Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1992, Side 9
FIMMTUDAGUR’ 12. MARS 1992.
9
Utlönd
George Bush hefur náð góðri stöðu fyrir flokksþing repúblikana:
Clinton hársbreidd
frá sigri á Tsongas
- hagstæð úrslit í forkosningum 17. mars gætu tryggt sigur Clintons
Bill Clinton er nú hársbreidd frá
að tryggja sér útnefningu demókrata
sem forsetaefni þeirra í kosningun-
um í haust. í Bandaríkjunum er nú
farið að tala um baráttu hans og
Bush um forsetaembættið.
Hann er með afgerandi forystu eft-
ir góða sigra í forkosningum og for-
vali á þriðjudaginn og á næstkom-
andi þriðjudag á hann möguleika á
að færast enn nær sigrinum. Þá
verða forkosningar í Illinois og Mic-
higan. Bæði ríkin eru nærri heima-
ríki Clintons og reynslan hefur sýnt
að þar á hann mest fylgi.
Clinton nýtur þess að helstu keppi-
nautar hans skipta með sér fylginu.
Paul Tsongas virðist vart eiga von
um fylgi fyrir utan Norð-Austurríkin
en hér eftir beinist athyglin einkum
að Mið- og Vesturríkjunum. Þar er
Jerry Brown sterkari og framganga
hans gæti orðið til að útiloka Tsongas
endanlega.
Clinton á enn eftir að afla sér fylg-
is fjölda kjörmanna á landsfund
demókrata. Hann þarf 2145 fulltrúa
til sigurs. Þátt fyrir að svo lítið vanti
upp á sigur gæti hann þurft stuðning
óháðra fulltrúa á lokasprettinum.
Stuöningur þeirra er þá vís ef aðrir
frambjóðendur eru langt frá sigri.
Meðal repúblikana er spennan úr
sögunni. Árangur Bush á þriðjudag-
inn þýðir að hann hefur þegar tryggt
sér meira en helming þess sem þarf
þannig að barátta Pats Buchanan
þjónar úr þessu þeim tilgangi einum
að valda forsetanum vandræðum.
Margir stuðningsmenn Buchanans
telja því rétt fyrir hann að draga sig
í hlé, enda hafi þegar tekist að láta
Bush vita eftirminnilega af óánægj-
unni í flokknum.
Buchanan ætlar þó að halda áfram
Repúblikanar
Óháðir 6
Buchanan
46
Bill Clinton og Hillary kona hans láta nú sem sigur sé í höfn og að hann fái tækifæri til að skora á George Bush
í komandi forsetakosningum. Þau hjón gætu þvi orðið næst til að setjast að í Hvíta húsinu en flestir eru samt
þeirrar skoðunar að Bush eigi auðveldan leik gegn Clinton. Simamynd Reuter
en framboð hans vekur hér eftir ekki
sömu athygli og áður. Bush getur því
andað rólega og einbeitt sér að land-
stjórninni í stað framboðsmálanna.
Reuter
Demókratar
Andstæðingar stríðsátakanna i
Júgóslaviu ætla að halda áfram
mótmælum sínum í Belgrad í dag,
þríðja daginn í röð, til að knýja
Slobodan Milosevic, forseta Serbíu,
til að segja af sér.
„Segðu af þér, segðu af þér,“
sungu þúsundir námsmanna í
borginni í gær. Nokkrir þeirra
ákváðu að halda mótmælunum
áfram um nóttina, þrátt fyrir aö
hitastigið væri undir frostmarki.
„Það er dálítið frost en mér er
alveg sama,“ sagði Dragan
Radivojevic, 21 árs laganemi við
háskólann i Belgrad. Hann var
búinn að lýúfra sig undir teppi á
bedda, aðra nóttina í röð, á einni
aðalgötu Belgrad.
Allt að fimm þúsund námsmenn
og stuðningsmenn þeirra tóku þátt
í mótmæiunum i gær, dönsuðu við
rokktónlist, sungu serbneska þjóð-
ernissöngva og hlustuðu á ræður
þar sem átta mánaða stríðið við
Króatíu var fordæmt
Ræðumenn kenndu Milosevic,
fyrrum kommúnista og forseta
stærsta Iýðveldis Júgóslavíu, um
átökin sem hafá kostaö meira en
sex þúsund mannslíf. Rcuter
Góðlp hlustendurl
/ d ti a :
Kl. 14:00 Svæðisútvarp í umsjón Erlu
Friðgeirsdóttur. Stórreykjavíkursvæðið;
Rvík, Kópavogur, Hafnarfjörður,
Garðabær, Mosfellsb.og Seltjarnarnes.
/ k v ii I tl:
Kl. 22:00 Tveir eins. Ólafur Stephenssen
og Ólafur Þórðarsson sjá um þáttinn. Létt
sveifla og gestir í kvöldkaffi.
90.9 93.7
103.2
Höfuðborgarsvceðið
Suðurnes
Vesturland
Sauðárkrókur Suðurland
Skagafjörður Akureyri
I f y r r u in d I i i) :
Kl. 10:00 Við vinnuna með Guðmundi
Benediktssyni. Uppáhaldslögin,
Afmæliskveðjur, veður, færð, óskalögin,
flug o.fl. Opin lína í síma 626060.
FM9O9TFM1032
AÐALSTÖÐIN
SÍMAR 62 15 20 og 62 12 13
BEIN ÚTSENDING 62 60 60
LÁGMÚLA 7-SÍMI 814077