Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1992, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1992, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992. Fréttir Garðar Gunnarsson, 59 ára skipbrotsmaður af Krossnesi, sem sökk á Halamiðum: Ekkert líkt því að festa trollið í haf sbotninum - sjómaðurinn festist 1 flækju og taldi sig vera að sökkva með togaranum „Fyrstu 1-2 mínútumar voru þannig aö maður trúði þessu ekki - að þetta væri bara að gerast. Menn geta ekki trúað því að svona ljóm- andi sjóskip, sem maður er búinn að sullast á í 4 ár, sé að velta í blíðskap- arveðri. Þaö var búið að ganga ljóm- andi vel. Það getur enginn giskað á hvað var að gerast, það er ekki nokk- ur leið. Eitthvað hefur bilað. Þegar við festum í botni er oftast að það tekur í. Við höfum oft lent 1 svoleiðis en þetta var ekkert þvíumlíkt. Bátur- inn lagðist bara Qjótlega eftir aö byrj- að var að hífa. Hann byrjaði að síga yfir og hélt alltaf áfram að síga. Troll- ið lá bara beint aftur úr. Það er bara eitthvað sem bilar. Hvað það hefur verið vitum við ekki. Það er ekki nokkur einasta leið að giska á það,“ sagði Garðar Gunnarsson, 59 ára Gnmdfirðingur og skipbrotsmaður af Krossnesi SH 308, sem sökk á Hala- miðum á sunnudagsmorgun. Garðar hggur á Landakotsspítala, fótbrotinn eftir að hafa fengið þung- an hlut í hægri legginn þegar togar- inn var að sökkva. Áður en skipveij- ar af Sléttanesinu björguðu honum úr sjónum var hann mjög kaldur eft- ir að hafa velkst 1 hálfopnum flot- galla drykklanga stund. Garðar, sem er faðir skipstjórans, sem einnig var bjargað, er þrátt fyrir allt á góðum batavegi. DV ræddi við hann á sjúkrahúsinu í gær. Allt svo eölilegt þegar híft var „Eg kom á vakt sem byrjaði klukk- an hálfsjö. Við byijuðum að hífa um áttaleytið og ég var kominn í vinnu- sjógallann. Við áttum ekkert von á þessu. Mér fannst þetta allt svo eðli- legt og fint þegar híft var. Báðir vir- amir voru jafnstrekktir og lágu að- eins í bak. Það var lítil ferð á skipinu en þegar farið var aö hífa þá stopp- aði það. Þetta var mjög venjulegt að því leyti. Skipið byijaði aht í einu að hallast rólega í bakborða þegar búið var að hífa svolítið inn og svo jókst hallinn. Síðan var hætt að hífa og slakað svo- lítið en það skipti engu máli - hann hélt bara áfram aö hallast. Viö vor- um fjórir komnir út sem vorum að fara á vakt, stýrimaðurinn var í brúnni en hinir höfðu flestir verið sofandi. Togarinn hélt áfram að síga hægt og rólega á 4-5 mínútum þangað til hann var alveg lagstur á hliðina." Rennilásinn á gallanum festist „Ég fór upp í brúna þar sem flot- gahamir em geymdir og þurfti fyrst aö fara úr stígvélunum og vinnugah- anum. Þaö var erfitt að athafna sig. Ég rétt gat smokrað mér í flotgallann en þegar ég var að renna honpm upp festist rennilásinn eitthvað. Þá var ég kominn út og ég lá upp við þihð á stýrishúsinu á brúarvængnum stjórnborðsmegin. Þegar báturinn var að velta var eitthvað uppi á dekki sem skoppaði í löppina á mér á dekk- inu og þá brotnaði ég. Síðan lagðist togarinn alveg flatur á hhðina og ahir fóru í sjóinn. Þeir vom búnir að koma báðum gúmmí- bátunum út. Annar kom strax en hinn kom skoppandi yfir. Það gekk vel að opna þá, menn hafa verið aö æfa þetta. Þeir voru búnir að vera í vikutíma viö æfingar í Slysavama- skólanum. En þetta var svo ofboðs- lega stuttur tími sem þetta varð á. Togarinn hvarf svo flatur niður.“ Hélt ég væri að sogast niður „Ég sá gúmmíbátana og reyndi að synda í áttina að öðrum. En ég var þama í kassa- og netadrash. Þegar ég var rétt að koma að öðrum bátn- um kipptist hann eitthvað til. Ég var að ímynda mér hvort flakið hefði þá sokkið og slegið bátnum frá mér en ég er ekki viss. Ég fann htiö fyrir beinbrotinu þegar ég var í sjónum en þaö fór einhver sjór inn í gallann hjá mér - ég náði ekki að setja hett- una alveg yfir höfuðið. Þegar flakiö var aö sökkva dróst ég í kaf með einhveiju drash. Það vafðist utan um vinstri handlegginn. Mér fannst á tímabih að ég væri á leiöinni niður með öhu. En svo rakn- aði flækjan af sjálfu sér og mér skaut upp aftur. Eftir það gat ég svamlað á bakinu og beðið þangað til ég sá tog- arana koma. Ég var nokkuð viss um að hjálp væri á leiðinni. Flugeldum var skotið á loft, fyrst hvítum blysum en syo skutu þeir öðrum á bátunum. Ég hélt að þeir hefðu séð mig á Guð- björginni en og þeir héldu áfram að bátunum. Sléttanesið kom svo rétt á eftir og það kom nær mér.“ Vítiskvalir þegar ég var hífður „2. stýrimaður á Sléttanesinu kast- aði sér í sjóinn til mín og synti með mig að skipshliðinni. Honum gekk ekki að koma mér í Markúsarnetið en svo fór ég í belti, það var húkkað í og ég var híföur upp. Þeir kunna sitt fag þessir menn. Én mig verkjaði iha í fótinn þegar hann hékk niður og ég var hífður upp. Það voru vítis- kvahr. Ég var auövitað orðinn mjög kaldur. Þeir á Sléttanesinu hresstu mig fljótt við. Þeir færðu mig úr öhum fotunum og vöfðu mig inn í teppi og sængur og nudduöu mig allan þannig að mér fór að hlýna fljótt," sagði Garðar Gunnarsson. Sléttanesið sigldi strax áleiðis til Bolungarvíkur með Garðar. Hlúð var að honum samkvæmt leiðbein- ingum læknis úr landi. Þegar komið var til Bolungarvíkur var Garðar fluttur á sjúkrahúsiö á ísafirði en síðan með sjúkraflugvél til ReyKja- víkur. -ÓTT Garðar Gunnarsson, 59 ára skipbrotsmaður af Krossnesinu: vítiskvalir þeg- ar ég var dreginn upp. DV-mynd GVA Hafsteinn Garðarsson, skipstjóri á Krossnesinu: Mér tókst að stökkva út um dyrnar þegar skipið sökk Haukur L. Hauksaan, DV, ísafirði: „Ég sat í skipstjórastólnum og var að fara í flotgahann þegar skip- ið var nánast að sökkva. Mér tókst að komast að dyrunum og stökkva út í þann mund sem skipið fór nið- ur. Eg náði ekki aö klæða mig al- mennilega í flotgallann svo hann fyhtist af sjó. Félagar mínir um borð í gúmbjörgunarbátnum náðu mjög fljótt aö draga mig um borð og áður en langt um leiö var Guð- björgin komin að okkur,“ sagði Hafsteinn Garðarsson, skipstjóri á skuttogaranum Krossnesi SH, í samtali við DV. Krossnesið sökk mjög skyndilega á Halamiðum um áttaleytið á sunnudagsmorgun. Átta skipveij- um var bjargað um borð í Guö- björgu ÍS en togarinn Sléttanes fann einn skipveijanna þar sem hann flaut í hálfhnepptum flotgaha í ísköldum sjónum. Þriggja manna er enn saknaö en leit að þeim hefur engan árangur borið. Hafsteinn sagðist ekki geta sagt neitt um mögulegar orsakir slyss- ins. Það bar mjög brátt að og kom skipveijum alveg í opna skjöldu. „Við vorum aö byija að hífa þeg- ar skipiö tók að halla mjög á bak- borða. Sumir okkar sváfu þegar Hafsteinn Garðarsson, skipstjóri Krossnessins. DV-mynd GVA þetta gerðist en voru ræstir um leiö. Þrátt fyrir knappan tíma unnu skipveijar mjög skipulega að því sem nauðsynlega þurfti að gera, koma gúmbjörgunarbát út og stökkva fyrir borð. Nokkrir okkar lentu reyndar í sjónum en þar sem Guðbjörgin var komin th bjargar eftir um tuttugu mínútur kólnuð- um við ekki að neinu ráði.“ Hafsteinn segir að námskeið á vegum Slysavarnaskóla Slysa- varnafélagsins, sem skipveijar Krossnessins sóttu nýlega, hafi skilað sér mjög vel viö þessar erf- iðu aðstæður þar sem menn voru yfirvegaöir og skipulagðir. Væri gagnsemi þess námskeiðs óumdeh- anleg. Háfsteinn hrósaði og þakkaði mjög frammistöðu skipverja á tog- urunum Guðbjörgu og Sléttanesi og þeim sem tóku þátt í leitinni að mönnunum þremur á Halamiðum. Þá var hann mjög þakklátur fyrir höfðinglegar og hlýjar móttökur á ísafirði. Skipveijar á Krossnesi flugu th Grundarfjarðar seinnipartinn í gær. Fyrr um daginn fóru fram viötöl á vegum rannsóknarlögregl- unnar og starfsmanns Sjóslysa- nefndar. Enn er aht á huldu um orsakir slyssins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.