Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1992, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1992, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992. Fréttir Gey siíj ölmennur fundur opinberra starfsmanna á Noröurlandi: Ríkið ekki einungis erfið- ur heldur einnig ómerki- legur viðsemjandi - sagöi Páll HaUdórsson, formaöur BHMR Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; „Þeir mega vita þaö aö eitt höfum viö skilið. Viö höfum skihð aö nú þurfum viö á samstöðu að halda, nú þurfum viö aö standa saman,“ sagði Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, á sameiginlegum fundi opin- berra starfsmanna á Noröurlandi eystra sem haldinn var á Akureyri í Srradag. Fundurinn var geysifjöl- ennur, hann sóttu um 400 manns og salur Alþýðuhússins var troðfuU- ur. Ögmundur, Páll Halldórsson, formaður BHMR, og SvanhUdur ' Kaaber, formaður Kennarasam- bands íslands, sem voru frummæl- endur, lögðu öU áhersluna á að nú riði á að launafólk sýndi samstöðu gegn ríkisvaldinu. „Við ætlum að standa saman um velferðarkerfið, við ætlum að standa saman um rétt- indamál okkar, við ætlum að standa saman um að viðsemjandi okkar virði samningsréttinn að verðleikum og gangi til samninga undanhragða- laust,“ sagði Ögmundur Jónasson. Páll HaUdórsson sagði að BHMR hefði bitra reynslu af samningum við ríkið og það ekki að ástæðulausu. „Ríkið er ekki einungis erfiður, held- ur einnig ómerkilegur viðsemjandi sem hikar ekki við að svíkja eigin samninga. Þetta hefur aftur þýtt að fólk veigrar sér við að fara út í kostn- aðarsamar aðgerðir til að ná samn- ingum sem síðan er hægt að hirða með einu pennastriki," sagði PáU. „Því fer fjarri að við sem erum í blóma lífsins, tiltölulega hraust og með fulla starfsorku séum að vísa frá okkur ábyrgðinni á velferðarkerf- inu, en það er ófrávíkjanleg krafa að þeir sem eru sjúkir eða lasburða, þeir sem eru búnir að skUa þjóðfélag- inu vinnuframlagi sínu eða ekki byrjaðir á því, að þeim verði hlíft,“ sagði Svanhildur Kaaber. Hún sagði að gera yrði þá kröfu að þeir sem raka saman fé greiði sinn skerf. Þar átti hún m.a. við 900 miUjóna króna greiðslu hlutafjár Sameinaðra verk- taka tíl hluthafa. SvanhUdur sagði það hafa komið fram að skatttekjur af þessum 900 mUljónum færu nærri því aö jafna út niðurskurð á fjár- magni tU annaðhvort mennta- eða heilbrigðismála." Fundurinn samþykkti með lófataki ályktun þar sem sagði m.a. aö með efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinn- ar væri vegið að þeim sem ættu fullt í fangi með að lifa af launum sínum, en með engu væri skertur miUjóna- gróði tjármagnseigenda. Ýmsum ráðstöfunum ríkisstjómarinnar væri sérstaklega beint gegn opinber- um starfsmönnum. Fjöldauppsagnir væru boðaðar og stórfelldum sam- drætti hótað í velferðarkerfmu. „Op- inberir starfsmenn una ekki hótun- um ríkisstjómarinnar um skert starfsréttindi og fjöldauppsagnir. Opinberir starfsmenn kreíjast þess að ríkisstjórnin virði samningsrétt og sanngjarnar kröfur stéttarfélag- anna,“ sagði m.a. í ályktun fundar- ins. Andlát Birgir Ólafur Helgason, Ásgarði 10, Reykjavík, lést í Vífilsstaðaspítala að kvöldi miðvikudagsins 22. janúar. Málfríður Geragthy, 100711, Dahl Ave., Chicago City, Minnesota, lést 21. janúar. Halldór Karlsson, Arahólum 6, Reykjavík, lést á heimih sínu íimmtudaginn 23. janúar. Jarðarfarir Bárður Olgeirsson, VaUarbraut 2, Njarðvík, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn „25. janúar kl. 14. Tilkyimingar Breiðfirðingafélagið Félagsvist verður nk. sunnudag, kl. 14.30 í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allir vel- komnir. Húnvetningafélagið Félagsvist verður á laugardaginn kl. 14 í Húnabúð, Skeifúnni 17. Allir velkomnir. Félag eldri borgara Göngu-Hrólfar fara frá Risinu laugar- dagsmorgun 25. janúar. Dagur harmóni- kunnar er sunnudaginn 26. janúar kl. 15 í Tónabæ. Félag eldri borgara í Kópavogi Dansað í kvöld, fóstudagskvöld 24. janúar 1992, að Auðbrekku 25 frá kl. 21.00-0.30. Húsið öllum opið. Námssjóður Lögmannafélags íslands hefur gefið út ritið Erfðaréttur eftir Ár- mann Snævarr, fyrrverandi lagaprófess- or og hæstaréttardómara. Ritinu er skipt í 12 hluta, þar sem m.a. er fjaliað um ýmsar erfðaforsendur, réttarheimildir í erfðarétti, lögerfðir, óskipt bú, bréferfðir, dánargjafir og erfðasamninga, samninga um væntanlegan arf, erfðaafsöl og höfn- un arfs, fyrirframgreiddan arf, brottfall -erfðaréttar, lagatengsl og lagaskil, sér- reglur um erfð að ættaróðali og erfðaá- búö og sköttun á erfðafé. Fræðafélag laganema, Lögbergi, Háskóla Islands, mun annast sölu og dreifingu á ritinu næstu mánuði og er hægt að panta það í síma 21325. íslandsnefnd Letterstedtska sjóðsins hefur ákveðið að veita ferðastyrki á árinu 1992 til íslenskra fræði- og vísindamanna, sem ferðast til Norðurlanda á árinu í rarnisóknarskyni. Tekið skal fiam að ekki er um eiginlega námsferðastyrki að ræða heldur koma þeir einir til greina, sem lokið hafa námi en hyggja á frekari rannsóknir eða þekkingarleit á sínu sviði. Umsóknir skal senda til íslands- nefndar Letterstedtska sjóðsins c/o Þór Magnússon, pósthólf 1489,121 Reykjavík, fyrir febrúarlok 1992. Veitir hann einnig nánari upplýsinga. Ferðafélag íslands Sunnudagsferð 26. janúar kl. 11. Kjalar- nesgangan, önnur ferð: Úlfarsfell-Reykja- borg-Suðurreykir. Það er hægt að sleppa því að ganga á fellin ef vill. Verð 800 kr, • frítt fyrir böm með fullorðnum. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin (stansað við Mörkina 6, nýbyggingu Ferðafélagsins og víðar, á leiðinni). Vætta- og þorrablótsferð Ferðafélagsins helgina 1.-2. febrúar. Einstakt tækifæri til að kynnast vætta- slóðum í Mýrdal og undir Eyjafjöllum með Áma Bjömssyni og Þórði Tómas- syni í Skógum. Þorrablót Ferðafélagsins á laugardagskvöldið. Farið á nýjar slóðir. Gist í félagsheimilinu í Skógum. Brottior laugardag kl. 8. Pantið strax. Farmiðar og uppl. á skrifstofunni, Öldugötu 3, sím- ar 19533 og 11798. Munið Kjalames- gönguna, annan áfanga, á sunnudaginn kl. 11: Úlfarsfell-Reykjarborg-Suður- reykir. Heimkoma um kl. 15. Brottfór frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Ný og breytt ferðaáætlun (1992) er komin út. JC Kópavogur í Þinghól, Hamraborg 1, Kópavogi, fer fram í kvöld, 24. janúar 1992, kl. 20.30 keppni í annarri umferð mælsku- og rök- ræðukeppni JC íslands. Þar munu keppa JC Kópavogur og JC Súlur frá Akureyri. Umræðuefnið er „Tölvuleikir em böm- um óhollir". JC Kópavogur segir já, JC Súlur segir nei. Allir þeir sem áhuga hafa á málefninu, t.d. foreldrar og kenn- arar, em hjartanlega velkomnir. JC Kópavogur hvetur alla JC félaga til að mæta. Stjómin. Jólahlaðborðsgestir fá ferða- vinninga Um 3500 manns komu í jólahlaðborð á veitingastaðnum Lóninu á Hótel Loftleið- um á jólafóstunni og nú hefur verið dreg- ið úr nöfnum hlaðborðsgesta í glæsilegu ferðahappdrætti. Kristján B. Halldórsson hlaut Evrópuferð fyrir tvo að eigin vah með Flugleiðum og Kjartan I. Jónsson vann ferð fyrir tvo að eigin vah með inn- anlandsflugi Flugleiða. Á myndinni em ánægðir ferðavinningshafar Hótel Loft- leiða, Kjartan I. Jónsson og Kristján B. Hahdórsson. Með þeim á myndinni er Ehsabet Hilmarsdóttir, markaðsstjóri Flugleiðahótelanna. Málstofa í hjúkrunarfræði Dr. Guðrún Pétursdóttir lifeðhsfræðing- ur, dósent, flytur fyrirlesturinn: Þroskun taugakerfisins í fóstrum, hvernig rata taugar réttan veg? Guðrún mun fjalla um rannsóknir sínar á þroskun tagakerfisins og tengja þær annarri vitneskju um það hvernig taugar rata rétta leiö meðan taugakerfið er að myndast á fósturskeiði. í fyrirlestrinum mun Guðrún kynna þessar rannsóknir og fjaha almennt um helstu þætti sem tahð er að leiðbeini vax- andi taugafrumum í fóstrum. Málstofan verður haldin mánudaginn 27. janúar 1992 kl. 12.15 í stofu 6 á 1. hæð í Eir- bergi, Eiríksgötu 34. Málstofan er opin öllum. Landsliðið í guðfræði heldur fyrirlestra á Höfn í Hornfirði í febrúar og mars verður námskeið um kristna trú haldið á vegum Bjamanes- prestakalls í samvinnu viö Fræðsludeild kirkjunnar og Framhaldsskólann í A- SkaftafeUssýslu. Námskeiðið fer fram í safnaðarheimilinu á Höfn. Fyrirlesarar á námskeiðinu verða sr. Jónas Gíslason, prófessor og vígslubiskubiskup, og dr. Einar Sigurbjömsson, prófessor og settur forstöðumaður Fræðsludeildar kirkj- unnar, og sóknarpresturinn í Bjamanes- prestakalh, sr. Baldur Kristjánsson. Markmið námskeiðsins er að fræða um kristna trú, um innihald hennar og eðh. Skrárúng á námskeiðið fer fram h)á sókn- arpresti í síma 82025 og 81450. Myndgáta RAUTT yÓsj^jtAffÍT 0s7] y ||UMFERÐAR J Leikhús ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 11200 STÓRA SVIÐIÐ RÓMEÓ OG JÚLÍA ettir William Shakespeare íkvöldkl. 20.00. Uppselt. Sunnud. 26. jan. kl. 20.00. Laugard. 1. febr. kl. 20.00. Laugard. 8. febr. kl. 20.00. Fimmtud. 13. febr. kl. 20.00. eftir Paul Osborn - Laugard. 25. jan. kl. 20.00. Sunnud. 2. febr. kl. 20.00. Föstud. 7. febr. kl. 20.00. Föstud.14.febr.kl. 20.00. SÝNINGUM FER FÆKKANDI M.BUTTERFLY eftir David Henry Hwang íkvöld.kl. 20.00. Föstud. 31. jan. kl. 20.00. Fimmtud. 6. febr. kl. 20.00. Laugard. 15. febr. kl. 20.00. LITLA SVIÐIÐ KÆRA JELENA eftir Ljudmilu Razumovskaju íkvöld.kl. 20.30. Uppselt. UPPSELT Á NÆSTU 20 SÝNINGAR MIÐAR Á KÆRU JELENU SÆKIST VIKU FYRIR SÝNINGU, ELLA SELD- IRÚDRUM. ATHUGIÐ AÐ EKKIER UNNT AÐ HLEYPA GESTUM INN í SALINN EFTIR AÐ SÝNING HEFST. FYRSTA FRUMSÝNING ÁNÝJUSVIÐI í ÞJÓÐLEIKHÚSINU SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ ÉG HEITIÍSBJÖRG, ÉG ER LJÓN eftir Vigdisi Grímsdóttur Tónlist: Lárus Grimsson Lýsing: Björn B. Guömundsson Leikmynd og búningar: Elin Edda Árnadóttir Leikstjóri: Hávar Sigurjónsson Leikarar: Guðrún Gisladóttir, Bryndís Petra Bragadóttir, Ragnheiöur Steindórsdóttir, Jó- hann Sigurðarson, Þórarinn Eyfjörö, Pálmi Gestsson, Hjálmar Hjálmarsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Frumsýning i kvöld kl. 20.30. Uppselt. 2. sýn. sunnud. 26. jan. kl. 20.30. Uppselt. 3. sýn. föstud. 31. jan. kl. 20.30. 4. sýn. laugard. 1. febr. kl. 20.30. SÝNINGIN EREKKI VIÐ HÆFIBARNA. EKKIER UNNT AÐ HLEYPA GESTUM INN í SALINN EFTIR AÐ SÝNING HEFST. Miðasalan er opin frá kl. 13-18 alla daga nema mánudaga og fram aö sýningum sýningar- dagana. Auk þess er tekið á móti pöntunum i sima frá kl. 10 alla virka daga. GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA. GRÆNA LÍNAN 99-6160. Leikhúskjallarinn er opinn öll föstudags- og laugardagskvöld. Leikhúsveisla: Leikhúsmiði og þríréttuð máltíð öll sýningar- kvöld á stóra sviðinu. Boröpantanir í miðasölu. Leikhúskjallarinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.