Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Qupperneq 8
24
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992.
Tölvur
p •
Þróirn M. býður nú nýjar útgáfur
Birki undir Unix. Þar með öðlast
notendur hugbúnaðarins enn íjöl-
breyttari möguleika hvað varðar
val á vélbúnaöi en veriö heí'ur.
Nýverið hefur Þróun markaðssett
hughúnað til birgðastýringar: Birki
birgðastjóri er tvískipt kerfi, ann-
ars vegar söluspárhluti, sem nota
má sér, og hins vegar pantanatil-
löguhluti sem byggist á söluspán-
um. Birki birgðastjóri útbýr sölu-
spár, byggðar á söluspá Winters,
sem gerir ráð fyrir að eftirspum
sé línuleg að grunni til en tekur
jafnframt tillit til árstíðabundinna
sveiflna. Pantanatillaga er síöan
gerð út frá formúlu Wilsons um
Iiagkvæmasta jxintunarmagn, sem
og útreikmngi á nauösynlegum ör-
yggisbirgðum. Ný útgáfa af Birki
tolla- og verðútreikningskerfi hef-
ur veriö sett á markaðinn en í
henni er hægt að velja um sendingu
á pappírslausri tollskýrslu til við-
bótar heföbundnum aðgerðum og
er EDI-þýðandinn frá DEC notaöur.
í kerfinu eru sendar ýmsar uppiýs-
ingar um vörusendinguna í heild,
t,d. farmskrárnúmer, sendingar-
númer, heildarnettóþyngd oil.
Auk þess eru sendar uppiýsingar
um hverja vöru í sendingunni, t.d.
tollnúmer, vöruheiti, magn og
verö. Til verður pappírslaust skjal
sem sent er með gagnahólfaþjón-
ustu Pósts og síma til tollstjóra.
...er leiðendi
jyrírtæki á sviöi
Rettengibúnaöar
Skagfjörð
Tölvudeild hefur
tekið að sér sölu
og þjónustu á
búnaði frá
Ethernet Token Ring FDDI
1 U I 'J JJ U S ] J, JJ
Kristján Ó. Skagfjörð hf., Hólmaslóð 4, sími 24120
Notkun tölvu til umbrots blaða og tímarita færist stöðugt I vöxt. Hér má sjá opnu úr tímaritinu Heilsuvernd á skjá og
á prenti. DV-mynd GVA
PageMaker eða
Quar kXPres s?
- hver er munurinn á þessum tveimur umbrotsforritum?
Notkun tölva til umbrots og gerðar
alls kyns skjala, þar sem má finna
bæði myndir og texta í ýmsum stærð-
um og gerðum, hefur aukist til muna
undanfarin ár. Þetta á að hluta til
rætur sínar að rekja til verðþróunar
á tölvubúnaði og útgáfu nýrra um-
brotsforrita. Nú eru tölvur, sem ráða
betur við verkið, þ.e. vinna betur
með texta og myndir, orðnar á við-
ráðanlegu verði. Verðlækkun geisla-
prentara hefur einnig stuðlað að
þessari þróun.
Fjöldinn allur af umbrotsforritum
hefur komið fram að undanfómu.
PageMaker og QuarkXPress era oft-
ast nefnd í þessu sambandi en einnig
eru til á markaðnum DesignStudio,
Microsoft Publisher, FrameMaker,
Ventura Pubhsher, Pubhsh It! Easy,
First Publisher, Personal Press og
ReadySetGo. Forritin eru misjafn-
lega úr garði gerð og hefur hvert
þeirra sína veiku og sterku hlið. Þaö
fer svo eftir þörfum hvers og eins
hvaða forrit hentar best. Smn þess-
ara forrita eru fábrotin og ódýr, önn-
ur fullkomnari og því dýrari. Forrit,
sem hentar vel viö bókagerö, getur
verið hinn mesti gallagripur þegar á
að fara að nota þaö við gerð frétta-
bréfa, bæklinga eða auglýsinga.
PageMaker er bæði til á Macintosh
og PC og er að mestu leyti eins fyrir
þessar tölvutegundir. Unnið er að
PC-útgáfu QuarkXPress. Mikill slag-
ur er nú á milli PageMaker og
QuarkXPress um hvort þeirra muni
taka forustuna á Macintosh-mark-
aönum. Hingað til hefur PageMaker
verið útbreiddara en QuarkXPress
sækir stöðugt í sig veðriö.
Allar staðsetningar mynda og texta
eru mun nákvæmari í QuarkXPress
en í PageMaker. Hægt er að segja til
um staðsetningu með lá- og lóðrétt-
um gildum með 0,025 millímetra ná-
kvæmni. Breidd og hæð textadálka
og mynda er hægt að stilla með sömu
nákvæmni. í PageMaker er músin
aftur á móti notuð til þess aö draga
til myndir og texta við staðsetningu
en ekki er hægt aö slá inn nákvæm
gildi. Dálkabreidd og stærð mynda
er einnig tilgreind með því að toga
til og frá með músinni. Þetta mun
þó breytast í útgáfu 4.2 sem er vænt-
anleg innan skamms. í QuarkXPress
er hægt að snúa myndum og texta
með nákvæmni upp á 0,001 en í
PageMaker er einungis hægt að snúa
myndum og texta um 90, 180, eða
270, þ.e. annaðhvort er efnið lárétt
eða lóðrétt. í QuarkXpress er hægt
WORKS
Snilldarlega aubveldur hugbúnabur fyrir Windows,
sem sameinar kosti margra annarra
B Ritvinnsla
| Töflureiknir
11 Gagnagrunnur
[§S Viðskiptagrafík, teikniforrit o.fl.
Verb abeins 23.621 kr.
EINARJ. SKULASON HF
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík, Sími 686933
EJ^
að teikna box og línur í breiddinni
frá hárfínni til 504 punkta, eða 17,6
sm. Línur era mest 12 punkta í
Pagemaker. Takmarkanir, er varða
stærð leturs, eru svipaðar í QuarkX-
Press og PageMaker, þ.e. frá 2 upp í
720 punkta (25 sm á hæð) í QuarkX-
Press en frá 4 punktum upp í 650 í
PageMaker. í Pagemaker er einungis
hægt að hafa eitt skjal opið í einu en
7 í QuarkXPress. Blaðsíðufjöldi
skjals takmarkast við diskapláss í
QuarkXPress en hámarksblaðsíðu-
fjöldi í PageMaker er 999. Þó er hægt
aö tengja saman skrár þannig að þær
prentist út saman og hafi sameigin-
legan orðalista og efnisyfirlit svo
auðvelt er að útbúa bækur í Page-
Maker, jafnvel þó að þær séu lengri
en 999 síður.
í ljósi ofangreindra upplýsinga,
sem eru tvímælalaust QuarkXPress
í hag, spyr maður sig hvað þaö er sem
hefur gert PageMaker svo vinsælt.
PageMaker hefur svokallaðan Story
Editor sem er öflugur ritþór og gerir
alla ritvinnslu mjög þægilega.
QuarkXPress hefur ekki ritþór.
PageMaker líkir eftir teikniborði, þar
sem blaöiö er í miðju, og svo er hægt
draga hluti, þ.e. texta og myndir, út
af blaðinu meö músinni og geyma á
teikniborðinu. í QuarkXPress þarf
að draga ramma fyrir bæði myndir
og texta áður en þau eru staðsett.
Þetta er óþarfi í PageMaker sem er
vissulega kostur. Skjöl, sem eru út-
búin í Macintosh-útgáfu PageMaker,
er auðvelt að ílytja yfir í PC-útgáf-
una. PageMaker hefur enskt orða-
safn tii leiöréttingar á stafsetningar-
villum.
Bæði PageMaker og QuarkXPress
eru mjög góð umbrotsforrit og er
erfitt að gera upp á milli þeirra. Þótt
PageMaker virðist ónákvæmt í sam-
anburði við QuarkXPress er Page-
Maker samt nægjanlega nákvæmt
fyrir flesta notendur umbrotsforrita.
Aftur á móti hefur QuarkXPress ná-
kvæmni er nýtist þeim er atvinnu
hafa af umbroti, s.s. auglýsingastof-
um, blaða- og tímaritaútgáfum. Hjá
Radíóbúðinni kostar QuarkXPress
82.000 kr. en PageMaker 62.000 kr.
-ig