Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1992, Side 13
FIMMTUDAGUR 26. MARS 1992.
13
Sviðsljós
The Platters halda tónleika á Hótel íslandi næstu tvær helgar. F.v., Larry Tate, Linda Smith, Elmer Armstrong
og Chico Lamar, en Chico er sá eini sem verið hefur með hljómsveitinni frá upphafi. DV-myndir GVA
Hótel ísland:
Á tónleikum
með Platters
Hljómsveitin The Platters er í
heimsókn hér á landi um þessar
mundir og heldur tónleika á Hótel
íslandi næstu tvær helgar. Á tónleik-
unum á laugardagskvöldið tókst
hljómsveitinni heldur betur aö hrífa
fólk með sér með lifandi framkomu
sinni og gömlu góðu lögunum í anda
rokkáranna.
Á meðan á heimsókninni stendur
nota þau sem skipa hljómsveitina
tímann til aö kynnast landi og þjóð.
Elmer Armstrong hefur verið með
hljómsveitinni siðan 1962.
Bátasýning hjá Títan:
25 mismun-
andi gerðir
„Þrátt fyrir mikinn reglugerða-
frumskóg erum við nú búnir að fá
þessa báta samþykkta á íslandi og
getum því í fyrsta sinn boðið upp- á
gífurlegt úrval nýrra báta,“ sagði
Sigfús Sverrisson, framkvæmda-
stjóri hjá Títan hf., sem stóð fyrir
mikilh bátasýningu um síðustu
helgi.
Þar voru kynntar 25 mismunandi
gerðir Shetland-báta og að sögn Sig-
fusar komu yfir 4000 manns á sýning-
una og allir bátamir, sem þar voru
sýndir, seldust upp.
„Verðiö er svipað og á gömlu bát-
unum sem verið hafa til sölu hingað
til. Þetta verður því vonandi tii þess
að verðið á þeim lækkar þannig að
fleiri geti eignast „bátsfar drauma
sinna,“ sagði Sigfús.
Þau byija daginn með hkamsrækt
og á meðal þess sem þau hafa gert
er að fara í skoðunarferðir um
Reykjavík, á vélsleða upp á Esju og
Langjökul, í útreiöartúra og í heim-
sókn í Bláa lónið. Einnig hafa þau
heimsótt Hveragerði og unnið við
upptökur nýrrar konsertplötu.
Þau segjast vera mjög hrifin af
landi og þjóð og höfðu sérstaklega
orð á því hvað íslenskir unghngar
væru fijálsir og ófeimnir.
Þessi íslenski karlmaður lét sig ekki muna um að bjóða Lindu upp í dans
og tóku þau því létta syrpu á sviðinu.
Rúdólf Arnason „mátar“ hér ameriskan bát sem ætlaður er byrjendum og
kostar 348 þúsund krónur. DV-mynd RASI
TILBOÐ
VIKUNNAR
HAGKAUP
- altt í einni ferd