslenski rithöfundurinn sem fær Bókmenntaverðlaun Norðurlanda- ráös. Áður hafa fengið þau Ólafur Jóhann Sigurðsson fyrir ljóðasöfnin Aö lauffeijum og Að brunnum, Snorri Hjartarson fyrir ljóðabókina Haustmyrkrið yfir mér og Thor Vil- hjálmsson fyrir Grámosinn glóir. Verðlaunin, sem Fríða fær, eru að upphæð 150.000 danskar krónur og fær hún þau afhent á þingi Norður- landaráðs í Helsingfors 3. mars næst- komandi. -HK Afkoma ríkissjóös 1991: Hallinn 12,6 milljarðar - Fjármálaráðherraboöarrauðstrikíkjarasamninga Rekstrarhalli nkissjóðs á árinu 1991 nam 12,6 milljörðum króna, samkvæmt bráðabirgðatölum. Þetta er þrisvar sinnum meiri halli en fiár- lög gerðu ráð fyrir og mesti halh sem orðið hefur á ríkissjóði síðustu 40 ár. Friðrik Sophusson fiármálaráð- herra segir að ef ríkisstjómin hefði ekki gripið til sérstakra aögerða síð- astliðið vor hefði hallinn orðiö 3^1 milljörðum meiri og að þessar tölur sýni, svo ekki verði um villst, að stjómin hafi síst gengið of langt í spamaðar- og aðhaldsaðgerðum. Hrein lánsfiárþörf ríkissjóðs, en þaö er sú upphæð sem ríkissjóður þarf að taka að láni til að fiármagna halla á rekstri og útstreymi á lána- reikningum, nam 14,8 milljörðum. Fjárlög gerðu ráð fyrir 5,9 milljarða lánsfiárþörf. Einungis tókst að ná inn um 3 millj- örðum króna með sölu ríkisverð- bréfa og til að brúa bilið var gripið til um 6 milljarða erlendrar lántöku og tæplega 6 milljarða yfirdráttar í Seðlabanka. Þar af hafa 5 milljarðar verið geröir upp með erlendum lán- um. Fjármálaráðherra lagði áherslu á þá ætlan ríkisstjómarinnar að halda verðlagi stööugu og koma verðbólg- unni enn frekar niöur. „Við viljum koma verðbólgunni eins langt niður og hugsast getur tfi að tryggja kaupmáttinn. Við viljum semja um að það séu einhvers konar strik í kjarasamningum þannig aö ef verðlagsþróun fer yfir þau þá end- urskoðum við samningana," sagði fiármálaráðherra á blaðamanna- fundi í gær. „Við getum ekki ætlást til þess að samið verði án launa- hækkana án þess að samningsaðilar geti haft endurskoðunarrétt ef verð- lagsþróun fer úr böndum." Heildartekjur ríkissjóðs námu 100 milljörðum króna á síöasta ári, eða um 1,7 milljörðum króna minna en íáætlunfiárlaga. -VD Jón A. Baldvinsson sendiráðsprestur: Gífurlega þjálfuð ígræðslustöð eða til- raunastarfsemi „Mér þótti mjög miður aö sjá þessi ummæh Páls Ásmundssonar í DV því þar fer hann með mikil ósannindi. Ég er mjög gramur við hann út af þessu. Mér kemur þetta persónulega ekki til góða á neinn hátt en ég þykist vita nógu mikið til að það sé mjög mikhvægt fyrir sjúkhnga að samið verði við Bret- land. Hér er um að ræða að ganga inn í gífurlega þjálfaða ígræðslu- stöð hjá skurðlækni sem hefur mesta reynslu í heimi í þessum efn- um eða þá að taka þátt í tilrauna- starfsemi á Norðurlöndunum og fara að senda fólkið héðan þangaö." Þetta sagði Jón A. Baldvinsson sendiráösprestur í London í sam- tah viö DV í gær. Hópur lækna á sjúkrahúsunum hefur sent frá sér álit þess efnis að íslendingar skuh semja við ein- hveija eina ígræðslustöð á Norður- löndum vegna fyrirhugaðra líf- færagjafa. Jón kvaðst vera á allt öðru máh. Hann sagöist hafa nýlegar tölur sem styddu skoðun hans. Yacoub, hinn þekkti læknir á Brompton- sjúkrahúsinu í London, hefði nú, samkvæmt þeim, framkvæmt yfir þúsund hjarta- og lungnaígræðsl- ur. Þar á meðal hefði hann grætt hjörtu í tvo íslendinga og lungu og hjörtu í einn. Páll Ásmundsson, yfirlæknir á Landspítalanum, sem færi fyrir hóp íslensku læknanna sem unnið hefðu að áhtsgeröinni, vildi hins vegar semja við ígræðslustöð í Sví- þjóð. Þar hefði aðeins ein slík aö- gerð verið framkvæmd. Hins vegar hefðu nýrnaígræðslur farið fram á Norðurlöndunum. Þá hefði lifur verið grædd í tvo íslendinga. Önn- ur aðgerðin hefði verið gerð í Bandaríkjunum en hin í London. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.