Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992. Fréttir DV Sekt eöa sakleysi Eðvalds Hinrikssonar: Yfirlýsing utanríkisráðu- neytis Eistlands f urðuleg - segir Efraim Zuroff, formaður Wiesenthal-stofnunarinnar í Jerúsalem „Mér fmnst yfirlýsingin frá eist- neska utanríkisráðuneytinu mjög furðuleg, raunar finnst mér hún mjög grunsamleg í ljósi þeirra sann- ana sem eru til gegn Mikson og ákær- unnar á hendur honum,“ segir Efra- im Zuroff, formaður Simon Wiesent- hal-stofnunarinnar í Jerúsalem. í gær birti Morgunblaðið yfirlýsingu frá eistneska utanríkisráðuneytinu og þar kemur fram að Eðvald Hin- riksson sé ekki sekur um neina glæpi í Eistlandi, síst af öllu gegn gyðing- um. Zuroff segir það undariegt að utan- ríkisráðuneytið, sem hefur ekki ná- kvæma vitneskju um þau gögn sem stofnunin hafi undir höndunum, geti gefið slíka yfirlýsingu. „Við getum sannað að hann er stríðsglæpamaður en sannanirnar gegn honum verða bráðlega lagðar fram. Það verður þó ekki gert í gegn- um fjölmiðla heldur verða íslenskum yfirvöldum afhent þau gögn sem við höfum í höndunum." Zuroff segir að Wiesenthal-stofn- unin vilji aö Mikson verði dreginn fyrir rétt. Hins vegar skiptir það stofnunina ekki máli hvort það verð- ur gert á íslandi, í ísrael eða Eist- landi. Hann var að því spurður hvaða vitni Simon Wiesenthal ætti við þeg- ar hann segði að það væri gyðingur, búsettur í ísrael, sem gæti borið vitni gegn Mikson. Zuroff segist ekki vita við hvern Wiesenthai eigi en hann geti verið að vísa á eistneskan gyðing sem hafi bent þeim á grein í eistnesku blaði þar sem komi fram að Mikson sé á lífi og búi á íslandi, það hafi verið seint á síðasta ári. „Þetta er einhver misskilningur því það var ég sem safnaði sönnunar- gögnunum gegn Mikson. Þessi mað- ur, sem ég er að tala um, er gyðingur og hann var ekki í Eistlandi á hernámstímanum. Ef hann hefði verið í Eistlandi á þessum tíma væri hann ekki á lífi nú. Það er því mín skoðun að þetta sé einhver misskilnf- ingur." -J.Mar Eðvald Hinriksson, öðru nafni Mikson, var hress og kátur á heimili sinu í gær eftir að honum hafði borist yfirlýs- ing utanrikisráðuneytis Eistlands. DV-mynd GJU Ég er búinn að vinna fyrstu lotu, segir Eövald Hinriksson: Veit að mál mín verða rannsökuð í Eistlandi - gyðingar geta ekki gert sig að heimslögreglu ,Ég er mjög ánægður því ég er bú- inn að vinna fyrstu lotu. Samtök gyð- inga gera hins vegar allt sem í þeiira valdi stendur til að skíta mig út,“ sagði Eðvald Hinriksson eftir að hon- um hafði borist í hendur yfirlýsing frá utanríkisráðuneyti Eistlands um að hann væri ekki sakaður um neina glæpi þar í landi á stríðsárunum. „Eg veit að mín mál verða skoðuð til hlítar í Eistlandi. Þá mun sakleysi mitt koma í ljós. Ég er sannfærður um að það veröur ekkert dómsmál í Eistlandi. En ég vil að mín mál verði skoðuð þar. Það er lögfræðilegur réttur minn sem fyrrverandi borgari í Eistlandi að ég fái mál mín rannsök- uö þar.“ - Veistu hver þessi gyðingur er sem Simon Wiesenthal segir að geti borið vitni gegn þér? „Þeir þora ekki að segja hver þessi gyðingur er sem þeir eru að vísa til aö geti borið vitni gegn mér en ég veit hver hann er. Hann býr í Ven- esúela og er milljónamæringur. Ég hef sagt frá því opinberlega hvemig hann vann fyrir KGB í Eistlandi. Nú vill hann hefna sín. Ég gæti meira að segja sýnt þér mynd af þessum manni. Ég sá þetta allt fyrir og þetta kemur mér ekkert á óvart nú frekar en áður. Ég spáði þessu strax 1950 að þeir myndu reyna að sverta mig sem þeir gætu. Ég er hins vegar hvergi hræddur enda er ég saklaus,“ segir Eðvald sem éinnig er öft kallað- ur Mikson. „Gyðingar geta ekki gert sig að heimslögreglu og heimtað að fá mig framseldan til ísraels. Eg er Eistlend- ingur og ég get fengið mín mál tekin upp fyrir dómi í Eistlandi ef ég vil. Ég á boð til Eistlands næsta sumar og synir mínir vilja koma með mér þangað. Ég er afskaplega glaður vegna þess hve vel hefur verið skrifað um mig í Eistlandi. Þar var skrifað um okkur feðgana síðasthðið sumar og sagt frá því að báðir synir mínir hefðu verið í íslenska landsliðinu og báðir fyrir- liðar þess. Mér þótti afskaplega vænt um þetta. Eins og málin standa núna get ég ekkert gert annaö en beðið. Ég er orðinn gamall maður og er þreyttur núna. Ég vildi helst af öllu hvíla mig á öllu þessu sem gengið hefur á síö- ustu dagana. -J.Mar Davlð Oddsson ræddi við Douglas Hurd í gær: Aukið frumkvæði Evrópu i vamar- °9 öryggismálum „Ég átti 45 mínútna fund með Dou- glas Hurd utanríkisráðherra. Við ræddum Evrópumálin. Um Evrópu- bandalagið og evrópskt efnahags- svæði og stöðuna eftir að ákveðið var að vísa samningsdrögunum til Evr- ópudómstólsins. Við ræddum einnig um Vestur-Evrópubandalagið og ályktun sem gerð var á sínum tíma af Evrópubandalagsþjóðunum í Ma- astrich. Það er að segja þessum níu sem eru í Vestur-Evrópubandalaginu þess efnis að lönd í NATO sem ekki eru í Evrópubandalaginu gætu gerst aukaaðilar að þessu bandalagi," sagði Davíð Oddsson forsætisráð- herra, en hann kom til Lundúna um klukkan 15 að staðartíma í gær. „Ég vildi vita hvað í þessu fælist. Jafnframt lýsti ég þeirri skoðun minni að framtíðaruppbygging í vamar- og öryggismálum tengdist mjög vel starfinu í NATO þótt Evr- ópa myndi hafa aukið frumkvæði í þeim efnum. Við Hurd vorum alveg sammála um það.“ Davíð kveðst einnig hafa átt fund með Maud, einum af ráðherrunum í breska fjármálaráðuneytinu. „Við Maude ræddum um einka- væðingu almennt. Hvemig standa ætti að henni og hvað bæri að var- ast. Það er ágætt að heyra hvað aðr- ir hafa gert og í hvaða erfiðleikum þeir hafa lent svo maður sé ekki að apa eftir öðrum og lenda í sömu vandræðum og þeir hafa gert.“ Davíð snæddi kvöldverð í gær- kvöldi í boði breska utanríkisráðu- neytisins. Klukkan 17 í dag er fyrir- hugaður fundur hans og Margretar Thatcher, fyrrverandi forsætisráð- herra Bretlands. -J.Mar Feröintilísraels: Styð Jón Baldvin - segirforsætisráðherra „Þetta kom mér á óvart. Það er ákvörðun Jóns Baldvins Hannib- alssonar að fara ekki til ísraels og ég styð hann í því,“ segir Davíð Oddsson forsætisráðherra. Utanríkisráðherra hefur afþakk- að boð stjómvalda í ísrael um opin- bera heimsókn þangað. En heim- sókn utanríkisráðherra var fyrir- hugð þangað í vor. „Eg vissi að vísu ekki að þessi ferð hans stæði fyrir dymm. Það em tvö ár síðan þetta boð kom. Jón Baldvin hafði ætlað að fara þangað í janúar 1990 og síðan aftur síðastl- iðið vor. Þetta er hans ákvörðun og ekkert óeðlilegt við 'hana enda er nýbúin að vera ferð á vegum íslensku ríkisstjómarinnar til Isra- els.“ -J.Mar Mál Eðvalds Hinrikssonar: Vekur litla at- hygli í „Kunningjar mínir og vinir hér í ísrael hafa ekki talað um heimsókn Daviðs Oddssonar hingað til lands. Það er svo alvanalegt að það komi þjóðhöfðingjar í opinberar heim- sóknir hingað og þessi vakti enga sérstaka athygli umfram aðrar," seg- ir Björgúlfur Gunnarsson flugum- ferðarsljóri sem býr í ísrael. „Ég veit lítið um mál Eðvalds Hin- rikssonar. Það var lítils háttar ísrael minnst á hann í Jerasódem Post í fyrradag. Málið virtist hins vegar hafa vakið litla athygh í ísrael eftir því er ég veit best,“ segir Björgúlfur. Hann segist hafa verið í boði sem íslenski konsúllinri hélt forsætisráð- herra á þriðjudagskvöldið og þar hefði hann hitt nokkra íslendinga og þetta mál hefði ekki borið á góma meðal þeirra. -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.