Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1992, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 12. MARS 1992.
5
i>v Viðtalid Fréttir
Hagvagnar hf. hefla akstur fyrir Almenningsvagna hf í sumar:
Kaupa 22 slrætisvagna
- borga 195 milljónir fyrir 15 nýja Renault-vagna og 25 milljómr fyrir Kópavogsflotann
komastá
1 gSnguskíði
Nafn: Friðrik Sigurðsson.
Starf: Nýráðinn forstjóri
Kísiliðjunnar
Aldur: 34 ára.
Friörik Sigurðsson sjávarlif-
fraeðingur heíur verið ráðinn for-
stjóri Kísiliðjunnar í Mývatns-
sveit og var hann vahnn th starfs-
ins úr hópi margra tuga umsækj-
enda. Friðrik tekur við starfinu
af Róbert Agnarssyni sem hefur
verið ráðinn bæjarstjóri í Mos-
fellsbæ.
Friðrik er fæddur á Akureyri
og segist ýmist telja sig Akur-
eyring eöa Reykvíking, eftir þvi
hvað henti betur hverju sinni!
„Ég varö stúdent frá Ménntaskól-
anum við Hamrahlíð árið 1978.
Þaö sama ár, um haustið, hóf ég
nám í líffræði viö Háskóla íslands
og var þar eitt ár áður en ég flutti
til Bergen í Noregi. Þar byrjaöi
ég nám í liffræði og bjó í tvö ár i
Bergen áður en ég flutti til Þránd-
heims en þar lauk ég próft i sjáv-
arlíffræði árið 1986.
Ég var framkvæmdastjóri
Landssambands fiskeldis- og haf-
beitarstöðva frá því í desember
1986 fram í júní 1990. Þá flutti ég
mig um set og fór að reka þrotabú
íslandslax og gerði það fram i fe-
brúar á siðasta ári. Síðan þá hef
ég starfað hjá Isnó hf. sem fram-
kvæmdastjóri.“
Leggst vel i mig
„Það leggst mjög vel í mig að
taka við þessu nýja starfi hjá Kis-
ihðjunni. Ég hef mikla trú á þessu
fyrirtæki. Kisihðjan er afar
traust fyrirtæki og sem líffræð-
ingur er ég mjög fylgjandi allri
skynsamlegri nýtingu á nátttúru-
auðlindumlandsins, hverju nafni
sem þær nefnast. Ég tel að rekst-
ur Kísihðjunnar sé af hinu góða
fyrir þetta vistkerfl sem er þama
i Mývatni.“
- Þetta er óneitanlega nokkuð
ólíkt því sem þú hefur verið að
fást viö sem sjávarlíffræðingur.
„ Jú, að mörgu leyti er það ólikt.
Samt sem áður tel ég að sú
menntun og reynsla sem ég hef
aflað mér geti nýst mér í hinu
nýja starfi.”
Fer á gönguskíði
- Hvað gerir þú þegar tómstundir
gefast fVá vinnu?
„Ég held að vinnan verði að
teljast mitt aðaláhugamál en ég
reyni að sinna fjölskyidunni eins
og nokkur kostur er. Á vetuma
reyni ég að komast á gönguskíði
en ég lærði það á árirnum i Nor-
egi að fara á skíði.
Einnig hef ég gaman af aö
hlusta á góða tónlist og þá fyrst
og fremst að því að hlusta á góðan
jass. Ég hef ekki fengist neitt við
það að spila sjálfur á hljóðfæri
og ætii það megi ekki segja að
tónlistariðkun min eínskorðist
við búkslátt. Manni hættir til að
slá taktinn þegar maður hlustar
á góðan jass. Taktur er oft góöur
í jassinum og þvi getur veriö erf-
itt að hemja fingurna,*1 sagöi
Friðrik.
Friðrik er kvæntur Margréti
Eydal, félagsráögjafa frá Akur-
eyri, Þau eiga tvö böm, Hrefnu,
sem er 8 ára, og Sindra Má, sem
er 3 ára, og fjölgunar er von í íjöl-
skyldunni þegar kemur fram á
sumarið. -gk
Hagvagnar hf. hafa gert samninga
um kaup á 22 strætisvögnum sem
hefja akstur fyrir Almenningsvagna
hf. síðla í sumar. Sjö vagnar Strætis-
vagna Kópavogs hafa verið keyptir
fyrir 25 milljónir króna og fimmtán
nýir vagnar af Renault-gerð og kost-
ar hver vagn 13 mihjónir króna.
Ákvörðun um ht á þeim verður tekin
í vikunni en hugmyndir em uppi um
að hann verði sá sami og á Strætis-
vögnum Reykjavíkur. Nýju vagnarn-
ir koma til landsins í sumar frá Lyon
í Frakklandi.
Hagvagnar hf. er rekstrarfélag
Hagvirkis-Kletts sem bauð 216 millj-
ónir króna í strætisvagnaakstur í
fimm af sex sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu, utan Reykjavíkur,
sem eiga Almenningsvagna hf.
Fyrirtækið Ahrahanda hf. bauð 38
mihjónir í akstur fyrir Mosfellsbæ-
inga og hóf hann 1. mars á sömu leið-
um og voru eknar áður. Rekstarfé-
lagið nefnist Meiriháttar og hefur
keypt þrjá vagna Mosfellsleiðar. Allt
leiðakerfi í sveitarfélögunum verður
samræmt þegar Hagvagnar hefja
akstur og er stefnt að því að það verði
í ágúst. Sama tíðni ferða veröur og
hjá SVR, þijár ferðir á klukkustund.
Einnig verður miðað við SVR í far-
gjaldamálum og stefnt að sama miða-
verði fyrir aha farþega.
Almenningsvagnar innheimta far-
gjöldin og reikna með um 50% halla
á rekstrinum. Hann taka þau á sig í
hlutfalh við íbúafjölda og aksturs-
vegalengdir. Kópavogur á rúm 37%
í fyrirtækinu, Hafnarfjörður tæp
34%, Garðabær 16,3%, Mosfehsbær
tæp 10% og Bessastaðahreppur og
Kjalameshreppur 1-2%.
-VD
NEIEKKIAL
Nú getur þú komið til okkar í Japis með gömlu slitnu hljómplötuna,
úrsérgengna myndbandstækið og plötuspilarann, og við tökum þessar vörur sem greiðslu
upp í nýjar vörur þ.e. plötu upp í geisladisk, myndbandstæki upp í
nýtt myndbandstæki og plötuspilara upp í geislaspilara.
Ástand hlutanna og tegund skiptir engu máli.
03*.
Þú getur valið úr
þúsundum titla af geisladiskum
Yfir 30 gerðir geislaspilara
m
í takt v/3 nujan
JAPIS
tJftíO
BRAUTARHOLTI / KRINGLUNNI /**^625200
ATH. RF.CI.AN FR: EINN A MÖTI EINUM T.O. EIN HLJÖMPLATA Á MÖTI EINUM CEISLADISK, 2 HLJÖMPLÖTUR A MÖTI 2 DISKUM O.SFR.