Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Blaðsíða 32
Er margdæmdur fyrir skjalafals og fjársvik - á eftir að afþlána fangelsisdóm fyrir innflutning á um hálfu kílói af hassi Framkvæmdastjóri Vatnsberans i Hafnarfirði, sem auglýst hefur að undanfömu eftir hlutafé vegna stórfellds útflutnings á islensku vatni, mun á næstunni fara í tveggja mánaða fangelsisafþlánun sem hann var nýlega dæmdur í. Fangelsisrefsingin er fyrir inn- Qutning hans á tæpu hálfú kílói af hassi frá Svíþjóð í janúar árið 1989. Sami maöur hefur margsinnis hlotiö fangelsisrefsingar hér á landi. Árið 1979 var hann dæmdur í 6 mónaða skilorðsbundið fangelsi í Sakadómi Reykjavíkur fyrir skjalafals og fjárdrátt. Fimm ártun siðar, árið 1984, var hann dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir skjalafais og fjársvik. í október árið 1986 dæmdi Sakadómur hann í 6 mánaða fangelsi sem hegningar- auka fyrir skjalafals. Nokkrum mánuðum síðar, í febrúar 1987, var framkvæmdastjórinn aftur dæmd- ur. Þá fékk hann 8 mánaöa fangelsi sem hegningarauka fyrir skjaia- fals. í október á sama ári veitti dómsmálaráöuneytið manninum reynsluiausn í 2 ár á eftirstöðvum 9 mánaða refsingar. Viö yfirheyrslur hjá lögreglu þann 13. janúar 1989 kvaðst maður- inn hafa fiutt til Sviþjóðar síðia árs árið 1988. Á meðan á dvöl hans stóð þar sagðist hann hafa ákveðið að flytja hass hingaö til lands í sölu- skyni - tfigangurinn hafi veriö að bæta fjárhaginn, hann hafi verið skuldum vafinn. Maðurinn kvaðst hafa farið til Kaupmannahafhar um miöjan des- ember 1988 og keypt þar 550 grömm af hassi og greitt fyrir það 16 þús- und krónur sænskar. Hann viður- kenndi aö hafa flutt það til Svíþjóö- ar en þaðan flutt 545 grömm hingaö til lands þann 10. janúar 1989. Mis- muninn kvaðst hann sjálfur hafa notað í Sviþjóö. Hann sagðist einn- ig hafa flutt með sér háift gramm af amfetamíni. Maðurinn viöur- kenndi síöan að hafa falið hassiö í opnum kofa viö Vatnsendahæð og hafi verið búinn að finna nokkra aðila er vildu kaupa af honum hass. Þegar maðurinn var að sækja pakka með hassinu í kofann við Vatnsendahæð þann 13. janúar 1989 handtók lögreglan hann. Dómur í málinu gekk í Sakadómi í ávana- og fíkniefnamálum þann 5. nóvember síöastliðinn. Fram- kvæmdastjórinn var sekur fúndinn um innflutning á tæpu hálfu kilói af hassi. Hann var dæmdur í 2 mánaða fangelsi. Fangelsismála- stofnun ríkisins hefur fengið dóm- inntilfullnustu. -ÓTT NATO: Hvergi minnst á óeiningu ráðherra - segirÞorsteinnPálsson Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra sagði við DV í morgun að hann hefði farið yfir fundargerðir Mannvirkjasjóðs NATO og þar komi ekkert fram sem bendi til þess að framkvæmdum hafi verið frestað á Keflavíkurflugvelli vegna óeiningar í ríkisstjóminni um framtíð ís- lenskra aðalverktaka. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra hefur haldið því fram að Mannvirkjasjóður NATO hafi frest- að ákvörðun um framkvæmdir vegna ummæla einstakra ráðherra. Hann hefur einnig sagt að það sem ^ þurfi að gerast er að ríkisstjórnin tali einni röddu í málinu. „Ég hef skoðað gögn Mannvirkja- sjóðs um máhð og það kemur hvergi fram að þetta hafi verið ástæðan fyr- ir frestuninni." - Kemur fram hver sé ástæðan? „Mér sýnist aö það séu tvær höf- uðástæður fyrir að þetta hafi dregist. Önnur er sú að það eru breyttar aö- stæður í heiminum. Hin ástæðan er sú að við höfum verið alit of tregir tii að opna fyrir venjulega viðskipta- hætti um framkvæmdir á Keflavík- urvelli. Það hefur verið krafa Mann- virkjasjóðsins að við gerðum það. Tregða okkar hefur valdið erfiðleik- um og er meginskýringin á þvi að málin hafa ekki gengið eins fram og við hefðum kosið. Astæðan er því þveröfug við það sem hefur veriö sagt.“ -JGH Þröstur Ólafsson: Neikvæðar aðgerðir Þröstur Ólafsson, hagfræðingur og aðstoðarmaður utanríkisráðherra, sagði í samtali við DV í morgun að ríkisstjóm Steingríms Hermanns- sonar heföi betur látið ógert að að- stoða sjávarútveginn á árinu 1989 og j*. 1990 með þeim hætti sem gert var. Þau lán og þær skuldbreytingar sem þá voru gerðar fyrir sjávarútveginn heföu virkað öfugt. Vandi sjávarút- vegsins væri minni í dag ef ríkis- stjóm Steingríms Hermannssonar heföi ahs ekkert aðhafst. -S.dór Ægirtókniðri í Jökulfjörðum Varðskipið Ægir tók niðri í Jökul- íjörðum í fyirakvöld. Sjór komst í tvo olíutanka. Óhappið átti sér stað eftir að skipveijar höföu kannað veiðar- færi í rækjubát. Á meðan var varð- skipið látið reka en þegar það var ^•gangsett að nýju var það komið á grynningar. Skipið kom til Reykja- víkur í gær og hefur verið tekið í shpp. -kaa Ökumaður fólksbíls var fluttur á slysadeild eftir árekstur við leigubifreið í Lækjargötu hjá Skólabrú i nótt. Bílarnir skullu harkalega saman og lenti annar þeirra á Ijósastaur. í gærkvöldi slasaðist einnig gangandi vegfarandi, kona, eftir að hafa orðið fyrir bíl á Gerðubergi á móts við Austurberg. Ekki er vitað hvaða bíl var ekið á konuna. Slys varð einnig á Bæjarhálsi í gærkvöldi og var ökumaður bíls fluttur á slysadeildina. Auk þess varð vinnuslys um borö i olíubátnum Héðni Valdimarssyni. Þar slasaðist maður þegar tóg slóst í höfuð hans. DV-mynd ÞÖK Forstjóri ESSO: Olíusala í dreifbýli í hættu „Það gæti orðið það dýrt aö flytja ohuvömr á suma staði að álagningin dygöi ekki fyrir kostnaðinum. Þá kemur til áhta fyrir menn í viðskipt- um hvort þeir eigi að leggja í mikinn kostnað fyrir htil viðskipti eða veija hagsmuni sína með betra verði á þéttbýlum svæðum. Sú hætta er því til staðar að einhverjir staðir úti á landi fái htla eða enga þjónustu verði frumvarpið samþykkt óbreytt," segir Geir Magnússon, forstjóri Esso. Viðskiptaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um jöfnun á flutningskostnaöi ohuvara. Þar er gert ráð fyrir að ohufélögin jafni sjálf verð á öllum ohuvömm og hafi sama verð á þeim úti um allt land. Geir segist vera því andvígur. Ekki sé hægt að gefa verð á olíuvörum ann- ars vegar frjálst og hins vegar skikka hvert félag til að hafa sama verð alls staðar á landinu, óháð flutnings- kostnaði. -kaa A S gz. T Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Dreifing: Sími 632700 Frjálst, óháð dagblaö FOSTUDAGUR 21. FEBRUAR 1992. Veðriöámorgun: Kaltmeðéljum sunnanlandsog vestan Á morgun verður hæg breytileg eða suðvestlæg átt. Smáél verða sunnanlands og vestan en annars þurrt. Frost verður á bihnu 1-10 stig. SLÖKKVITÆKI Þjónusta - sala - hleðsla Reglubundið eftirlit Saekjum - sendum Ím ® 91-29399 Allan sólarhringinn fjH Öryggisþjónusta VARI síðan 1969

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.