Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992. 3 Fréttir Verkamannasamband Islands: Vill takmarka útflutning á ísuðum þorskiogýsu - fundur með sjávarútvegsráðherra í morgun FuUtrúar frá Verkamannasam- bandi íslands gengu í morgun á fund Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs- ráðherra. Þar lögðu þeir fram ýmsar hugmyndir að aðgerðum til að auka atvinnu í landinu. Ein þeirra var að takmarka leyfi til útflutnings á ferskum þorski og ýsu, hvort heldur er í gámum eða siglingum veiðiskipa. Fullyrða má að þar verði þungt fyrir fæti. „Það vantar hráefni í flest frystihús landsins og þúsundir manna ganga um atvinnulausar. Á sama tíma er verið að flytja út þúsundir tonna af ísuðum þorski og ýsu. Þessu viljum við breyta,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrún- ar, en hann ásamt Snæ Karlssyni og Sigurði Ingvarssyni hittu sjávarút- vegsráðherra í morgun. Þá leggur Verkamannasamhandið til að mörkuð verði ákveðin stefna varðandi veiðar frystitogaranna. Hráefnisskortur frystihúsanna er viðvarandi og verið er að byggja frystihús í landi sem ekki fá fisk eru rökin fyrir þessari kröfu. Inn í þetta kemur fjölgun frystiskipa. Þá óskar Verkamannasambandið eftir því við sjávarútvegsráðherra að stórauknar verði rannsóknir á möguleikum til frekari fullvinnslu sjávarafurða hér á landi. Eins að efldar verði veiðar á vannýttum flskistofnum sem skapað gætu at- vinnu í landi. í því efni eru nefndar tegundir eins og gulllax og úthafs- karfi. Eins eru til við landið kolamið sem eru vannýtt. Forráðamenn Dagsbrúnar hafa einnig rætt við Markús Örn Antons- son borgarstjóra um atvinnuaukandi aögerðir í Reykjavík þar sem um 1500 manns eru án atvinnu um þessar mundir að sögn Guðmundar J. Hann sagði að borgarstjóri hefði verið mjög jákvæður í þessum viðræðum. Þess má svo að lokum geta að Al- þýðusambandið hefur óskað eftir viðræðum við ríkisstjómina um at- vinnuástandið í landinu. Sá fundur hefur enn ekki verið ákveðinn. -S.dór Sumarstörf um fækkar Atvinnurekendur á íslandi vilja fækka starfsmönnum sínum um 430. Telja þeir fækkun æskilega í öflum atvinnugreinum nema sjúkrahús- rekstri og þjónustustarfsemi, en í þeim greinum vilja atvinnurekendur fjölga starfsmönnum um 60. Þetta kemur fram í nýrri könnun Þjóð- hagsstofnunar á atvinnuástandi og horfum á vinnumarkaði. Könnunin náði til um 200 fyrir- tækja og sjúkrahúsa í öllum atvinnu- greinum nema landbúnaði, fiskveið- um og opinberri þjónustu. Svör bár- ust frá 190 fyrirtækjum en niöurstöð- umar eru byggðar á upplýsingum frá 170 þeirra. Sem dæmi um umfang könnunarinnar má nefna aö launa- greiðslur þessara 170 fyrirtækja eru rúm 26 prósent af launum í þeim at- vinnugreinum sem könnunin náði til. Samkvæmt könnuninni telja at- vinnurekendur einkum æskilegt að starfsmönnum fækki í iðnaði, bygg- ingarstarfsemi, verslim og veitinga- starfsemi. í iðnaði vilja menn fækka starfsmönnum um 200 eða 1,5 pró- sent, í fiskiðnaði um 70 eða 0,9 pró- sent, í byggingarstarfsemi um 120 eða 1,1 prósent, í verslun og veitinga- starfsemi um 140 eða 0,8 prósent og í samgöngum um 20 eða 0,2 prósent. í annarri þjónustustarfsemi vilja menn hins vegar fjölga starfsmönn- um um 60 eða 0,3 prósent. Fram kom í könnuninni að á kom- andi sumri verði þörf fyrir tæplega 11 þúsund starfsmenn í afleysingar. Þetta eru tæplega 15 prósent færri sumarafleysingastörf en mældust í atvinnukönnun sem fram fór í apríl í fyrra. Að mati atvinnurekenda er þörfin fyrir afleysingar hlutfallslega mun minni á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. í janúar síðastliðnum mældist skráð atvinnuleysi á landinu um 3,2 prósent, sem samsvarar því að um fjögur þúsund manns hafi að jafnaöi verið án atvinnu. Á sama tíma í fyrra mældist atvimiuleysið 2,6 prósent og í janúar 1990 mældist þaö 3,1 pró- sent. Á árinu 1991 mældist atvinnu- leysið að meðaltali um 1,5 prósent, eða 0,2 prósentustigum lægra en næstu tvö árin þar á undan. Spá Þjóðhagsstofnunar gerir ráð fyrir að atvinnuleysið í ár verði að meðaltali um2,5prósent. -kaa tlTer aðeins lítið sýnishorn Hægindastólar, comet-leður, 4 litir Sófasett, Dahli, 3-1-1, margir litir Sófasett, Amigo, Deysi, Toledo, 3-1-1, margir litir Hjónarúm, hvítt, 160 og 180x200, m/náttb., án dýnu Barna- og unglingarúm, 90x200, m/hillu + 2 skúffum, án dýnu Sófasett, svart leður, 3-1-1, Speyer, Kati Hillur, Plaza, hvítar og svartar Skrifborð, Marga, 50x120 Skrifborðstólar f. börn og ungl., Emely Eldhússtólar, cs 211, beyki Klappstólar, Cricket Klappstólar, Erik, Cindy Borðstofuborð, 93x130 og 93x160 Skenkur, 4ra hurða Borðstofustólar, EH Innskotsborð Hjónarúm m. náttb., án dýna, hvítlakkaður askur Hægindastólar m. skammeli, leður Lítil sófasett, 2-1-1 Beykikommóða Furukojur, ólakkaðar, án dýna Sjónvarpsskápur, mahóní Hornsófar, 3-H-2 Skrifborð, Ijóseik, 160x75 Furusvefnsófi Stakir 3ja sæta sófar, gæsadúnspúðar Sófaborð með glerplötu Svefnsófar Svefnbekkur m. rúmfataskúffu og hillum, án dýnu Hillusamstæða, svört (takmarkað magn) Áður Nú 55.000 27.900 176.000 88.000 165.000 88.Q00 69.000 34.S00 34.000 17.500 230.000 150.000 18.800 11.900 16.500 9.900 9.500 4.900 9.200 4.900 6.500 2.200 3.200 1.500 69.000 39.000 117.000 55.000 19.700 12.200 24.400 14.400 69.000 39.800 58.000 34.500 54.600 36.600 36.200 24.500 19.700 12.800 19.200 13.000 127.000 79.600 72.400 45.800 43.400 28.000 68.600 42.800 17.500 9.700 40.200 27.500 22.000 14.900 94.500 59.000 TM - HÚSGÖGN SIÐUMÚLA 30 SIMÍ686822 Opið mánudaga-föstudaga 9-18 laugardaga kl. 10-17 sunnudaga kl. 14-17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.