Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992. 3 I>V Landbúnaðarráöherra um tilraunabúið á Hesti í Borgarfirði: Fréttir Nauðsynlegt verður að laga rannsóknaraðstöðuna „Okkar hugmynd er sú að sauð- fjárrannsóknir verði einungis á Hesti. Auðvitað kemur að því að nauðsynlegt verður að laga rann- sóknaraðstöðuna þar því að land- búnaðurinn verður að fylgjast með þar eins og annars staðar. En það hefur ekki verið ákveðið að ráðast í framkvæmdir né hvenær það yrði gert,“ sagði Halldór Blöndal land- búnaðarráðherra við DV. Aðspurður hvort ekki væri tíma- skekkja að huga að nýrri fjárhús- byggingu upp á 25 milljónir, fyrir 550-600 fjár, þegar fækka ætti sauðfé í landinu verulega og niðurskurður stæði yfir í ríkisfjármálum sagði Halldór það svo í sambandi við allan atvinnurekstur að sú þjóð sem lokaði sig inni og vildi ekki stunda rann- sóknir og vísindastörf í tengslum við höfuðatvinnuvegi sína drægist undir eins aftur úr. „Vandamál okkar í sambandi við landbúnað eru miklu fremur þau að við höfum ekki verið nægilega vak- andi í sambandi við ýmislegt sem lýtur að hagræðingu og markaðs- málum svo og ræktim, út frá þeim sjónarmiðum," sagði Halldór. „Þess vegna væri það það vitlausasta sem við gerðum að hætta rannsóknum í tengslum við okkar höfuöatvinnu- vegi, hvort sem við tölum um land- búnað, sjávarútveg, iðnað eða eitt- hvað annað. Það er hluti af nútíma- legri hugsun í nútímalegu þjóðfélagi að skilja að þekkingin er sterkasta vopnið til hagræðingar. Þekkingin verður að byggjast á reynslu og at- hugun. Við getum ekki byggt sauö- fjárræktina á íslandi á einhverjum athugunum sem eru gerðar í Ástral- íu, á Nýja-Sjálandi, í Finnlandi eða Bandaríkjunum." Halldór sagði að ekki væru til nein- ir aukafjármunir í landbúnaðar- ráðuneytinu. Þess vegna hefðu menn ekki haft það í huga að ráðast í nýjar byggingar á þessu ári. „Við erum ekki farnir að huga svo alvarlega að fjárlögum næsta árs að ég geti fullyrt hvort við undirbúum eitthvað slíkt. Við erum að fara yfir öll þessi mál og endurmeta þau markmið sem við höfum í rannsókn- arstörfum varðandi landbúnað." -JSS Félagjámiðnaöarmanna: Haf nar miðlunartillögu ríkissáttasemjara „Ríkissáttasemjari sendi okkur, eins og öllum öðrum stéttarfélögum sem ekki voru í samningasamflotinu, miðlunartillögu sína. Á stjórnar- fundi á mánudaginn og félagsfundi á þriðjudag var samþykkt að hafna miðlunartillögunni. Við teljum eðli- legra að fara í samninga," sagði Örn Friðriksson, formaður Félags jám- iðnaðarmanna og varaforseti Al- þýðusambands íslands. Örn segir að kröfur Félags járniðn- aðarmanna séu að þau laun sem greidd eru út verði taxtar og að síðan verði gerður lágmarkslaunataxti. Hann segir að þau laun sem járniðn- aðarmönnum á Reykjavíkursvæðinu séu greidd út séu mjög mismunandi. Annars staðar á landinu séu járniðn- aðarmenn með fastlaunasamninga. „Við emm bara með þessa einu kröfu, engar viðbótarkröfur. Við er- um út af fyrir sig ekkert að setja okkur upp á móti því sem í miðlun- artillögunni felst. Við viljum bara að það kaup sem greitt er út í járniðn- aði verði hinn raunverulegi taxti fé- lagsins. Hann sagðist búast við að önnur félög járniðnaðarmanna mundu halda fundi á næstunni og ræða miðlunartillögu ríkissáttasemjara sem þeim hefur verið send. Þess má geta að Félag bókagerðar- manna, sem ekki er í ASÍ og var ekki í samflotinu, hefur fengið miðlunar- tillögu ríkissáttasemjara. Hún verð- ur tekin fyrir á fundi sem boðað hef- ur verið til á miðvikudaginn í næstu viku. -S.dór Mjög slæmt ástand hefur skapast vegna sinubruna á höfuðborgarsvæðinu. Trjágróður hefur skemmst í Elliðaárd- al og gróður hefur komist í hættu annars staðar. Að sögn Hrólfs Jónssonar, slökkviliðsstjóra í Reykjavík, er það litið mjög alvarlegum augum þegar verið er að leggja eld að gróðursvæðum. Hrólfur segir að nokkrir piltar, sem kveikt hafa i að undanförnu, hafi verið teknir inn á slökkviliðsstöð þar sem málin hafi verið rædd. Slökkviliðs- stjóri telur viðræðurnar hafa skilað árangri. DV-mynd S (ÍREIDSI.l KJOIt VI.I.T VI) lí! M VM Dl M ac (D VAGNHÖFÐA 23 • SiMI 91-685825 BFGoodrich Radial All-Terrain T/A Þetta löngu landsþekkta munstur er gert fyrir vegi og vegleysur. Gefur mjúkan og hljóölausan akstur, ásamt miklu gripi í hálku á bundnu sem óbundnu slitlagi. • Hið djúpa þverskorna munstur gefur gott grip. • Þessi einstæða uppbygging á munstri heldur vegahljóði í lágmarki og sambygging takka gefur hámarks endingu. • Opnar hliðarraufar losa vatn undan hjólbarðanum og veita yfirburðagrip í bleytu og hálku. • Styrkleikinn af tvöfalda vírbeltinu gefur meiri rásfestu og hámarks endingu, en um leið undraverðri mýkt. • Ekki tvö lög hér - heldur þriggja laga TriGrad bygging sem gefur hjólbarðanum meiri innri styrk ásamt betri vörn gegn hvössum steinum og höggum. JEPPINN ÞINN Á SKILIÐ AÐEINS ÞAÐ BESTA AI KAHLI TIR • VARAflLl TIR • SÉRPAXTAMR • VERKST EDI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.