Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Síða 12
28
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992.
Tölvur
Einkatölvur:
286,386,486
- hver er munurinn?
Einkatölvur af PC-staðli hafa svip-
að útlit, þ.e. þær samanstanda af
kassa sem tengdur er skjá og lykla-
borði. Þrátt fyrir þetta er afkastageta
þeirra mjög mismunandi og ræður
örgjörvinn mestu um getuna ásamt
klukkuhraða og stærð vinnslu-
minnis.
Ör tækniþróun hefur átt sér stað í
PC-heiminum undanfarin ár og eru
gömlu PC- og XT-tölvumar nú ekki
lengur taldar nógu öflugar og em því
að hverfa fyrir öflugri tölvum sem
em hlutfallslega ódýrari miðað við
afkastagetu. Vinsældir Windows,
sem ekki gengur á gömlu PC og XT,
hafa vafalaust átt einhveija sök á
þessari þróun.
PC-tölvumar hafa örgjörva frá Int-
el Corporation. Gömlu PC- og XT-
tölvumar hafa Intel 8088 og 8086,
AT-tölvur nota Intel 80286. Svo er
talað um tölvur sem „286,386,386SX“
og „486“ en þau nöfn em dregin af
nafni örgjörvanna. 386 vísar í Intel
80386, 386SX í 80386SX og 486 í 80486.
Örgjörvamir em afkastameiri 'eftir
því sem númerið hækkar. Til dæmis
er 286 fimm sinnum hraðvirkari en
8086/8088.
En þaö er ekki einungis númer
örgjörvans sem segir til um getuna
heldur líka klukkuhraði eða tíðni
tölvunnar sem gefinn er upp í mega-
riðum og táknaður með MHz.
Klukkuhraði gömlu PC og XT var
4,77 MHz en klukkuhraði 286, 386 og
486 er nú yfirleitt á bilinu 8-33 Mhz.
í þessu sambandi má nefna að
Macintosh notar örgjörva frá Motor-
ola. Classic hefur 8 MHz Motorola
68000, LC hefur 16 MHz Motorola
68020 og Si hefur 20 MHz 68030.
-ig
Örgjörvinn Intel 80386SX, en tölva með þeim örgjörva er i daglegu tali
kölluð 386.
Ný þjónusta við hreingemingar tölva
Ólsander hf. starfar við hreingem- gerð til hreinsunar á viðkvæmum
ingar á tölvum og rafeindatæKjum rafmagns- og rafeindatækjum.
og notar efni og tæki sérstakiega
NEC-skjáir og PostScript
prentari hjá Sameind
NEC var fyrst að koma með fjöl- tækni við gerð skjámynstra sem
tíðni skjái (Multisync). í haust kom gerir það að verkum að hægt er aö
svo á markaðinn 3ja kynslóð af fá bjartari skjámynd án þess að
Multisync skjám frá NEC, FG sem fóma stíllingum á fókus og birtu.
mun vera álíka byltíng og fyrstu Ný tegund af PostScript geisla-
skjáimir. Má þar helst nefita eftír- prentara er komin á markaðinn frá
farandi tækninýjurigar: Stækkun á NEC, Silentwriter S62P sem prent-
skjáfleti, þannig að I Windows og ar 6 blöð á mínútu. Hægt er að
OS/2 forritum er svarta sorgar- tengja hann viö Mac og PC samtím-
röndin umhverfis skjámyndina is. Silentwriter hefur 35 postscript
horfin. Skjáimir em næstum Qatir, leturgerðir en er einnig HP PCL
lausir viö glampa og hafa nýja samhæfður.
Fréttadiskur íyrir Amiga-notendur
Sfðustu mánuði hafa Amiga-eig- o.fl. Hugmyndin er að allir notend,-
endur unnið að því aö gera aiís- ur geti fundiö eitthvaö við sitt hæfi •
ienskan fréttadisk sem kallast og hægt veröi að miöla upplýsing-
Bóluhjálmar.Þarmáfinnaupplýs- um og skoðunum í þessum fjöl-
ingar um allt er snertir Amiga. raiöli Ritatjórar em 16 ára Araiga-
Kynningareintak var gefið út í des- fíklar, en ýmsir greinarhöfundar,
ember en fyrsta sölueintakið kom teiknarar og tónsmiðir leggja fram
út í byijun febrúar. Þar má m.a. efni Þeim sem áhuga hafa á að
finna greinar um CDTV, nýja kynnast þessum fréttadiski nánar
geisladrifið frá Commodore, erbentáaðhrinaaísímaritstjóm-
kennslu vélamáls og AmigaDOS, ar í 98-75849.
töivuspá fýrir 1992, aöstoð viö leiki
Tölvutengd litljósritunarvél frá Canon
Skrifvélin hf., Suöurlandsbraut 22, stækka og minnka frumrit, taka
hefúr markaössett Canon fit- Ijósrit á glærur og prenta út beint
myndaljósritunarvél sem nýtíst af tölvu í ftíllura litmyndagæðum.
einnig sera PostScript litmynda- Tölvutengið er PostScript meö
prentari.UndanfarinárhefurCan- RISC örgjörva, 24 Mb í minni og
on verið leiðandi í framleiðslu ljós- vinnur jafnt með PC samhæfðum
ritunarvélaoggeislaprentaraoger tölvum sem Macintosh tölvum.
þetta útkoma margra ára þróunar. Upplausnin er 400 punktar á
Þama sameinast kostir Ijósritunar- tommu. Hægt er að prenta allt að
vélar og tölvuprentara, hægt er að 16,7 milljón fiti.
DV
Bookman er dæmi um "serif ’ leturgerð
New Century Schoolbook er dæmi um "serif’ leturgerð
Palaltino er dæmi um "serif" leturgerð
Times er dæmi um "serif ’ leturgerð
Avant Garde er dœmi um "sans serif" leturgerö
Chicago er dœmi um “sans serif” leturgerð
Helvetica er dæmi um “sans serif” leturgerð
Nokkrar algengar leturgeröir.
Notkun
leturgerða
‘B'utáíi ScAript: afcdel 12345
Cartooíi: ftBCDEf abcdei 12345
lliollywood: AIBCIDIEIf abcdef ill
lUn&ótt: WCIBöBf 12345
Los Angeles: ÁBCtiíf abcdef 123^5
san (FranSiSco: RB[deif ahcdef I2345
Cameloi: ABCDEF aUef 12345
Hér má sjá nokkrar óvenjulegar leturgerðir.
í DOS-umhverfinu (þ.e. án Windows)
er notuð stafagerö sem brennd er
föst í vélbúnað tölvunnar. Á Macint-
osh og í Windows eru stafimir hins
vegar teiknaðir á skiáinn og því geta
notendur þessara umhverfa séð mis-
munandi leturgerðir á skjánum.
Vegna þessa og með tilkomu PostS-
cript geislaprentara, sem geta með-
höndlað hvaða letur sem er, hafa
menn faliið í þá gryfju aö hrúga sam-
an misstóm letri og mörgum letur-
gerðum í sama skjalið. Þetta gerir
skjölin óþarflega flókin og dregm-
athyglina frá efni skjalsins en aö út-
liti þess.
í fræðigreininni um letur og prent-
un er letri skipt í tvo flokka. Þeir em
Serif og Sans Serif. Serif era letur-
gerðir sem hafa grannt strik sem
gengur þvert á aðallínu eða legg í
venjulegum prentstaf. Þessi strik em
stundum köUuö fætur. Dæmi mn let-
mgerðir af þessu tagi em Bookman,
New York, New Century Schoolbook,
Palaltíno og Times. Sans Serif-letm-
gerðir hafa ekki slíka fætm. Dæmi
um þær eru Avant Garde, Chicago,
Geneva og Helvetica. Til viðbótar við
þessar hafa komið á markaðinn
margar mjög frumlegar letmgerðir.
Zapt Dingbats er letmgerð sem hefm
sérstöðu. Hún inniheldm ekki stafi
heldur ýmis tákn, stjömm og kassa.
Þannig er að þegar slegið er á þ kem-
m ör tíl hægri og q gefm skyggt box.
Serif-leturgerðir hjálpa auganu að
tengja saman staflna og því skal nota
þær í löngum, samfelldum texta.
Sans Serif má svo nota í litla texta-
búta og fyrirsagnir. Velja skal letur
sem hæfir efninu og aðstæðum. Aug-
lýsingastofa getm leyft sér að nota
frumlegt letur sem myndi ekki henta
fyrir rótgróna peningastofnun sem
þarf að vekja traust meðal viðskipta-
vina. Letm, sem hentar vel fyrir
teiknimyndasögm, nýtm sín ekki
eins vel fyrir Islendingasögumar. í
flestum skjölum ættu tvær mismun-
andi letmgerðir að nægja en í fáum
tilvikum er æskilegt að nota fleiri.
TU dæmis nýta margar tölvu-
handbækm vel mismunandi letm-
gerðir þar sem ein letmgerð er notuð
fyrir skýringartexta, önnm fyrir það
sem notandi slær inn og sú þriðja
sýnir hveiju tölvan svaraði. Einnig
er hægt að vekja athygU á eða að-
greina texta með sérstöku áherslu-
letri, eins og feitletrun, skáritun,
imdirstrikun og skyggingu. Athugið
þó að erfitt er að lesa útlínuletm
(outline) og skyggt letm (shadow).
Stærð leturs er mælt í punktum og
er hver punktm 1/72 úr tommu, eða
0,35 mm. Punktastærð segir tíl um
hæð linunnar því hún mæUst frá
grunnUnu texta að næstu grunnlínu.
Ef hæðin frá neðri brún j að efri brún
k er mæld er fundin út punktastærð
letursins. Letmgerðir eru misbreið-
ar þó punktastærðin sé sú sama. Eins
og sjá má á myndinni er Times mun
fyriíferðarminna en Palaltíno þó að
báðar séu 12 punkta. Meginmál bréfa
og bóka er yfirleitc 10-12 punkta.
Fyrirsagnir em yfirleitt stærri og
undirmálstexti minni.
-ig
Málshöfðun Apple á hendur
Microsoft og Hewlett Packard
Arið 1988 höfðaði Apple Computer
Inc. skaðabótamál á hendm Micro-
soft Corporation, stærsta hugbúnað-
arfyrirtæki heims, og Hewlett Pack-
ard vegna hugbúnaðarins Windows
og NewWave. Apple telm að þessi
hugbúnaöur sé byggöm á grafísku
notendaumhverfi („GUI - Graphical
User Interface") Macintosh og bijótí
því í bága við lög um vemdun höf-
undarréttar. Þetta umhverfi byggist
á notkun músar og era allar skipanir
Macintosh settar fram myndrænt
eða í valmyndum, í stað þess að not-
andinn þuifi aö leggja skipanimar á
mixmið eins og í DOS-umhverfinu.
Lögfræðingar Apple og Hewlett
Packard hafa hafnað því að hugbún-
aðm fyrirtækjanna bijóti í bága við
lög um höfundarrétt.. Fyrirtækin
hafa bent á að Macintosh-umhverfið
sé að stórum hluta byggt á hugmynd-
um sem hafi verið þróaöar af banda-
ríska fyrirtækinu Xerox. Jafnframt
hafa Microsoft og Hewlett Packard
bent á að leyfissamningur, sem
Microsoft gerði við Apple árið 1985,
veiti Microsoft rétt til framleiðslu á
Windows.
Eftir harðar deilur milli lögfræð-
inga fyrirtækjanna hefrn Apple við-
mkennt að ákveðnir hlutar Macin-
tosh notendaumhverfisins geti ekki
heyrt undir lög um höfundarrétt.
Þetta hefm oröið til þess að dómari
málsins hefm takmarkað ákæm-
skjalið við 10 atriði.
Það em skiptar skoðanir meðal lög-
fræðinga og hlutabréfasala hver
muni fara með sigm af hólmi í þessu
mah. I novemberhefti fréttabréfsins
Califomia Technology Stock Letter
er fjárfestum ekki ráðlagt að fjárfesta
í hlutabréfum fyrirtækja sem tengj-
ast Windows-hugbúnaðinum fyrr en
dæmt hefur verið í máhnu. Ef Micro-
soft og Hewlett Packard tapa málinu
gætu fyrirtækin verið dæmd til að
greiða háar skaðabætm sem gætu
numið tugum milljarða ísl. króna og
jafnvel þurft að innkalla forritin.
Ljóst er að nokkum tíma getm tekiö
að fá endanlega niðurstöðu í málið
þar sem það er rekið fyrir héraðs-
dómstóli í Kalifomíu. A meðan fer
Windows siguríor um heiminn og
stefnir í að verða söluhæsta forrit
heims.
-ig