Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992. Viðskipti_________________________________________________________________________dv Útibúanet banka á íslandi er mjög dýrt: Bankar og sparisjóðir með 178 afgreiðslur um landið - samsvarar einum afgreiðslustað á flórtán hundruð íbúa Bankar og sparisjóðir eru með hvorki meira né minna 178 af- greiðslustaði víðs vegar um landið. Það svarar til þess að einn afgreiðslu- staður sé á fjórtán hundruð íbúa. Flestir afgreiðslustaðirnir eru á höf- uðborgarsvæðinu en þar er mjög þéttriðið net útibúa. í umfjöllun DV síðustu daga um háan rekstrarkostnað íslenskra banka og sparisjóða í hlutfalli af stærð þeirra sagði Jóhannes Nordai seðlabankastjóri að ein meginástæð- an væri mjög dýrt útibúanet þeirra. Jóhannes nefndi einnig að íslensk- ir bankar og sparisjóðir veittu mjög öfluga og góöa greiðslumiðlunar- þjónustu á tiltölulega lágu verði mið- að við það sem tíðkaðist erlendis. 67 afgreiðslustaðir banka á höfuðborgarsvæðinu í könnun DV um fjölda afgreiðslu- staða kemur vel í ljós hversu gífur- legur íjöldi útibúa er á höfuðborgar- svæðinu. Þeir eru alls 67 talsins. Stærsti banki landsins, Lands- bankinn, er ekki meö flesta af- greiðslustaði á höfuðborgarsvæðinu heldur íslandsbanki. Raunar vekur það athygh hvað íslandsbanki er með marga afgreiðslustaði á höfuðborg- arsvæðinu og má ætla að eitt helsta markmið bankans í spamaði sé að Fréttaljós Jón G. Hauksson fækka afgreiðslustöðum á höfuð- borgarsvæðinu. Skipting afgreiðslustaða eftir ein- stökum stofnunum er annars þessi: Landsbanki 19 íslandsbanki 24 Búnaðarbanki 12 Sparisjóðir 12 Margir afgreiðslustaðir Lands- banka og Islandsbanka á höfuðborg- arsvæðinu má rekja til sameiningar banka á undanförnum ámm. ís- landsbanki varð til úr Útvegsbanka, Iðnaðarbanka, Verslunarbanka og Alþýðubanka. Eftir sameininguna hefur bankinn hins vegar ekki sýnt nægilega snerpu í að fækka af- greiðslustöðum. Sama má segja um Landsbankann sem sameinaður var Samvinnubank- anum. Fyrir vikið er Landsbankinn með tiltölulega mörg útibú í Reykja- vík. Stutt milli banka Sláandi er til dæmis að Landsbank- inn er með afgreiðslustað við Banka- stræti, nokkur hundmð metra frá afgreiðslunni í aðalbankanum. Örfá- um metrum ofar, að Laugavegi 7, er bankinn einnig með stórt útibú. Þá er bankinn með útibú við Höfða- bakka og annað við Bíldshöfða sem er afar skammt frá. íslandsbanki er með útibú við Lækjargötu og annað við Banka- stræti. Þá er bankinn með afgreiðslu- stað nokkur hundruð metrum ofar, við Laugaveg 31, og annan uppi við Hlemm, Laugavegi 105. í Hekluhús- inu, Laugavegi 172, er bankinn einn- ig með afgreiðslu. Hann er einnig með afgreiðslustaði skammt hver frá öðrum við Grensás- veg, Háaleitisbraut, í Kringlunni og við Suðurlandsbraut. Athyglisvert er hvað sparisjóðimir Á íslandi eru 178 afgreiðslustaðir banka og sparisjóða. Útibúanetið er þétt víða úti á landi. íslandsbanki og sparisjóðimir lækka vexti: Vaxtalækkun í dag - LandsbankinnogBúnaðarbankinnhreyfaekkivexti íslandsbanki og sparisjóðimir lækka nafnvexti á útlánum í dag um allt áð 1 prósent. íslandsbanki og lækkar einnig vexti af verðtryggðum *riánum, úr 10,25 í 10 prósent á algeng- asta flokknum, og er það í fyrsta skipti í langan tíma sem innláns- stofnun hreyfir við vöxtum af verð- tryggðum lánum. Eftír vaxtalækkunina í dag era is- landsbanki, sparisjóðirnir og Búnað- arbanki meö sömu vexti á óverð- tryggðum almennum skuldabréfum. Þeir em núna 13,25 prósent á algeng- asta lánaflokkinum, svonefndum B- flokki. Fyrir var Búnaðarbankinn einn lægstur. Landsbankinn og Búnaðarbankinn hreyfa ekki vexti í dag. Landsbank- inn er með 15,25 prósent vexti á B- flokki óverötryggðra almennra skuldabréfa. Eftír vaxtalækkunina í dag em víx- ilvextir bankanna þannig að Búnað- arbankinn er lægstur með 12,5 pró- sent, íslandsbanki og sparisjóðimir 12,75 prósent og Landsbankinn 14,75 prósent. -JGH hafa verið duglegir við að fjölga af- greiðslustöðum að undanfómu á höf- uðborgarsvæðinu. Sparisjóður vél- stjóra hefur á síðustu árum opnað tvö útibú, við Síðumúlann og í Arbæ. Sparisjóður Hafnarfiarðar opnaði nýlega útibú í Garðabænum, þrátt fyrir að vera með tvo afgreiðslustaöi í Hafnarfirði. Sparisjóður Reykjavík- ur og nágrennis var lengi vel aðeins við Skólavörðustíg. Nú er hann líka úti á Seltjarnamesi, í Kringlunni, Breiðholti og Hátúni. Ekki bara vextirnir Af fjölda útibúa á höfuðborgar- svæðinu er ljóst að bankarnir og sparisjóðimir hafa ekki aðeins keppt um innlánsvinina með því að bjóða góð kjör og láta vextina tala, þeir keppa einnig með því að fjölga útibú- um sínum. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst INNLAN overðthyqqð Sparisjóðsbækur óbundnar 1,25-2 Landsbanki Sparireikningar 3ja mánaða uppsögn 1,25-4 Sparisjóðirnir 6 mánaða uppsögn 2,25-5 Sparisjóðirnir Tékkareikningar, almennir 1 Landsbanki Sértékkareikningar 1,25-2 Landsbanki VISITÖLUBUNDNIH HEIKNINQAR 6 mánaða uppsögn 2,75-3 Allir nema Landsb. 1 5-24 mánaða 6,75-7,75 Sparisjóðirnir Orlofsreikningar 5-5,5 Allir nema islb. Gengisbundnir reikningar í SDR 6,25-8 Landsbanki Gengisbundnir reikningar í ECU 9 Allir ÚBUNDNIR SERKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-3,5 Búnb., Landsb. Óverðtryggð kjör, hreyfðir 5,0-6,0 Landsbanki SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innan timabils) Vlsitölubundnir reikningar 1.75-3 Landsb., islb. Gengisbundir reikningar 1,75-3 Landsb., islb. BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki óverðtryggð kjör 7,25-9 Búnaðarbanki INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalir 2,75-3,0 islandsbanki Sterlingspund 8,25-9,0 Sparisjóöirnir Þýsk mörk 7,5-8,1 Sparisjóðirnir Danskar krónur 8,0-8,5 Sparisjóðirnir ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst ÚTLANÖVERÐTRYGGÐ Almennir vixlar (forvextir) 12,5-14,75 Búnaðarbanki Viðskiptavixlar (forvextir)1 kaupgengi Almenn skuldabréf B-flokkur 1 3,25-1 5,25 Allir nema Landsb Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdráttur) 1 5-1 7 Islb. ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ Almenn skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki afurðalAn islenskar krónur 1 2,5-1 3,0 islb. SDR 8,25-8,75 Landsbanki Bandaríkjadalir 6,0-6,75 Landsbanki Sterlingspund 11,7-1 2,75 Sparisjóðirnir Þýsk mörk 11,3-11,5 Sparisjóðirnir Húanœðislán 4,9 Ufeyri&sjóðslán 5-9 Dráttarvextir 23,0 MEÐALVEXTIR Almenn skuldabréf janúar 16,2 Verðtryggð lán janúar 10,0 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala febrúar 31 98 stig Lánskjaravísitala mars 31 98 stig Byggingavísitala mars 598 stig Býggingavísitala mars 187,1 stig Framfærsluvísitala janúar 1 60,2 stig Húsaleiguvísitala 1,1% lækkun 1. janúar VERÐBRÉEASJÓÐIR HLUTABRÉF Sölugengl bréfa veróbréfasjóóa Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun: KAUP SALA Einingabréf 1 6,110 HÆST LÆGST Einingabréf 2 3,247 Sjóvá-Almennar hf. _ 5,65 L Einingabréf 3 4,015 Ármannsfell hf. - 2,40 V Skammtímabréf 2,034 Eimskip 5,05 K 5,80 V,S Kjarabréf 5,746 Flugleiðir 1,85 K 2,05 K Markbréf 3,088 Hampiöjan 1,50 K 1,84 K,S Tekjubréf 2,133 Haraldur Böövarsson 2,00 K 3,10 K Skyndibréf 1,781 Hlutabréfasjóður VlB 1,04 V 1,10 V Sjóðsbréf 1 2,936 Hlutabréfasjóðurinn _ 1,73 V Sjóðsbréf 2 1,953 islandsbanki hf. _ 1,73 F Sjóösbréf 3 2,027 Eignfél. Alþýðub. 1,25 K 1,70 K Sjóðsbréf 4 1,733 Eignfél. Iðnaðarb. 1,85 K 2,22 K Sjóðsbréf 5 1,220 Eignfél. Verslb. 1,15 K 1,48 K Vaxtarbréf 2,0687 Grandi hf. 2,10 K 2,70 S Valbréf 1,9391 Olíufélagið hf. 4,50 K 5,00 V Islandsbréf 1,286 Olís 2,10 L 2,18 F Fjórðungsbréf 1,147 Skeljungur hf. 4,80 K 5,40 K Þingbréf 1,282 Skagstrendingur hf. 4,60 F 4,90 öndvegisbréf 1,261 Sæplast 6,80 K 7,20 K Sýslubréf 1,306 Tollvörugeymslan hf. 1,09 F 1,13 L Reiðubréf 1,239 Útgerðarfélag Ak. 4.50 K 4,80 L Launabréf 1,020 Fjárfestingarfélagið 1,18 F 1,35 F Heimsbréf 1,159 Almenni hlutabréfasj. 1,10 F1.15 F,S Auðlindarbréf '1,04 K1.09 K.S islenski hlutabréfasj. 1,15 L 1,20 L Síldarvinnslan, Neskaup. 3,10 L 3,50 L ’ Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi. K=Kaupþing, V = VlB, L=Landsþréf, F = Fjárfestingarfélagið, S = Verðbréfav. Sam- vinnubanka Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast í DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.