Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Síða 4
20
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992.
Tölvur
Ritvinnslukerfi
fyrir Windows
DOS-útgáfan af WordPerfect er mest
notaða ritvinnslukerfi heims. En nú
er að verða breyting á því notendur
þess eru hver á fætur öðrum að fara
yfir í Windows. Spurningin er hvort
Microsoft Word eða WordPerfect
verður þá fyrir valinu.
Þau ritvinnslukerfi, sem hafa verið
hvað vinsælust hér á landi og víðar,
eru Microsoft Word og WordPerfect
frá WordPerfect Corporation. Þessi
kerfi voru upprunalega hönnuð fyrir
DOS og hafa veriö notuð í því um-
hveríi í fjölda ára. Word var fyrsta
ritvinnslukerfið sem gert var fyrir
Windows, enda bæði frá sama fyrir-
tækinu. Nú nýlega kom út útgáfa 2.0
af Word fyrir Windows og í lok síð-
asta árs var WordPerfect 5.1 fyrir
Windows markaðssett.
Úr DOS í Windows
Um 7 milljónir manna notuðu
DOS-útgáfima af WordPerfect sem
hefur verið þýdd á fjölmörg tungu-
mál. Á meðal þeirra ríkti mikil eftir-
vænting eftir Windows-útgáfunni
sem byrjað var að selja í Bandaríkj-
unum í nóvember sl. Menn höfðu
verið að velta fyrir sér hvaða rit-
vinnslukerfi hentaði þeim best í
Windows-umhverfinu. Þessar
vangaveltur eru enn til staðar hjá
íslenskum notendum WordPerfect
fyrir DOS. Enska Windows-útgáfan
er komin út hérlendis en unnið er
aö þýðingu hennar yfir á íslensku.
Microsoft og WordPerfect Corp.
hafa lagt sig fram við að auðvelda
þessum 7 milljónum DOS Word-
Perfect-notenda skiptin. í Word er
hægt að vinna með skjöl sem gerð
voru í WP og einnig eru í svokallaðri
WordPerfect-hjálp veittar leiðbein-
ingar um hvernig ákveðin WP-skip-
un er í Word. í hjálpinni er hægt að
slá inn Shift-F7 (sem er prentskipun
í DOS WP) og þá eru veittar upplýs-
ingar um hvemig prenta má í Word.
1 Bandaríkjunum selur Microsoft
Word á sérstöku afsláttarverði, eða
$129, fyrir DOS WordPerfect-notend-
ur. WordPerfect Corp. býður líka
lægra verð fyrir þá er vilja skipta úr
Word fyrir Windows, eða $150. Upp-
færslan úr DOS yfir í WordPerfect
fyrir Windows kostar svo $99. Skjöl,
sem útbúin eru með DOS-útgáfu
WordPerfect 5.1, eru samhæfð skjöl-
um, útbúnum með Windows-útgáf-
unni. Einnig geta DOS-notendur
WordPerfect haldið áfram að nota
lyklaraðimar sem sem þeir þekkja
svo vel, þ.e. Shift, Alt, Ctrl, ásamt
F1 til F10.
Aukinn
sveigjanleiki
Ritvinnslukerfin Word og Word-
Perfect fyrir Windows eru orðin
ótrúlega fullkomin og sveigjanleg.
Með þeim er hægt að gera ýmislegt
sem maður taldi ekki í verkahring
ritvinnslukerfa að gera. Til dæmis
er í Word hægt að útbúa allar tegund-
ir grafa, þar á meðal þrívíddargröf.
í báðum kerfum hafa notendur
möguleika á að aðlaga kerfin eigin
óskum með svokallaðri hnappastiku
(W:toolbar, WP:button bar) þvert yfir
skjáinn þar sem á er raðað hnöppum
fyrir algengustu skipanir. Hægt er
að breyta hnappastikunni og setja
inn þær skipanir er hver og einn
notar mest. Hægt er að eiga margar
mismunandi hnappastikur. Þannig
má ímynda sér eina hnappastiku fyr-
ir töflugerð og aðra fyrir bréf.
Bæði hafa ritvinnslukerfin stiku
og leturborða þar sem hægt er að
komast í skipanir er varða útlit
skjalsins, t.d. leturgerðir og -stærðir,
útjöfnun (hægri, miðjun o.s.frv.),
stílbrigði (feitletrun, skáritun
o.s.frv.), línubil og dálkastilli. Bæði
hafa þau jöfnuritþór sem auðveldar
notkun stærðfræðitákna.
Word eða
WordPerfect?
Að mjög miklu leyti er hægt að
gera sömu hlutina í Word og Word-
Perfect. Munurinn felst í því hvemig
hlutirnir eru gerðir. Þó eru ýmsar
aðgeröir sem annað hefur en hitt
ekki. Má þar nefna að Word leyfir
tengingar á milli skjala, svokallaða
OLE-vinnslu (Object Linking and
Embedding). Má hugsa sér að staðlað
bréf þurfi að innihalda tölur sem
útreiknaðar hafa verið í töflureikn-
inum EXCEL. Þessar tölur eru upp-
færðar reglulega og þurfa nýjustu
tölur ávallt að vera í bréfinu. í þessu
tilviki er tilvalið að setja tengsl á
milli þessara skjala þannig aö um
leið og nýjar niðurstöður fást í EX-
CEL flytjast þær sjálfkrafa yfir í bréf-
ið. Sams konar tengingar eru mögu-
legar við gröf og teikningar.
Meö Word fylgja ýmis lítil sérhæfð
forrit sem hægt er að nota úr val-
myndum forritsins. Eitt af þeim er
Graph en með því er hægt að gera
allar tegundir viðskiptagrafa, þar á
meðal þrívíddargröf. Annað slíkt for-
rit er WordArt en með því er hægt
að teygja á, snúa og setja texta upp
á rönd. Með Draw má m.a. teikna
kassa og hringi. Stefnan hjá Micro-
soft er aö hægt verði að nota þessi
sjálfstæðu forrit frá öllum Microsoft-
forritum sem gerð eru fyrir
Windows. í Word er nú hægt að
draga textáblokkir og grafik með
músinni svo ekki þarf ávallt að nota
Cut og Paste.
Skráastjóri WordPerfect er mjög
fullkominn og auðveldar hann alla
skjalavörslu. Með honum má gefa
skráasafni nýtt nafn. Til dæmis væri
hægt að hugsa sér að í stað langrar
tilvísunar, eins og C:/win3/win-
word/bref, væri einungis notað Bréf-
in mín. Einnig hefur WordPerfect
íslenskt orðasafn til leitar og leiðrétt-
ingar á stafsetningarvillum og ís-
lensk útgáfa af WordPerfect er vænt-
anleg með vorinu. í kerfinu er hægt
að hafa níu skrár opnar í einu en þær
voru einungis tvær í DOS.
í janúarblaði breska tímaritsins PC
PLUS var samanburður á íjórum rit-
vinnslukerfum fyrir Windows og
voru tvö þeirra Word og Word-
Perfect. Af fimm stigum mögulegum
fékk Word fjögur og WordPerfect
þijú.
Að lokum
Microsoft og WordPerfect Corp.
keppast við að setja á markaðinn
nýjar og fullkomnari útgáfur af rit-
vinnslukerfum fyrir Windows.
Vissulega er ritvinnsla í Windows til
bóta því á skjánum sést nú skjalið
eins og það kemur til með að líta út
á prentaranum, þ.e. með raunveru-
legum leturgerðum, -stærðum og út-
litseinkennum. Með þessum full-
komnu forritum er fólk að gera sömu
hluti og það gat auðveldlega gert með
fyrirrennurunum þeirra fyrir 5-10
árum og eru valmyndimar nú orðn-
ar svo langar að þær eiga þaö til aö
flækjast fyrir hinum venjulega rit-
vinnslunotanda sem vill geta slegið
inn texta, breytt og lagfært, gefið efn-
inu gott útlit og síðan prentað út. Til
að bæta fyrir þennan ókost er nú
hægt að sækja algengustu skipanir
af hnappastiku eða á leturborða og
getur því hver og einn átt fjölda
hnappastika sem sérhannaðar em
fyrir bréf, skýrslur, ritgerðir, tilboð,
töflur eða bækur. Vonandi heldur
þessi þróun um aðlögun'áfram.
-ig
MORE TOLVUR
Innifalið í verði allra MORE véla:
Litaskjár: 14" Super VGA, upplausn 1024X768
Skjákort: Super VGA, upplausn 1024X768
Harður diskur: 43 Mb, IDE, 23ms
Lyklaborð: 102 lykla
3,5" eða 5,25" diskettudrif
2 rað-, 1 hið- og 1 leikjatengi
MS-DOS 5,0
Turn eða borðkassi
386sx-16 MHz, 2 Mb 110.332. kr.
386-25 MHz, 2 Mb, 64 K flýtiminni 135.954 kr.
386-40 MHz, 4 Mb, 64 Kflýtiminni 164.191 kr.
486-33 MHz, 4 Mb, 256 K flýtiminni 206.023 kr.
Viðbótarverð:
1 Mbminnisstækkun 4.183 kr.
3,5"eða 5,25"diskettudrif 6.574 kr.
105Mbharðurdiskur, IDE, (17ms) 9.412 kr.
130 Mb harðurdiskur, IDE, (17ms) 23.740 kr.
Sony CD drif, stýrispjald og hugb. 52.290 kr.
Windows3.0aogserialmús 6.723 kr.
ViewSonic5E14"litaskjár 14.641 kr.
Tridentskjákort, SuperVGA, 1024x768, 3.137 kr.
1 Mbskjáminni
Farenheit Windows„ac9elerator"skjákort 18.302 kr.
Reikniörgjörvi387-16MHz 18.077 kr.
Reikniörgjörvi 387-25 og 33 MHz 25.906 kr.
Músarmotta 598 kr.
Aðrar uppsetningar fáanlegar. Leitið upplýsinga hjá
sölumönnum.
Verð miðast við staðgreiðslu og getur breyst án
fyrirvara. Öll verð innifela vsk.
-BQÐEIND SF:
Austurströnd 12
170 Seltjarnarnes
simi 612061 Fax 612081
I f Size l [ Style* |
WordPerfect 5.1
fyrir Windows
Windows útgáfur af Word og WordPerfect hafa báðar hnappastiku, leturborða og reglustiku.