Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1992, Síða 28
36
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992.
Menrdng________________
Frönsk tónlist
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt tónleika í Háskóla-
bíói í gærkvöldi. Stjórnandi var Jacques Mercier, frá
Frakklandi. Einleikari á píanó var Marita Viitasalo frá
Finnlandi. Flutt voru verk eftir frönsk tónskáld, þá
Darius Milhaud, Claude Debussy og Hector Berlioz.
„Suite provencale" eftir Milhaud sækir efnivið sinn
að sumu leyti í forna tónhst frá Provence héraði í
Suður-Frakklandi. Verkið er þannig blanda af fornu
og nýju, sem ekki rennur fullkomlega saman til að
verða eitthvaö nýtt, heldur varðveitast einkenni hinna
óskyldu stíltegunda. Útkoman verður nokkuð sundur-
laus en skrautleg tóniist og minnir á skjótt hross eða
skjöldótta kú. Flutningur hljómsveitarinnar á verkinu
var nokkuð sundurlaus á köílum og laus í hljóðfalli,
þótt inn á milii brygði fyrir þokkalegum leik.
Það var skemmtilegt að hlýða á „Fantasíu" Dehussys
fyrir píanó og hljómsveit hafandi það í huga að þetta
er verk sem tónskáldið sjálft hafnaði á sínum tíma og
taldi ekki sér samboðið. Nú er verkið fallega og vel
unnið og hljómsveitarbúningurinn hefur ýmislegt sem
einkennir síðari og frægari verk Debussys. Verkið
hefur hins vegar ekki það sjálfstæði og frumlega styrk
sem hin betri verk Debussys hafa. Það er of venjulegt
og líkt því sem margir aðrir gátu gert.
Flutningurinn á „Fantasíunni" var töluvert betri en
á verki Milhauds. Það var þó fyrst í „Symphonie Fant-
astique" sem hljómsveitin komst í ham. Þar var margt
mjög vel gert, þar á meðal „Gálgagangan" og „Norna-
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
gleðin“. Hljómsveitarstjórinn þekkti þetta verk greini-
lega mjög vel og stjórnaði af tilþrifum. Það er svolítið
skrýtið til þess að hugsa aö verkið er samið um 1830
svo ferskt sem það ennþá hljómar. Svo frægt tónverk
sem „Symphonie fantastique" er getur það ekki talist
fullkomið. Miklu nær er að segja að það hafi áhrifa-
mikla kafla með lakara efni inn á milli. Hins vegar
eru góðu kaflarnir nægilega fyrirferðarmiklir til þess
að gera það jafnan að ánægjulegri reynslu að hlýða á
verkið.
Andlát
Jóhann Jónsson frá Seglbúðum lést
í Heiðarbæ, Kirkjubæjarklaustri, 19.
febrúar.
Pálmi Pálsson bóndi, Hjálmsstöðum,
Laugardal, lést á heimih sínu 19.
febrúar.
Gyða Þórdís Þórarinsdóttir, Norður-
brún 24, Reykjavík, lést í Landspítal-
anum 18. febrúar sl.
Ágúst Jónsson, fyrrum bifreiðar-
stjóri ÁTVR, lést á Hrafnistu sunnu-
daginn 9. febrúar. Jarðarforin hefur
farið fram.
Jarðarfarir
Þórður Helgi Hannesson, Háagerði
11, er lést í Landspítalanum 16. febrú-
Bergur Guönason:
Athugasemd
vegnafréttar
umRocco
Bergur Guðnason lögfræðingur
hefur beðið um að eftirfarandi at-
hugasemd væri komið á framfæri:
„Ég kannast við samtal mitt við
blaðamann DV, sem um er getið í
frétt blaðsins fyrr í vikunni. Sem lög-
maður Donalds Roccos taldi ég mig
ekki geta upplýst um flekkað mann-
orð hans. Eg taldi mig með því vera
að bijóta siðareglur lögmanna. Hitt
er cmnað mál, að um leið og þetta
mál upplýstist stóð ekki á mér að
viðurkenna það. Ég taldi mig ekki
vera ósannindamann er ég átti viðtal
við blaðamann DV. Ég hélt þessu ein-
faldlega leyndu vegna skjólstæðings
míns.“
Athugasemd blaðamanns:
Frétt DV stendur eftir sem áöur.
Lögmaður Donalds Roccos fuUviss-
aði blaðamann um að skjólstæðingur
hans væri með hreinan skjöld í um-
ræddu samtali. Síðar hefur annað
komið á daginn.
Vegna viðtals við menntamálaráð-
herra í DV í gær óskar hann að taka
fram eftirfarandi:
í fyrirsögn og texta er notað orðið
frídagar. Það er ekki rétta orðiö, enda
kemur ráðuneytinu ekki við, hvernig
kennarar nota frídaga sína.
Hér átti að standa orðið „starfsdag-
ar“ sem varið er til annarra starfa
kennara í grunnskóla en kennslu.
Þá eru það nemendur sem eiga frí.
Á tveimur stöðum í viðtahnu við-
hafði ég orðalag sem þarfnast skýr-
ingar, annars vegar að kennarar
ar, verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju mánudaginn 24. febrúar.
Marta Kjartansdóttir, Setbergi,
Stokkseyri, sem lést 13. febrúar,
verður jarðsungin frá Stokkseyrar-
kirkju laugardaginn 22. febrúar kl.
13.30.
Anton Ingibjartsson, ísafirði, sem
andaðist laugardaginn 15. febrúar,
verður jarösunginn frá ísafjarð-
arkapellu laugardaginn 22. febrúar
kl. 10.30.
Ingimar Rafn Guðnason, slökkviliðs-
og sjúkraflutningamaður, Vörðu-
brún 2, verður jarðsunginn frá Kefla-
víkurkirkju laugardaginn 22. febrúar
kl. 14.
Anna Emilsdóttir frá Innri-Njarðvík
verður jarðsunginn frá Innri-Njarð-
víkurkirkju laugardaginn 22. febrúar
kl. 13.30.
Þorvaldur Guðmundsson vélvirkja-
meistari, Seljalandsvegi 26, ísafirði,
verður jarösunginn frá ísafjarð-
arkapellu laugardaginn 22. febrúar
kl. 14.
Þorvaldur Sigurðsson, Eyrarvegi 9,
Selfossi, sem lést 11. febrúar sl., verð-
ur jarðsettur frá Selfosskirkju laug-
ardaginn 22. febrúar kl. 13.30.
Gestur Jóhannesson, dvalarheimil-
inu Hlíð, Akureyri, áður til heimilis
á Reynivöllum 2, Akureyri, sem and-
aðist fimmtudaginn 13. febrúar,
verður jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju þriðjudaginn 25. febrúar kl.
13.30.
Tilkynnmgar
Tónlistarskóli Borgar-
fjarðar með opið hús
A morgun, laugardaginn 22. febrúar, er
Dagur tónlistarskólanna. Af þvl tilefni
mun Tónlistarskóli Borgarfjarðar hafa
opið hús í Hótel Borgamesi frá kl. 14-17.
Nemendur munu leika og syngja fyrir
gesti. Allir velkomnir.
Stéttarfélag verkfræðinga
í tilefni af 80 ára afmæli Verkfræðingafé-
lags íslands, VFÍ, hyggst Stéttarfélag
verkfræðinga, SV, gangast fyrir ráð-
stefnu um atvinnumál verkfræðinga.
Ráðstefnan verður sett laugardaginn 22.
febrúar kl. 14. Fundarstaður verður Þing-
salur A á Hótel Sögu. Ráðstefnugjald
verður ekkert og öllum frjáls þátttaka.
hefðu „komist upp með að nýta ekki
hinn lögboðna tíma til kennslu" og
hins vegar að huga þyrfti að öllum
þeim frídögum „(þ.e. starfsdögum)"
sem þeir hefðu komið sér upp.“
Vegna þessa vil ég taka fram að'
kennarar eiga hér ekki aUa sök, held-
ur er hér að hluta um stjómunarleg-
ar vanrækslusyndir að ræða sem
ráðuneytið getur að nokkru tekið á
sig.
Á þeim málum verður tekið.
Ólafur G. Einarsson
Forsýning Lions-
klúbbsins Eir
Lionsklúbburinn Eir gengst fyrir hinni
árlegu kvikmyndasýningu. Að þessu
sinni veröur sýnd gamanmyndin „Stepp-
ing out“ meö leikurunum Liza Minnelli,
Shelley Winters og Julie Walters. Sýning-
in verður í Háskólabíói laugardaginn 22.
febrúar kl. 17. Formaöur klúbbsins,
Stella María Vilbergs, opnar sýninguna
og áður en sýningin hefst ílytur hin efni-
lega söngkona Ingibjörg Marteinsdóttir
nokkur lög við undirleik Guðna Þ. Guð-
mundssonar.
Málstofa í hjúkrunarfræði
Guðrún Marteinsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og dósent, flytur fyrirlesturinn:
Áhugahvöt og heilbrigðishegðun. í erindi
Guðrúnar verður lögð áhersla á það
hvemig hjúkrunarfræðin nálgast við-
fangsefni sitt út frá heildrænum skilningi
á manninum og heObrigði hans. Að lok-
um segir Guðrún í stuttu máli frá rann-
sóknum sínum á sjálflægri hvatningu
sem grundavallarþætti í heilbrigðishegð-
un. Málstofan verður haldin mánudaginn
24. febrúar 1992 kl. 12.15 í stofu 6 á 1. hæð
í Eirbergi, Eiríksgötu 34.
Árshátíð Bolvíkingafélagsins
verður í Glæsibæ nk. laugardag 22. febrú-
ar og hefst kl. 19.30.
Myndin Að klífa hjallann - ný
leið í leikskólastarfi
verður frumsýnd laugardaginn 22. febrú-
ar nk. kl. 15-17 síðdegis í Holiday Inn.
Myndin, sem er 27 mínútna löng, fjallar
um starfsemi hafnfirsks leikskóla sem i
daglegu tali nefnist Hjalh. Ýmsar nýjung-
ar í starfsemi leikskólans hafa vakið at-
hygli en þar er unnið eftir markvissri
uppeldisstefnu sem m.a. miðar að jafn-
rétti kynjanna. Höfundur stefnunnar er
Margrét Pála Ólafsdóttir leikskólastjóri
sem hefur þróað hana áfram ásamt
starfsfólki sínu á leikskólanum um
tveggja og hálfs árs skeið. Jafnframt
verður viö þetta tækifæri kynnt bók um
Hjallastefnuna, eins og hún er kölluð.
Bókin heitir Æfingin skapar meistarann
og er eftir Margréti Pálu Ólafsdóttur.
Forlagið Mál og menning gefur út.
Húnvetningafélagið
Félagsvist verður á laugardaginn kl. 14 í
Húnabúð, Skeifunni 17. Fyrsti dagur í
fjögurra daga keppni. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfar fara frá Risinu kl. 10 á
laugardagsmorgun.
Þjóðminjasafn íslands
Laugardaginn 22. febrúar kl. 14 mun Elsa
E. Guðjónsson, deildarstjóri textíl- og
búningadeUdar Þjóðminjasafnsins, fylgja
gestum safnsins um fastar sýningar þess.
Fimirfætur
Dansæfing verður í TemplarahöUinni
v/Eiríksgötu sunnudaginn 23. febrúar kl.
21. Allir velkomnir. Upplýsingar í síma
54366.
„Ástaijátning" í bíósal MÍR
Kvikmyndin „Ástarjátning" (Objasnj-
enie v Ijúbví), sem gerð var í Sovétríkjun-
um á árinu 1977, verður sýnd í bíósal
MÍR, Vatnsstíg 10, nk. sunnudag 23. fe-
brúar kl. 16. Leikstjóri er Uja Averbakh,
en meðal leikenda er hinn kunni leikari
KiriU Lavrov. Myndin er með rússnesku
taU en skýringartextar á ensku. Aðgang-
ur er ókeypis og öUum heimUl. Áætlim
kvikmyndasýningar MÍR í mars og apríl
liggur frammi á sunnudagsýningunni.
Tónlistarskólinn í Reykjavík
heldur tónleika í Langholtskirkju sunnu-
daginn 23. febrúar nk. og hefjast þeir kl.
17. Hljómsveit TórUistarskólans leikur
undir sfjóm Kjartans Óskarssonar og er
einsöngvari Hlín Pétursdóttir sópran-
söngkona. Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Menntamálaráðherra:
Athugasemd
Laugardagskaffi
Kvennalistans
verður að venju haldið að Laugavegi 17,
annarri hæð, kl. 10.30. Að þessu sinni
mun HUdur Jónsdóttir, starfskona nor-
ræna jafnlaunaverkefnisins, kynna hvað
þetta verkefni felur í sér og hvaða leiðir
eru helst færar til þess að jafna hið kyn-
bundna misrétti sem viða viðgengst á
vinnumarkaðmum. Það eru allir vel-
Leikhús
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR 1^01
#50% afsláttur
á síðustu sýningar, gild-
ir aðeins á Ljón í Síð-
buxum og Ruglið!
Á STÓRA SVIÐI:
ÞRÚGUR REIÐINNAR
Byggt á sögu
JOHNS STEINBECK
Leikgerð: FRANK GALATI
Frumsýning fimmtud. 27. febr.
2. sýnlng laugard. 29. febr.
Grákort gllda.
3. sýnlng sunnud. 1. mars.
Rauðkortgllda.
4. sýnlng flmmtud. 5. mars.
Blákortgllda.
5. sýnlng föstud. 6. mars.
Gulkortgllda.
LJÓN í SÍÐBUXUM
eftir Bjöm Th. Bjömsson
í kvöld.
Uppselt.
AUKASÝNING
Sunnud. 23. febr.
RUGLIÐ
Johann Nestroy
Laugard. 22. febr.
Síðasta sýnlng.
Karþasis - Leiksmiðjan
sýnir á litla sviði:
HEDDU GABLER
ettir Hinrik Ibsen.
Frumsýning sunnud. 23. febr.
kl. 20.00.
Föstud. 28. febr.
Miðvikud.4. mars.
Mióasala opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl.
13-17. Miðapantanir í sima alla
virka daga frá kl. 10-12.
Sími680680.
Leikhúslinan 99-1015.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavíkur.
Borgarleikhús.
TJÚTT&TREGI
Söngleikur eftir
Valgeir Skagfjörð
íkvöldkl. 20.30.
Laugard. 22. febr.kl. 20.30.
Uppselt.
Sunnud. 23. febr. kl. 20.30.
Föstud. 28. febr. kl. 20.30.
Laugard. 29. febr. kl. 20.30.
örfá sætl laus.
Sunnud. 1. mars kl. 20.30.
Ath.l Næstsiðasta sýnlngarhelgi.
Mlðasala er i Samkomuhúsinu,
Hafnarstræti 57. Miðasalan er opin
alla virka daga nema mánudaga kl.
14-18 og sýnlngardaga fram að sýn-
ingu. Grelðslukortaþjónusta.
Simi í mlðasölu: (96) 24073.
komnir, aögangur er ókeypis og kaffiveit-
ingar fást á staðnum.
Tapað-fimdið
Páfagaukur tapaðist
frá Laugavegi 63 um kl. 15 í gær, 19. febrú-
ar. Hann er lítill, ljósblár og hvítur. Fund-
arlaun. Sími 19362.