Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Síða 13
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992.
13
pv Menning
Robert Ward:
Einstakur
gítar-
hljómur
Fear No Evil er fyrsta platan
sem Robert Ward sendir frá sér
um tuttugu ára skeið. Fara nú
eflaust einhverjir að fletta aftur
á bak í hugskotinu og reyna að
muna eftir einhverjum Ward sem
var hátt skrifaður fyrir svo sem
tveimur til þremur áratugum. En
ólíklegt er að þeir finni neitt. Ef
svo ólíklega vill til að einhver
muni eftir hljómsveitinni The
Ohio Untouchables þá man hann
kannski líka að þar lék Robert
Ward á gítar.
Aðeins meira um þá hljómsveit.
Robert Ward hafði vart kvatt
spilafélaga sína í henni þegar
nafninu var breytt í Ohio Play-
ers. Sú hljómsveit sló hressilega
í gegn snemma á áttunda ára-
tugnum og kom tveimur lögum í
fönkstO á topp bandríska vin-
sældalistans, Fire og Love Roll-
ercoaster. Þegar þar var komið
Hljómplötur
Ásgeir Tómasson
sögu var Robert Ward orðinn
hljóðfæraleikari hjá Motown út-
gáfunni og farinn að spila undir
hjá skærustu stjörnum þeirrar
ágætu útgáfu.
Það sem vakti athygli þess er
þetta ritar á Robert Ward og plöt-
unni Fear No Evil er óvenjulegur
gítarhljómur og ekki síður dálítið
gamaldags handbragð við laga-
smíðar og útsetningar. Robert er
auðheyrilega flinkur á blússvið-
inu enda var sú stefna aðallega á
dagskrá hjá honum og Ohio Unto-
uchables um 1960 er hljómsveitin
hóf störf. Ward er einnig vel
kunnugur soultónlistinni og
blandar henni við blúsinn þar
sem það á við.
Hammond Scott plötuútgefandi
skýrir frá því í stuttri ritgerð sem
fylgir plötunni Fear No Evil
hvernig hann leitaði að Robert
Ward í tvö ár til að fá hann til
að spila inn á svo sem eina plötu
fyrir sig. Hammond gat ekki
gleymt sérstökum gítarhljóm
Wards sem kom með því að nota
gamlan Magnatone gítarmagn-
ara. Og fleiri mundu snilli gamla
gítaristans. Lonnie Mack skrifar
með Fear No Evil að enginn ann-
ar hafi jafnast á við Robert Ward
þar til Jimi Hendrix kom tii sög-
unnar. Raunar hafi Ward verið
búinn að fullkomna marga
Hendrixfrasana áður en Hendrix
fór að taka til hendinni svo að
heimurinn lagði við hlustimar.
Það er verulega gaman að heyra
á Robert Ward eftir tuttugu ára
þögn og að heyra að hann er með
alla tíu fingur í góðu lagi eftir öll
þessi ár. Fear No Evil er hóflega
gamaldags en þó með nútíma
hljómi. Upptakan er að svo tO
öllu leyti „lifandi" og Ward lætur
sig ekki muna um að spila og
syngja í einu. Aðeins í laginu
Newborn Music bætir hann gítar
ofan á upptökuna.
Það er Silvertone sem gefur
Fear No Evil út í Evrópu. Sama
útgáfa bauð upp á nýja plötu með
Buddy Guy á síðasta ári. Það er
því full ástæða til að fylgjast með
plötunum sem berast frá þessu
ágæta plötuforlagi.
Endurski
í skam
,fSisÍSS§5
Onnur metsolubók
eftír THOMAS HARRIS
sem einnig samdi Loitluill p30H3
- Mánuðum saman á metsölu-
listum austan hafs og vestan - hér kemur
HannibaiLecter
fyrst við sögu
ÍJA M a c u r m
Mu i„?J I 1 tVJ
RAVgr^
)RI
misíökin seni hann hefurIíUnna ;
< diT5ö» -<*, ”■ ■
•.Ognvejgandi, Jýsandi g ** f1rk ^es
' T6e Ptefa’fc®83"** Spennusafia...
"Besta aíþreyíngarso (C,eveJand)
Gu«faöirinnai(om^leríku síðan
-StephenKing
Aðrar vinsælar Út
André Soussan