Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992.
23
Tölvur
Ómetanlegt gagn af
félögum tölvunotenda
Víða erlendis eru starfrækt félaga-
samtök tölvunotenda. Áhugafólk og
notendur ákveðinna tölvutegunda og
hugbúnaðar á tilteknu svæði koma
saman reglulega, ræða málin og
skiptast á reynslu, þekkingu og hug-
búnaði án þess að greiðsla fari fram.
Á fundum félaganna eru stundum
haldnir fyrirlestrar og framleiðend-
um boðið að kynna vöru sína. Gjam-
an gefa þessi félög út fréttabréf sem
í eru hagnýtar upplýsingar og fréttir
• af sameiginlegu áhugasviði. Stjóm
félaganna er skipuð félagsmönnum
sem allir gefa vinnu sína en rekstr-
I arfé félaganna kemur að öðru leyti
frá innheimtum félagsgjöldum.
Félagsskapur af þessu tagi er sér-
lega gagnlegur fyrir tölvunotendur
því með þátttöku geta þeir fengið
úrlausn vandamála, fræðslu og haft
góðan félagsskap hverjir af öðrum.
„Berkeley Macintosh
UserGroup"
Sem dæmi um starfandi samtök
má nefna bandarísku samtökin Ber-
keley Macintosh User Group,
skammstafað BMUG. Þau era félaga-
samtök Macintosh-notenda og hafa
aðsetur í háskólanum í Berkeley í
Kalifomíu. Fjöldi félagsmanna er
kominn yfir 10.000 og eru þeir búsett-
ir víðs vegar um heiminn.
BMUG veitir símaþjónustu, raf-
eindatöflu („bulletin board“), gefur
út fréttabréf og hefur mikið safn
hugbúnaðar til ráðstöfunar sem seld-
ur er til utanfélagsmanna, jafnt sem
félagsmanna, á kostnaðarverði mið-
ilsins. í sumum tilvikum er ætlast til
að notendur sendi höfimdi hógværa
upphæð, oftast frá 300 til 1200 kr.
Höfundar hafa þó enga leið til þess
að innheimta þetta gjald og má
reikna með að þeir fái aðeins greiðslu
frá litlum hluta þeirra er nota forrit-
in.
BMUG gefur út bók sem inniheldur
stutta lýsingu á hverju forriti. í for-
ritasafni BMUG má finna nokkur
hundrað mismunandi leturgerðir,
hjálpartæki fyrir forritara, „Desk
Accessories (DAs)“, kennsluforrit,
myndir, viðskiptahugbúnað o.fl. Þeir
sem hafa áhuga á að gerast félags-
menn geta skrifað til BMUG en heim-
fiisfangið er 1442A Walnut Street Þ 62,
Berkeley, CA 94709, U.S.A.
Ný íslensk
félagasamtök
í Reykjavík var tfi skamms tíma
starfandi félag Macintosh-notenda
sem kallaði sig Makkís. Það starfaði
í nokkur ár og gaf út fréttabréf en
starfsemi þess virðist nú hafa fjarað
út.
Þrátt fyrir mikla tölvunotkun á ís-
landi undanfarin ár hefur ekki verið
mikið um slík félög hér á landi. Þetta
er þó að breytast og á síðasta ári
vora stofnuð þrjú félög fyrir tölvu-
notendur. Macintosh-forritarar
stofnuðu félagið Makkarefir sem hef-
ur það hlutverk að miðla upplýsing-
um til félagsmanna. PC-tölviaklúbb-
ur var stofnaður fyrir notendur ein-
menningstölva og er starfsemin aðal-
lega fólgin í dreifingu deiliforrita og
aðstoð við lausn vandamála. Tölvu-
tæknifélag íslands hefur það hlut-
verk að stuðla að stöðlum, umbótum
og samræmingu í tölvunotkun hönn-
uða og tæknimanna.
Skýrslutæknifélag
íslands
Fjölmennast íslenskra félaga á
tölvusviðinu er Skýrslutæknifélag
íslands með yfir 1000 félaga á skrá.
Félagið er samtök allra áhugamanna
um upplýsingamál og upplýsinga-
tækni. Starfsemi þess er aðallega
fólgin í útgáfu blaðsins Tölvumála,
ráðstefnu- og fundahaldi.
Hjá Skýrslutæknifélaginu er starf-
andi siðanefnd og orðanefnd og ný-
lega var innan félagsins stofnaður
sérhópur um hlutbundna hugbúnað-
argerð (á ensku: Object-Oriented
Programming). Eir.nig er verið að
vinna að því að stofna sérhópa fyrir
tölvuráögjafa, einmenningstölvunot-
endur og þá sem starfa að tölvumál-
um hjá heilbrigðisstofnunum.
Næsta fostudag verður haldinn
ársfundur Skýrslutæknifélagsins og
þá verður rætt um framtíðina og
stefnumótun og þá sérstaklega tengsl
íslands við Evrópu og áhrif þeirra á
neytendur og framleiðendur upplýs-
inga. Árgjald fyrir einstakling er
5.800 kr. Skrifstofa Skýrslutæknifé-
lagsins er að Hallveigarstíg 1 og sím-
inn er 27577.
DECUS ísland
Digital Equipment Corporation
User Society (DECUS) er alþjóðlegur
félagsskapur einstaklinga og fyrir-
tækja sem nýta sér tölvubúnað frá
DEC. Félagið var stofnað árið 1961
og er markmiö þess að sameina not-
endur og starfa sem þrýstihópur á
DEC og söluaðfia þeirra hvað varðar
verð, gæði, nýjungar og þjónustu en
einnig sem fagfélag sem miðlar upp-
lýsingum.
Acer frá Heim-
ilistækjum M.
Acer, sem Heimilistæki hf. hafa út myndir og texta í 256 gráum tón-
umboð fyrir, hefur nýlega sent frá um. Acer kynnti einnig á síðasta
sér nýja tölvulínu sem spannar allt ári svokallaða ChipUp-tækni í Ac-
frá ferðatölvum til netkerfa, þ.e. frá erPower 486SX tölvu sinni. Chip-
386SX 20 MHz tfi 486 50 MHz. Helstu Up-tækni gerir kleift að auka
gerðir eru AcerAnyWare-ferða- vinnslu tölva með litlum tfikostn-
tölvur; AcerMate, AcerPower, Ac- aöi. Einfaldlega er nýr örgjörvi
er 1125E, AcerPower og AcerPower settur í tölvuna sem breýttr um
500 EISA-tölva, einnig stórtölvum- leiö uppsetningu vélarinnar, t.d.
ar AcerFrame 100,300,1000 og 3000 AcerPower 386SX í 486SX. Ac-
(486/33). AcerFrame 3000 varfyrsta erPower 486SX er þvi hægt að
tölvan sem kjmnt var með 50 Mhz skipta í 486 33 Mhz. Einungis þarf
örgjörvamun, eða degi eftir að Intel aö kaupa nýjan örgjörva, ekki
kynnti sjálfan örgjörvann. hluta úr móðurborði, og era því
kaupendumir ekki bundnir viö
Þá hefur Acer einnig sent frá sér hluti frá Acer. Stækkun úr 386SX
fyrsta gráskalageislaprentaranh í486SXkostarþvisemnemurverði
fyrir PC/XT/AT samhæföar tölvur, örgjörvans.
AcerLaser mG, sem getur prentað
DECUS á íslandi gefur út frétta-
bréf, heldur mánaðarlega fundi og
ráðstefna er haldin einu sinni á ári.
DECUS á íslandi hefur 275 félags-
menn. Meðlimir DECUS, sem áhuga
hafa á Vax-tölvum, petkerfum,
einkatölvum og skrifstofukerfum,
hafa myndað. sérhópa. Kristján Ó.
Skagfjörð hf. annast skrifstofuhald
fyrir DECUS. Félagsgjöld í DECUS
era engin.
Félagsskapur kerfis-
og tölvunarfræðinga
Einnig má nefna að starfandi era
tvö félög fólks er starfar í tölvuheim-
inum. Þau eru Félag tölvunarfræð-
inga og Kerfis, félag kerfisfræðinga
og forritara. Þessi félög munu ásamt
Skýrslutæknifélaginu halda árshátíð
að Ömmu Lú fóstudaginn 14. febrúar
nk., sama dag og ársfundur Skýrslu-
tæknifélagsins verður haldinn.
-ig
NB900
~mföiM}
Öflug lausn
* fyrir athafriamanninn
GEA NB 900
Minnsta, léttasta
og ódýrasta
fistölvan á
markaðnum.
Mú er lausnin komin íyrir þá sem vilja fislétta tölvu sem jafnframt er öflug. Hún
kemst auðveldlega fyrir í skjalatöskunni og býr yfir tengingum og vaxtarmöguleik-
um sem gera hana hagnýta hvar og hvenær sem er. HB 900 frá QEA er fisöflug
tölva sem leysir málin á skrifstofunni, heimilinu og feröalaginu.
* 386SX/20 MMz örgjörvi og sökkull fyrir reikni-
örgjörva
* VQA pappirs-hvitur IXD/CCFT skjár, baklýstur
og aftengjanlegur
* 1 Mb minni, stækkanlegt í 5 Mb
* 40 Mb, 2.5" 13.7 ms harðdiskur (losanleg-
ur), aukalega 60 Mb og 80 Mb diskar
* 3.5" 1.44 Mb disklingadrif
* Lyklaborð lyrir 80/81 lykla
* fiiCad endurrafhlaða (endist ca. 2 tima)
Prentaratengi og RS232 raðtengi
Tengi fyrir VQA litaskjá
Tengi fýrir stórt lyklaborð
Tengi fyrír 5 1/2" diskettudrif
Tengi fyrir mótald/fax
Spennubreytir, 220 V og 110 V
Mjúk taska fylgir
Ummál: 28 x 22 x 4,4 cm
Þyngd 2,6 kg (m/rafhlöðu)
Verð: 149.900,- stgr./ 159.900,- afbv.
TÆKNIVERSLUN
Laugavegí 89 • Sími 91-613008