Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992. LífsstOl Sex paprikur fyrir hverj a eina - ef verslað er á ódýrasta stað í stað þess dýrasta Neytendasíða DV kannaði að þessu sinni verð í eftirtöldum verslunum: Bónusi í Faxafeni, Fjarðarkaupi í Hafnarfirði, Hagkaupi í Kringlunni, Kjötstöðinni í Glæsibæ og Mikla- garðsversluninni í Mjódd. Bónusbúðimar selja sitt grænmeti í lausasölu á meðan hinar saman- burðarverslanirnar selja eftir vigt. Til þess að fá samanburð þar á milli er grænmeti í Bónusi vigtað og um- reiknað eftir meðalþyngd yfir í kíló- verð. Að þessu sinni var kannað verð á tómötum, bláum vínberjum, grænni papriku, guUaugakartöflum, hvítu greipi, rauðum eplum, appelsínum, Uncle Ben’s hrísgrjónum í 454 g pakka, einu kílói af ýsufl’ökum, 485 ml af Þvol uppþvottalegi, 125 g af Maggi kartöflumús og 400 gramma pakka af Cocoa Puffs morgunkomi. Mjög miklu munar að þessu sinni á hæsta og lægsta verði af papriku og fást sex paprikur fyrir hverja eina ef verslað er á ódýrasta stað í stað þess dýrasta. Paprikumar voru ódýrastar í Bónusi á 85, verðiö var 248 í Miklagarði, 249 í Fjarðarkaupi, 318 í Hagkaupi og 569 í Kjötstöðinni. Munur á hæsta og lægsta verði er því 569%. Munur á hæsta og lægsta verði á bláum vínbeijum er 78 af hundraði. Lægsta verðið var að fmna í Mikla- garði og Hagkaupi, 264, Fjarðarkaup seldi kílóið á 265 og Kjötstöðin á 470. Neytendur Blá vínber fengust að þessu sinni ekki í Bónusi. Munur á hæsta og lægsta verði á tómötum er 415%. Hagstæðasta verð- ið var í Bónusi, 63, en á eftir fylgdu Mikligarður með 155, Fjarðarkaup 156, Hagkaup 218 og Kjötstöðin 325 krónur. Töluvert minni munur var á hæsta og lægsta verði á kartöflum eða 226%. Þær vom ódýrastar í Bón- usi á 23 krónur kílóið, þá í Fjarðar- kaupi á 62 krónur kílóið og á sama verði í Miklagarði, Hagkaupi og Kjöt- stöðinni á 75 krónur kílóið. Verðið á greipi var 196% hærra í Kjötstöðinni (163) heldur en í Bónusi (55) þar sem verðið var lægst. Kílóið var á 65 í Hagkaupi, 83 í Miklagarði og 95 í Fjarðarkaupi. Það munar 56 af hundraði á hæsta og lægsta verði á rauðum eplum. Þau voru á 108 krónur kílóið í Bónusi, þar sem verö- ið var lægst, 138 í Miklagarði, 139 í Fjarðarkaupi og Hagkaupi og á 169 krónur kílóið í Kjötstöðinni. Munur á hæsta og lægsta verði á appelsínum var 94%. Lægsta verðið var í Bónusi, 51, en í röð á eftir komu Hagkaup, 59, Mikhgarður, 77, Fjarð- arkaup, 79, og Kjötstöðin, 99. Það munar 26% á verði ef keypt eru Uncle Ben’s á ódýrasta stað í stað þess dý- rasta. Þau fengust ekki í Bónusi en lægsta verðið, 62 krónur, var í Fjarð- arkaupi. Kjötstöðin og Hagkaup voru með sama verð, 72 krónur, en Mikli- garður 78. Kíló af ýsuflökum kostar 410 í Bón- usi, 449 í Hagkaupi, 455 í Miklagarði og 465 í Kjötstöðinni og Fjarðar- kaupi. Munur á hæsta og lægsta verði var 13 af hundraði. Þvol upp- þvottaiögur fékkst ekki í Bónusi en var ódýrastur í Hagkaupi á 95, þá í Fjarðarkaupi á 99, Kjötstöðinni á 104 og í Miklagarði á 109. Munur á hæsta og lægsta verði var 15%. Munur á hæsta og lægsta verði á grænmeti og ávöxtum er oft mjög mikill á milli verslana. Maggi kartöflumús kostar 57 krón- ur á ódýrasta staðnum, í Bónusi, 59 í Miklagarði og í Hagkaupi, 64 í Fjarðarkaupi og 67 í Kjötstöðinni. Verðmunur þarna er ekki mjög mik- ill eða 18%. Það munar 22% á hæsta og lægsta verði á Cocoa Puffs morg- unverðarkorni. Verðið var lægst í Bónusi, 174,183 í Fjarðarkaupi, 191 í Hagkaupi, 210 í Kjötstöðinni og 212 í Miklagarði. -ingo Hæsta og lægsta verð Ýsuflak Hæst Lægst Appelsínur Uppþvottalögur 130 Hæst Lægst Hæst Lægst Cocoa Puffs 300 ;-------- 250 ! 200 j 150 } 100! Bónus Hæst Lægst Hrísgrjón Hæst Lægst Kartöflumús 70 Hæst Lægst Sértilboð og afsláttur: Lambakjöt á lágmarksverði Bónusbúöirnar eru með þijár fást 45 stykki. Einnig er hægt að fa bragötegundir af Party Food þar tvo lítra af Emmess skafís á snakki á sértilboðsverði þessa dag- 398, 2 1 af Fanta á 99 og 6 tveggja ana, 250 g poki kostar nú 179 krón- lítra flöskur af kóki á 834 krónur. ur. Einnig fæst kíló af Hoki- Kjötstööin f Glæsibæ býöur nú kornflexi á 199 krónur, 500 g af lambakjöt á iágmarksverði, hálfan Veno-kremkexi á 149 krónúr og skrokk, á 549 krónur kílóið, kíióið ehm og hálfur lítri af RC kóla á 92 af Búrfellspylsum á 552 og kílóið krónur. af london lambi á 955. Einnig fæst í Fjarðarkaupi er hægt að kaupa þar falskur héri á 395 krónur kílóið. 400 g af Nesquick á 184 krónur, 500 í Hagkaupi Skeifunni er pokinn gramma poka af Bassett’s lakkrís- af frosnum smábrauðum frá Myil- konfekti á 194 krónur og l kíló af unni nú seldur á 129 krónur, 21 af Diletto kaffi á 422. Einnig er hægt diet kóki á 158 og hálfúr iítri af aö fá þar 700 gramma flösku af Tuborg léttöli á 65 krónur dósin. Heinz tómatsósu á 144 krónur. Einnig fæst 1 dós, 425 g, af Flavo- I Miklagarðsver8luninni í Mjódd rite ananassneiðum þar á 64 krón- er hægt aö gera góð kaup í Bambo ur. -ingo Jumbo bleium því fyrir 499 krónur Meðalverð á uppleið að tómötum undanskildum Það meðalverð á grænmeti og ávöxtum sem kannað var, að und- anskildu meðalverði á tómötum og kartöflum, virðist almennt fara hækkandi þegar til skamms tíma er litið þó að oft sé um htla breyt- ingu að ræða. Meðalverð á grænni papriku hef- ur.t.d. hækkað úr 240 krónum í lok nóvember í 294 nú. \ lok janúar var þaö 285 krónur. Meðalverö á bláum vínberjum hefur snarhækkað frá því í byrjun janúar þegar það var kannað og reyndist vera 206. Nú er meðal- verðið 316 en var 262 í lok janúar. Meðalverð á rauðum eplum virðist taka töluverðum breytingum á miili kannana. Þegar þau voru tek- in í verðkönnun DV í miðjum des- ember var meðalverðið 147, datt svo niður í 127 í lok janúar og er nú 139. Hægt var að tala um verðhraun á hvítu greipi um tíma þar sem meðalverð þess hríðféll frá nóv- emberlokum, þegar það var 124, th loka janúar þegar það var 90. Nú hefur þaö hins vegar hækkað lítil- lega aftur, eða í 92. Kartöflur hafa staðið í stað. Með- alverð þeirra er nú 62 og hefur því haldist óbreytt síðan í byijun jan- úar. Meðalverð á tómötum er hins vegar það eina sem hefur lækkað frá síðustu könnun f lok janúar. Þá var meðalverð þeirra 200 en er nú 183. Þegar til lengri tíma er htið hafa orðið talsverðar breytingar á meðalverðinu. í lok desember var það 217, í byijun janúar var þaö 276, í janúarlok var það 200 en er nú 183. Meöalverö á tómötum er því lægra núna en það hefur verið lengi. -ingo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.