Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1992, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1992, Qupperneq 26
34 FIMMTUDAGUR 12. MARS 1992. Afmæli GuðmundaK,S. Júlíusdóttir Guðmunda Kristín Sigríður Júlíus- dóttir húsmóðir, Hvanneyrarbraut 50, Sigluílrði, er sjötug í dag. Starfsferill Guðmunda fæddist við Laugaveg- inn í Reykjavík og ólst þar upp, auk þess sem hún var mörg sumur í sveit á bernskuárunum. Hún hóf nám við Kvennskólann í Reykjavík 1936 og lauk þaðan prófi 1940. Guðmunda starfaði við Lyfjabúð- ina Iðunni 1941-42 og 1945-47 og við Reykjavíkurapótek 1947-50. Þá ílutti hún til Sigluíjarðar þar sem hún hefur verið húsmóðir síðan. Guðmunda starfaði við Siglufjarð- arapótek í hlutastarfi 1959-67 og vann í Sjúkrasamlagi Siglufjarðar í hlutastarfi 1967-78. Þá hefur hún gegnt ýmsum trúnaðarstörfum. Fjölskylda Guðmunda giftist 25.3.1950 Jóni Sv. Kristinssyni, f. 31.12.1924, d. 5.4. 1955, gullsmiði. Hann var sonur Kristins Björnssonar, gullsmiðs á Siglufirði, og Ragnheiðar Jóhönnu Jónsdóttur húsmóður. Dóttir Guðmundu frá því fyrir hjónaband er Hafdís K. Olafsson, f. 13.3.1942, starfsmaður við Sjúkra- hús Siglufjarðar, gift Hinriki Aðal- steinssyni, kennaraá Siglufirði, og eigaþauþijúbörn. Böm Guðmundu og Jóns eru Júl- íus Jónsson, f. 3.2.1951, kerfisfræð- ingur í Kópavogi, kvæntur Guðrúnu Erlu Bjömsdóttur fóstru og eiga þau þrjú börn; Jóhann Jónsson, f. 1.6. 1952, vélfræðingur á Siglufirði, maki hans er Kolbrún Símonardóttir er rekur efnalaug og á Jóhann tvo syni; Jónína Kristín Jónsdóttir, f. 12.11. 1955, maki hennar er Sigurður Friö- riksson og starfa þau bæði við Sund- höll og íþróttahús Siglufjarðar og eigaþrjásyni. Systkini Guðmundu: Sigurður, f. 4.12.1917, d. 14.2.1984, búsettur í Reykjavík, var kvæntur Sigríði Gísladóttur og em börn þeirra þrjú; Guðrún, f. 30.4.1920, búsett í Reykja- vík, gift Jóni Tómassyni og eru böm þeirra fjögur; Jóhanna Svanhvít, f. 19.12.1923, búsett í Reykjavík, gift Kristni Sigurðssyni og eru börn þeirra fjögur; Guðmundur Óskar, f. 3.12.1926, búsettur í Kópavogi, kvæntur Ester Ámadóttur og em börn þeirra fjögur; Valur, f. 13.3. 1928, búsettur í Reykjavík, kona hans er Ágústa Nellý Hafsteinsdótt- ir og eiga þau þijú börn; Sverrir, f. 27.10.1929, búsettur í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Dagnýju Ágústs- dóttur og eiga þau fjóra syni. Foreldrar Guðmundu voru Júlíus Magnússon, f. 12.7.1883, d. 4.1.1931, verkamaður í Reykjavík, og Jónína Margrét Jónsdóttir, f. 17.1.1891, d. 6.9.1970, húsmóðir. Ætt Júlíus var sonur Magnúsar, b. og silfursmiðs á Ketilsstöðum í Holt- um, bróður Guðrúnar, ömmu Hreiðars Ársælssonar, fyrrv. landsliðsmanns í knattspymu. Magnús var sonur Bjarna, b. á Læk í Holtum, Ingimundarsonar, b. á Syðri-Rauðalæk, Bjamasonar, b. í Litlu-Tungu, Magnússonar. Móðir Júliusar var Sigríður Högnadóttir, b. á Hrútafelli, Áma- sonar, b. í Pétursey, Högnasonar, b. á Svaðbæli, Sigurðssonar, prests í Ásum í Skaftártungu, Högnasonar, prestaföður og prests á Breiðaból- stað í Fljótshlíð, Sigurðssonar. Móð- ir Sigríðar var Guðrún Árnadóttir. Jónína Margrét var dóttir Jóns Jónssonar, frá Fit undir Eyjafjöll- um, og Guðrúnar Magnúsdóttur, b. í Ósgerði í Ölfusi, Ólafssonar, b. á Nethömmm, Loftssonar. Móðir Guðmunda K.S. Júlíusdóttir. Magnúsar var Helga Steindórsdótt- ir, b. í Auðsholti, Sæmundssonar (Auðsholtsætt). Guðmunda dvelur á Heilsustofn- un NLFÍ í Hveragerði en tekur á móti gestum í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, Reykjavik, laugardag- inn 14.3. eftir klukkan 20.30. Siguijón Á. Fjeldsted Siguijón Agúst Fjeldsted, skóla- stjóri Hólabrekkuskóla, tU heimiUs að Brekkuseli 1, Reykjavík, er fimmtugurídag. Starfsferill Sigurjón fæddist í Reykjavík og ólst þar upp á Grímsstaðaholtinu. Hann lauk landsprófi frá Gagn- fræðaskólanum í Vonarstræti 1958, kennaraprófi frá KÍ1962, stundaði nám í sálar- og uppeldisfræði við Kennaraháskóla Danmerkur 1965- 66 og í dönsku og sálarfræði 1979-80. Siguijón var kennari við Hlíða- skólann í Reykjavík 1962-65 og 1966- 67, skólastjóri Egilsstaðaskóla 1967- 72, yfirkennari við Fellaskóla í Reykjavík 1972-74 og skólastjóri við Hólabrekkuskóla í Reykjavík frá 1974. Sigurjón var fréttaþulur ríkissjón- varpsins 1974-79, varaborgarfuU- trúi 1978-82 og 1986-90 og borgar- fulltrúi 1982-86. Hann sat í Bama- vemdar- og umferðarnefnd Reykja- víkur 1978-82, situr í Fræðslu- og skólamálaráði Reykjavíkur frá 1982, var formaður sljómar Veitustofn- ana 1982-86, hefur verið formaður og varaformaður stjórnar SVR frá 1982 og fulltrúi Reykjavíkurborgar í skólanefnd Norræna félagsins. Fjölskylda Siguijón kvæntist 20.8.1965 Ragn- heiði Óskarsdóttur, f. 1.2.1943, kennara. Hún er dóttir Óskars Sig- urðssonar, skipasmiðs á ísafirði og í Reykjavík, og Ástu Tómasdóttur húsmóður en þau eru bæði látin. Börn Sigurjóns og Ragnheiðar era RagnhUdur Fjeldsted, f. 17.7.1967, starfar hjá Útflutningsráði íslands, búsett í Reykjavík, sambýUsmaður hennar er Bernhard A. Petersen viðskiptafræðingur; JúHus Fjeldsted, f. 3.7.1974, nemi í MR; Ásta Sigríður Fjeldsted, f. 31.1.1982, gmnnskólanemi. Hálfsystir Siguijóns, sammæöra, er Ásta Ester Skaftadóttir, f. 6.10. 1934, var gift Davíð Bjarnasyni, sem er látinn, og eru böm þeirra fjögur. Foreldrar Siguijóns voru Júlíus Lárusson Fjeldsted, f. 14.7.1893, d. 25.9.1974, verkamaður í Reykjavík, og Ágústa Sigríður Guðjónsdóttir, f. 16.6.1903, d. 28.4.1983, húsmóðir. JúHus var sonur Lárusar Fjeldsted, frá Kolgröfum í Eyrar- sveit, Eggertssonar Fjeldsted. Móðir Júlíusar var Sigriður Hannesdóttir. Ágústa Sigríður var dóttir Guö- jóns, b. í Dægru í Innri-Akranes- hreppi, Sigurðssonar, b. víða í Innri-Akranesshreppi, Halldórsson- ar, b. á Stóru-FeUsöxl, Jónssonar. Móðir Sigurðar var Guðrún yngri Jónsdóttir, b. á Draghálsi, Klemens- sonar. Móðir Guðrúnar var Gróa Elín Kristmundsdóttir EHn Kristmundsdóttir húsmóðir, Haukholtum II, Hmnamanna- hreppi, er fimmtug í dag. Fjölskylda Elín fæddist að Kaldbak í Hruna- mannahreppi og ólst þar upp. Hún hefur verið húsmóðir og bóndi að Haukholtum frá 1959. Elín giftist 12.3.1960 Oddleifi Þor- steinssyni, f. 3.5.1936, b. að Hauk- holtum II. Hann er sonur Þorsteins Loftssonar, b. að Haukholtum, og Ástbjartar Oddleifsdóttur hús- freyju. Böm Elínar og Oddleifs eru Ásta Oddleifsdóttir, f. 3.5.1961, hjúkmn- arfræðingur að Hrepphólum í Ármann Jakob Lámsson glímu- kappi, Digranesvegi 64, Kópavogi, ersextugurídag. Starfsferill Ármann fæddist í Reykjavík og ólst þar upp til tólf ára aldurs erfjöl- skyldan flutti í Kópavoginn. Hann fór ungur að vinna ýmis verka- mannastörf og var síðan lögreglu- þjónn i. fjórtán ár. Á síðari ámm hefur Ármann Jakob starfað sjálf- stætt við byggingarvinnu, hellu- og flísalagnir. Ármann á að baki glæsilegan ghmuferil. Hann sigraði í drengja- gUmunni 1946, var sigurvegari í flokkagHmunni 1952 og í skjaldar- Hrunamannahreppi, sambýHsmað- ur hennar Ólafur Stefánsson bóndi og eiga þau einn son, Odd Ólafsson; Elín Oddleifsdóttir, f. 22.5.1965, líf- fræðingur að Seljavöllum í Nesjum, sambýlismaður hennar er Eiríkur Egilsson bóndi og er dóttir þeirra Ásta Steinunn Eiríksdóttir; Jón Þor- steinn Oddleifsson, f. 24.6.1975, menntaskólanemi. Systkini EHnar: Jónína Krist- mundsdóttir, f. 27.8.1926, d. 9.12. 1967, húsmóðir að Jaðri í Hruna- mannahreppi, var gift Guðbergi Guðnasyni og era börn þeirra tvö; Siguröur, f. 17.6.1928, b. að Kotlaug- um í Hrunamannahreppi, kvæntur Valgerði Jónsdóttur og eiga þau tvö glímunni sigraði hann alls átta sinn- um. Armann tók þátt í íslandsgHm- unni 1949, þá sautján ára. Hann varð fyrst gHmukóngur íslands á þjóðhá- tíðardaginn 1952 og aftur 1954 og síðan fjórtán sinnum samfellt á ár- unum 1954-67 og má fullyrða að svo glæsilegt afrek hafi enginn annar íslenskur gHmumaður unnið. Fjölskylda Ármannkvæntist24.7.1953 Björgu R. Ámadóttur, f. 24.7.1931, húsmóður. Hún er dóttir Áma Hanssonar húsasmiðs og Helgu Tómasdóttur húsmóður sem er lát- in. Böm Ármanns og Bjargar em böm; Guðbrandur, f. 15.9.1930, fyrrv. b. að Bjargi í Hrunamanna- hreppi, nú starfsmaður hjá Kaupfé- lagi Árnesinga, kvæntur Sigrúnu Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú böm; Guðmundur, f. 15.9.1930, b. að Skipholti í Hrunamannahreppi, kvæntur Kristrúnu Jónsdóttur og eiga þau fjögur börn; Gunnar, f. 5.11. 1933, starfsmaður hjá VÍS á Sel- fossi, kvæntur Sigrúnu Kristjáns- dóttur og eiga þau fimm böm; Krist- inn, f. 8.9.1937, skólameistari á Laugavatni, kvæntur Rannveigu Pálsdóttur og eiga þau fjögur böm. Foreldrar Elínar vora Kristmund- ur Guðbrandsson, f. 1.5.1897, d. 23.12.1954, b. að Kaldbak, og kona Svérrir Gaukur, f. 9.2.1952, skrif- stofumaður, og Helga Ragna, f. 9.4. 1955, íþróttakennari, gift PáH Ey- vindssyni flugmanni og eiga þau þrjú böm, Björgu Ragnheiði, f. 17.3. 1977, Ármann Jakob, f. 28.2.1980, og Sverri Gauk, f. 5.4.1981. Systkini Ármanns em Grettir, Kristján Heimir, Brynja Kristín og Lárus. Foreldrar Ármanns: Láms Salo- monsson, f. 11.9.1905, d. 24.3.1987, lögregluþjónn, ogKristín Gísladótt- ir, f. 18.6.1908, húsmóðir. Ármann og Björg taka á móti gest- um í FélagsheimiH Kópavogs, 2. hæð, laugardaginn 14.3. klukkan 16.00-18.00. Sigurjón Ágúst Fjeldsted. Einarsdóttir, b. á Þórisstöðum, Jónssonar, b. á Fremra-Hálsi og ættföður Fremra-Hálsættarinnar, Árnasonar.4 Móðir Ágústu Sigríðar var Signý Jónsdóttir, vinnumanns á Hvann- eyri, Þórðarsonar, og Guðrúnar Hansdóttur. Siguijón dvelur erlendis um þess- armundir. Elín Kristmundsdóttir. hans, EHn HaHsdóttir, f. 12.6.1895, d. 20.6.1942, húsmóðir. Elín tekur á móti gestum á heim- ih sínu laugardagskvöldið 14.3. Ármann Jakob Lárusson. Ármann J. Lárusson TUhamingju með afmaelið 12. mars Þuríður Skúladóttir, Bólstaðarhlið 41, Reykjavík. Jón Björnsson, Furugerði 1, Reykjavík. Gelrdís Sigurgeirsdóttir, Gránufélagsgötu 41, Akureyri. Ásta Gísiadóttir, Laugarnesvegi 61, Reykjavík. Valný Georgsdóttir Bláhömrum 2, Reykjavík. Eiginmaður Valnýjar er Höskuldur Stefánsson, fyrrv. verk- Sflóri hjá Loð- skinn á Sauðár- krókí. Valný er að heiman á af- mælisdaginn. Stefán Jóneson, Borgarhóli, Akrahreppi. Geir Stefnnsson, Stekkjarhvamrai 38, Hafnarflrði. Einar Már Jónsson, : Þðrsgötu 23, Reykjavik; ;: Anna Svandís Pétursdóttir, Fomósi 7, Sauðárkróki. Jórunn Jónasdóttir, ; : Heiðarbnin 11, Keflavík. Regína Brngudóttir, Kögurselí 9, Reykjavík. : Brynja Heiðdal Jónsdóttir, Skipagötu 1, Akureyii. Skarphéðinn Jóhannesson, Hveramörk 12, Hveragerði. Þórey Kristin Jónsdóttir, ; Víðilundi 4G, Akureyri. ' Guðný Björgvinsdóttir, Víðigrund 3, KópavogL Kristinn Pétursson, Brekkustíg 4, Bakkafirði. Steingrimur Stcfnisson, Flókagötu 39, Reykjavik. Oddur Kristinn Gunnarsson, Vesturgötu 37, Reykjavik. Jón Sigurðsson, Granaskjóli 27, Reykjavík. Dagnxar Sigurlaug Gunnarsdóttir, Goðheimum 19, Reykjavík. Logi Knútnson, Daltúni 0, Kópavogi. Ásgeir Adamsson, : Óðinsgötu 6, Reykjavík. Sigríöur V. Gunnarsdóttir, Garöabraut 29, Akranesi. Ingibjörg Jónasdóttir, Runná, Bcrunesbreppi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.