Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992. 11 íNapolí Pietro Lezzx, fyrrum borgar- stjóri í Napolí á ítalíu, hefur ver- iö ákærður ásamt tiu öðrum; stjómmálamönnmn fyrir að hafa faisað ; reikninga og skýrslur vegna smiði leikvangs fyrir heimsmeistarakeppnina í knatt- spyrnu árið 1990. Kostnaður fór langt fram úr áætlun en borgarstjórinn brá á það ráð að reyna að leyna misferl- inu. Grunur Ieikur á að mafían hafi haft hönd í bagga við snríði leikvangsins og tryggt sér vænar fúlgur af byggingarkostnaðinum. Vitað er að verktakafyrirtæki i Napolí eru á vakii mafíunnar. Skautísjálfsvörn á ntann með Kaupmaður í Bridgeport í Connecticut hefur verið sýknað- ur af ákæru um tilraun tii morðs þegar hann skaut ræningja i and- litið. Atvik voru meö þeim hætti að kunnur búðaræningi vatt sér inn i verslun og ógnaði kaupmannin- um með leikfangabyssu. Kaup- rnaður dró marghleypu undan borði sínu og skaut ræningjann í andlitið. Hann kjálkabrotnaði en lifi af. Að sögn lögregluimar í Bridgeport er þetta i þriðja sinn á þessu ári sem vopnaðir ræn- ingjar hljóta skotsár eftir við- skipti viö kaupmenn. aðleynaþvífyrir foreldrunum Tabata Turner, 18 ára stúlka frá Largo í Flórída, verður ákærð fyrir morð eftir að nýfætt barn hennar fannst látið undir hrúgu af fötum í þvottahúsi á heimili hemxar, Tabata segist hafa myrt bamið til að leyna foreldra sina því að hún hefði verið ólétt og eignast barn. Tabata er einstæð og sá þessa leið eina úr vandræöum sinum. Flugmenngela skotiðsérútúr herþyrlum Breskir hernaðarsérfræöingar segja að Rússum hafi tekist að útbúa þyrlur þannig að flug- mennirnir geti skotið sér úr þeim og bjargast í fallhlíf eins og þotu- ílugmenn gera. Þetta hefur verið talið ómögulegt til þessa vegna þess að flugmennírnir lenda í spöðum þyrlunnar. Ráö Rússanna er að stjóta spöð- unum af fyrst með sérstökum búnaði og síðan geta flugmenn- irnir bjargaö sér á eftir. Búnaður þessi hefur verið reyndur í þyrlu af gerðinni Hokiun. Madrídbúará kafi í snjó Mikið umferðaröngþveiti skap- aðist í Madríd, höfuðborg Spánar, nú vikunni þegar þar féll snjór rétt eins og borgin væri á norður- hjaranum. Það bætti ekki úr skák aö strætisvagnabílstjórar voru í verkfalli og þvi óvenju margir einkabílar á götunum. : Umferð um flugvöllinn við Madríd tafðist og verulega. í sum- um tilvikum voru vélamar mörg- xnn klukkustundum á eftir áætl- un. Fátítt er að snjói svo mikiö í Madríd. Þaö sem af er öldinni hefur snjóað þar í ,354 daga. ; Reuter Útlönd Sjúkraflutningamenn leiða burtu særðan mann sem lenti í klónum á stuðningsmönnum Inkathahreyfingar zúlú- manna í blökkumannabænum Soweto i Suður-Afríku í gær. Símamynd Reuter De Klerk, forseti Suður-Afríku: Boðar uppgjör við kynþáttahatara F.W. de Klerk, forseti Suður-Afr- íku, hefur boðað til uppgjörs við harðlínumenn sem vilja viöhalda kynþáttaaðskilnaðarstefnunni. For- setinn tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að efna til þjóðaratkvæða- greiðslu meðal hvítra manna í lok mars og að hann mundi segja af sér ef úrslitin væm honum í óhag. Hann sagði að kosningarnar mundu skera úr um það hvort Þjóð- arflokkur hans hefði umboð hvítra íbúa landsins til að ræða áfram við Afríska þjóðarráðið og aðra flokka um nýja stjómarskrá. „Ég þarf að styrkja stöðu mína til að semja um lausn sem ynni bug á óttanum og færði okkur öryggi," sagði de Klerk í gær, tæpum sólar- hring eftir að flokkur hans beið ósig- ur í aukakosningum til þingsins fyrir hinum hægrsinnaða íhaldsflokki sem er fylgjandi aðskilnaðarstefn- unni. Andries Treurnicht, leiðtogi íhaldsflokksins, sagði að ef de Klerk biði ósigur í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni og flokkur sinn kæmist til valda yrði viðræðunum um lýðræði í land- inu hætt. Afríska þjóðarráðið hefði engan rétt til að ákveða framtíð hvítu þjóðarinnar. Afríska þjóðarráðið fordæmdi ákvörðun de Klerks um þjóöarat- kvæðagreiðslu þar sem bæri vott um kynþáttamismunun og mundi tefja fyrir þróuninni í átt að friði og rétt- læti tíl handa öllum. Ráðið sagði að lausnin fælist í því að halda þing- kosningar þar sem hver maður hefði eitt atkvæði. Stjórnmálaskýrendur sögðu að de Klerk ættí að sigra í þjóðaratkvæða- greiðslunni. En ef hann tapaði mundi þróunin í átt til jafnréttis og alþjóð- legrar viðurkenningar stöðvast. Reuter Vopnin þagni í Nagorno-Karabakh Stjórnvöld í Armeníu og Az- erbajdzhan hafa hvatt til þess að taf- arlaust verði komið á vopnahléi í hinu umdeilda Nagorno-Karabakh- héraði til aö reyna að binda enda á fjögurra ára bardaga þar sem hafa kostað meira en eitt þúsund manns lífið. Allsendis er þó óvíst hvort skæru- liðar í lýðveldunum tveimur muni hlýða kallinu og leggja niður vopn sín. Það voru utanríkisráðherrar Kákasuslýðveldanna tveggja sem hvöttu til að vopnahléinu yrði komið á eftir átta klukkustunda langar samningaviðræður undir stjóm Rússa í Moskvu í gær. Ráðherrarnir sögðu að þeir mundu mæla með því við forseta sína og þing og hvetja tíl þess að vegir yrðu opnaðir, fjarskipt- um komið á að nýju og leyft yrði að flytja hjálpargögn til héraðsins. „Allir þátttakendur í samningavið- ræðunum í dag vom á einu máli um að viðræður geti ekki borið árangrn- þegar stríð geisar og byssximar gelta,“ sagði Hussain Sadikhov, ut- anríkisráðherra Azerbajdzhan, á fundi með fréttamönnum. Nagomo-Karabakh-héraðið er að mestu byggt Armenum en stjóm þess er í höndum Azera. Interfax-fréttastofan sagði að enn væri breitt bil milli deiluaðilanna og að þeir hefðu hafnaö tillögu Rússa um að gera bindandi samkomulag um binda enda á átökin. Fréttastofa Azera sagði að arm- enskar sveitir hefðu varpað sprengj- um á bæinn Sjúsja í Nagorno-Kara- bakh í gær og drepið eiim mann en sært sex. Reuter hausinn Hótelið í Texas, sem George Bush Bandaríkjaforseti kallar heimili sitt, er gjaidþrota og höfðu demókratar á orði í gær að kreppan í bandarísku efnahags- lífl heföi loks náö í skottíð á for- setanum. Eigendur hóteLsins, The Hous- tonian, i Houston skulda rúmlega hálfan annan milljarð króna ogá þriðjudag fóru þeir fram á greiöslustöðvun eftír árangurs- iausar samningaviðræður við lánardrottna sína. Bush dvelur sjaidan á „heimili" sínu í Houston og hafa demó- kratar í Texas sakaö forsetann um að hafa lögheimili sitt þar til að komast hjá þvi að greiða tekju- skatt sem enginn er í Texas. Verðlaun fyrir upplýsingarum sonarson Wayne Fjölskylda kvikmyndahetjunn- ar Johns Wayne hefur heitiö fimm þúsund dollurum í verö- laun hverjum þeim sem getur veitt upplýsingar um 15 ára son- arson hans sem er týndur. Patrick Wayne, sonur gömlu hetjunnar, sagði að ekkert hefði spurst til sonar síns, Anthony, frá þvi hann fór í skólann á þriöju- dag. Lögreglan telur ekki aö brögð séu i tafli. FTanska sjónvarpiö sagði frá því í gær að í bráðabirgðaskýrslu um orsakir flugslyssins við Stras- borg í síðasta mánuði, þegar þota af gerðiimi Airbus fórst og 87 manns meö, væri ekki neinum einum manni kemxt um hvernig fór. Sjónvarpsstöðin TF-1 skýrði frá því að rannsóknamefndin heföi komist að þeirri niðurstöðu að bæöi tæknileg mistök og mannleg heföu valdið því að flugvélin flaug utan í {jallsMíð þegar hún áttí aðeins eftir fimm minútna flug til Strasborgar. í skýrslunni kemur m.a. fram að aðflugstæki flugv'allarins í Strasborg eru ekki jafn tæknilega fullkomin og tækjabúnaður þot- unnar. Þá segir að hæðarmælir þotxmnar hafi ekki starfað eðli- e®a' Rcuter Erenn nteðann- aðeyraðálærinu Sjúkrahúsið í Austur-Grinstead á Englandi hefur lýst eftir manni með eyra á lærinu. Hann þekkist meðal annars á því að annað eyrað vantar á höfuðið. Svo er mál með vexti að á síðasta ári lenti umræddur maður í slags- málum og missti annað eyrað. Lækn- ar treystu sér ekki til að græða eyrað aftur á réttan stað vegna þess hve maðurinn var illa útieikinn á höfö- inu. Því var eyrað fest við læri mannsins tíl að halda því á lífi. Færa átti eyrað aftur á sinn staö að nokkr- um dögum liðnum. Maðurinn sagði fjölmiðlum sögu sína og undrxm yfir að vakna með eyrað á lærinu eins og fram hefur komið í DV. Hann mátti hins vegar ekki vera að því að bíða eftír að lækn- arnir lykju verki sínu og fór af sjúkrahúsinu. Nú vilja læknamir fá að heyra frá honum aftxir enda ómögulegt að ganga um með annað eyrað á lærinu. Reuter GÆÐAHUSGOGN Á GÓÐU VERÐI OPIÐ LAUGARDAG KL. 10.00-16.00. VISA RAÐGREIÐSLUR EURO RAÐGREIÐSLUR VALHÚSGÖGN HF. ÁRMÚLA 8, S. 812275 - 685375

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.