Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1992, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1992.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Mánagata 11, hluti, þingl. eig. Harald-
ur Jóhannsson, fer fram á eigninni
sjálfri fimmtud. 6. febrúar ’92 kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru ÞóróMur Kr.
Beck hrl., Gjaldheimtan í Reykjavík
og Ammundur Backman hrl.
Mjölnisholt 14, 2. hæð, þingl. eig.
Magnús Vigfússon, fer fram á eign-
iimi sjálfri fimmtud. 6. febrúar ’92 kl.
15.00. Uppboðsbeiðendur eru Stein-
grímur Eiríksson hdl. og Gjaldheimt-
an í Reykjavík.
Neðstaleiti 4, 01-02, þingl. eig. Edda
Valborg Scheving, fer fram á eigninni
sjálfri fimmtud. 6. febrúar ’92 kl. 16.30.
Uppboðsbeiðendur eru Ásgeir Thor-
oddsen hrl., Veðdeild Landsbanka ís-
lands, Eggert B. Ólafsson hdl., Gjald-
heimtan í Reykjavík, Ásgeir Bjöms-
son hdl. og Fjárheimtan hf.
Skipholt 34, 2ja. herb. íb. á 2. hæð,
þingl. eig. Bjami Björgvinsso, Heimir
Hilmarsson og Brynjar Bjamason, fer
fram á eigninni sjálfri fimmtud. 6. fe-
brúar ’92 kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur
em Veðdeild Landsbanka íslands,
Ingvar Bjömsson hdl., Jóhannes Al-
bert Sævarsson hdl., Ásgeir Thorodds-
en hrl., Jón Egilsson hdl., Gjaldheimt-
an í Reykjavík, Guðmundur Péturs-
son hdl., Sigurgeir Halldórsson, Ólaf-
ur Axelsson hrl. og Skúh Bjamason
hdl._____________________________
Stuðlasel 11, þingl. eig. Þorlákur Her-
mannsson, fer fram á eigninni sjálfri
fimmtud. 6. febrúar ’92 kl. 17.00. Upp-
boðsbeiðendur em Gjaldheimtan í
Reykjavík, tollstjórinn í Reykjavík,
Ásgeir Þór Ámason hdl. og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Vesturberg 26, 024)4, þingl. eig. Elías
Baldursson, fer fram á eigninni sjálfri
fimmtud. 6. febrúar ’92 kl. 18.00. Upp-
boðsbeiðendur em Ámi Pálsson hdl.,
Fjárheimtan hf., Róbert Ámi Hreið-
arsson hdl. og Bjami Ásgeirsson hdl.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK
Fra Islands Næringsliv e. Bjarna frá Vogi, merkar sögul. heimildir,
Stjórnarskrá Sovétríkjanna (með mynd Stalíns), Lögmál Parkinsons,
þýðing Vilmundar landlæknis, Pési um bækur og bókamenn, tölus.
útg. Jóh. Gunnars Ólafssonar, Vesturheimsprent: Vestur Canada,
1907 og Manitoba, Höfuðból Vestur-íslendinga, 1903, Rauða bókin
um andlegt líf íslenzkra stúdenta í austantjaldsríkjum fyrrum, áritað
eintak af Davíð Oddssyni, Flöjtespilleren e. Halldór Laxness, áritað
eintak frá skáldinu, Líf og list 1 -3. árg., kplt., ýmsar bækur á ísl.
og erl. málum um Raspútin, Lýsing Vcstmannaeyjasóknar e. Brynj-
úlf Jónsson, 200 eint. prcntuð, Málshættir Finns Jónssonar, 1920,
Yoga e. Hohlenberg, þýðing Þórbergs og sr. Ingimars, Amerísk ráð
e. Margréti Jónsdóttur, Vestfirzkar ættir, Arnardalsætt 1.-4. bindi,
Sóknalýsingar Vestíjarða 1-2, Skýrslur um landshagi á íslandi, frá
hendi Jóns forseta Sigurðssonar 1.-5. bindi, Menn og menntir 1-4,
lúxusskinnband og venjulegt forlagsband einnig, Hver er maóurinn
1-2 e. Brynleif Tobíasson, Deildartunguætt 1-2 e. Hjalta Pálsson,
Rauðir pcnnar 1-4, Nýtt kirkjublað 1906-1916, skb., Verði Ijós 1898-
1904, skb., Brautin 1944-1952, skb., Prestafélagsritið 1919-1936,
skinnband, Straumar 1927-1930, skb., Fríkirkjan 'I jaldbúðin 1-10,
skb., Kirkjutíðindi 1878-1879, skb., Kirkjublað 1933-1934, skb., For-
lagaspár Kírós, Tímaritið Dagrenning 1-68, rit Jónasar Guðmunds-
sonar, Reykjavík 1786-1936 e. Jón biskup Helgason, Saga Reykjavík-
ur 1-2 e. Klemens landritara, Saga Stokkseyrar 1-2 e. Guðna Jóns-
son, Austantórur 1-3 e. Jón Pálsson, Landsyfirdómar 1802-1867,
1.-9. bindi, glæsilegt handb. skb., Gróusögur, íslenzk fyndni e. Helga
Kristinsson, skb., KFUM tímarit, 1924-1925, skb., Frjálst verkafólk
á tslandi e. prófessor Guðbrand Jónsson, Encl. Britannica 1-24 (1966),
Söguþættir Gísla Konráðssonar, skb., Viðeyjarbiblían 1839, Reykjavík-
urbiblian 1859, Saga Natans og Rósu e. Brynjólf frá Minna-Núpi,
skb., Breve til C.C. Rafn, útg. Benedikts Gröndals, Saga Oddastaðar
e. Vigfús Guðmundsson, Fjallamenn e. Guðmund frá Miðdal, Bylt-
ingin á Spáni e. Þórhall Þorgilsson, Bæjatal á íslandi 1915, Ævi
Adolfs Hitlers, Islenzkir hestar og ferðamenn e. Guðm. Hávarðarson,
Annáll 19du aldar e. Pjetur í Grímsey, Matreiðslubók Fjólu Stefáns,
1916, stök blöð úr Veiðimanninum frá fyrri árum, Andvökur 1-4 e.
Stephan G. Stephansson, Det Russiske Eventyr (Gerska ævintýrið)
e. Halldór Laxness, Ljóðmæli og lcikrit Páls Árdals, Tíminn og vatn-
ið e. Stein Steinarr, frumútg., tölus. og árituð af skáldinu, Bréf til
Láru e. Þórberg Þórðarson, frumútg., tölusett og árituð af skáldinu,
Þröskuldur hússins er þjöl e. Arnfríði Jónatansdóttur, Sjálfstætt fólk
1-2 e. Halldór Laxness, frumútg., Kynlegar ástríður, fyrsta bók frá
hendi Þórbergs Þórðarsonar, frumútg., Vísur Þuru í Garði, Leikfóng
leiðans e. Guðberg verðlaunaskáld, Útlendingurinn e. Camus, The
Diarics of Franz Kafka, Wedding Preparations e. sama, The Beauty
of Britain e. Priestley, thc Powcr Within e. Alexander Cannon, allt
frumútgáfur og ótal, ótal margt forvitnilegt og áhugavert nýkomið.
Við seljum bækur frá upphafi prentsögunnar til vorra tíma. Verslunin
er vandlega deildaskipt cftir cfni og innihaldi og vel aðgcngileg öllum
áhugamönnum og konum.
Við scljum einnig gömul skjöl og bréf, hlutabréf, gömul póstkort og Ijós-
myndir og eldri myndverk íslcnsk af öllu tagi. Einnig ýmsa skcmmti-
lega muni, Ijósmynda- og kvikmyndavélar, gamla rakblaðabrýnara,
kcrtastjaka, ýmsan Ijósabúnað, gamla ramma og ótal margt annað frá
fyrri tíð.
Við kaupum bækur af cldra og yngra tagi af einstaklingum og dánarbú-
um. Metum bækur fyrir skiptabú og tryggingafélög.
Gefum rcglulega út bóksöluskrár og scndum þær ókeypis til allra sem
þcss óska utan höfuðborgarsvæðis.
Vinsamlega hringið, skrífíð - eða lítið inn.
Bókavarðan
- Bækur á öllum aldri -
Hafnarstræti 4 - sími 29720
Utlönd_______________________
Fjöldamorð meðal víetnamskra flóttamanna 1 Hong Kong:
Brenndu átján
menn til bana
- uppþot varð í flóttamannabúðum vegna deilna um baðhús
Óeirðalögreglan í Hong Kong barðist klukkustundum saman við víet-
nömsku flóttamennina. Átök blossuðu upp í búðum þeirra vegna deilna
um aðgang að baði. Vitað er að 18 menn brunnu til bana og i það minnsta
119 særðust, þar af margir alvarlega. Simamynd Reuter
í þaö minnsta 18 víetnamskir flótta-
menn í Hong Kong brunnu til bana
í baöhúsi þegar hópar manna deildu
um hverjr hefðu rétt til að nota það.
Eitt barn er meðal hinna látnu og
ekki færri en 119 særðust.
Óeirðalögreglan yar kölluð út til
að stilla til friðar. Átök stóðu í fulla
fjóra tíma í flóttamannabúðunum
áöur en lögreglunni tókst að skilja
fylkingamar að. Flóttamennimir
notuðu járnkylfur og grjót í barátt-
unni um baðið og særðust margir í
slagsmálunum.
Fólkið hefur sumt verið í búðunum
frá árinu 1975 og er ástandið hörmu-
legt að sögn kunnugra. Fólkinu hefur
ekki verið heimilað að setjast að á
Vesturlöndum eins og það vonaðist
til þegar það yfirgaf heimaiandið.
í umræddum flóttamannabúðum
búa 8900 manns viö þröngan kost.
Aðeins hluti fólkins hefur aðgang að
heitu vatni og hefur það vakið
óánægju meðal þeirra sem verða að
láta sér kalt vatn nægja.
Eldar vom kveiktir þegar átökin
stóðu sem hæst. Um tíma mátti sjá
reykjarsúlur stíga upp af búðunum.
Þessir eldar urðu mannskæðastir
þótt vera kunni að einhverjir hafi
látist vegna harsmíða.
Sjúkrahús í nágrenninu fylltist af
særðu fólki og sögðu sjónarvottar að
ástandið þar væri hörmulegt. Hel-
sært fólk varð að liggja á gólfunum
með lélegar umbúðir um sár sín.
Átökin brutust út seint í gær-
kvöldi. Það jók á skelfingu borgarbúa
í Hong Kong að sjónvarpað var beint
frá vigvellinum og var ástandið því
líkast sem styrjöld hefði brotist út.
Undanfarna mánuði hafa yfirvöld
í Hong Kong sent flóttafólk frá Víet-
nam heim og hafa Bretar stutt þá
ákvörðun. Þetta hefur orðið til að
auka enn á óróann meðal flótta-
mannanna sem óttast að verða næst-
ir til að fara nauðugir heim.
Reuter
Hermenn í Venesúela ráöast gegn forsetanum:
Valdaránstilraun
brotin á bak aftur
Fallhlífarhermenn í Venesúela
gerðu tilraun til að steypa stjórn
landsins snemma í morgun en valda-
ránið var brotiö á bak aftur, sagði
Carlos Andres Perez, forseti Venesú-
ela.
„Við náðum fullum tökum á undir-
róðurshreyfingunni gegn ríkis-
stjóminni," sagði Perez í útvarps- og
sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar.
Sjónarvottar sögðu að uppreisnar-
menn innan hersins hefðu samtímis
ráðist á La Casona, forsetahöllina í
austurhluta Caracas, og Miraflores,
skrifstofur forsetaembættisins í mið-
borg Caracas, þar sem forsetinn
venjuiega sefur, laust eftir klukkan
fjögur í morgun að íslenskum tíma.
Heyra mátti skothríð úr þungum
sjálfvirkum byssum og sprengingar
um alla borgina í að minnsta kosti
níutíu mínútur eftir að árásin byij-
aði. Ekki er með vissu vitað hvar
forsetinn er niðurkominn.
Lögreglan sagði að nokkrir liösfor-
ingjar hefðu særst í skothriðinni en
ekki væri vitað með vissu hve marg-
ir.
Perez sagði að herfylki failhlífar-
hermanna sem hefur bækistöðvar
sínar um 100 kílómetra fyrir vestan
Caracas hefði staðið fyrir valda-
ránstilrauninni. Hann hvatti her-
menn landsins til að fara í búðir sín-
ar og vera viö öllu búna.
Forsetinn bað landsmenn að hafa
trú á lýðræöinu og hvatti alla til að
styðja við bak ríkisstjórnarinnar og
sýna stillingu.
Eftir ræðu Perezar sá fréttamaður
Reuters hins vegar skriödreka við
inngang La Casona forsetahallarinn-
Hermenn gerðu misheppnaða til-
raun til að steypa Carlos Andres
Perez, forseta Venesúela, af stóli í
morgun. Simamynd Reuter
ar og enn mátti heyra skothríð þar í
kring.
Lögreglan sagöi að uppreisnar-
menn hefðu skotið á sig með sjálf-
virkum vopnum og sprengjuvörpum
að því er haldið var.
„Viö komumst bara ekki inn af því
aö þeir eru að skjóta á okkur,“ sagði
einn hðsforingi.
Heiðursvörðum forsetans tókst
ekki að komast inn í Miraflores-
byggingarnar að því er lögreglan
sagði. Uppreisnarmenn skutu á veg-
farendur og bíla sem óku hjá.
Einn hermaður, sem barðist gegn
uppreisnarmönnunum í Miraflores,
sagði ljósmyndara Reuters að allur
herinn stæði ekki að baki valda-
ránstilrauninni og að önnur herfylki
væru að reyna að vemda forsetann.
Eduardo Fernandez, leiötogi
stjórnarandstöðuflokksins COPEI,
fordæmdi valdaránstilraunina í
sjónvarpsávarpi og hvatti þjóðina til
að hafna henni.
Orðrómur um valdarán hefur verið
á kreiki frá því Perez tók við völdum
í febrúar 1989 vegna deilna um
harkalegar aðhaldsaðgerðir hans í
efnahagsmálum. Vinsaeldir hans
hafa minnkað mikið á undanfornum
mánuðum. Forsetinn var nýkominn
heim úr ferðalagi til Evrópu þegar
valdaránstilraunin var gerð.
Reuter