Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1992, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1992, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992. 5 Fréttir Alþingismenn hvildir fram í febrúar: Bandormur samþykktur og lántökur heimilaðar Bandormurinn, lagafrumvarp rík- isstjómarinnar um ráðstafanir í rík- isfjármálum, var samþykktur sem lög frá Alþingi í gær. Þá voru láns- fjárlög fyrir 1992 samþykkt en þau heimila fjármálaráðherra meðal annars að taka tæpa 14 milljarða að láni á árinu. Auk þessa var samþykkt að leggja niður starfsemi Framkvæmdasjóðs íslands og fela Lánasýslu ríkisins umsjón með eignum og skuldbind- ingum hans. í lok þingfundar til- kynnti Salome Þorkelsdóttir, forseti Afþingis, að þingmenn fengju frí frá þingstörfum til 6. febrúar. Framkvæmdasj óður Islands jarðaður hjá Lánasýslu ríkisins Bandormurinn er forsenda nýrra fjárlaga og var stjómarsinnum því í mun að fá frumvarpið samþykkt. Upphaflega stóð til að afgreiða orm- inn fyrir jól en vegna andstöðu stjórnarandstæðinga var ákveðið að fresta umræðum og atkvæðagreiðsl- um fram yfir áramót. Hótuðu stjóm- arandstæðingar málþófl gegn fjár- lagafrumvarpi yrði bandormurinn ekki frystur. Með samþykkt bandormsins frest- ast gildistaka nokkurra ákvæða nýrra grunnskólalaga. Til dæmis verða ekki teknar upp skólamáltiðir, skóladagurinn lengdur né fækkað í bekkjardeildum eins og lög segja til um. Tilsjónarmenn verða settir til að fylgjast með rekstri ríkisstofnana, framkvæmdafé til Þjóðarbókhlöð- unnar er skert og dregið er úr ríkis- ábyrgð á launagreiðslum gjaldþrota fyrirtækja. Bandormurinn gerir sveitarfélög- um skylt að veita 3,5 prósent framlag til allra félagslegra bygginga- framkæmda. Sjúklingar verða krafð- ir um aukna kostnaðarþáttöku vegna læknisþjónustu og við lyfjakaup. Elh- og örorkulífeyrir verður tekju- tengdur og skertur, niðurgreiðsla vegna tannlæknaþjónustu við böm og ungUnga minnkuð og daggjöld sjúkraUúsa skert. Lagður verður löggimefskattur á sveitarfélögin, tek- ið verður upp 25 prósent álag á vöru- gjald, framlög tU jarðræktarmála verða skert og dregið verður úr veið- um á refum og minkum. Afgreiðslu- gjald verður lagt á öU skip á grund- velU rúmlestastærðar. Auk þessa felur ormurinn einnig í sér skert framlög ríkissjóðs tíl sjóða. Þeir sem meðal annars missa af tekj- um vegna þessa eru Iðnlánasjóður, Listskreytingasjóður ríkisins, Hús- friðunarsjóður, Kvikmyndasjóður, Menningarsjóður, StofnlánadeUd landbúnaðarins, Framleiðnisjóður, Bjargráöasjóður, Kirkjubygginga- sjóður, varasjóður slysatrygginga, Lyfsölusjóður, Hafnabótasjóður og Ferðamálasjóður. Bandormurinn hlykkjast um ýmsa fleiri útgjalda- og tekjuliði ríkissjóðs. Þannig skerðast tekjur Ríkisútvarps- ins þar sem innflutningsgjald af út- varps- og sjónvarpstækjum mun renna tU ríkissjóðs. Engin framlög verða í ár tU forfalla- og afleysinga- þjónustu í sveitum og framlög til Fiskveiðasjóðs falla einnig niður. Fé til vegamála verður skert um 265 milljónir. -kaa Þórshöfn: Kaupfélaginu bjargað með nauðasamningum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Það hefur birt tU hjá okkur og nú eru menn þokkalega bjartsýnir á að okkur takist að sigla út úr þessu. Hins vegar verða menn að vera raun- sæir og það er alveg ljóst að næstu tvö ár verða okkur mjög erfið,“ segir Garðar HaUdórsson, kaupfélags- stjóri Kaupfélags Langnesinga á Þórshöfn, en nauðasamningar við kröfuhafa hafa tekist og gjaldþroti hefur þar með verið afstýrt. Um áramót fyrir rúmu ári námu skuldir kaupfélagsins 254 miUjónum með veðkröfum og reksturinn hefur hangið á barmi gjaldþrots. Leitað var nauðasamninga við 125 kröfuhafa með upphæð um 120 mUljónir króna og þeir samningar hafa nú tekist, aðeins er eftir að ganga frá þeim formlega. Samningamir gera ráð fyrir að kaupfélagið greiði 21% krafnanna eða um 25 .mUljónir króna og þessi upphæð á að greiðast á einu ári í þrennu lagi. „Auðvitað verður þetta erfitt, við erum í brekku en ætlum okkur að gera allt til að komast upp hana. Reksturinn í dag gengur alveg þokkalega og við erum hóflega bjart- sýnir,“ sagði Garðar. Þær voru eldhressar, konurnar í slysavarnadeildinni á Höfn, þar sem þær voru að taka á móti fatnaði og öðru sem safnaðist handa Kúrdunum og pakka því. Alls urðu kassarnir 429 eða um 4 tonn. KASK og HP og synir sáu um að koma kössunum til Reykjavíkur. DV-mynd Júlía Imsland Heimsaf linn eykst 1989 1988 Veiði Röð Veiði Röð USSR 11.310.091 1 11.323.101 2 Kína 11.219.994 2 10.358.678 3 Japan 11.174.464 3 11.967.051 1 Perú 6.832.465 4 6.637.956 4 Chile 6.454.142 5 5.209.883 6 USA 5 774.318 6 5.936.818 5 Indland 3.618.919 7 3.126.365 7 S-Kórea 2 832 431 8 2.726.732 9 Tæland 2.822.530 9 2.822.482 8 Indónesía 2 700 000 10 2.703.260 10 Filippseyjar 2.098.787 11 2.010.363 11 Danmörk 1.927.493 12 1.971.834 12 Noregur 1.899.941 13 1.839.884 13 N-Kórea' 1.700.100 14 1.700.000 15 Kanada 1.554.233 15 1.597.053 16 Island 1 504 771 16 1.759.484 14 Mexíkó 1.416.784 17 1.372.145 18 Spánn 1.370.000 18 1.430.000 17 Tævan 1.100.000 19 1.060.000 20 S-Afríka 878.580 20 1.298.143 19 Rússar hafa náð forustu i heimsaflanum, voru I fyrsta sæti árið 1989. Heims- aflinn nálgast 100 milljónir tonna. í nóvember síðastliðnum var með- alverðbólga í EB-löndunum 4,8%. Þetta var niðurstaða eftir 0,4% lækk- un í október-nóvevember sl. Grikk- land var með mesta verðbólgu, sem var 17,9%, og Portúgal var með 9,9% verðbólgu. Á síðastliðnu ári var verðbólga hjá Dönum 2,3%, í Lúxem- borg var hún 2,6% og í Belgíu 2,8%. Grikkland var með flesta tapaða vinnudaga, á síðasta ári töpuðust 887 vinnudagar af hverjum 1000 vinnu- dögum, á Spáni 647, á Ítalíu 271, á írlandi 244, á Bretlandi 136, var tvö- falt fyrri hluta 8. áratugarins, Dan- mörk 40, Þýskaland með 5 tapaða vinnudaga af hveijum 1000 sem var langminnst. Loðnuveiðar Loðnuveiðarnar hafa ekki verið eins og menn bjuggust við eftir ára- mótin en allir sem til þekkja telja að úr rætist. Strax og viðbótarveiði- heimildin var gefm út fóru menn að tala um að sennilega félli verðið af þeim sökum. Eftir því litla, sem mér finnst að komi fram í sölumálum varðandi verð á loðnuafurðum, tel ég að það séu veiðarnar við Suður- Ameríku sem mestu ráða um verð á þessum afurðum, svo menn ættu að taka lífinu rólega meðan ekki er mokveiði þar. Frysti fiskurinn úr Barentshafi í þessum pistlum hefur verið rætt nokkuð um breytt viðhorf hjá Rúss- um með veiðar og sölu afurðanna. Eins og fram hefur komið verða skip- in nú að afla sér gjaldeyris fyrir Fiskmarkaðuriim Ingólfur Stefánsson nauðsynjum og kaupum á veiðileyf- um og hefur það valdiþ meira fram- boði á fiskafurðum en áður þekktist frá þeim. Mikil veiði þessara skipa orsakar mikið framboð á heims- markaðnum og koma þar fleiri þjóðir við sögu. Auðséð er nú að vel verður að halda á málum hvað sölu varðar í framtíðinni og bíður framleiðenda hér erfitt verkefni. Bretland Gámasölur voru á tímabihnu 13.-17. janúar sl. alls 454,6 tonn, sem seldust fyrir 58,6 millj. kr. Meðalverð var 151,01. Þorskur seldist fyrir 144,14 kr. kg, ýsa 193,44, ufsi 91,00, karfi 129,61, koli 129,61, grálúða 162,11 og blandað 118,08 kr. kg. Otto Wathne seldi afla sinn í Hull 23. jan. sl. Ekki var vitað um sölu skipsins þegar þetta er skrifað en nokkurt framboð mun hafa verið á markaðnum. Þýskaland Bv. Hegranes seldi í Bremerhaven 15. jan. sl. alls 146 tonn fyrir 21,6 millj. kr. Meðalverð 147,47 kr. kg. Bv. Ögri seldi í Bremerhaven 20. jan. sl. alls 139 tonn fyrir 21,1 millj. kr. Meðalverð 151,18 kr. kg. 500 kg af þorski seldust á 117,72 kr. kg. Svip- að magn af ýsu seldist á 108,65 kr. kg. Ufsi seldist á 85,23, karfi seldist á 155,65 og blandað á 125,35 kr. kg. Bv. Skagfirðingur seldi í Bremer- haven 22. jan. sl. alls 129 tonn fyrir 16,9 millj. kr. Þorskur seldist á 133,31 kr. kg, ufsi 99,60, ýsa á 137,66, karfi 141,54, grálúða 152,06 og blandað 125,98. Meðalverö 130,68 kr. kg. Bretland Eftir áramótin var lítið framboö á laxi á Billingsgate en verðið mjög lágt þrátt fyrir lítið framboö. Verðið á laxi 2-3 kg að þyngd var 375 kr. kg en á stærri lax, 4-5 kg, var verðið 435 kr. kg. Rækja í skel frá Grænlandi og íslandi var seld í 5 kg pökkum á 900-1500 kr. kassinn. Rækjan var ekki með gott útiit og var mjög smá. Noregur: Metárið 1991 Reidar Mathistad blm.: Á sama tíma og almenni útflutn- ingurinn dróst saman um 2,7% jókst útflutningur á fiski og fiskafurðum um 15%. Árið 1990 var heildarút- flutningur 13 milljarðar n. kr. en var í fyrra 15,4 milljarðar n. kr. Útflutn- ingur til Japans jókst mest, næst var aukinn útflutningur til Danmerkur og annarra Evrópubandalagslanda. Dauft var yfir útflutningnum til Bandaríkjanna og er þar t.d. um að kenna hinu lága gengi á dollar og kærum sem dunið hafa á Norðmönn- um vegna undirboða. Verðmæti út- flutnings á laxi varð 5 milljarðar n. kr. árið 1991. Erfitt getur orðið að ná markaðnum aftur að fullu í Bandaríkjunum og ræðst það mikið af gengi dollarans hvað mikil áhersla verður lögð á þann markað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.