Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1992, Blaðsíða 26
34
FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1992.
Afmæli
Gunnar Júlíus Júlíusson
Gunnar Júlíus Júlíusson sjómað-
ur, Njálsgötu 10, Reykjavík, er sjötíu
ogflmm áraídag.
Starfsferill
Gunnar fæddist í Stykkishólmi en
ólst upp hjá foreldrum sínum, fyrst
í Fagurey á Breiðafirði til fimm ára
aldurs og í Hrafnsey eftir það.
Gunnar fór kornungur til sjós og
stundaði sjómennsku á árabátum
og mótorbátum á unglingsárunum.
Foreldrar Gunnars fóru að Reyk-
hólum 1937 og var hann þá eftir í
Hrafnsey í eitt ár hjá Árna Ketil-
bjamarsyni sem þar tók við jörð-
inni. Gunnar var síðan vetrarmaður
að Keisbakka á Skógarströnd
1938-39, var vinnumaður að Mið-
húsum sumarið 1939 og vetrarmað-
ur á Reykhólum 1939-40. Hann var
síðan að Bæ og Króksfjarðamesi en
fór síðan suður til Reykjavíkur 1941
þar sem hann stundaði Bretavinnu
um skeið. Þá starfaði hann hjá Eyj-
ólfi Jóhannssyni við húsasmíði og
leikfangagerð.
Gunnar fór til Vestmannaeyja 1944
og stundaði þar sjómennsku á bát-
um en var á síldveiðum á sumrin.
Hann var síðan lengst af sjómaður.
Gunnar flutti að Halldórsstöðum á
Vatnsleysuströnd 1957 og var þar
með búskap og trilluútgerö í þijú
ár. Hann var síðan aftur til sjós í
Vestmannaeyjum en flutti til
Reykjavíkur og var þar á togara um
skeiö. Hann var síöan á bát frá
Grindavík í níu ár en hætti þá til
sjós 1980. Þá hóf Gunnar störf hjá
Olgerðinni Egill Skallagrímsson þar
sem hann starfaði í sjö ár er hann
hætti störfum.
Fjölskylda
Sambýhskona Gunnars var Guð-
laug Sveinsdóttir húsmóðir sem nú
er látin. Hún var dóttir Sveins Jóns-
sonar, b. á Leirum undir Eyjafjöll-
um.
Dóttir Gunnars og Sigríðar Skarp-
héðinsdóttur er Kristín Gunnars-
dóttir optiker, búsett á Seltjamar-
nesi, gjft Hannesi Ólafssyni kennara
ogeigaþautvosyni.
Dætur Gunnars og Guðlaugar
Sveinsdóttur em Guðrún, húsmóðir
á Þórshöfn, og á hún þrjú böm, og
Júlía, húsmóðir í Vogum, gift Helga
Jónssyni trésmiði og eiga þau fimm
börn.
Systkini Gunnars urðu sjö og
komust sex þeirra á legg. Hann er
nú einn á lifi systkinanna. Systkini
hans: Skúh, b. að Reykhólum; Sig-
urður Snædal, skrifstofumaöur í
Reykjavik; Friðjón sem dó í bam-
æsku; Friðjón Ingólfur, búfræði-
kandidat og kennari; Ágúst
Malmquist, trésmiður í Reykjavík;
Eva, húsmóðir í Reykjavík; Karl,
brytiíReykjavík.
Foreldrar Gunnars: Júlíus Sig-
urðsson, b. og sjómaður í Fagurey
og Hrafnsey, og kona hans, Guðrún
Marta Skúladóttir húsfreyja.
Gunnar Július Júlíusson.
Stefán Stefánsson
Stefán Stefánsson, húsasmiöur og
húsgagnasmiður, Holtsgötu 7, Hafn-
arfirði, er níræður í dag.
Starfsferill
Stefán fæddist á Kröggólfsstöðum
í Ölfushreppi en ólst upp á Fossi í
Grímsnesi. Ungur að ámm hóf hann
trésmíðanám en jafnframt því
stundaði hann bóklegt nám í kvöld-
skóla Emils Jónssonar er síðar varð
aiþingismaður og ráðherra. Stefán
starfaði síðan hjá hf. Dverg í sextíu
ársamfleytt.
Fjölskylda
Kona Stefáns er Þórunn ívarsdótt-
ir, f. 31.5.1904, húsmóðir. Hún er
dóttir ívars Jónssonar, f. 4.4.1870,
sjómanns í Hafnarfirði, og Ingveld-
ar Jónsdóttur, f. 22.1.1880, húsmóð-
ur.
Börn Stefáns og Þómnnar eru
Soffia Bryndís, f. 9.5.1930, fulltrúi í
Hafnarfirði, gift Gunnari Guð-
mundssyni, vélvirkja og kennara,
og eiga þau þijú böm; Stefán, f. 26.9.
1931, bifreiðarstjóri í Kópavogi,
kvæntur Guðrúnu L. Guðmunds-
dóttur húsmóður og eiga þau sex
böm; Óskar Karl, f. 27.11.1932, húsa-
smiður í Reykjavík, kvæntur Helgu
Haraldsdóttur og á hann tvö böm
með fyrri konu sinni, Ingibjörgu
Kristjánsdóttur; Jón Valgeir, f. 24.6.
1934, íþrótta- og danskennari í Dan-
mörku og á hann eitt bam; Ágúst,
f. 22.5.1937, vélstjóri í Hafnarfirði,
kvæntur Önnu M. Þórðardóttur og
eiga þau þrjú börn; Sigurður, f. 20.7.
1939, verkamaður, kvæntur Ragn-
heiði Sigurðardóttur og á hann sex
böm, þar af þrjú frá því fyrir hjóna-
band.
Systkini Stefáns: Guðmundur, f.
15.7.1898, verkamaður í Reykjavík,
nu látinn; Þorsteinn, f. 23.9.1899,
verkamaður í Reykjavík, nú látinn;
Guðrún, húsmóðir í Reykjavík, nú
látin; Sigrún, f. 24.12.1903, húsmóðir
í Reykjavík; Sigurður Ágúst, f. 28.8.
1905, búsettur í Danmörku; Karl
Óskar, f. 13.8.1906, nú látinn; Jó-
hanna Margrét, f. 24.11.1908, hús-
móðir í Njarðvík; Valgeröur, f. 19.11.
1910, húsmóðir í Reykjavík, nú látin;
Stefán Stefánsson.
Garðar sem dó á fyrsta ári; Þórann,
f. 9.2.1915, húsmóðir í Noregi.
Foreldrar Stefáns: Stefán Þor-
steinsson, f. 25.11.1864, d. 1920, b.
að Fossi í Grímsnesi, og kona hans,
Sigríður Guðmundsdóttir, f. 5.9.
1873, d. 1963, húsfreyja.
Stefán verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Níels Brimar Jónsson
Níels Brimar Jónsson, útibússtjóri
Landsbanka íslands á Höfn í Homa-
firði, til heimilis að Hafnarbraut 15,
Höfn í Homafirði, er fimmtugur í
dag.
Starfsferill
Níels fæddist í Brimnesi í Ár-
skógshreppi og ólst þar upp til sex
ára aldurs en flutti þá til Akureyrar
þar sem hann ólst upp eftir það.
Níels lauk gagnfræöaprófi frá Gagn-
fræðaskóla Akureyrar og hefur sótt
ýmis námskeið vegna starfs síns.
Níels hóf störf hjá Landsbanka
íslands á Akureyri 1961 og starfaði
þar til 1980 en flutti þá til Bíldudals
þar sem hann bjó um tveggja ára
skeið. Þá flutti Níels aftur til Akur-
eyrar en flutti síðan til Hafnar í
Homafirði sumarið 1985 þar sem
hann hefur búið síðan.
Fjölskylda
Níels kvæntist 10.9.1961 Hildi Sig-
ursteinsdóttur, f. 18.8.1940, skrif-
stofumanni á bæjarskrifstofunum á
Höfn. Hún er dóttir Sigursteins
Jónssonar og Þóra Kristjánsdóttur
en þau bjuggu á Grenivík í Suöur-
Þingeyjarsýslu.
Níels og Hildur eiga þrjú börn. Þau
eru Hanna Þórey, f. 18.11.1958, gift
Sveinbirni Orra Jóhannssyni og
eiga þau tvær dætur, Ingu Hrefnu
og Hildi Karen; Steinunn Elsa, f.
16.12.1962, gift Amari Árnasyni og
eiga þau eina dóttur, Nínu; Jón Við-
ar, f. 12.8.1968, kvæntur Huldu Ing-
ólfsdótturWaage.
Systkini Níelsar: Elsa Kristín,
María og Jóhanna Helga en látin em
Elsa, sem dó í bamæsku, og Jón
Maríus.
Foreldrar Níelsar: Jón Kr. Níels-
son, f. 13.1.1898, d. 30.3.1980, út-
Niels Brimar Jónsson.
vegsb. á Árskógsströnd og síðar
kaupmaður á Akureyri, og Petrea
Jónsdóttir, f. 16.10.1904, húsmóðir.
Níels verður að heiman á afmæhs-
daginn.
Bjöm Guðmundsson
Björn Guðmundsson matvæla-
fræðingur, Teigagerði 2, Reykjavík,
erfertugurídag.
Starfsferill
Bjöm er fæddur á Akureyri en
ólst upp í Reykjavík. Hann gekk í
Langholtsskóla og var einn vetur í
Vogaskóla en þaðan lauk hann
landsprófi.
Bjöm varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1972 og út-
skrifaðist sem matvælafræðingur
frá Háskóla íslands 1980.
Hann hefur verið starfsmaður
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar-
insfrál979.
Fjölskylda
Bjöm kvæntist5.1.1973 Rebekku
Sigrúnu Guðjónsdóttiu:, f. 23.9.1952,
sjúkraþjálfara. Foreldrar hennar
em Guðjón Ó. Ásgrímsson, skrif-
stofustjóri hjá Ræsi hfi, og Svanlaug
Magnúsdóttir húsmóðir en þau búa
íReykjavík.
Börn Bjöms og Rebekku: Auður,
f. 2.10.1974, nemi í Verslunarskólan-
um; Unnur, f. 17.4.1979; Guðmund-
ur, f. 11.3.1983.
Systkini Björns: Borghildur, f.
20.6.1949, arkitekt, maki Roger
Stanton, arkitekt, þau búa í Birm-
ingham á Englandi og eiga tvær
dætur, tvíburana Sigrúnu og Ástu;
Rannveig, f. 2.10.1951, starfsmaður
á endurskoðunarskrifstofu, maki
Bjarni ólafsson, starfsmaður hjá
Jötni, þau búa í Reykjavík og eiga
einn son, Guðmund; Guðrún, f. 4.4.
1956, arkitekt, hún býr í R.; Ólafur,
f. 11.4.1958, doktor í jarðeðlisfræði,
maki Bryndís Birnir, þau búa í R.
og eiga tvo syni, Einar og Guðlaug.
Foreldrar Bjöms: Guðmundur
Bjömsson,f. 2.11.1925, d. 12.12.1988,
verkfræðingur, og Guðlaug Ólafs-
dóttir, f. 31.1.1924, húsmóðir. Þau
bjuggu á Akureyri og í Reykjavík,
lengst af á síðamefnda staðnum og
þar býr Guðlaug enn.
Ætt
Guðmundur er bróðir Gunnars
verkfræðings. Guðmundur er sonur
Björns, kaupfélagsstjóra og alþing-
ismanns á Kópaskeri, Kristjánsson-
ar, b. á Víkingavatni, bróður Óla,
foöur Árna, sagnfræðings og blaöa-
manns, og afa Geirs Kristjánssonar
rithöfundar. Annar bróðir Kristjáns
var Árni, afi Árna Kristjánssonar
píanóleikara, fóður Kristjáns
menntaskólakennara og bók-
menntafræðings. Þriðji bróðir
Kristjáns var Guðmundur, afi Árna
Bjömssonar tónskálds. Kristján var
sonur Krisljáns, b. á Víkingavatni,
Ámasonar, umboðsmanns í Arnar-
nesi, Þórðarsonar, b. í Kjarna og
ættfoður Kjarnaættarinnar, Páls-
sonar, langafa Stefaníu, móður Vil-
hjálms Hjálmarssonar, fyrrv. ráð-
herra, og langafa Hahdórs alþingis-
manns, föður Ragnars, stjómar-
formanns ísals. Móðir Björns kaup-
félagsstjóra var Jónína, systir
Bjöms, fóður Þórarins skólameist-
ara. Jónína var dóttir Þórarins, b. á
Víkingavatni, bróður Ólafar,
langömmu Guðmundar Benedikts-
sonar i forsætisráðuneytinu og
Bjama Benediktssonar forsætisráð-
herra, föður Björns alþingismanns.
Þórarinn var sonur Björns, b. á Vík-
ingavatni, bróður Þórarins, afa Jóns
Sveinssonar, Nonna. Bjöm var son-
ur Þórarins, b. á Víkingavatni, Páls-
sonar.
Móðir Guðmundar verkfræðings
var Rannveig Gunnarsdóttir, b. í
Skógum í Öxarfirði, Ámasonar, og
Kristveigar Björnsdóttur.
Guðlaug er dóttir Ólafs Hjalta,
útgerðarmanns á Mjóeyri í Eski-
firði, Sveinssonar, b. í Ásknesi, Ól-
afssonar, b. í Firði í Mjóafirði, Guð-
mundssonar. Móðir Sveins var
Katrín Sveinsdóttir, hreppstjóra í
Firöi í Seyðisfiröi, Jónssonar. Móðir
Ólafs Hjalta var Kristbjörg Sigurð-
ardóttir, b. í Fjósatungu í Fnjóska-
dal, Kristjánssonar, b. á Illugastöð-
um. Móðir Kristbjargar var Guðrún
Jónasdóttir á Hvassafelh Benedikts-
sonar.
Móðir Guðlaugar var Guðrún
Björg, systir Fannýjar Kristínar,
móður Ingvars Gíslasonar, fyrrv.
alþingismanns. Guðrún Björg var
dóttir Ingvars, alþingismanns í Nesi
á Norðfirði, Pálmasonar, b. á Litla-
Búrfehi og Ysta-Gih í Langadal, Sig-
urðssonar, b. á Grand í Svínadal,
Guðmundssonar. Móðir Guðrúnar
Bjargar var Margrét Guðmundína
Finnsdóttir, b. í Tungu í Fáskrúðs-
firði, Guðmundssonar, og Önnu
Margrétar Guðmundsdóttur.
80 ára 70 ára húsgagna- smíöameistari.
Guðvin Gunnlaugsson, Jónas Jónsson, Vorsabæ9,
Vanabyggð 9, Akureyri. Stakkholti 3, Reykjavík. KeyKjaviK. Konahanser JónaBjörns- dóttir. Þautakaámóti
75 ára 60 ára gestumídagí Skipholti70,
Teitur SveinsHon,
Eyrargötu, Ásabergi, Eyrarbakka.
Margrét Pálsdóttir,
Hátúni 10, Vestmannaeyjum.
18-20.
50 ára_________________________ 40ára____________________________
Gísli Sigurkarlsson, Benoný Þórhallsson,
Kögurseh34,Reykjavík; Staðarhrauníl3,Grindavík.
Björn Árdal, Kristin Sigríður Færseth,
Holtaseh 46, Reykjavík. Tómasarhaga 49, Reykjavík.
Ingibjörg Sveinsdóttir, Gunnar Geir Gunnarsson,
Kársnesbraut 33, Kópavogi. Brávallagötu 50, Reykjavik.
Jóh. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Lise Heiðarsson,
SilfUrbraut 29, Höfh í Homafirði. Einholti 4a, Akureyri.
Hjördís Sigurðardóttir, Eyjólfur Óskar Eyjólfsson,
Byggðarholti le, Mosfellsbæ. Hraunbæ 194, Reykjavík.