Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992. Veiðivon Veiðin hefur veriö ágæt þaö sem af er í Baugsstaðaósnum og á myndinni hefur Agnar Pétursson landað urriða fyrir fáum dögum. Ingvi Hrafn Jónsson, Guölaugur Bergmann og Kristinn Valdimars- son. Næsta eintak af Veiðimanninum er væntanlegt á næstu dögum. Það er verið að vinna við Sport- veiðiblaðiö og Á veiðum þessa dag- ana. En Sportveiðiblaðið heldur upp á 10 ára afmælið sitt á þessu ári. Verður þessa vel getið í næsta blaði höfum við frétt. Ein milljón eintaka Napp og nýtt Napp og nýtt er ABU gefur út hefur heldur betur rokið út þessa dagana enda stórgrein um ísland í því. Það eru þau Paul’O Keefe í Veiðimannin- um, Margrét Hauksdóttir hjá Flug- leiðum og Paul Richarsson hjá Ferðaþjónustu bænda sem eiga veg og vanda af þessari íslandsferð. En Napp og nýtt er gefið í einni milljón eintaka í Skandiavíu. Þessi grein er því engin smálandkynning. Vesturröst með fjöl- breytt úrval veiðileyfa Þaö hefur færst í vöxt hinn seinni árin að veiöibúðir selji veiðileyfi í hinar og þessar veiðiár og vötn. Ein af þeim veiðibúöum sem er með óvenjulega fjölbreytt úrval í ár er Vesturröst. Þeir bjóða upp á veiðileyíi í Sel- tjörn, en þar verður sleppt 15-20 þús- und silungum þetta sumarið. Veiðin hefst þar 10 maí. Eystri-Rangá verður í boði, auk Hraunsins í Ölfusi, Þóris- vatns, Kvíslarveitna á Sprengisands- leið, Kleifarvatns, Langavatns í Borgarfirði, vatnanna í Svínadal, Oddstaðavatns og einhverra vatna á FjaUabakksleið, eins og Ljótapolls og Eskihlíðarvatns. ÚrvaUð er greini- lega óvenjulega gott hjá Vesturröst. -G.Bender Um árabil hefur verið reynt að auka fiskgengd í Núpá á Snæfells- nesi með seiðasleppingum. Vegna aðstæðna við ós árinnar hefur árang- ur ekki orðið sem skyldi. Sl. sumar var síðan gerð tilraun tilraun með sieppingu hafbeitarlaxa á efra svæði árinnar. í sumar verður sleppt í ána a.m.k. 150 hafbeitarlöxum og verða fyrstu laxamir settir í ána 15. júni og síðan á tveggja vikna fresti fram í ágúst. Um mánaðamótin júní, júlí verða þannig komnir í Núpá 65 laxar. í tengslum við tilraunaeldi á bleikju í sveitinni, verður einhveiju af merktri bleikju sleppt. Jafnframt þessu verður tryggt að göngufiskur komist hindrunarlaust um allt veiði- svæðið en ásamt nokkrum tugum laxa hefur veiðst í ánni árlega, góð bleikja, urriði og sjóbirtingur. Ingvi Hafn Jónsson mun áfram ritstýra Veiðimanninum Þrátt fyrir að Ingvi Hafn Jónsson hafi tekið við fréttastjórastarfinu á Stöð tvö, mun hann eftir sem áður ritstýra Veiðimanninum, blaði Stangaveiðifélags Reykjavíkur. En þeir sem sitja í ritnefnd eru Þessir silungar veiddust í Þorleifs- læk á flugu, en lækurinn hefur gefið yfir 400 fiska. T * 0 X Þjoðar- spaug DV Skuldin Fátækur bóndi kom eitt sinn á Eyrarbakka og hugðist selja kaupmanninum þar kálfskinn. Kaupmaðurinn taldi kálfskimtið harla illa útlítandi og fór aö telja götin á því í þeirri von að geta lækkað það í verði. Er hann hafði talið í dágóðá stund heyrðist i bóndanum: „Æ, segðu mér bara strax hvað ég skulda þér." Pabbi Ung stúlka, nýkomin lir kirlqu, komst svo aö orði við móður sina: „Ég hefenga trú á því að djöfull- inn sé til þó svo að presturinn haldi því fram. Þaö er ábyggilega með djöfulinn eins og jólasvein- inn, að fyrr eða síðar kemur það í Ijós aö það er bara hann pabbi sem leikur þá báða.“ Kexið Spjátrungur einn úr Reykjavík kom eitt sinn í smáverslun úti á landi og hugðist gera „billegt“ grín að kaupmanninum. „Ég þarf víst ekki að spyrja að því hvort þér eigið til hundakex í þessari búðarholu yðar.“ „Jú, það er nú til,“ svaraði kaupmaöurinn rólega. „Ætlar herrann að borða það á staðnum eða á ég að pakka því inn.“ Erfítt starf Maöur nokkur hóf nýlega starf hjá Byggðastofnun. Eftir fyrsta vinnudaginn spurði kunningl hans hvernig honum likaði nýja staríiö. Ríkisstarfsmaðurinn lét vel af því en sagði verst að þetta væri eiginlega tveggja manna starf. „En það er þó bót í máli að við erum þrír um það,“ bætti hann siöan við. Snæfellsnes: Löxum sleppt í Núpá Finnur þú fimm breytingar? 152 Ég finn ekki afritið af bréfinu frá 4. april en hér er eitt frá 3. apríl, er það ekki næstum þvi eins gott? Nafn:........ Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. verðlaun: SHARP stereo ferðaútvarpstæki með kas- settu að verðmæti kr. 6.380 frá Hljómbæ, Hverfisg. 103. 2. verðlaun: Fimm Úr- valsbækur að verðmæti kr. 3.941. Bækumar, sem eru í verðlaun, heita: Á elleftu stundu, Falin markmið, Flugan á veggnum, Leik- reglur, Sporlaust. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú flmm breytingar? 152 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavik Vinningshafar fyrir hundrað og fimmtugustu getraun reyndust vera: 1. Guðbjörg Kristjánsdóttir Bleiksárhlíð 32,735 Eskifirði. 2. Sigrún 0. Sveinsdóttir Árnesi II, 523 Finnbogastaðir. Vinningamir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.