Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1992, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 1992.
Fréttir
Atvinnuástandið á Suðumesjum:
Vonleysi og
þungt hljóð í fólki
- pappírspokagerð gæti gefið 15 störf
„Þaö er meira vonleysi hér en áður
fyrr enda sjá menn ekki neitt fram-
undan í atvinnumálunum og fólk er
farið að orða það viö mann að það
ætli að koma sér í burtu,“ segir
Kristján Gunnarsson, formaöur
Verkalýðs- og sjómannafélagsins í
Keflavík. Um 320 manns fá þar at-
vinnuleysisbætur hálfsmánaðarlega
og eru fullar bætur 2.108 krónur á
dag og 84 krónur til viðbótar fyrir
hvert bam á framfæri.
Alls eru yfir 400 manns á atvinnu-
leysisskrá á Suðumesjum og hefur
fækkaö um nokkra tugi frá því í byrj-
un febrúar þar sem vinna hefur feng-
ist við loðnuvinnslu. „En það er að-
eins tímabundið og þegar loðnuver-
tíð lýkur bætast 40-50 manns aftur
við hér á skrá,“ segir Kristján.
Atvinnuþróunarfélag Suðumesja
hefur haft forgöngu um að koma á
samningaviðræðum Pappírspoka-
gerðarinnar í Reykjavík og Spari-
sjóðs Keflavíkur um að verksmiðjan
flytjist í húsnæði sem sparisjóðurinn
á í Njarðvík. Bæjarstjórn Njarðvíkur
ályktaði fyrir stuttu að styðja þær
samningaumleitanir en viðræðum er
ekki lokið. Ef af veröur mun verk-
smiöjan ráða 10-15 manns til starfa
í upphafi og fleiri með tímanum.
Einnig eru vonir bundnar við að
mönnum takist að koma fiskvinnslu
Undirskriftasö&iun:
Austurstræii
Hafin er undirskrifasöfnun
gegn umferð um Austurstræti.
Þann 1. júní mun borgarstjórn
taka endanlega ákvöröun um
framtíð bilaumferðar um götuna.
Umferð var leyíö í fyrra í tíl-
raunaskyni.
Benedikt Sigurösson, einn for-
svarsmanna undirskriftasöfnun-
ar segir viðbrögö almennings
hafa verið mjög jákvæð - og um
4000 þúsund undirskriftir hefðu
safnast á rúmri viku en áætlað
væri að halda áfram söfhuninni
fram I maí. Hann kvaðst hafa
rætt við Laugavegssamtökin um
málið og sagði að í þeim hópi
væru skiptar skoöanir um málið
- ekki væru allir sáttir við söfn-
unina því í verslun við Laugaveg-
inn hafði komið inn kona, sagst
vera á vegum undirskriftasafh-
enda og horfið á brott með list-
ann. -HK
Um 320 manns fá atvinnuleysisbætur hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur, samtals rúmar 2.100 krónur á dag.
DV-mynd Ægir Már
íslensks gæðafisks aftur af stað. Salt- framleiðslu á ný og einnig gefur flug- þar munu starfa á annað hundrað
verksmiðjan á Reykjanesi er að hefja skýli Flugleiða von um betri tíð en manns. -VD
Sjómannaafsláttur:
báðirá
fidlumskatta-
afslætH
„Sá misskilningur hefur komist
á flot að við séum að skoöa sjó-
mannaafsláttinn eitthvaö sér-
staklega. Það er rangt. Við erum
bara í venjulegu reglubundnu eft-
irliti með skattframtölum fyrir
árið 1991. Þar rákum við augun í
að þess eru dæmi um að sjómenn
skipti með sér einu plássi, séu 6
mánuöi hvor á sjónum en reikni
sér 365 daga sjómannaafslátt frá
skatti. Við hölum sent út nokkur
bréf vegna þessa þar sem við ger-
um athugasemd við þetta. Við
segjum eitt skipsrúm, einn sjó-
mannaafsláttur. Þeir eru
óánægðir með að við skulum vera
aö skipta okkur af þessu. Þetta
er hins vegar okkar skoöun og
við hana stöndum við. Þaö hefur
þó ekki veriö farið út í að rann-
saka sjómannaafsláttinn sérstak-
Iega,“ sagði Kristján Valdimars-
son, skattstjóri á Vestfjörðum, i
samtali við DV.
Hann sagði að þetta virtist vera
algengt híá þeim sem skipta með
sér skipsplássi. Þeir sem hefðu
fengiö bréfin heíðu sent kæru til
baka og telji sig í fullum rétti.
Kristján sagði að ríkisskatta-
nefiid myndi endanlega afgreiða
málin ef menn létu þau ganga svo
langt nú eftir að lögunum hefur
verið breytt.
„Við teljum að það eigi að af-
munstra menn þann tíma sem
þeir eru í landi. Við teljum að
lögskráningín eigi ekki að ná til
annars tíma en þess sem þeir eru
á sjó,“ sagði Kristján Valdimars-
son. -S.dór
Baldvin Ragnarsson fangi fluttur á Borgarspítalann:
Held áfram að svelta mig
f ari ég aftur í fangelsið
„Ég fékk mikinn sting fyrir hjartað
í nótt með svima og verkjum sem
leiddu út í höndina. Læknarnir segja
að blóðið í mér hafi verið orðið súrt
út af sveltinu. Ég er ekkert búinn aö
borða núna í 18 sólarhringa og hef
veriö vatnslaus síðustu 6 dagana. Ég
samþykkti að fá vökva í æö á meðan
ég er hér á sjúkrahúsinu. Ætli ég
verði ekki fluttur aftur í Hegningar-
húsið. Ef ég verð sendur þangað mun
ég ekki taka á móti neinum vökva
þar, engu, ég gefst ekki upp. Ég á
þessa refsingu ekki skiliö," sagöi
Baldvin Guðmundur Ragnarsson, 38
ára, fangi í samtali við DV á Borgar-
spítalanum í gær.
Eins og fram kom í DV í gær var
Baldvin fluttur á sjúkrahúsið í fyrri-
nótt eftir að hafa svelt sig í langan
tíma. Hann hóf afplánun á 210 daga
refsidómi á íostudag en áður en Bald-
vin hóf afplánunina var hann þegar
byijaður að svelta sig. Hann hefur
áður svelt sig í langan tíma í fang-
elsi. Dómurinn sem hann afplánar
er fyrir umferðalagabrot. Baldvin
hefur ítrekaö ekið réttindalaus enda
hefur hann aldrei hlotið íslenskt
ökupróf.
Þegar hann var 15 ára gamall svipti
dómari hann réttinum til að öðlast
ökupróf ævilangt - pilturinn hafði
ítrekað stolið bílum og ekið þeim
réttindalaus. Baldvin hefur ávallt
mótmælt því að hafa verið sviptur
réttinum til að fara í bílpróf.
Samkvæmt upplýsingum DV
breyttust lagaákvæði í þessu sam-
bandi áriö 1988. Skilyrði til að fá að
þreyta próf aftur er að viðkomandi
bijóti ekki af sér í þijú ár samfellt.
Það sem hefur hins vegar girt fyrir
að Baldvin, sem er bifvélavirki, hafi
verið með hreinan skjöld í svo langan
tíma er að hann hefur ávallt ekið bíl
þrátt fyrir réttindaleysið - „því hafi
kerfið alltaf verið með eitthvað í
gangi á hann“. Hann segist ekki ætla
aö gefast upp og vonar að yfirvöld
gefi honum tækifæri til að þreyta
próf eins og öðrum - gerist það heit-
ir hann því aö hætta að svelta sig og
taka því sem að höndum ber.
-ÓTT
Úrval-Utsýn vildi selja í ódýrar ferðir með sænsku félagi:
Flugleiðir kipptu í spotta
- leyfi hefði skapað varasamt fordæmi, segir Flugmálastjóm
„Þegar forráðamenn Flugleiða
komust að þessu fóru þeir að kippa
í spotta hjá sínum mönnum vegna
þess að um leið og þetta yröi leyft
hefði það fordæmisgildi," segir Þórð-
ur Öm Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri flugsamgangna og alþjóðamála
hjá Flugmalastjóm um ástæður þess
aö Úrval-Útsýn fær ekki leyfi tfl aö
selja í ferðir með sænsku leiguflugi
en millilent er hér á leið til Fort
Lauderdale í Flórída.
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn var
búin að bóka um 80 manns í þessar
ferðir hjá sænska félaginu og margir
vom búnir að staðfesta og borga inn
á ferðimar sem áttu að kosta 45-
51.000 krónur fyrir þriggja vikna ferð
til Fort Lauderdale og bílaleigubíl.
Félagið bauð Úrval-Útsýn aö selja í
20 sæti vikulega en flugvéhn lendir
í Keflavik vikulega til að taka elds-
neyti. Hörður Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar, segir
að bókanir hafi verið hafnar þar sem
menn hefðu haft ástæðu til að ætla
aö leyfið fengist hjá Flugmálastjóm
en á síðustu stundu hefði orðiö breyt-
ing þar á.
Því var hins vegar neitað á þeim
forsendum að með því væri erlent
félag komið í samkeppni við innlent
sem flýgur á sama svæði. Fyrir slíku
þarf samþykki í þeim þremur lönd-
um sem flogið er til. Flugleiðir, sem
eiga um 80% hlutafjár í Úrval-Útsýn,
fljúga ekki til Flórída á sumrin en
Þórður Örn segir aðalástæðuna fyrir
neituninni þá að leyfið hefði veitt
fordæmisgildi. Danska félagið Sterl-
ing hefur ámm saman sóst eftir sams
konar leyfi til að taka farþega hér í
millilendingu á leið til Toronto í
Kanada en þangað fljúga Flugleiðir
einnig. „Heíði sænska félagið fengiö
leyfið kæmi Sterling á barkann á
okkur um leið," segir Þórður.
„Mér finnst ekkert að því að leyfa
þetta en við verðum bara að taka
þennan skell á okkur og munum
bjóða þeim farþegum, sem vom bún-
ir að staðfesta bókanir, óbreytt verð
alla leiö til Flórída. Við erum að
semja við Flugleiðir en þeir eru að
fljúga áætlunarflug til Flórída í maí
og flestir ætluöu þá. Við munum
hafa samband við þessa farþega
næstu daga,“ segir Hörður.
-VD