Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Qupperneq 14
30
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992.
Tölvur
• r
Háskóla Islands
Háskóli Islands veitir almenningi um-
talsverða þjónustu sem fæstir vita um
því að Háskólinn eyðir ekki háum fjár-
upphæðum til auglýsinga. í þessari
opnu er sagt frá þeirri þjónustu er varð-
ar tölvu- og upplýsingatækni.
Upplýsingaþjónusta Háskóla f slands:
Ný atvinnutækifæri
aðstoð gagnabanka
með
Jón Erlendsson, forstöðumaður
Upplýsingaþjónustu Háskóla íslands
(UHÍ), segir aö forsenda íjölbreyttrar
atvinnuþróunar sé greiður aðgangur
að upplýsingum og þekkingu sem
nýttur er af miklum íjölda manna.
UHÍ hefur það að markmiði að veita
fólki þennan aðgang. UHI er sjálf-
stæð rekstrareining innan Háskól-
ans sem annast upplýsingaöflun á
viðskiptagrundvelli fyrir aðila í at-
vinnulífi, rannsóknum o.fl. Þessi
þjónusta er öllum opin. Upplýsinga-
þjónusta HÍ varð til viö flutninga á
starfsemi Upplýsingaþjónustu Rann-
sóknaráðs til Háskóla íslands árið
1988 en það var fyrsti aðilinn hér á
landi sem hóf hagnýtingu erlendra
gagnabanka með beinum fjarskipt-
um.
StarfUpplýsingaþjón-
ustunnar
Ár hvert vinnur UHÍ 50-200 verk-
efni við upplýsingaöflun fyrir inn-
lenda aöila á þessu sviði. Upplýs-
inganna er leitað í erlendum tölvu-
væddum gagnabönkum og einnig í
gagnabönkum sem UHI hefur komið
sér upp. Flestar þeirra tengjast ný-
sköpun í atvinnuiífi, t.d. stofnun fyr-
irtækja er byggjast á nýrri tækni eða
þróun starfandi fyrirtækja inn á ný
svið. Mikið er t.d. um að þjónustan
leiti að upplýsingum um hvers kyns
sérhæfðar vélar og hráefni sem erfitt
eöa ókleift er að finna á innlendum
markaöi. Einnig er oft leitað að not-
uðum vélum með það fyrir augum
að halda stofnkostnaði í lágmarki.
Oft þurfa menn að kanna marga
möguleika áður en þeir fmna eitt-
hvað sem er líklegt til að verða arð-
bært. Til þess að gera mönnum það
kleift er gjaldtöku stillt í hóf.
Jón Erlendsson telur að hópsmöl-
un mikils fjölda fólks í örfáar at-
vinnugreinar, eins og hafl átt sér stað
hér á landi, hafi reynst vera alvarleg
mistök. Til þess að skapa fjölbreytt
atvinnulíf þurfi framtakssamt fólk
að afla sér þekkingar og upplýsinga
sem síðar gæti nýst við nýsköpun í
atvinnulífinu. UHI starfar sem milli-
liður í þessu sambandi. UHÍ hefur
einnig á skrá um 400 fyrirtæki sem
nota sérleyfafyrirkomulag (e. fran-
chise) sem felst í því að hægt er að
stofna útibú frá móðurfyrirtækinu
fyrir ákveðna peningaupphæð. Móð-
urfyrirtækið útvegar þá oft innrétt-
ingar, tæki og hráefni og útibúiö mun
einnig nota vörumerkið og halda
sama útliti. Sem dæmi um sérleyfis-
útibú hér á landi er Kentucky Fried
Chicken. Allar frekari upplýsingar
veitir Jón Erlendsson hjá Upplýs-
ingaþjónustunni í símum 694665 og
694666.
-ig
HREINSUN Á TÖLVUM
OG SKRIFSTOFUTÆKJUM
Terminal Cleaning
Ryk. fita og önnur óhreinindi eru oft orsök
bilana i rafmagns- og rafeindatækjum.
Með Terminal Cleaning-kerfinu er fjarlægt á áhrifaríkan
hátt allt skaðlegt ryk, óhreinindi og fita úr lyklaborðum,
aftölvuskjám, úrprenturum, ritvélum, reiknivélum, Ijós-
ritunarvélum, fax- og telextækjum og simum.
Einungis notuð viðurkennd efni og tæki.
Starfsfólk Ólsander hf. er sérþjálfað til að vinna með
Terminal Cleaning-kerfið og þar með nýjustu efni og
tæki á þessu sviði. Það tryggir að viðkvæm tæki eru
hreingerð og sótthreinsuð á öruggan hátt og með sem
minnstum áhrifum á umhverfið.
Ólsander hff.
hreinlætis- og ráðgjafaþjónusta
Grettisgötu 6, sími: 626460, fax: 626461.
Endurmenntunarstofn-
un Háskóla íslands
Endurmenntunarstofnun Háskóla
íslands hét upphaflega endurmennt-
unamefnd HÍ og hóf starfsemi árið
1983. Að henni standa, auk Háskól-
ans, Tækniskóh íslands, Bandalag
háskólamanna, Verkfræðingafélag
íslands, Tæknifræðingafélag Islands
og Hið íslenska kennarafélag. Það
var fyrir tilstuðlan samtaka verk- og
tæknifræðinga, sem höfðu samband
við HÍ, aö nefndin var stofnuð.
Margrét S. Bjömsdóttir endur-
menntunarstjóri fræddi okkur um
starfsemina. Meginhlutverk stofn-
unarinnar er að sinna endur- eða sí-
menntunarþörfum á háskólastigi og
felst starfsemin fyrst og fremst í
námskeiðahaldi en einnig í heild-
stæðu námi, eins og t.d. þriggja miss-
era námi í rekstrar- og viðskipta-
greinum sem um 100 manns stunda
nú. Námskeiðin em í grófum drátt-
um tvenns konar: annars vegar
kvöldnámskeið, ætluð almenningi,
um bókmenntir, listir, heimspeki og
sagnfræði, en hins vegar starfstengd
námskeið.
Þó að þau 100 námskeið, sem í boði
em á hverri önn, séu miðuð við há-
skólamenn þá em þau opin öllum
sem áhuga hafa. Til dæmis em nám-
skeiðin um hugbúnaðargerð jafnt
ætluð háskólamenntuðu sem sjálf-
menntuðu fólki.
Rekstur stofnunarinnar stendur
undir sér með þátttökugjöldum en
námskeiöin em haldin í húsakynn-
um háskólans og nýta tækjabúnað
hans. Leiðbeinendur era annaöhvort
starfsmenn háskólans eða aðrir sér-
fræðingar. Námskeiðin em af ýms-
um toga og má nefna námskeið á
sviði stjórnunar og reksturs, sálar-
fræði, hönnunar og hugbúnaðargerð.
Námskeiðin í hugbúnaðargerð á
þessari önn em t.d. Uppbygging stað-
ameta, Unix, Hlutbundin forritun
með C++, C++ forritun í
Windows-umhverfi, magnmiölun og
pappírslaus viðskipti.
->g