Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992. 33 Lögverndun leið- sögumanna „Við i FL höfum alltaf séð um að ferðahópar okkar gangi vel um öll svæði sem áð er á.“ Dagur leiðsögumanna er 21. febr- úar ár hvert. í tilefni þess er þetta skrifað. Ferðamál hafa verið mikið til umræðu á seinni árum. Þjónusta við ferðamenn hefur aukist ár frá ári. Hótel hafa verið byggð og bændur hafa komið upp gistiþjón- ustu fyrir ferðamenn. Þjónusta við erlenda ferðamenn hefur stórauk- ist. Tekjur af þeim skipta orðið mjög miklu fyrir okkar htla þjóðfé- lag. Þjónusta við innlenda og er- lenda ferðamenn krefst mikils vinnuafls, t.d. á hótelum og öðrum gististöðum. Fyrsta tenging Einn er sá hópur manna sem gegnir mikilvægu hlutverki í þjón- ustu við ferðamenn en það eru leið- sögumenn. Leiðsögumaðurinn er oftast fyrsta tenging erlends ferða- manns við land og þjóð. Starf hans er því mikilvægt. Hann þarf að hafa þekkingu á sögu lands og þjóð- ar. Skóh hefur verið fyrir verðandi leiðsögumenn. Fyrst var hann á vegum Ferðaskrifstofu ríkisins en nú á vegum Ferðamálaráðs. Til þessa skóla hafa verið fengnir fær- ustu menn, hver á sínu sviði. Ég vh nefna t.d. jarðfræðinga, nátt- úrufræðinga, fornleifafræðinga og fræðinga í fornbókmenntum lands- ins. Félag leiðsögumanna hefur í mörg ár haft námskeið fyrir sína félagsmenn á hverjum vetri til að KjaUarinn Hans A. Clausen leiðsögumaður nr. 83 auka menntun þeirra. Margir er- lendir ferðamenn hafa látið í ljós undrun sína yfir þeirri þekkingu sem íslenskir leiðsögumenn hafa. Mér finnst við hafa verið of hógvær við að vekja athygli á okkar störf- um. Við eigum það fylhlega skilið að félag okkar verði lögverndað svo að hver sem er geti ekki tekið að sér leiðsögn. Það kemur fyrir að fundið sé að „leiðsögumönnum" en svo kemur á daginn að þessi „leið- sögumaður" er ekki í okkar félagi. Ahir félagsmenn í FL verða að sýna þekkingu í málum. Þeir sem það prófa eru oft lektorar við Háskóla Islands eða sendikennarar. Leið- sögumenn hafa alltaf rétt land- vernd og náttúruvernd útrétta hönd. Við í FL höfum alltaf séð um að ferðahópar okkar gangi vel um öll svæði sem áð er á eða gist, bæði í byggð og óbyggðum. Hæfari til starfa Það geta alltaf komið fyrir smá- vægileg slys á ferðalögum. Þess vegna hafa margir félagar okkar farið ánámskeið í hjálp í viðlögum. Það hefur oft komið í góðar þarfir. Af framanskráðu má sjá að félagið gerir margt til að gera sína félags- menn hæfari til starfa. Félagið hef- ur gefið út blað sem nú heitir Flakkarinn. Það er nýtt nafn, en áður kom það út sem fréttablað FL. Blaðið er tengihður milli stjórnar og félagsmanna. Það flytur okkur líka fréttir frá starfsbræðrum okk- ar á Norðurlöndum. Við erum fé- lagar í Inter-Nordic Guide-Club. Haldnar eru ráðstefnur á Norður- löndum til skiptis. Þessar ráðstefn- ur höfum við ávallt sótt og skipst á skoðunum og upplýsingum. Fé- lagið er líka í World Federation of Tourist Guide Lectures Aossociati- on. Gegnum þessi samtök höfum við kynnst vandamálum þeirra. Það virðast vera sömu vandamál, skilningsleysi valdhafa á störfum okkar og gildi þess að hafa vel menntaða leiðsögumenn. Ekki bara gaman Margir af okkar félögum starfa erlendis fyrir íslenskar ferðaskrif- stofur en því miður eru ekki allir i okkar félagi, hvers vegna? Það getur margt gripið inn í. Það er víst best að sleppa að ræða það í þessum pistli. Svo ég slái á létta strengi þá eru oft margar skrítnar spurningar sem við fáum frá far- þegum okkar. Ég man t.d. að eitt sinn, er við vorum stödd við Breið- armerkurlón, kom til mín amerísk kona og sagði viö mig: „Það er snið- ugt hjá ykkur að lita jakana, það er fallegt." Jakar lónsins eru oft bláir og grænir, það fer eftir þykkt og stærð og endurkasti vatnsins. Eitt sinn spurði mig sænsk stúlka. „Kan jag bade i de varme kilde?" Þarna var það orðið „varme" sem olh misskhningi. Þetta vil ég segja að lokum, þeir sem hvetja menn til að fara út í þetta starf mega ekki halda að þetta sé bara gaman, þetta er vinna og aftur vinna. Aö endingu vil ég óska félagi mínu, sem stofnað var 6. júní 1972, allra heilla í fram- tíðinni. Hans A. Clausen „Viö eigum þaö fyllilega skiliö að félag okkar veröi lögverndað svo að hver sem er geti ekki tekið aö sér leiðsögn.“ Á hægri leið til helvítis „Þetta kemur vel fram hér i Eyjum nú þegar tyrirtæki eru sameinuð i hagræðingarskyni." Við Islendingar höfum lengi stært okkur af því að vera mikh menningar- og listaþjóð. í seinni tíð hefur „Gaggó við Aust“ gengið fyr- ir í framleiðslu harmleikja fárán- leikans. Af öhu því sem ausið hefur verið yfir þjóðina nú á undan- gengnu misseri úr sölum hins háa embættis við Austurvöll, er margt verra en svo að gott geti tahst. Það eina sem fólk heyrir er þetta: lok- um sem flestum sjúkrastofnunum, leggjum niður eða seljum sem flest fyrirtæki í eigu ríkisins. Lækkum örorkubætur, sjúkrabætur, lífeyr- isgreiðslur, bamabætur og skattaí- vhnanir. Upptalning „bandormsins langa“ virðist óendanleg. Þvínæst koma samningamenn atvinnurekenda um launa- og kjaramál fram fyrir alþjóð og hrópa hástöfum: „Það er ekkert rúm fyrir hækkanir á launum, við verðum að halda verðbólgunni niðri, kjara- skerðing væri besta lausnin.“ Gamalt frumskógarlögmál Þjóðin er svínbeygð th hlýðni og óttinn við að missa atvinnuna vegna hagræðingar hjá fyrirtækj- um og hinu opinbera lamar fólk. Hver og einn hugsar um það eitt að halda sjálfum sér og sínum á flotí. þar til upp styttir. Loksins hefur þaö tekist sem margan at- vinnurekandann dreymdi um, það er að brjóta niður vhja og samein- ingu fólksins í landinu. Gamla frumskógarlögmálið er aftur fært th nútíðar: „Hver er sjálfum sér næstur, dreptu eða vertu drépinn." Þetta kemur vel fram hér í Eyjum nú þegar fyrirtæki eru sameinuð í hagræðingarskyni. Með nokkrum pennastrikum er fólk gert atvinnu- laust í stórum stíl og allt er þetta gert til þess að fá tölurnar í bók- haldinu th að passa. Verkalýðurinn og fjölskyldur hans skipta þar engu máli, tölumar til bankans verða að stemma. Tugir dugandi sjómanna sjá á eftir skipum sem þeir hafa starfað á í mörg ár og era þau seld burt úr plássinu. Og standa þeir Kjallarinn Árni Marz Friðgeirsson sjómaður nú uppi atvinnulausir, þeir fá enga vinnu af því að samdráttur í flsk- veiðum er aht að drepa. Leikhús fáránleikans heldur áfram án tillits til þarfa þegnanna í landinu. Einu skhaboðin sem við fáum frá leiksmiðjunni viö Austur- vöh eru þessi: herðið sultarólarnar og verið þakklát fyrir að við tökum ekki allt sem þið eigið. Skerum nið- ur og þegar það er búið skerum meira niður. Aht hófst þetta þegar gullkálfarnir við Austurvöll fæddu af sér harmleikinn sem skírður var „Aflamarksstýring í fiskveiðum". Þessi hrohvekja vakti fógnuð þeirra sem mikið áttu því þeir sáu fram á bjarta tíma. Aðrir sem tæp- ar stóðu sáu sæng sína uppreidda, þeir gátu ekki haldið sér gangandi með því litla sem þeim var skammtað. Aht var þetta gert í nafni hagræðingar. Þeir ríku urðu ríkari en hinir fátæku urðu fátæk- ari. Bankinn eða skrímslið? Það er svo sem ekki hægt að sak- ast við eigendur þeirra fiskverkun- arhúsa sem nú hafa sameinast. þeir voguðu miklu og töpuðu stórt. Blessaður bankinn sem alltaf var hægt að ganga í hér áður fyrr og kippti hlutunum í lag er nú orðinn að hlutafélagi fjársterkra einstakl- inga. Og hann verður að sýna fram á að ekki sé verið að hafa fé af hlut- höfunum. Þeir vita allir sem reyna að hugsa að gamhr húskumbaldar, sem eru löngu orðnir úreltir, selj- ast ekki. Nei, skip og kvóta verður að selja, fyrir það fást peningar, og tölurnar geta passað í bókhaldinu. En óneit- anlega minnir þetta á sögur „Munchausens", hvaö kemur bók- haldinu við hvort nokkrir sjóarar og verkafólk standa uppi án at- vinnu. Tölurnar í bókhaldinu stemma. Nú hugsa víst flestir sem þetta lesa; ha, það er helvítis bank- inn sem er sökudólgurinn í þessu máli. En því fer fjarri að svo sé. Nú, ef það er ekki bankinn, þá hljóta það að vera eigendur fyrir- tækjanna sem sameinuðust. Það gengur ekki heldur upp, á meðan allt gekk vel fjárfestu þeir og færðu út kvíarnar. Það sama gerum við sjálf þegar vel gengur hjá okkur en þegar harðnar í ári drögum við saman seglin. Það sama gera þeir og þeim er nauðugur sá kostur engu síður en okkur. Nei, það skrímsh sem við erum að glíma við fæddist við Austurvöll og það er ekki fyrr en búið er að koma því fyrir að lífið getur farið að ganga sinn vanagang. Þetta skrímsli er núgildandi fiskveiðistefna okkar íslendinga og það verður ekki hægt að byggja upp heilbrigt þjóðfélag hér á landi fyrr en hún er öll. Það er sárt til þess að hugsa að núver- andi sjávarútvegsráðherra virðist ekki hafa dug í sér til að leggja þessa stefnu af. Ég og margir fleiri töldum þó að hann hefði kjark í sér til breyta henni. En eins og útlitið er í dag bendir fátt til þess aö um stefnubreytingu sé að ræða. Skrímslið virðist vera búið að festa sig í sessi og mannlegur máttur virðist engu fá þar um þokað. Verði fiskveiðistefnan ekki lagfærð... Á FFSI-þingi nú í haust kom fram mjög ítarleg og góð fiskveiðistefna, fannst mér í fyrsta skipti í langan tíma koma fram ljós í myrkrinu. Ég segi þetta ekki vegna þess að ég var einn af þeim er unnu í nefnd þeirri sem mótaði þessa fiskveiði- stefnu. Heldur segi ég þetta vegna þess að réttsýni til handa öllum sjómönnum og þeim er stunda út- gerð var höfð að leiðarljósi. Auð- lindinni í sjónum var skipt í sam- ræmi við skipin sem stunda veið- arnar hér við land en ekki í sam- ræmi við kvótaeign einstakra manna eða útgerðarfyrirtækja. í fyrsta skipti i langan tíma sást fyr- ir endann á gegndarlausu sukki viðkomandi kvóta og kvótakaup- um. Með þeim breytingum sem þar komu fram losna sjómenn undan þeirri kvöð að velja um kaup á kvóta með útgerðinni og greiða ur eigin vasa af óskiptum afla, eða hverju öðru því sem útgerðarmenn kjósa að nefna það. Ella missa at- vinnuna. - Með penu uppsagnar- bréfi þar sem talað er um „sam- starfsörðugleika" á milli þeirra og útgerðar. Það lyftist aðeins á mér brúnin þegar ég sé að formaður FFSÍ hafði verið skipaður í for- mennsku ráðgjafamefndar á end- urskoðun á lögum um stjórnun fiskveiða. Og ekki skemmdi að sjá að formaður VSFÍ var skipaður varamaður hans. Ég hef þá trú að það skipti í raun litlu máli hverjir stýri þjóðarskút- unni í ölduróti líöandi stundar. Verði fiskveiðistefnan ekki lagfærð og henni breytt til betri vegar siglir þjóðarskútan í rólegheitum hæga leið til helvítis. Þau eru enn í fullu gildi orö hinnar öldnu stjórnmála- kempu Lúðvíks Jósepssonar: „Þeirri. ríkisstjórn vegnar vel sem býr við velgengni í fiskveiðum og vinnslu sjáyarafurða." Árni Marz Friðgeirsson „Þetta skrímsli er núgildandi fiskveiði stefna okkar íslendinga og það verður ekki hægt að byggja upp heilbrigt þjóð- félag hér á landi fyrr en hún er öll.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.