Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1992, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992.
Utlönd
Handteknirfyrir
ÞorpsMar í héraði nokkru í
Kína tóku upp á því á dögunum
að grafa upp lík kvenkyns ætt-
ingja sinna til að koma í veg fyrir
að konurnar yrðu seidar sem
„draugabrúöir".
Gripið var til þessa ráðs eftir
að fréttist af handtöku tveggja
manna sem höfðu stoliö konulík-
um tii að selja þær sem „drauga-
brúðir“ fyrir menn sem létust
ókvæntir.
Mennirnir tveir höfðu gi-afið
upp sex lík frá árinu 1990. Sam-
kværat kínverskrí alþýðutrú geta
menn enn gifst eftir andlátíö.
Pjögur lík voru seld og fóru þau
á um tíu þúsund krónur stykkið.
Tvö biðu kaupenda i geymslu i
gömlum lestargöngum.
Hershöfðinginn
reyniraðfriða
eiginkonuna
Suchinda Kraprayoon, yfir-
raaður herafla Tælands, stendur
í ströngu þessa dagana þar sem
hann reynir hvað hann getur að
friða afbrýðisama eiginkonu
sína. Hershöfðingjanum varð það
nefiúlega á aö leggja hönd sína í
kjöltu fegurðardísar í veislu sem
haldin var um helgina.
Eiginkonan brást afar illa við,
þreif hljóðnema og krafðist þess
að þokkadísin yrði gerð brottræk
úr veislunni. Veislugestir skiptu
hundruðum og voru þeir að von-
um hneykslaðir á uppátæki eig-
inkonunnar. Þá hótaði konan að
eyðileggja hljóðkerfi hljómsveit-
arinnar.
Ekki náðist í herforingjann í
gær.
írskur milli við-
urkennir kókaín-
neyslu
írski milijónamæringurinn Ben
Dunne hefur viðurkennt að hafa
fengið sér kókaín í nefið þegar
hann var í sumarleyfi á Flórída
en haxm þvertekur fýrir það að
hann hafi verið smyglari.
Dunne, sera er einn rikasti
maður Irlands, á yfir höfði sér
þriggja ára fangavist, hið
minnsta, ef hann veröur fúndinn
sekur um eiturlyfjasmygl fyrir
rétti í Orlando í Flórída. Hann
var látinn laus gegn tryggingu og
lofaðl að mæta aftur fyrir dómara
í næsta mánuði.
Dunne var meö 32 grömm af
kókaíni þegar hann var handtek-
inn. Sjónvarpsstöðvar á Flórída
segja að „fylgistúlka“ hafi kjaftað
í lögregluna eftír að hann „fékk
ofsóknarbrjálæði“ eftir aö hafa
fengið sér kókaín.
skiptastástríðs-
Stjórnvöld I Bagdad sögðu í gær
að undirritað heföi verið sam-
komulag við íransstjóm og
Rauða krossinn um skipti á þeim
stríösfóngum sem enn vom í
haldi frá því þjóðimar áttu í styrj-
öld. Stríðinu lauk fyrir meira en
tveimur árum.
Dagblað stjóraarlnnar I írak
hafði það eftir talsmanni utanrík-
isráðuneytisins að samkomulag-
ið hefði verið undirritað í Genf I
síðustu viku.
Löndin skiptust á meira en 70
þúsund stríösfóngum þegar írak-
ar féllust á friðarskilmála írana
skömmu eftir innrásina í Kúveit
í ágúst 1990. Enn eru um 35 þús-
und fangar úr stríðinu í haldi,
Reuter
Baker segir aö landnám gyðinga verði að stöðva:
Jarðýtur Ísraelsríkis
grafa undan friðinum
ísraelsku og palestínsku sendi-
nefndimar á friðarráðstefnunni í
Washington deildu enn á ný í gær
um landnám gyðinga á herteknu
svæðunum eftir að James Baker,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
blandaði sér eftirminnilega í mál-
ið.
Baker sagði við yfirheyrslu í þing-
inu að bandarísk stjómvöld mundu
því aðeins veita ísraelsmönnum
ábyrgðir fyrir lán upp á tíu milljarða
dollara aö þeir stöðvuðu allt land-
nám, þar á meðal byggingu þeirra
húsa sem þegar væri hafin.
Tcdsmaður Palestínumanna, Han-
an Ashrawi, sagði að Baker ætti að
taka næsta skref og lýsa því yfir að
landnámið væri ólöglegt.
„Það er ljóst að á meðan landnám-
inu er haldið áfram og ísraelsmenn
ryðja land okkar með jarðýtum eru
þeir að grafa friðarumleitununum
gröf,“ sagði hún.
Yossi Ben Aharon, talsmaður ísra-
elsku stjómarinnar, sagði að land
sitt heföi ekki enn gefið upp vonina
um fá lánaábyrgðimar sem það svo
nauðsynlega þarf á að halda tíl að
koma í veg fyrir algert efnahagslegt
öngþveití.
Hann sagðist hafa trú á því að enn
væri hægt að finna málamiðlun.
Baker sagöi þingnefndinni að ísra-
elsmenn gætu annaðhvort stöðvað
landnámið og fengið milljarðana tíu
á fimm árum eða lokið smíði um sex
þúsund heimila sem þegar er hafin
og fengið minna fé.
segir talsmaður Palestínumanna
James Baker, utanríkisráðherra Bandarikjanna, sagði að ísraelsmenn yrðu að hætta landnámi á herteknu svæðun-
um ef þeir vildu fá lánaábyrgðir.
Um eitt hundrað þúsund landnem-
ar gyðinga búa nú á herteknu svæð-
unum á vesturbakka Jórdanár og á
Gaza.
Símamynd Reuter
Hvorki gekk né rak á sjálfri friðar-
ráðstefnunni í gær. Reuter
Yfirmaður NATO í Rússlandi:
Ekki óvinir í þetta sinn
Manfred Wömer, framkvæmda-
stjóra Atiantshafsbandalagsins,
NATO, og leiðtogum Rússlands hefur
orðið vel til vina og Rússar hafa full-
vissaö framkvæmdastjórann um að
kjamorkuvopnabúr fyrrum Sovét-
ríkjanna sé í öruggum höndum.
„Við höfum hist í fyrsta skipti ekki
sem óvinir,“ sagði Andrej Kosyrev,
utanríkisráðherra Rússlands, í gær
eftir viðræður við Wömer í Moskvu.
Wömer hitti einnig Jevgeníj Sja-
posjníkov, yfirmann herafla Sam-
veldis sjálfstæðra ríkja, Alexander
Rutskoj, varaforseta Rússlands, og
Gennadíj Burbulis aðstoðarforsætis-
ráðherra.
Hann mun síðan eiga viðræður við
Borís Jeltsín Rússlandsforseta í dag.
Heimildarmenn í sendinefnd
NATO sögðu að rætt hefði verið um
að auka tengsl milli bandalagsins og
Rússlands og skipst hefði verið á
skoðunum um takmörkun á út-
breiðslu kjamavopna, nokkuð sem
Vesturlönd hafa áhyggjur af á sama
tíma og Samveldið nýja endurskipu-
leggur fyrram herafla Sovétríkj-
anna.
„Báðir aðilar hafa mikinn áhuga á
að skiptast á skoðunum eins og kost-
ur er. Framkvæmdastjórinn lagði
áherslu á mikilvægi stöðugleika og
að tengslin á hemaðarsviðinu væra
eins mikil og hægt væri,“ sagði einn
heimildarmanna.
„Wörner lýsti áhuga sínum á því
að langdræg kjamavopn yrðu undir
sameiginlegri stjóm og hann fékk
mjög skýr og jákvæð svör frá hinum
aðilunum."
Reuter
Borís Jeltsín Rússlandsforseti heimsótti ortódoxpresta í Moskvu í gær til
aö óska patriarka þeirra til hamingju með afmælið. í dag hittir Jeltsín svo
Manfred Wörner, framkvæmdastjóra NATO. Símamynd Reuter
Elvis i glansgallanum. Bandaríkjamenn fá að velja hvort hann fer í
þessum búningi á frímerki eða í gamla rokkgallanum. Simamynd Reuter
Elvis rokkkóngur
sást í Las Vegas
Rokkkóngurinn Elvis er kominn
fram í Las Vegas í Bandaríkjunum.
Fjöldi fólks hefur séð hann og jafn-
vel póststjómin á staðnum segir að
þetta sé rétt. Þeir aðdáendur kóngs-
ins, sem aldrei hafa sætt sig við
andlát hans, gleðjast þótt þeir verði
að viðurkenna að átrúnaðargoðið
kemur aðeins til þeirra á frímerki.
í Bandaríkjunum stendur til að
gefa út frímerki með mynd af Elvis
og hafa tvær tillögur verið valdar
úr af fjölmörgum til að skreyta
merkið. Á annarri myndinni er
Elvis sýndur í gamla rokkgallan-
um, viltur og óheflaður. Á hinni
myndinni er hann í síðari útgáfu,
fágaður og í glansgalla.
Almenningur í Bandaríkjunum
fær að velja hvor útgáfan verður
valin. Þar hafa lengi staðið deilur
um hvor ímynd hans er sú eina
sanna en nú eiga atkvæði að ráða.
Myndimar af Elvis voru kynntar
á Hilton hótelinu í Las Vegas. Þar
söng hann 839 sinnum fyrir fullu
húsi. Enginn skemmtikraftur hef-
urleikiðþaöeftir. Reuter