Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1992, Síða 9
FIMMTUDAGUR 26. MARS 1992.
9
DV
Kína:
Kynsvallráðið
tilaðbjarga
lýónaböndum
Tímarit ungliöa í Kína mælir
með kynsvalli til að koma í veg
fyrir að hjónabönd leysist upp.
Mikið hefur borið á því í landinu
síðari árin aö ungtfólk skilji eftir
skamma sambúð.
Meðal annars er mælt með að
ung hjón taki sig mörg saman upp
af heimilum sínum um helgar og
fái sér hótelherbergi og reyni þar
þau hvílubrögö sem duga til að
bæta sambúöina. Þá er og mælt
með að hjón sýni hvort öðru til-
htssemi.
í Kína hefur um árabil verið
mælt með að hjón furai sambúð
sinni sósíalískan grundvöll en
það virðist ekki duga lengur.
Nýja ráðið er að bæta kynlífið.
Berjastfyrir
flutningiBreta
til Mars
„Tími er kominn til að breyta -
tími er kominn til að skipta um
plánetu," segir í helsta slagorði
nýs flokks sem býður íram til
þings á Bretlandi. Flokkurinn
neMst Áfram til Mars og hefur
það helst á stefnuskrá sinni að
Bretar yfirgefi land sitt og setjist
að á Mars.
Charles Seaton Cockell er leiö-
togi flokksins og hann býður sig
fram í sama kjördæmi og John
Major forsætisráöherra. Hann
gerir sér vonir um að fella Major.
Þá er það og tilgangurinn með
framboðinu að koma á fót al-
þjóðahreyfingu sem hafi flutning
alls mannkyns til’ Mars að
markmiði.
Togarlfórstá
miðunumvið
Nýfundnaland
Togari, skráður í Panama, fórst
i gær á miöunum út af Nýfundna-
landi. Hann var þar að veiðum
ásamt mörgum spænskum og
portúgölskum togurum á um-
deildu svæði sem Kanadamenn
hyggjast verja með öllum ráðum.
Mannbjörg varð en 23 menn
voru í áhöfn togarans. Skipin eru
aö veiðura um 260 mílur frá landi
og þvi utan efnahagslögsögu
Kanada. Heimamenn telja að tog-
arar, einkum frá ríkjum Evrópu-
bandalagsins, stundi rányrkju á
þessum miðum þannig að þar
verði alger ördeyða innan fárra
ára.
Von er á að floti tólf kanadískra
togara komi á mlðin um mánaða-
mótin og er ætlunin að koma í
veg-fyrir frekari veiöar þar ef
nokkur kostur er.
Reuter
Útlönd
Lífið gengur sinn vanagang hjá Söru Ferguson þrátt fyrir mikiö uppistand
vegna skilnaðar hennar og Andrews prins. Hér er hún að sækja Beatrice,
dóttur sína, í leikskólann i gær. Simamynd Reuter
Myndir af Fergie og Wyatt birtar 1 Frakklandi:
Drottingin
bannar prentun
myndanna
Franska tímaritið Paris Match hef-
ur birt myndir af Söru Ferguson og
Steve Wyatt, meintum elskhuga
hennar. A myndunum má sjá þau í
góðu yfirlæti á hestbaki og einnig er
mynd af Wyatt þar sem hann leikur
við Beatrice prinsessu.
í tímaritinu er sagt að þessar
myndir séu teknar á suðurströnd
Frakklands þegar Fergie var þar að
sóla sig með Wyatt sumariö 1990.
Myndir þessar urðu til að koma af
stað kviksögum um samband Fergie
og Wyatts en það er af mörgum talið
hafa leitt til skilnaðar hennar og
Andrews prins.
Elísabet Bretadrottning hefur
bannað breskum blöðum og frétta-
stofum að birta myndimar og hefur
því banni veriö fylgt þótt hún hafi
ekki lögsögu í málinu. Helstu frétta-
stofur í Breflandi ætía að fara að
óskum drottningar.
Myndunum var upphaflega stolið
úr íbúð Wyatts og komið í hendur
breskra blaða. Þau guggnuðu hins
vegar á að birta þær af ótta við meið-
yrðamál og reiði drottnignar. Að
sögn var myndum skilað en sé rétt
greint frá í Paris Match þá hefur eitt-
hvað af þeim lent í höndum óviðkom-
andiaðila. Reuter
IBarnaheill
þakka þeim fjöimörgu
velunnurum vegalausra barna
sem með framlagi sínu
hafa gefið þeim aukna von
um bjartari framtíð.
Sérstaklega
þökkum viö börnum
fyrir þeirra stuðning.
Nauðungaruppboð
Að kröfu Valgarðs Sigurðssonar hrl. fer fram opinbert nauðungaruppboð
á hljómblöndunarborði af Cadac tegund, smíðaár 1977, í eigu Stúdíó
Stemmu hf.
Uppboðið fer fram fimmtudaginn 2. apríl 1992 kl. 17.00 að Suðurströnd
6, Seltjarnarnesi.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn á Seltjarnarnesi
í RMTTyÚin RAUTT }
uos fzZ, UOS/
l Uráð J
Lærið frönsku í Frakklandi
Elfca l'Hyéres Cote d'Azur, suðurströnd Frakklands, kenna frönsku allt
árið, ekki þó algjörum byrjendum. Kennt er mánudaga til föstudaga,en
helgar og siðdegi eru til afþreyingar, iþrótta, leikja, skoðunarferða.
Gist yfirleitt hjá frönskumælandi fjölskyldum en einnig gisting í studio
við skólann. Flogið með Flugleiðum til London og síðan til Toulon (fleiri
möguleikar).
Nemendur sóttir á flugvöll. Hægt að dveljast að vild. Hægt að taka próf
til undirbúnings framhaldsnámi í frönskum skólum. Verð miðað við gengi
í dag kr. 145.480 fyrir 4 vikur, innifalið flug, gisting, hálft fæði. 20 tíma
kennsla á viku, akstur af flugvelli.
Við sendum bæklinga, lánum videospólur og veitum frekari upplýsingar.
Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar
Gnoðarvogi 44, simi 686255.