Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Side 11
11
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992.
Utlönd
Bandaríski körfuboltasnillingurinn Ervin „Magic“ Johnson er einna (rægast-
ur þeirra manna sem greinst hafa með eyðniveiruna. Ekki er þar meö sagt
að hann eigi á hættu að fá eyðni. Teikning Lurie
Óvæntar efasemdir vísindamanna:
Eyðniveiran
er skaðlaus
- grunur um að eyðnilyf geti valdið eyðni
Kominn er fram hópur vísinda-
manna sem telur aö viðurkenndar
skoöanir á orsökum eyðni fái ekki
staðist. Þessir menn segja að engar
sannanir séu fyrir því að svokölluð
HTV-veira valdi eyðni ein sér eins
almennt hefur verið talið frá því hún
fannst fyrst árið 1983.
Því er einnig haldið fram að eyöni-
veiran hafi fylgt mannkyninu lengi
en fundist nú á síðari tímum vegna
framfara í veiurannsóknum. Vís-
indamennirnir segja að vissulega
finnist veiran í fólki sem fær eyðni
en hún sé skaðlaus fólki nema aðrir
þættir komi einnig til. Flestir þeirra
sem látist hafi úr eyðni hafi verið í
hættu af öðrum orsökum.
Ósannað að HlV-veiran
valdi eyðni
Sá sem fer fyrir efasemdamönnun-
um heitir Peter Duesberg, prófessor
í við háskólann í Berkley í Kalifor-
níu. Hann hefur unnið að rannsókn-
um á eyðni lun árabil en missti rann-
sóknarstyrk sinn nýverið vegna þess
að mönnum þótti sem hann væri
lentur á villigötum.
Duesburg og þeir sem fylgja honum
að málum segja að bilun í ónæmis-
kerfi likamans, sem rakið er til
eyðniveirunnar, stafi af öðrum sýk-
ingum og óheilsusamlegu líferni
enda séu langflestir eyðnisjúklingar
einnig eiturlyfj aneytendur og því í
mikilii hættu af þeim sökum.
í tilvikum annarra, sem látist hafi
úr eyðni, megi yfirleitt fmna aðra
áhættuþætti sem gætu verið skýring-
in á að ónæmiskerfið hættir að gegna
hlutverki sínu. Efasemdamennimir
segja að sú staðreynd að eyðni hafi
fyrst fundist meðal homma hafi vak-
ið ótta manna um faraldur vegna
kynsjúkdóms.
Orsökin fyrir sjúkdómnum hafi
snarlega. fundist með HTV-veirunm
jafnvel þótt vitað sé að ónæmiskerfið
geti bfiað af öðrum orsökum. Dues-
burg heldur því þannig fram að or-
sakasamhengið milh sjúkdóms og
veiru sé ósannað.
Eyðnilyfin geta
sjálf valdið eyðni
Annar bandarískur vísindamaður,
dr. Harvey Bialy að nafni, tekur und-
ir þetta og segir að starfsbræður hans
hafi samþykkt vinsæla tilgátu um
orsakir eyðni án þess að sannanir
væru bomar fram. Hann segir að vel
geti verið að HlV-veiran valdi eyðni
en það sé enn ósannað mál eftir
margra ára rannsóknir.
Fleiri hafa orðið til að taka undir
með Bandaríkjamönnunum. Pró-
fessor Luc Montagnier við Pasteur-
stofnunina í París segir að ekkert sé
sannað um orsakasamhengið milh
veimnnar og sjúkdómsins. Hann
segir aht benda til að fólk verði að
vera í hættu af öðrum orsökum einn-
ig til að fá sjúkdóminn þótt hann
útiloki ekki að HlV-veiran eigi þar
hlut að máh.
Montagnier gengur á einu sviði enn
lengra en Bandaríkj amennirnir og
segir að nú sé rétt að beina athygl-
inni að eyðnilyfjunum sem reynd
hafi verið á síðustu árum. Þau séu
ekki aðeins gagnslaus heldur grunar
hann að þau geti valdið sjúkdómnum
sem þau eiga að hefta. Þannig sé
hugsanlegt að maður með HlV-veir-
una fái fyrst eyðni þegar hann hefur
fengið lyf sem á að vinna á veirunni.
Breska blaðið Sunday Times hefur
fjahað ítarlega um þetta mál og þar
er ályktað að reynist hugmyndir efa-
semdamannanna réttar gætu eyðni-
fræðin öh reynst versta klúður
læknavísindanna á þessari öld.
AUGLYSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1983- 2.fl. 1984- 3.fl. 01.05.92-01.11.92 12.05.92-12.11.92 kr. 55.173.33 kr. 60.818.00
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, apríl 1992.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Besta bandaríska kvikmynd níunda áratugarins.
Donald Lyons, Film Comment.
MITT EIGffi ID1I0
RIVER
PHOENIX
KEANU
Gus Van Sant kemst á stall með framsæknustu kvikmyndagerðarmönnum Banda-
ríkjanna, Jim Jarmusch og Coen-bræðrunum. Handritið er hressilega skrifað
og kvikmyndinni leikstýrt af skilningi og einlægum húmor.
Vincent Canoy, N.Y. Times.
☆ ☆ ☆ ☆ Óvenjuleg, yndislega frábrugðin, endumýjar trú þína á kvikmyndir.
Marshall Fine, Gannett News Service.
☆ ☆ ☆ ☆ Van Sant laðar fram sama kraftaverkið frá River Phoenix og Keanu
Reeves og hann gerði með Matt Dillon í Drugstore Cowboy. Ekkert undirbýr
þig fyrir þessa óafsakanlegu, ósviknu kvikmynd. Mynd sem snertir þig djúpt.
Lawrence Frascella, US.
Tveir þumlar á lofti.
Siskel og Ebert.
Sýnd i A-sal kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð ínnan 16 ára.