Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Page 19
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992.
19
íslandsmeistaramótbarþjpna í kokkteilblöndun:
- þátttakendur aldrei fleiri
íslandsmeistaramót barþjóna var
haldið um síðustu helgi á Hótel Sögu.
Var þetta í 29. skipti en keppendur
voru 27, 15 karlmenn og 12 konur,
og hafa þeir aldrei verið íleiri.
Konur hafa verið að sækja í sig
veðrið í „hristingnum“ og á síöasta
ári urðu þær í þremur efstu sætun-
um.
Keppendur áttu að blanda fimm
glös af sætum kokkteilum og var
gefið bæði fyrir bragð og útlit. Sigur-
vegari að þessu sinni var Þorkell
Ericsson, barþjónn í Perlunni, en sig-
urdrykkur hans hét Perlutár. i öðru
sæti var Bárður Guðlaugsson, sem
starfar einnig í Perlunni, og í þriöja
sæti Vilhelm Norðfjörð á Gauki á
Stöng.
Auk keppninnar sjálfrar var boðið
upp á vínkynningu þar sem umboðs-
menn kynntu tegundir sínar, glæsi-
legan málsverð, skemmtisýningu
Gysbræðra, „á söguslóðum“, og að
lokum dansleik þar sem hljómsveitin
Einsdæmi lék.
Gestir voru tæplega þijú hundruð
og skemmtu sér konunglega.
Að lokum er rétt að birta verð-
Sigurvegarinn, Þorkell Ericsson, með sverðið sem hann fékk fyrir sigurinn.
Hann var sleginn til riddara en það er venja hjá barþjónaklúbbnum. í bak-
grunni má sjá Ragnar Örn Pétursson en hann stjórnaði mótinu með glæsi-
brag. DV-myndir Ari
launauppskrift Þorkels:
1,5 Finlandia vodka
1,5 Pisang ambon
0,5 Banana bols
2,5 Pfanner perusafi
Skreyting: Lime, blæsuber
og blábær.
Þorkell Ericsson
bar sigur úrbýtum
Sviðsljós
Hrista, hrista. Svava Jónsdóttir bar-
þjónn blandar kokkteilinn sinn meö
bros á vör. Konur voru áberandi á
íslandsmótinu.
Þessar föngulegu stúlkur, Dagbjört
og Bryndís, sáu um að kynna gest-
um alla helstu drykkina.
________________________________Vísnaþáttur
Hennar bros var heitur blær
* * * *
SNÆLAND
ÓTRÚLEQA ÓDÝR
ÍS-SHAKE
ísi formi.........................99,-
is meö dýfu....................109,-
ís meö dýfu og ris.............119,-
ís, 1 litri......................295,-
Shake, litiil....................X95,-
Shake, stór......................235,-
is i boxi, litill....;..........139,-
ís i boxi, stór..................169,-
Bragöarefur......................250,-
Bananasplitt.....................460,-
Margar gerðir af kúluis
Vinsæli dúó-isinn með
jarðarbeija- og vanillubragði.
SriÆLATIDS-SPES!!!
Veljið sjálf i ísréttinn.
Sölutum - isbúö - videoleiga - bakari
Eumgmnd 3 Kópavogi - Simi 41817
Bjarni frá Gröf var lengi iðnaðar-
maður á Akureyri, úrsmiður eða
rakari, nú fyrir alUöngu látinn.
Vinur hans, sem Friðrik Jónsson
hét, fékk frá honum þessa vísu sjö-
tugur:
Ei þig brestur andans fjör,
ennþá séstu glaður.
Gleðja best þín gamansvör,
gamli hestamaður.
Líklega, en það er þó ekki víst,
er þessi vísa eftir sama höfund:
Hennar bros var heitur blær,
hressti marga vini.
Alltaf var þar opinn bær
í ásta- og greiðaskyni.
Ásgeir Gíslason Vestur-íslend-
ingur var um aldamótin kunnur
fyrir vísur sínar, hér og vestra.
Þessi er eftir hann:
Loftið glæöir ljósagnótt,
ljúfar fæðast myndir.
Uppi á hæðum alstirnd nótt
eldaglæður kyndir.
Erlendsvísumar
Því miður fiskast ekki alltaf mik-
ið á góðar óskir um hjálp lesenda
við þáttasmíðamar. Kannski ekki
von að menn nenni eða geti greitt
úr gömlum vísnagátum. En þeim
mun glaðari varð ég þegar önnur
reynd varð á í sambandi við Er-
lendsvísur í Nausti sem ég birti hér
í DV snemma í apríl. Þá létu nokkr-
ir Vestfirðingar til sín heyra í síma
eða bréfum. Fyrir það er ég þakk-
látur. Erlendur sá sem við sögu
kemur var einsetumaður í Nausti
á Siglunesi við Breiðafjörð. Aðset-
ursstaður hans var illa íbúðarhæft
sjóbúðarloft. Hann er nú látinn fyr-
ir löngu og kofmn, sem um er getiö
í vísunum, varí aldrei nema
draumur og stúlkan, sem þar átti
að búa hjá honum, fékk aldrei að
njóta þar skjóls því að mannsefn-
inu hennar var aldrei trúað fyrir
efninu í kofann þeirra á kreppuár-
imum. Hún mun þó enn á lífi, há-
öldruð.
Þótt vísnagerðarmenn séu vel-
virkir getur þeim æfðari riturum
fundist við hæfi að hnika til orðum
í þokkalega gerðri vísu áður en hún
kemur á prent. Betra er að varast
orð sem áður er búið að nota eða
setja annað sem hljómar betur í
stað þess upprunalega ef merking-
armunur er lítill eða enginn. Þess
vegna geta gamlir kunningjar
vísna saknaö einmitt þeirra oröa
sem voru í upprunalegu gerðinni
eða eins og hún var orðin þegar
þeir lærðu hana.
Upplýsingar herma að höfundur
Erlendsvísnanna, sem hér voru
nýlega birtar, sé ekki hann sjálfur
heldur hafi hann fengið vin sinn,
Óskar Arinbjömsson á Eyri í Gufu-
dalssveit, til að yrkja bréfið til Sigf-
úsár Bergmann, kaupfélagsstjóra í
Flatey, sem synjaði Erlendi um við
til kofabyggingarinnar sem hefur
víst aldrei verið ætlað að verða
neitt stórhýsi. Hér koma íjórar af
vísum Erlends sem upphaflega
vom í bréfi hans:
Holdið góða heitt og mjúkt
hálfa næring gefur.
Því hefur orðið þér svo drjúgt
það sem fénast hefur.
Kennt mun hafa þörfin þér
þínum tota að ota -
og efni leyfa meira mér
miðstöðvar að nota.
Enn ég þreyi einn á strönd,
oft mig beygja rokin,
þú í Eyjum heitri hönd
hýrra meyja strokinn.
Kofann hríðar hrista minn,
hugarstríð það boðar,
heiminn blíðan þegar þinn
þú án kvíða skoðar.
Úrýmsum áttum
Þessi sveitavísa úr Húnavatns-
sýslu er eftir Bjöm S. Blöndal:
Haukur fló úr hamrasal,
hugði á nóga veiði.
Hundur gó í dimmum dal, .
draugur hló á leiði.
Sumir ætla að meira sé fólgið aö
baki orða en liggur í augum uppi.
Sigluvíkur-Sveinn var norð-
lenskt alþýðuskáld, þjóðkunnt fyr-
ir aldamót. Þessi er ein af mörgum
vísum hans sem flugu um sveitir
og bæi:
Sú er ætíö meining mín
megnan bæti trega,
brúði mæta og brennivín
að brúka gætilega.
Tryggvi Hjörleifsson Kvaran var
prestur norðanlands. Hann var
bróðir Einars skálds en þótti stund-
um í ógætnara lagi þegar hann orti
lausavísur og lýsti samborgurum
sínum og sveitungum. Þessi staka
er eignuð honum, vinnumanni lýst:
Gvendur, þú ert gæðaskinn,
þó greind sé lítil hjá þér.
Held ég þekkti hundssvipinn
þó hausinn væri ekki á þér.
Einar Matthíasson Long var
Austfirðingur. Svo orti hann um
stúlku sem þótti laus á kostunum:
Illa tamin ertu greyið,
ekki er sagan ný.
Hafi einhver hjá þér legið
hann sá eftir því.
Þessi er um líkt efni en miklu
eldri. Höfundur ókunnur.
Ef þú hvílir auðgrund hjá,
eðlis hlítir vana,
bera skaltu ábyrgð á,
ef þú spjallar hana.
Margir láta okkur Torfa heyra
að þeim þætti mikið á skorta ef
vísnaþátturinn félli burt. Öðrum
finnst kannsi að nóg sé komið. í
sambandi við ofanritaðar vísur var
þessari að vísnamanni skotið en
höfund mátti ekki nefna.
Vísnagerð er vinsælt sport,
vert er því að sinna.
Sjálfur get ég ekkert ort,
aðeins notið hinna.
Davíð Stefánsson átti um sína
daga meiri vinsældum að fagna en
flest önnur nútímaskáld, enda
vængjahaf hans mikið. Sumum
þótti hann vilja fela fátæktina, sem
víöast ríkti, í slæðum rómantíkur-
innar og innihaldslitillar speki.
Þegar Dalakofi Davíðs var mest
sunginn orti Vilhjálmur Benedikts-
son í Brandsskarði:
Illt að borða einn úr skel
og eiga fátt til vina,
sælt að vera saddur vel
og syngja um fátæktina.
Um höfundinn veit ég ekkert,
getur nokkiu- bætt úr því?
Jón úr Vör,
Fannborg 7, Kópavogi
1
BlLDSHOFÐA I6SIMI6724U TELEFAX672560
Tívolí
Opið allar helgar Opið 1. maí
Hjá okkur er alltaf gott veður. Góð fjölskylduskemmtun.
Tll okkar er styttra en þú heldur.
Tívolí, Hveragerði