Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Blaðsíða 16
12
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992.
Tölvur
Síðastliðin tvö ár hefur hver verslun-
in á fætur annarri tekið upp tölvu-
tengt verslunarkerfi er byggist á
strikamerkingum. í stað verðmiða
eru vörumar með áprentaðar strika-
merkingar sem tákna ákveðið númer
sem úthlutað er af alþjóðlegum sam-
tökunum EAN.
Sérstakur skanni á afgreiðsluborð-
inu les svo strikin og tölvan gefur
upp nafn vöru og verð. Um leið er
varan dregin frá í birgðabókhaldi.
Með þessu er öll afgreiðsla mun fljót-
ari og viðskiptavinir þurfa ekki að
bíða eins lengi við kassann. Einnig
eru verðmerkingar óþarfar en vöru-
^verðið er skráð á hilluna þar sem
varan er. Þetta leiðir til lægri launa-
kostnaðar í verslunum þar sem
færra starfsfólk þarf við verðmerk-
ingar og afgreiðslu. Fyrir utan hrað-
ari afgreiðslu fylgir þessu aukin
þjónusta við viðskiptavininn sem nú
fær kvittun sem sýnir nafn vöru og
verð. Einnig er til staðar í nokkrum
verslunum ávísanaprentari sem flýt-
ir afgreiðslu enn frekar.
Óskar Hauksson er framkvæmda-
stjóri EAN á íslandi og fræddi hann
DV um EAN: EAN stendur fyrir
European Article Numbering, al-
Svona munu hillumerkingar i verslunum líta út í framtíðinni. Tölvan sendir verð vörunnar þráðlaust í tækið sem
getur sýnt bæði verð og einingaverð.
Hagkaup bæði vararafstöð og raf-
hlöður er gætu haldið tölvukerfinu
gangandi.
Mikligarður með IBM
Fyrir rúmu ári setti Mikligarður
upp IBM-verslunarkerfi frá Sameind
hf. Kerfið samanstendur af IBM-
kössum sem tengdir eru inn á IBM
AS/400 með ethemet-tengingum og
Novell-neti. Sölukerfið er frá Hug-
búnaði hf. en vörumóttökukerfið er
ÓpusAllt.
I samtah við Þórð Sigurðsson,
verslunarstjóra Miklagarðs við
Sund, kom fram að hann væri nú
ánægður með kerfið eftir að ýmsir
byrjunarörðugleikar væra úr sög-
unni. Sagði hann hagræðinguna fél-
ast í hraðari afgreiðslu og öruggari
verðmerkingum og taldi að vegna
þessa hefði hann að jafnaði getað
fækkað kössum um þijá.
Hann taldi að með tilkomu strika-
merkinga í verslunum mætti fækka
starfsfólki um 10%. Mikligarður hef-
ur þó ekki sagt neinum upp vegna
þessa.
Hjá Sameind fengust þær fréttir að
nú væri unnið að beintengingum við
Verslunarkerfi:
Reynslan af strika-
merkingum í verslunum
Tölvuvædd verslunarkerfi, byggð á strikamerkingum
þjóðleg samtök sem sjá m.a. um að
íthluta fyrirtækjum númeram til að
íota við strikamerkingar á vöram.
Samtökin úthluta fyrirtækjum núm-
eri þar sem fyrstu 3 stafirnir vísa í
landið og næstu 4 vísa í framleiðand-
ann. Landsnúmer íslands er 569. Síð-
an nota fyrirtækin þetta númer á
framleiðsluvörur sínar en bæta við
5 stafa númeri til að auðkenna vör-
una. Með þessum hætti er tryggt að
engar tvær vörur hafi sama einkenn-
isnúmerið.
\,r
Til að forvitnast um hvernig
reynslan af strikamerkingum hefur
verið var haft samband við verslun-
arstjóra þriggja stærstu matvöra-
verslana höfuðborgarsvæðisins,
Bónus, Hagkaup og Miklagarð, en
þær hafa allar mismunandi búnað.
Állir nefndu þeir að ýmis vandamál
hefðu komið upp í byijun, sem nú
væri búið að leysa, og tjáðu' okkur
að nú væra þeir mjög ánægðir með
verslunarkerfið. Einnig sögðu þeir
að bæði starfsfólk og viðskiptavinir
væra mjög ánægðir með breyting-
una. Einu mistökin, sem upp gætu
komið, væra ef verðmerking í hillu
stangaðist á við verð í kassa en þeir
sögðust leggja sig fram við að sú
staða kæmi ekki upp.
Bónus með ICL
Bónus varð fyrst matvöraverslana
til að taka upp verslunarkerfi er
byggist á strikamerkingum og var
verslunarkerfið frá breska fyrirtæk-
inu ICL fyrir valinu, en umboðsaðili
þess er A. Karlsson hf. Kerfi Bónuss
samanstendur af Microsoft Lan
Manager, þar sem móðurtölvan er
ICL DRS 95, sem er 33 Mhz 486 EISA-
tölva, staðsett í Skútuvogi. í hverri
búð er ein PC-útstöð. Á móðurtölv-
unni er verslunarhugbúnaðurinn
StoreMaster, Bústjóri og ritvinnslu-
kerfi. í kössunum eru verðupplýs-
ingar geymdar í CMOS-vinnslu-
minni, sem tryggir hraða vinnslu, en
rafhlaða gætir þess að upplýsingarn-
ar týnist ekki þó að slökkt sé á köss-
unum. Þegar verð vöru er breytt eru
verðbreytingamar settar inn á móð-
urtölvuna í Skútuvogi. Nýja verðið
er alltaf sett inn fyrir hádegi og er
svo sent í gegnum X.400 gagnahólf
Pósts og síma til hinna verslananna.
Áður en verslanimar era opnaðar á
hádegi er nýja verðið fært inn.
Bónus hefur það markmið að bjóða
ódýra vöru með því að halda kostn-
aði niðri. Því er starfsfólki og birgð-
um haldið í lágmarki, m.a. með því
að panta inn vörur fyrir næsta dag
að kvöldi. Það kom fram í samtali
við Þórð Þórisson, verslunarstjóra
Bónuss í Faxafeni, að verslun eins
og Bónus hefði ekki verið hægt að
setja á laggirnar nema með verslun-
arkerfi er byggist á strikamerking-
um. Ef gamla leiðin hefði verið farin
þyrfti helmingi fleira starfsfólk.
Bæði felst mikil vinna í því að verð-
merkja og svo taldi Þórður að ef allt-
af þyrfti að slá verð inn á kassa væri
einn afgreiddur á meðan nú væri
hægt að afgreiða 3-4. Þegar verslun-
inni er lokað að kvöldi eru prentaðar
út upplýsingar um birgðir, sölu og
framlegð dagsins. Út frá þeim tölum
er pantað fyrir næsta dag. Þórður
nefndi einnig aö nú þyrfti verslunin
ekki að stimpla og skrifa aftan á ávís-
anir því þegar tekið væri við ávísun-
um frá viðskiptavinum framseldi
kassinn ávísunina fyrir hönd Bón-
uss.
Hjá A. Karlssyni hf. fengust þær
upplýsingar að nú væri með ICL-
verslunarkerfinu einnig hægt að
hafa viðskiptamenn skráða í kass-
ana. Þannig væri ritfangaverslunin
Penninn nú komin með verslunar-
kerfi er hefur 20.000 vörunúmer og
5000 viðskiptamenn á skrá.
Hagkaup með NCR
Hagkaup er með búnaö frá EJS. Á
aðalskrifstofu Hagkaups er NCR 3450
sem er með 486 örgjörva. Á tölvunni
er UNIX, Oracle-gagnagrannskerfi,
bókhaldskerfið Magni, en einnig er
notað sérhæft upplýsingakerfi fyrir
verslanir er kallast Retailer I. í
hverri verslun er einnig PC-tölva
sem sér um að stýra upplýsingaflæði
til og frá afgreiðslukössum.
Torfi Matthíasson, verslunarstjóri
Hagkaups í Skeifunni, sagði að vissu-
lega væri mikill flýtir að þessum
nýja afgreiðslumáta en þar sem fólk
hefði ekki alltaf við að setja í poka
myndaðist oft flöskuháls.
Hann sagði að vegna þessa mætti
gera ráð fyrir fækkun starfsfólks en
vildi þó ekkert segja um hve mikil
hún væri. Það kom fram í samtali
við Torfa að mikilvægt væri að hafa
allan öryggisbúnað í lagi og þvi hefði
kreditkortafyrirtækin svo ekki þyrfti
að hafa pósa við hvern kassa. (Pósi
er litla tækið sem kreditkortunum
er rennt í gegnum.) Sameind hefur
einnig sérhæft sig í kassakerfi fyrir
veitingahús með þar til gerðum for-
ritum frá Hugbúnaði hf.
Verslanirutan
Reykjavíkur
Úti á landi er einnig verið að setja
upp verslunarkerfi, er byggjast á
strikamerkingum, í stórum stíl. Tíu
kaupfélög sameinuðust um að kaupa
búnað frá NCR.en stærsta kaupfélag
landsins, KEA, valdi hins vegar ICL-
búnað.
Hvaó geristnæst?
Nú er verið að setja upp í 10-11
búðarborð frá ICL þar sem skanninn
í borðinu er jafnframt vigt og þarf
því ekki að verðmerkja grænmetið
úr grænmetisborðinu heldur er verð-
ið reiknað beint við kassann. Þetta
sparar það starfsfólk er áður var í
verðmerkingu grænmetis. Má búast
við því að afgreiðsluborð með vigt
verði tekin upp á fleiri stöðum en
KEA valdi einmitt slík búðarborð.
Það nýjasta í þessu eru svo þráð-
lausar hillumerkingar þar sem
talnaskífa er á hillunni við hveija
vörutegund. Á skífunni má lesa nafn
vöra og verð.
Þegar breyta þarf verði vöra er það
gert þannig að nýja verðið er skráð
í tölvuna sem svo sendir geisla þráð-
laust á hillumerkinguna. Þannig þarf
ekki að prenta út miða og ekki ætti
það að koma fyrir að verðmerking á
hillu og verð þegar á kassann er kom-
ið passi ekki saman.
í Japan er svo verið að þróa tækni
sem mun gera afgreiðsluna enn fljót-
ari en hún er þannig að vagni með
vöram er rennt í gegnum hlið sem
nemur hvaða vörur eru í vagninum
og svo er verðið reiknað út.
-ig
KYNNINGARVIKA
WINDOWS
Notendaumhverfi framtíbarinnar
| EJS sýnir spennandi nýjungar og fjölmarga möguleika Windows á sérstakri
Windows viku 11. -15. nóvember frá 9 - 18 daglega.
Mebal annars kynnt samvinna risanna tveggja, WordPerfect og Windows:
Mest notaöa ritvinnslukerfi í heimi og vinsælasta nötendaumhverfiö.
Stöðugar kynningar á Windows forritum alla daga. Ennfremur sérstök
kynningardagskrá fjórum sinnum á dag.
Líttu inn á Windows viku hjá EJS.
EINAR J. SKULASON HF
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík, Sími 686933
0^