Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Page 1
Atvinnumöguleikar tölvumenntaös fólks virðast ennþá góðir. Hvernig þeir verða þegar þessir krakkar koma út á
atvinnumarkaðinn er ómögulegt að segja til um. DV-mynd GVA
Tölvumenntad fólk:
Horfur í
atvinnumálum
Stöðugt streymir ungt, tölvu-
menntað fólk út á viimumarkaðinn
og atvinnumöguleikarnir virðast
alltaf jafngóðir.
Síðasti áratugur var áratugur
tölvuvæðingar á islandi. Mörg fyrir-
tæki og stofnanir fengu þá sína fyrstu
tölvu og þurftu því á fólki með tölvu-
kunnáttu að halda. Vegna þessa
skapaðist mikil eftirspurn eftir fólki
sem kunni á tölvur og skipti þá litlu
hvort sú kunnátta var vegna skóla-
göngu eða vegna reynslu og grúsks.
Ekki voru einungis góðir atvinnu-
möguleikar fyrir tölviunenntað fólk
heldur fengu þeir einnig há laun.
Þetta hvatti nýútskrifaða stúdenta til
þess að fara í háskólanám í tölvunar-
fræðum. Á árinu 1985 voru 125
manns innritaðir í tölvunarfræði-
skor við Verk- og raunvísindadeild
Háskóla íslands. Sl. ár voru þeir 14.
Innritun í
Háskóla íslands
Innritun í tölvunarfræði hefur
minnkað til muna frá árunum 1984-
1986 en þau ár voru yfir 100 manns
skráðir. Tölur um skráningu segja
ekki allt því að sögn Sigurðar Frið-
þjófssonar á skrifstofu Verk- og
raunvísindastofminar halda einung-
is um 40% af þeim sem innritast
áfram námi á öðru ári. Frá árinu
1980 hafa 253 útskrifast með BS-
gráðu í tölvunarfræðum frá HÍ. Áriö
1989 útskrifuðust 52, árið 1990 voru
þeir 31 og 14 árið 1991.
Tölvuháskóli Verzl-
unarskóla íslands
Þessi fækkun tölvunarfræðinema
við HÍ má rekja til stofnunar Tölvu-
skóla Verzlunarskóla íslands (TVÍ)
sem tók til starfa í janúar 1988.
Markmið skólans ,er að útskrifa kerf-
isfræðinga sem geta unnið við öll
stig hugbúnaðargerðar, skipulagt og
séð um tölvuvæðingu hjá fyrirtækj-
um og annast kennslu og þjálfun
starfsfólks.
Nikuiás Hall, skólastjóri TVÍ, sagði
muninn á tölvunarfræði HÍ og TVÍ
felast í því að TVÍ keppi að því að
undirbúa nemendur til starfa í at-
vinnulífinu á meðan HÍ leggi meiri
áherslu á fræðfiega undirstöðu sem
nýtist sem undirbúningur fyrir
framhaldsnám. Um 100 nemendur
hafa verið teknir inn á ári undanfar-
in ár en um 50% hætta á fyrstu önn.
Níutíu og níu manns hafa útskrifast
sem kerfisfræðingar frá TVI frá
stofnun og sagði Nikulás að vel hefði
gengið fyrir þá að fá vinnu.
Námsmenn erlendis
Einnig eru íslendingar í tölvunar-
fræöinámi erlendis. Var haft sam-
band við Lánasjóð íslenskra náms-
manna. í samtaÚ við Elínu Pálsdótt-
ur hjá LÍN kom fram að frá og með
haustinu 1986 var ákveðið að lána
ekki fyrir skólagjöldum til náms sem
hægt er að stunda á íslandi. Því fá
tölvunarfræðinemar ekki lán fyrir
skólagjöldum fyrr en að BS-prófi
loknu. Að sögn Elínar eru yfir 30
manns í tölvunarfræðum erlendis,
þar af um 19 í framhaldsnámi. Lang-
flestir eru í Bandaríkjunum.
Til þess að forvitnast um ástandið
í atvinnumálum tölvumenntaðs
fólks var haft samband við Þóri Þor-
varðarson hjá ráðningarþjónustu
Hagvangs hf. Hann sagði að vissu-
lega hefði atvinnumarkaðurinn
þrengst miðað við þaö sem hann var
fyrir 4-5 árum þegar tölvumenntað
fólk stillti sér upp og lét bjóða í sig.
Þá var hka ekki spurt um menntun
heldur um kunnáttu og skipti þá litlu
hvort hún var fengin í skóla eða með
starfsreynslu. Engu að síður væru
atvinnumöguleikamir nú góðir og
hann sagðist ekki vita um neina at-
vinnulausa tölvunarfræðinga. Það
væri þó spurning hvað gerðist nú
þegar tölvufyrirtækin, eins og IBM,
væru að segja upp fólki. Þórir sagði
einnig að fyrirtæki væru nú mark-
vissari í leitinni að tölvumenntuðu
fólki og geröu kröfu um kunnáttu á
ákveðnum sviðum, t.d. um að um-
sækjehdur heíðu sérþekkingu á sér-
stökum tölvum, stýrikerfum og for-
ritunarmálum.
-ig
Macintosh tölvur
• 40% allra tölvudiska í heiminum
eru framleiddir af Seagate
■
-
• Viö seljum Seagate
tölvudiska fyrir Macintosh
í stæröum frá 84 MB upp í 1000 MB
• Viö bjóöum verö sem ekki
hafa þekkst áöur
25% kynningarafslátttir
ST1239N 205 MB
63.114
Staðgreitt m/vsk
SKIPHOLT117-105 REYKJAVIK
SIMI: 91- 627333 ■ FAX: 91- 628622
aco
Traust og örugg þjónusta í 15 ár