Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1992, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1992, Blaðsíða 10
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992. ;o Útlönd dv Hættaánýju eplastríði Nor- egs og Ameríku Hætta er á að nýtt eplastríð blossi upp milli Noregs og Banda- ríkjanna ef GATT-viðræðurnar fara út um þúfur að því er starfs- maður norska utanríkisráðu- neytisins segir. Bandaríkjamenn eru ekki ánægðir með það hvemig Norð- menn hafa framfylgt dómi sem féll í GATT um takmarkanir á innflutningi á eplum og perum. Norðmenn hafá lengt það íimabil sem ftjáls innflutningur á þess- um ávöxtum er leyfður en inn- flutningurinn er þó enn mjög tak- markaður þegar hámarksfram- boð er á innlendum ávöxtum. Slíkar takmarkanir eru ekki við- urkenndar af GATT. GroHarlem Brundtlandfrúir ennáEES Gro Harlem Brundtland, for- sætisráðherra Noregs, trúir því statt og stöðugt að samningar takist míUi Evrópubandalagsins og EFTA um evrópskt efnahags- svæði, EES. Hún telur þó að frest- urinn sem menn hafi ætlaö sér til verksins kunni að reynast ónógur. „Svo fremi sem samningurinn verður tilbúinn til undirritunar 2. mars skiptir ekki máli þótt samningaviðræðurnar standi vikunni lengur eftir að fresturinn rennur út 31. janúar," sagði Gro. Hún neitar að velta þvi fyrir sér hvað gerist ef samningaviðræð- urnar um EES fara út um þúfur. En hún hefur ítrekað sagt að Norðmenn geti ekki gert sér lausari tengsl viö EB en þau sem felast í EES. Bænakallarinn sektaðurfyrír hávaða ísraelskir dómarar hafa sektaö íslamskan bænakailara í Jerúsal- em fyrir að vera með of mikinn hávaða þegar hann kaliar menn til moskunnar. Dómsmálaráöuneytiö sagði að bænakallarinn hefði verið sekt- aður um sex þúsund krónur og látinn skrifa undir rúmlega tutt- ugu þúsund króna tryggingu fyr- ir því að brjóta ekki aítur af sér. Moskan er á mörkum borgar- hluta araba og gyðinga. Danibareldað sérviðSÞ Þrítugur Dani, sem hafði veriö i meðferð hjá geðlæknum, kveikti í sjálfum sér fyrir utan aðalstöðv- ar Sameinuðu þjóðanna í Evrópu í Genf í gær. Hann mun ekki vera í lífshættu eftir eldinn. Embættismenn SÞ sögöu að maðurinn hefði kveikt í sér eftir að hafa dreift bréfi „um mann- réttindamál“. Vegfaranda tókst að siökkva eldinn. NTB og Reuter Grænfriðungar nota gúmmíbáta til að trufla japönsku hvalveiðiskipin. Þeim hefur orðið það ágengt að japanska stjórnin leitað nú allra leiða til að stöðva mótmælin. Simamynd Reuter Japanlr í baráttu vlö grænfriöunga viö Suðurskautslandið: Taka 300 hrefnur við vísindaveiðar Grænfriðungar eiga þessa dagana í harðri baráttu við japanska hval- veiðimenn sem frá því fyrir jól hafa stundað vísindaveiðar á hrefnu við Suðurskautslandið. Ríkisstjóm Jap- ans hefur farið fram á það við stjórn Hollands að hún stöðvi aðgerðir grænfriðunga sem stjóma aðgerðum sínum frá skipi skráðu í HoUandi. Hollenska stjórnin hefur engu svar- að. Grænfriðungar nota gúmmíbáta tfl að trufla japönsku veiðiskipin sem em fiögur. Aflinn er unninn um borö. Áætlað er að veiða 300 hrefnur í þessu úthaldi. Talsmenn grænfriðunga segja að þeirra menn séu í stöðugri lífshættu við störf sín því falli maður í sjóinn er eins víst að hann láti Ufið sam- stundis vegna gífurlegs sjávarkulda. Japanir segja að um 760 þúsund dýr séu í hrefnustofninum við Suður- skautslandið þannig að engu skipti fyrir viðkomu stofnsins þótt 300 dýr séu veidd. Reuter Stóru norrænu tryggingafélögin sameinast: Skandia í nýja samsteypu Stóm norrænu tryggingafélögin hafa ákveðið að mynda nýtt trygg- ingafélag. Um er að ræða Skandia frá Svíþjóð, Hafnia frá Danmörku og UNI Storbrand frá Noregi. Eftir sam- eininguna verður félagið aUsráðandi á norræna tryggingamarkaðnum. Um leið er ákveðið að Skandia selji Vestu, dótturfyrirtæki sitt í Noregi, til evrópsks tryggingafélags en Vesta og UNI Storbrand hafa átt í harðri samkeppni á undanfómum árum. Ekki hefur verið tilkynnt opinber- lega um sammnann en sænska fréttastofan TT segir að samkomulag á þessum nótum sé í höfn. Undan- fama mánuði hafa tryggingafélögin þrjú veriö að kaupa hluti hvert í öðm. Þannig keypti UNI Storbrand íjórðung í Skandi á síðasta ári en nú er ætlunin að félögin renni saman. Bjöm Wolrath, forstjóri Skandia, hefur til þessa ekki ljáð máls á sam- starfi við keppinautana en nú hefur orðið breyting á. Hugsanlegt er einn- ig að finnska tryggingafélagið Po- hjolas renni inn í nýja félagið en það á nú 10% hlut í Skandia. TT Eystrasaltsríkin fágulliðaftur Breska rikisstjórnin hefur ákveöið að skila Eystrasaltsríkj- unum aftur gullinu sem komið var fyrir í Englandsbanka viö upphaf síðari heimsstyrjaldar- innar þegar Rauði herinn hertók ríkin. Um er að ræða gull að and- virði um níu milljarða íslenskra króna. í öllum Eystrasaltsríkjum er mikil þörf fyrir guiiið þvi þar býr fólk við efnahagsþrengingar og skort á gjaldeyri. Sovétmenn gerðu kröfu til að fá gullið eftir styrjöldina en breska stjómin neitaði að láta það af hendi. Drengurfrá Filippseyjum færaðalstigní Bretlandi Ársgamall filippeyskur dreng- ur að nafni Daniel hefur fengið aðalstign í Bretlandi og rétt til setu í lávarðadeild þingsins. Sá stutti er sonur Antony Moyni- han, lávarðar af Leed. Lávarðurinn var mikil] glaum- gosi og rak síðustu árin fyrir andlát sitt nú fyrir skömmu hómhús á Filippseyjum. Hann kvæntist fimm sinnum og gerði sonur hans af fjórða hjónaband- inu einnig kröfu til að erfa titil- inn. Hins vegar þótti læknis- fræðilega sannaö að hann væri ekki réttur sonur lávarðarins og var hann því gerður arilaus. Norðmennætla tilsefiveiðavið Grænland Norskir selveiðimenn ætla til veiða á ísnum undan Grænlands- ströndum í vor og auka veiðamar frá þvi sem verið hefur síðustu fjögur ár hvað sem hver segir. Norska sjávarútvegsráðuneytið hefur enn ekki tekið afstööu til hugtnyndar selveiðimannanna. Ráðagerðir selfangara hafa þeg- ar vakið upp andstöðu meðal nátt- úruvemdarsinna og hafa græn- friðungar lýst þvi yfir að ekki sé réttlætanlegt að hefja veiöamar nú. Einkum em menn ósáttir við yfiriýsingar selveiðimanna um að veiða nú einnig kópa. Þvinguðukonutil dauðadrykkju Fjórir bankamenn í Kína hafa verið reknir úr störfum sínum vegna þess að þeir neyddu unga samstarfskonu sína til að drekka áfengi þar til hún gaf upp öndina. Fólkið var statt í veislu þegar leikurinn hófst. Konati var látin drekka eina og hálfa flösku af sterku víni. Hún fékk áfengiseitrun og lést daginn eftir samkvæmið. Hinir seku hafa lofað að reisa henni minnisvarða á sinn kostnað. Þar skal á letrað að samstarfskona þeirra hafi lát- ist við skyldustörf. Þeir vom ailir reknir úr kommúnistaflokknum. Reuter og NTB ^MITSUBISHI Sérstakt tilboðsverð: Mitsubishi FZ-129 D15 farsími ásamt símtóli, tólfestingu, tólleiðslu (5 m), sleða, rafmagnsleiöslum, handfrjálsum hljóönema, loftneti og loftnetsleiðslum. VerÖ áöur 115.423,- VerÖ nú aðeins 89.900,- eða im fíl|oonema, lottneh og lottnetsleiósium. veró aður I I0.4A5,- 79m,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.