Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992, - 15 Framleiðniaukning í íslenskum sjávarútvegi „Meðferð afla um borö i fiskiskipum hefur stórbatnað ...“ A síðasta ári tókst að auka heildar- verðraæti útflutts sjávarfangs um tæp 5%, úr 70 milljörðum króna árið 1990 í rúma 73 milljarða króna árið 1991. Þessi verðmætisaukning átti sér stað þrátt fyrir að heildaraflamagn minnkaði úr rúmlega 1,5 milljónum tonna í rúmlega milljón tonn. íslenskur sjávarútvegur mun því, þrátt fyrir tæplega 500 þúsund tonna aflasamdrátt milh síðustu tveggja ára, vera ábyrgur fyrir tun 80% vöruútflutnings íslendinga árið 1991 sem er hærra hlutfall en verið hefur allt frá 1968. Þögul bylting Á undanfomum ámm hefur átt sér stað þögul bylting innan ís- lensks sjávarútvegs. Þessar miklu breytingar hafa miðað að þvi að auka verðmæti þess sjávarfangs sem sjávarútvegurinn hefur til ráð- stöfunar á hverjum tíma. Meðferð afla um borð í fiskiskipum hefur stórbatnað þannig að gæði þess fisks, sem kemur til vinnslu í landi, hafa aukið möguleika vinnslunnar til að framleiða verðmætari vöm en áður. Stjómun í fiskvinnslu hefur einnig tekið stórstígum framfönun með aukinni tækni og tölvuvæð- ingu við stýringu á nýtingu aflans. Mun auðveldara er fyrir stjómend- ur að velja hráefni í þær pakkning- ar sem hentugastar eru, bæði með tilliti til markaösverðmæta og framleiðslukostnaðar. Bætt sam- skiptatækni hefur auðveldað sam- skipti milli framleiðenda, sölusam- taka og markaðarins þannig að framleiðendur em fljótt upplýstir ef um breytingar er að ræða á markaðnum. íslendingar hafa í auknum mæli Kjallariim Magnús Gunnarsson formaður samstarfsnefndar atvinnurekenda i sjávarútvegi leitað irm á ný markaðssviö sem greiða hærra verð fyrir gæðavöra og sölusamtökin hafa með aukinni vömþróun, rannsóknum og gæðaátaki fundiö leiðir til aukinn- ar verðmætasköpunar sem er að skila sér í hærra verði til framleið- enda. Fjárfesting í markaðnum Jafnframt hefur miklu fé verið eytt í markaðsrannsóknir, auglýs- ingar og opnun á nýjum söluskrif- stofum sem fært hafa markaös- setninguna nær neytendunum, fækkað milliliönm og um leið aukið þau verðmæti sem hægt er að skila heim. Ég er gersónulega sannfærð- ur um að ef íslendingar heföu ekki byggt upp þessi fyrirtæki erlendis og fjárfest í rannsóknum, vömþró- un og markaðsmálum og þannig treyst stöðu sína til lengri tima á alþjóðlegum fiskmörkuðum væm lífskj ör í landinu mun lakari en þau eru í dag. Ef við höfum ekki í heimi vax- andi verkaskiptingar þá framsýni aö byggja upp sjálfstætt markaðs- og dreifikerfi fyrir sjávarafurðir okkar eykst hættan á því að við verðum í framtíðinni að útkjálka- verstöð sem aðeins framleiðir fyrir stóra vinnsluaðila sem starfa nærri neytendunum á markaðnum. Með fjárfestingu í markaðsmál- um og nýjustu tækni við veiðar og vinnslu hefur okkur tekist að halda íslenskum sjávarútvegi í fyrstu deild sjávarútvegsþjóða, bæði hvað varðar fiskveiðar og fiskvinnslu. Samstaða í markaðsmálum Gæfa íslensku þjóðarinnar hefur verið sú að fyrirtækin í sjávarút- veginum og forystumenn þeirra hafa séð sér hag í því að standa saman um markaði og sölumál. Sameining stóm kaupendanna í matvæladreifingu erlendis gerir kröfur til þess að íslenskur sjávar- útvegur þjappi sér enn frekar sam- an vilji hann hafa áhrif á verö- mætasköpunina á markaðnum og halda sem mestu eftir af virðisauk- anum fyrir íslenskt þjóðarbú. Þeir sem starfa í sjávarútvegin- um verða að gera sér grein fyrir því að skilningurinn á þýðingu samstöðunnar verður að koma frá greininni sjálfri. Ef menn ætla að ná þeim árangri, sem dugar, verða menn að stækka einingamar í markaðs- og sölumálum og fjár- festa í auknum mæli í erlendum markaðs- og dreifingarfyrirtækj- um sem sérhæfa sig í sölu sjávaraf- urða. Magnús Gunnarsson „Ef menn ætla að ná þeim árangri, sem dugar, verða menn að stækka eining- arnar í markaðs- og sölumálum og íjár- festa í auknum mæli í erlendum mark- aðs- og dreifingarfyrirtækjum.. Fölnuð goðsögn Árni Johnsen, Kjartan Gunnarsson og Davið Oddsson. - „Þremenning- arnir sneru goðsögninni upp í andhverfu sina...“ segir greinarhöfundur. Kosningasmalar íhaldsins hafa löngum klifaö á þeirri óskhyggju að Sjálfstæðisflokkurinn fari betur með peninga en aðrir flokkar. Þetta raup kom sér oft vel þegar brýna þurfti liðið á kjördag. Morgunblað- iö flutti síðan þessa bábilju í síbylju og ár eftir ár. Óskhyggjan um ráð- deild íhaldsins náði eyrum sumra kjósenda og varö aö goðsögn. Nú er öldin önnur hér á landi og einkum og sér í lagi í höfuðborg- inni. Verkin lofa meistarana og af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá. Verður látið nægja að kalla aðeins þijá gilda meistara fram á sviðið með ávextina sína: Áma Johnsen og Þjóðleikhúsið, Kjartan Gunn- arsson og Flugstöðina og Davíð Oddsson og Ráðhúsið/Perluna. Fleiri vitna gerist ekki þörf að sinni. Goðsögnin um ráðdeildina er fölnuð. Og gott betur. Þremenn- ingamir snem goðsögninni upp í andhverfu sína og hún er orðin að martröð fyrir kjósendur. En fróð- legt er að sjá hvemig íhaldið brást við sóim piltanna þriggja á al- mannafé. Sjálfstæðisflokkurinn leiddi þessa sólundarmenn rakleitt til æðri metorða í réttu hlutfalli við bruðlið og flottræfilsháttinn. Fjáraustur og ausutetur Fyrir nokkmm árum þurfti að skipta um innviði í Þjóðleikhúsinu. Smíðinni á því ausutetri stjómaði sjálfur Ámi Johnsen blaðamaður en hann haföi áður setiö á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Viðgerð- in var aldrei 1 böndum og æddi KjaUarinn Ásgeir Hannes Eiríksson verslunarmaður fram úr áætlun eins og sléttueldur. Ennþá logar glatt í þessu ausutetri íhaldsins. Eftir ráðdeildina var Ami John- sen leiddur til enn frekari metorða. Hann situr nú aftur á þingi fyrir Sjallann og hefur aðgang að ríkis- sjóði með setu í fjárveitinganefnd. Ný flugstöð var reist í flaustri á Keflavíkurvelli fyrir þingkosning- ar árið 1987. Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins, stjómaði smíðinni og flokkurinn notaöi ausutetrið óspart í kosningahríðinni. Kostn- aður rauk upp úr öllu valdi og ekki er séð fyrir endann á þeim útgjöld- um. Eftir ráðdeildina leiddi íhaldið Kjartan Gunnarsson að stærsta kjötkatli landsins. Hann var nýlega skipaður formaður bankaráðs Landsbanka íslands. Pokar og fýlupokar Þriðja og fjórða meistaraverkið em sérstök heiðursmerki um fjár- austur Davíðs Oddssonar borgar- stjóra í Reykjavík, og em það engin smávegis ausutetur: ráðhúsbragg- inn og Perlan. Eftir að Davíð haföi ausið fé borgarbúa og erlendu lánsfé á þessi þroskaleikföng sín leiddi Ihaldið borgarstjórann til æðstu mannvirðinga á Vesturlönd- um eftir þá ráðdeild: formann Sjálf- staeðisflokksins. Á Alþingi hitti Davíö Oddsson aftur á móti hvem jafnoka sinn á fætur öðmm og marga ofjarla. Þau stefnumót bám magasýrur ráð- herrans ofurliöi og hann er ekki svipur þjá sjón í dag. Lagstur í langvarandi fýlu og drattast ráð- villtur um sviöið í vondu skapi. Davdð nöldrar nú tafsandi út af öllum sköpuðum hlutum og stekk- ur ekki bros á vör. Meira aö segja milljarðar ráðhúsbraggans náðu ekki að gleðja hann á vígsludaginn og hátíðarræðan varð að ómerki- legri vamarræðu. - Dýr mundi gleði ráðherrans öll. Veikin frá Versölum Það hafa fleiri stórmenni sögunn- ar náð athygli þegna sinna með flottræfilshætti en Davíð Oddsson og félagar. Loðvík fjórtándi þurfti á sínum tíma á athygli að halda. Úthaldið hjá franska aðlinum kost- aði skildinginn og fólkið í Frakk- landi undi ekki sínum hag. Þjóðin rambaði á barmi gjaldþrota og skuldir hlóðust upp. Þá byggði Loðvík fjórtándi sitt ausutetur í Versölum. Hlóð sér ráð- hús og perlur jafnt sem þjóðleikhús og flugstöðvar. Gull og grænir skógar. Tjamir. Með því móti sýndi hann almúganum bæði mátt sinn og megin. Síðan teymdi þessi skuldakóngur sögunnar annað fínt fólk um hallir Versala til að stað- festa ríkidæmið. Álengdar stóð svangur múgurinn og át það sem úti fraus. Á meðan Loðvík fjórtándi steig léttan menúett á tjamarbökkum Versala hrundi franska þjóðfélagið. Goðsögnin fölnaði og varð að mar- tröð. Enda leið ekki á löngu áöur en Frakkar grýttu Bastilluna og skiptu um stjómarfar. Lái þeim hver sem vill. Ásgeir Hannes Eiriksson „Veröur látið nægja að kalla aðeins þrjá gilda meistara fram á sviðið með ávextina sína: Árna Johnsen og Þjóð- leikhúsið, Kjartan Gunnarsson og Flugstöðina og Davíð Oddsson og Ráð- húsið/Perluna.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.