Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1992, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1992, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992. Afmæli Þorsteinn Eggertsson Þorsteinn Eggertsson, blaðamaður ogtextahöfundur, Skipholti 18, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Þorsteinn fæddist í Keflavík en flutti tveggja ára í Gerðahrepp þar sem hann ólst upp. Hann lauk lands- prófi við Héraðsskólann á Laugar- vatni 1958, stundaði nám við Hand- íða- og myndlistaskólann 1959, við Akademiet for Fri og Merkantil Kunst í Kaupmannahöfn 1964-65, við Öldungadeild MH1975-76, við KHÍ1980-82 og sótti námskeið við HÍ í flokkun og skráningu fyrir bókasöfn 1972 og 1974. Þorsteinn var teiknikennari við Breiðagerðisskóla 1965-66, Lauga- lækjarskóla 1966-67, við Bamaskól- ann í Keflavík, auk almennrar kennslu 1967-70 og 1971-75, kennari við skóla Ásu Jónsdóttur í Reykja- vík 1975, myndmenntakennari við Valhúsaskóla 1976-77, uppeldisfull- trúi á Unglingaheimiii ríkisins í Kópavogi 1979-81, teiknikennari Hofstaðaskóla 1982 og myndmennta- og tónmenntakennari Vesturbæjar- skóla 1983-84. Þorsteinn gaf út tímaritið Samúel 1969, var auglýsingateiknari hjá Hugmynd og framkvæmd 1977, var með fasta þætti fyrir ungt folk í dagblaðinu Tímanum 1970, var fréttaritari Morgunblaðsins í Vest- ur-Berlín 1970, stundaði ýmsa þátta- gerð fyrir Ríkisútvarpið á ámnum 1982-86, fyrir Stöð 21987 (Bítlar og blómabörn) og nú fyrir Aðalstöðina (Sjöundi áratugurinn) og hefur ver- ið blaðamaður við tímarit Sam- útgáfunnar frá 1990. Þorsteinn er löngu landsþekktur fyrir dægurlagatexta sína en hann á um þrjú hundmð og áttatíu texta á plötum hinna ýmsu flytjenda. Hann var söngvari með KK-sextett- inum 1960, með hljómsveitinni Beat- niks 1961-62, var leikari með Leikfé- lagi Keflavíkur 1966-72, kom fram á rokkhátíðum á Brodway 1983 og 1984, samdi, leikstýrði, kynnti og söng á sýningunni Rokkskór og bítlahár í Sjallanum og á Akureyri og á Hótel Islandi í Reykjavík, samdi og vann myndband sýningarinnar Saga Bítlanna, sýnd á Hótel íslandi 1989 og vann sama ár að sýningu með Jóni Sigurðssyni bankamanni og Hauki Morthens og leikstýrði fyrir Leikfélag Tálknaíjarðar 1990. Þorsteinn hefur myndskreytt bækur fyrir Vöku-Helgafell og fleiri, hélt málverkasýningar í Keflavík 1969 og 1971, í Gallerí Lækjartorgi 1982 og sýndi á samsýningu í Osló 1974. A sl. hausti kom út í Bretlandi skáldsaga The Paper King’s Subjects eftir Þorstein og þar verður gefið út smásagnasafn hans, Late Night Rhapsodies, síðar á þessu ári. Fjölskylda Sambýhskona Þorsteins frá því 1990 er Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, f. 9.7.1941, framhaldsskólakennari. Hún er dóttir Ólafs Jakobssonar, skósmiðs á ísafirði, og Önnu Bjarna- dótturhúsmóður. Börn Þorsteins og Þóru Hreins- dóttur, f. 29.6.1954, eru Anna Val- gerður, f. 29.8.1977 og Soffía, f. 4.8. 1980. Börn Jóhönnu Fjólu og Hrafns Jónssonar eru Hrönn, f. 17.11.1967, viðskiptafræðinemi, gift Hjalta Sig- urðssyni prentara, og Ólafur, f. 14.10.1969, bakari. Dóttir Jóhönnu Fjólu og Bjöms Karlssonar er Anna, f. 11.1.1980. SystkiniÞorsteins: Guðfinna Jóna, f. 21.9.1944, skrifstofumaður og húsmóðir í Reykjavík, gift Sig- valda Hrafni Jósafatssyni og eiga þau tvö böm, Þorkel, f. 1975, og Eddu Guðrúnu, f. 1978; Jón Þorkels, f. 29.9.1945, netagerðarmeistari í Keflavík, kvæntur Hólmfríði Guð- mundsdóttur og eiga þau þijá syni, Eggert, f. 1969, Ingimund, f. 1979 og Aðalgeir, f. 3.4.1982; Guðrún, f. 27.4. 1961, viðskiptafræðingur og deildar- stjóri. Foreldrar Þorsteins: Eggert Jóns- son, f. 29.5.1921, pípulagningamaður í Keflavík, og Guðrún Jónsdóttir, f. 24.7.1924, húsmóðir. Ætt Eggert er sonur Jóns, útvegsb. í Kothúsum í Garði, Þorkelssonar og Guðrúnar, systur Eggerts aflakóngs og Þorsteins skipstjóra, föður Egg- erts, forsijóra Tryggingastofnunar ríkisins og fyrrv. ráðherra. Guðrún var einnig systir Gísla skipstjóra, fóður Þorsteins fiskimálastjóra og systir Guðmundu, ömmu Gunnars Arnar Gunnarssonar hstmálara. Guðrún var dóttir Eggerts, b. í Kot- húsum í Garði, Gíslasonar, b. í Steinskoti á Eyrarbakka, Gíslason- ar. Móðir Eggerts var Gróa Egg- ertsdóttir, b. í Haga í Holtum, Egg- ertssonar og Þorbjargar Brands- dóttur, skipasmiðs og skálds í Kirkjuvogi í Höfnum, Guðmunds- sonar, b. í Kirkjuvogi, Brandssonar, b. á Felh í Mýrdal, Bjamasonar, b. á Víkingslæk, Halldórssonar, ætt- fóður Víkingslækjarættarinnar. Þorsteinn Eggertsson. Guðrún, móðir Þorsteins, er dóttir Jóns, útgerðarmanns í Garðshomi í Keflavík, Eyjólfssonar, í Vestra- Garðshomshúsi, Þórarinssonar. Móðir Eyjólfs var Guðrún Þórðar- dóttir frá Hjáleigusöndum. Móðir Jóns útgerðarmanns var Guðrún Egilsdóttir, b. í Bakkakoti á Álfta- nesi, Símonarsonar, og Halldóru Hannesdóttur, systur Hafliða, hreppstjóra í Gufunesi. Móðir Guð- rúnar Jónsdóttur var Guðfinna Benediktsdóttir frá Breiðabóli á Svalbarðsströnd, systirElínrósar, ömmu Þórarins Eyfjörð leikara. Þorsteinn tekur á móti gestum á afmæhsdaginn á Hótel íslandi frá klukkan 20.30. 80 ára María Júlíusdó ttlr, Ránargötu 20, Akureyri. 75ára Háifdán Einarsson, Hólsvegi 13, Bolungarvík. Sigrún Júlíusdóttir, Hákonarstöðum 1-2, Jökuldals- hreppi. Rafn Magnússon, Móaflöt 19, Garðabæ, Pétur Guðvarðsson, Snjóholti, Eiöahreppi. BarðiÁrnason, Móaflöt 25, Garðabæ. Helga Kristjánsdóttir, Álftamýri 50, Reykjavík. Haraldur Baldursson, Urðarstekk 3, Reykjavík. Grímur Ormsson, Markarvegi 17, Reykjavík. Þorgerður Jónsdóttir, Veisuseli, Hálshreppi. 50 ára Víkingur S. Antonsson, Löngumýri 23, Garðabæ. Erlingxir Bótólfsson, Hraunbæ 196, Reykjavik. Saeunn Axelsdóttir, Hhðarvegi51, Ólafsfírði. Ásdís Ásgeirsdóttir, Tjamarbraut5, Bildudal. Ester Hjartardóttir, Hjallabraut 12, Þorlákshöfn. Bára Hjaltadóttir, Fehsenda 1, Miðdalahreppi. Margrét Þóra Guðmundsdóttir, Höfðavegi 43d, Vestmannaeyjum. Ægir Björgvinsson, Álfaskeiði 98, Hafnarfirði. Sædís Ósk Guðmundsdóttir, Heiðarbóli 41, Keflavík. HLUTHAFI ÓSKAST Hluthafi óskast að vel metnu þjónustufyrirtæki á sviði útgáfu- og upplýsingastarfsemi. Arðvænleg verkefni, góð staðsetning og miklir möguleikar að loknu 6 ára uppbyggingarstarfi og þeirri öflun hluta- fjár sem nú stendur yfir. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á starfsemi á þessu sviði og geta sinnt verkefn- um sem henni tengjast. Einnig þarf hann að geta lagt fram um 2,5 m. kr. í hlutafé fyrir um fjórðungs- hlut en gæti haft af fyrirtækinu fullt starf og hagnað- arvon á næstu árum. Fullri þagmælsku heitið. Áhugasamir leggi inn nafn, kennitölu, símanúmer og aðrar upplýsingar, sem þeir kæra sig um, á auglýs- ingadeild DV, merkt „Útgáfumál". Öllum fyrirspurn- um verður svarað. Vilborg Magnúsdóttir Vilborg Magnúsdóttir húsmóðir, Hjarðarholti 15, Selfossi, er fímmtug ídag. Starfsferill Vhborg er fædd í Jórvíkurhjá- leigu, Hjaltastaðarþinghá, Norður- Múlasýslu, og ólst þar upp. Hún sótti bamaskólanám í farskóla sem þá var boðið upp á í sveitinni. Vhborg vann öll almenn sveita- störf á yngri árum. Hún flutti á Sel- foss 1961 og hefur lengst af sinnt húsmóðurstörfum. Vhborg hefur starfað hjá Sláturfélagi Suðurlands af og th í 16 ár, m.a. við sláturaf- greiðsluáhaustin. Vilborg hefur tekið töluverðan þátt í félagsstarfi. Hún er einn af stofnendum Kirkjukvenfélags Sel- foss, stofnað 20.3.1966, og starfar enn að málefnum þess, á sæti í stjóm trúnaðarráðs Verkalýðsfé- lagsins Þórs og hefur starfað í Fé- lagi eldri borgara á Selfossi frá stofrnm þess. í síðasttalda félaginu hefur Vilborg gegnt ýmsum stjóm- arstörfum og m.a. verið ritari þess fráárinul986. Vhborg hefur sótt tvö námskeið hjá Félagsmálaskóla alþýðu. Hún hefur verið búsett á Selfossi frá 1961 eins og áður er komið fram. Fyrst einn vetur í Smáratúni 20, þá í Ár- túni 9 th 1968 og í Hjarðarholti 15 fráþeimtíma. Fjölskylda Vhborg giftist 10.6.1961 Guðjóni Baldri Valdimarssyni, f. 9.1.1936, öðmm eigenda Árvéla sf. Foreldrar hans vom Valdimar Stefánsson bóndi og Sigrún Siguijónsdóttir húsfreyja en þau bjuggu að Læk í Hraungerðishreppi. Fósturforeldr- ar Guðjóns Baldurs: Jón Pálsson, látinn, bóndi og Árný Sigurjónsdótt- ir húsfreyja, þau bjuggu í Austur- koti í Sandvíkurhreppi og síðar á Selfossi þar sem Ámý býr enn, Jón vann við smíðar á Selfossi. Börn Vhborgar og Guðjóns Bald- urs: Magnús, f. 5.2.1961, vélvirki, maki Brynja Marvinsdóttir, f. 17.5. 1962, húsmóðir, þau eru búsett á Selfossi og eiga tvö böm, Ingibjörgu, f. 28.7.1982, og Marvin Helga, f. 4.7. 1991; HelgaÁrný, f. 31.1.1962, hús- móðir, maki Tryggvi Ágústsson, f. 1.4.1955, bóndi, þau em búsett á Brúnastöðum í Hraungerðishreppi og eiga fjögur böm, Baldur Gauta, f. 12.1.1981, Ágústu, f. 29.4.1983, Amþór, f. 8.3.1988, og Guðbjöm, f. 28.10.1991; Valdimar, f. 12.5.1963, vélfræðingur, maki Ragnhhdur Björk Karlsdóttir, f. 28.11.1963, hjúkrunarfræðingur, þau eru bú- sett á Selfossi og eiga tvær dætur, Ernu Kristínu, f. 2.4.1988, og Vh- borgu Sif, f. 12.10.1989; Ómar Þór, f. 17.8.1964, rafvirki, maki Halla Baldursdóttir, f. 12.11.1966, starfs- maður á Hótel Selfossi, þau eru bú- Vilborg Magnúsdóttir sett á Selfossi og eiga eina dóttur, Önnu Björk, f. 10.11.1988; Jón Val- ur, f. 27.2.1970, rafeindavirki, unn- usta hans er Sigrún Jónsdóttir, f. 23.3.1969, nemi, Jón Valur er búsett- ur í foreldrahúsum en Sigrún í LandeyíFljótshlíð. Foreldrar Vhborgar: Magnús Vil- hjálmsson, f. 2.12.1900, d. 2.8.1975, bóndi og síðar bæjarstarfsmaður og húsvörður Iðnskólans á Selfossi, og Helga Jónína Gunnþórsdótttir, f. 13.6.1921, húsmóðir og starfsmaður Kaupfélags Árnesinga á Selfossi, þau bjuggu í Jórvíkurhjáleigu og á Selfossi frá 1961 og þar býr Helga Jónínaenn. Vilborg tekur á móti gestum á af- mæhsdaginn á Hótel Selfossi kl. 19.30-23. Anton G. Sigþórsson Anton Grétar Sigþórsson vélvirki, Fróðasundi 11, Akureyri, er fertug- urídag. Starfsferill Anton fæddist á Akureyri og ólst þarupp. Eftir nám í Gagnfræðaskóla Akur- eyrar hóf hann nám í vélvirkjun hjá Vélsmiðjunni Odda hf. á Akureyri undir handleiðslu Kjartans Sigurös- sonar vélvirkjameistara. Anton lauk þaðan prófi í vélvirkjun 26.6. 1972. í kjölfarið vann Anton hjá ýmsum smiðjum, SUppstöðinni hf. á Akur- eyri 1973-75 og 1977-83, Garðasmiðj- unni í Garðabæ 1975-77, Nesskipum hf. á Seltjamamesi 1983-87 og frá síðasttalda árinu hjá Samheija hf. á Akureyri. Fjölskylda Kona Antons er Noonjeen Sharap- hat, f. 20.9.1964, verkakona. Foreldr- ar hennar: Duan Sharaphat og Un Sharaphat, þau eru bæði látin, þau unnu við landbúnaöarstörf í hérað- inu Roi Et í norðurhluta Tælands. Systkini Antons: Valdimar Hahur, f. 22.1.1955, sjómaður, maki Guðrún Ósk Sæmundsdóttir, starfsmaður hjá Axis, þau era búsett í Kópavogi og eiga tvö börn, tvíburana Sigþór Má og Auði Ösp, f. 11.8.1983, Guðrún Ósk átti son áður, Harald Birgi; Þor- björg Auður, f. 5.2.1959, saumakona og húsmóðir, maki Sigurður Haf- berg útgerðarstjóri. Þau eíu búsett á Flateyri og eiga þrjú böm, írisi Dröfn, f. 8.1.1980, Sævar Jens Haf- berg, f. 29.7.1982, og Stefán Hanni- bal Hafberg, f. 8.4.1991; Sigþór, f. 15.7.1960, verslunarmaður, Sigþór er búsettur í Reykjavík. Foreldrar Antons: Sigþór Valdi- marsson, f. 27.11.1931, d. 3.3.1977, vélstjóri, og Auður Antonsdóttir, f. 5.4.1932, verkakona, en þau bjuggu á Akureyri og þar býr Auður enn. Anton Grétar Sigþórsson Ætt Sigþór var sonur Valdimars J. Kristjánssonar, f. 28.6.1910, d. 5.7. 1975, ogÞorbjargar Jónsdóttur, f. 25.5.1902, d. 5.7.1983. Auður er dótt- ir Antons Siguijónssonar, f. 28.5. 1892, d. 14.10.1970, og Margrétar Vilmundardóttur, f. 10.9.1899, d. 27.10.1970.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.