Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1992, Page 10
10
FIMMTUDAGUR 26. MARS 1992.
Útlönd_____________________________________________________________
Tyrkir gera flóröu loftárásina í þessum mánuði á byggðir Kúrda:
Tilgangslaus dráp á
saklausu f lóttafólki
- segja starfsmenn hjálparstofnana sem hafa orðið vitni að arasunum
„Við sjáum ekki hver er tilgangur-
inn meö þessum loftárásum á þorp
Kúrdanna," sögðu starfsmenn hjálp-
arstofnana í byggðum Kúrda í írak
eftir að flugher Tyrklands gerði þar
árás í gær. Þetta er í íjóða sinn á ein-
um mánuði sem Kúrdar á svæðinu
verða fyrir loftárásum Tyrkja.
Að sögn sjónarvotta hafa einkum
þrjú þorp orðið fyrir árásum. Þau
heita Hostrane, Kanja Baste og Cham
Chey. Eftir því sem best er vitað búa
þar aðeins óbreyttir borgarar en
Tyrkir halda því fram að skæruliðar
Kúrda hafi þar bækistöðvar. Þeir
hafa látið til sín taka innan landa-
mæra Tyrklands síðustu daga.
Talsmaður kúrdísku skæruliðanna
segir að loftárásir á þorpin hafi ekk-
ert hernaðarlegt gildi því þar búi
aðeins óbreyttir borgarar, heima-
menn og flóttafólk sem flúið hefur
árásir íraka.
Suleyman Demirel, forsætisráð-
herra Tyrklands, fullyrðir að árás-
imar beinist eingöngu gegn skæru-
liðunum og að þær hafi beinst gegn
búðum þeirra við landamæri Tyrk-
lands og íraks. Hann segir að tyrk-
neskum borgurum stafi ógn af árás-
um skæruliðanna og þvi verði að
uppræta starfsemi þeirra.
Tahð er að um 10 milljónir Kúrda
búi í Tyrklandi. Þeir hafa undanfar-
inn áratug barist fyrir sjálfstæði og
stofnum kúrdisks ríkis sem nái til
landsvæða sem nú eru í írak, íran
og Sýrlandi, auk Tyrklands.
Reuter
ígor Pavioviec, fimm ára, er eitt fórnarlamba kjarnorkuslyssins í Tsjernobyl árið 1986. Hann fæddist ellefu mánuð-
um eftir slysið og foreldrar hans létu hann frá sér vegna fæðingargalla. Drengurinn dvelur nú á munaðarleysingja-
hæli i Minsk í Hvíta-Rússlandi. Simamynd Reuter
Tvöfóld geislavirkni í Eistlandi eftir kjamorkulekann:
Áhrif in koma fram
í næstu kynslóð
Ætladi aðskjóta
elskhugakonu
sinnaren skaut
sig í löppina
Seinheppinn og kokkálaður
Dani í Alaborg var fluttur á
sjúkrahús með alvarlegt skotsár
á fætinum eftir haglabyssu. Sáriö
fékk hann þegar hann kom að
konu sinni og elskhuga hennar í
rúminu.
Hann átti von á aö sjá þau þar
og var því vopnaður haglabyssu
og hugðist stytta eijara sínum
aldur. Fyrst varð honum fyrir að
ætla að rota manninn í rúminu
með byssuskeftinu en þá tókst
ekki betur til en svo aö skotið
hljóp úr byssunni og hafhaði í
fæti byssumannsins.
Eiginmaðurinn verður ákærð-
ur fyrir tilraun til manndráps en
konan hefur farið fram á skilnaö.
Elskhugi hennar fékk kúlu á höf-
uöið.
Úmhverfisráðstefnan:
Eystrasaltsríkin
fá norrænan
ferðastyrk
Ákveðið er að Norðurlandaráö
veiti Eystrasaltsríkjunum þrem-
ur styrk til að þau geti sent full-
trúa á væntanlega umhverfisráö-
stefiiu í Rio de Janerio. Styrkur-
inn nemur 500 þúsund dönskum
krónum eða um fimm milljónum
íslenskra króna.
Það er Per Stig Möller, um-
hverfisráðherra Dana, sem hefur
barist fyrir þessu því að öðrum
kosti yrðu Eistiand, Lettland og
Litháen ekki með fulltrúa á ráð-
stefiiunni. Reiknaö er með að
hvert Eystrasaltsríkjanna sendi
tvo fixlltrúa til Rio de Janeíro.
Evrópuþingið
lýsirefasemd-
ummeðEES-
samkomulagið
Þingmenn á Evrópuþinginu
hafa lýst miklum efasemdum um
að samkomulagið um Evrópska
efhahagssvæðið frá 14. febrúar
fái staöíst miðað við lög Evrópu-
bandalagsins.
Enn eru það ákvæöi varðandi
dómstól EES sem valda vandræö-
um en þingmennirnir telja að þau
bijóti í bága við reglur Evrópu-
dómstólsins.
Af þessu tilefiii hefur Evrópu-
þingiö sent dómstólnum bréf þar
sem varaö er við að hann láti af
hendi völd til hins nýja dómstóls.
Þetta eykur enn á efasemdir um
að EES verði að veruleika.
Ritzau og NTB
Lennart Meri, utanríkisráðherra
Eistlands, sagði í gær að geislavirkni
hefði tvöfaldast í eistneska landa-
mærabænum Narva frá því á þriðju-
dag þegar geislavirkar lofttegundur
láku úr kjamorkuverinu í Sosnovíj
Bor, um eitt hundrað kílómetra frá
St. Pétursborg.
Meri bar fram mótmæli viö Andrej
Kozyrev, utanríkisráðherra Rúss-
lands, vegna þess að Eistar hefðu
ekki verið látnir vita af lekanum.
„Ég fer fram á það við rússnesku
sendinefndina að hún leggi fram ná-
kvæm gögn um það magn trítíums
sem slapp út í andrúmsloftið áður
en þessi dagur er liðinn," sagði Meri
á ráðstefnunni um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu, RÖSE, í Helsinki.
Aðspurður hvort þessi aukna
geislavirkni væri hættuleg heilsu
manna, sagðist hann ekki hafa nein-
ar tölur um þaö. „Það verður að bíða
næstu kynslóðar til aö fá nákvæmt
svar við þeirri spurningu," bætti
hann við.
Vestrænir sérfræðingar hafa hvatt
til þess að öllum hættulegum kjam-
orkuvenun í Austur-Evrópu verði
lokað. Alþjóðlegur hópur sem aö-
stoðar Rússa, Litháa og Úkraínu-
menn við aö halda gömlumn kjam-
orkuverum gangandi sagði hins veg-
ar að þau gegndu mikilvægu hlut-
verki við raforkuframleiðslu.
Reuter
ráðastgegn
hassneyslu
Lars Emil Johansen, formaöur
grænlensku landsljómarinnar,
er ekki ánægður með íramgöngu
lögreglunnar í baráttunni gegn
vaxandi hassneyslu á Græniandi.
Lars Emil sagði í grænlenska
landsþinginu á þriðjudag að hann
ætlaði að hafa samband við Hans
Engel, dómsmálaráðherra Dan-
merkur, og iara fram á að fá fieiri
lögregluþjóna til aö stöðva hass-
söluna sem oft fer fram fyrir allra
augum á götum úti. Lögreglan á
Grænlandi heyrir undir danska
dómsmálaráðuneytið.
Hassið kemur frá Danmörku og
er sala þess mjög ábatasöm.
Grammið kostar um 300 krónur
í Kaupmannahöfh en selst á
Grænlandi fyrir þrjú til fimm
þúsund
Kakkalakkitef-
urjárnbrautar-
SestíJapan
Japönsk járnbrautarfélög gorta
yfir því aö hægt sé að stilla klukk-
una sína eftir lestum þeirra. Þau
hafa þó ekki reiknað með vesi-
ings litla kakkalakkanum.
Jámbrautarmenn urðu heldur
vandræðalegir á sunnudag þegar
rafmagnsbilun varð i lest sem var
á leið á vinsælt hverasvæði og
flytja varð farþegana 900 um borð
í aöra vagna.
Ekki minnkaði roðinn í andliti
þeirra þegar upp úr dúmum kom
að hálfs sentímetra langur
kakkalakki í öryggjaboxi lestar-
innar var valdur aö biluninni.
Samt eru lestarnar úðaðar reglu-
lega með skordýraeitri.
BrigitteBardot
hættirviðsjón-
varpsþátt
Leikkonan og dýravinurinn
Brigitte Bardot er öskureið út í
frönsku sjónvarpsstöðina TFl og
hefur hætt við þátt sinn „SOS
dýr“ vegna þess hversu seint á
kvöidin hann var sýndur.
„Stööin var ailtaf að færa sýn-
ingar á honum aftar og aftar í
kvölddagskrána. Mér var nóg
boðið þegar hann var sýndur kl.
23.20 í þessari viku vegna þess að
böm og gamalmenni horfa á
hann af mikfili athyglí og þau
geta ekki vakað svona lengi,“
sagðí leikkonan í viötali við
franska útvarpsstöð í gær.
Hún sagði að samningurinn við
TFl, vinsælustu sjónvarpsstöð
Frakklands, gerði ráð fyrir að
þátturinn væri sýndur ekki síðar
en kl. 22.30. Forráðamenn stöðv-
arinnar vildu ekkert segja.
Salman Rushdie
hiftirbandaríska
þingmenn
Breski rithöfundurinn Salman
Rushdie átti fund meö bandarísk-
um öidungadeildarþingmönnum
1 Washington í gær og fór fram á
að þeir þrýstu á írani um að af-
létta dauðadómi yfir sér fyrir
raeint guðlast.
Mikfl leynd hvíldi yfir heim-
sókn Rushdie þar til skömmu
áður en hann snæddi hádegis-
verð meö hópi þingmanna. Hann
kom til Washington fyrr í vikunni
án þess að gera boð á undan sér.
Rushdie hefur verið i felum i
þrjú ár vegna dauðadóms æjatoll-
ans Khomeinis yfir honum fyrir
bókina Söngva satans sem ísl-
amstrúarmenn telja guðlast og
hefur ein milljón doflara verið
sett tfl höfuös honum.
Ritzau og Reuter