Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992. Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari eftir eina erfiðustu samningalotuna: Þetta er átakastarf Það eru margir samningamenn búnir að blunda í hægindastólnum á skrifstofu Guðlaugs. „Þetta er minn svefnstaður ef ég dotta í ströngum samninga- lotum. Ég var strax hrifinn af stólnum, sem er ítalskur, þegar ég sá hann í lítilli húsgagnaverslun á sínum tíma. Siðan hafa margir karlar og konur fengið sér lúr í honum.“ „Nýliðin samningalota er ein sú erfiðasta sem ég hef verið með í. Síð- ustu fimm sólarhringamir, sem hðu áður en málamiðlunartillagan var Iógð fram, voru mjög erfiðir. Ég líki þessari lotu við samningana 1984 þegar opinberir starfsmenn voru í mánaöarverkfalli. Það voru míög erfiðir samningar. Þetta eru hins vegar erfiðustu Alþýðusambands- samningar sem ég hef tekið þátt í,“ sagði Guðlaugur Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari þegar DV heimsótti hann í Karphúsið í vikubyrjun. Þá var nýafstaðin ein erfiðasta samn- ingalota sem menn muna eftir. Eftir átta mánaða samningaþóf kom fimm sólarhringa ströng töm sem lauk með málamiðlunartillögu ríkissátta- semjara. Guðlaugur var að vonum þreyttur eftir fimm nær svefnlausa sólarhringa en tók þó erindi blaða- manns vel. - Sumir hafa ósköp litla hugmynd um í hveiju starf sáttasemjara er í raun fólgið. „Það er mjög algengt aö fólk úti í bæ sem talar við mig og fólk sem kemur hingað haldi að það sé að semja við mig. Mín völd em hins vegar engin. Mitt hlutverk er fyrst og fremst að skapa samningaum- hverfi og þoka málum áfram. Höfuð- atriði er að fá menn til að tala saman. Afskipti sáttasemjara em í nokkr- um stigum. Stundum set ég fram hugmyndir og spyr menn hvort það sé eitthvað sem megi ræða. Stundum getm- þetta veriö ákveðnara af minni hálfu. Þá set ég fram ákveðna tillögu sem ég óska afdráttarlausra svara við, já eða nei. Það er svokölluð inn- anhússtillaga. Það er ekkert um slík- ar tillögur í lögunum sem ég starfa eftir en aðferð sem fyrirrennari minn í starfi, Torfi Hjartarson, beitti mjög gjaman. Ef þessar tillögur vora sam- þykktar fóm þær til atkvæðagreiðslu í félögunum. í lögum um ríkissáttasemjara em skýr ákvæði um miðlunartillögu eins og þá sem ég lagði fram í vikunni. í þessum samningum bar mönnum ekki mikið á milli svo ég taldi mikil- vægt að leggja fram svona tillögu. Ég hafði þegar vissu um að það var ekki andstætt vilja aðilanna sem í samningunum standa, enda forsenda þess að ég legði fram slíka tíilögu." Ræðstvið í skotum Guðlaugi finnst ekkert skrýtið þó fólk vití ekki mikið um þau vinnu- brögð sem em viðhöfð í Karphúsinu. „Þetta gerist hægt. Menn silja ekki allan tímann við borðið og tala sam- an. Það er gengiö um ganga og ræöst við í skotum og herbergjum. Fólki, sem sér myndir héðan, finnst þetta kannski ekki burðugir samningatíl- burðir en sannleikurinn er hins veg- ar sá að þetta fyrirkomulag ræður oftar en ekki úrslitum. Það er mjög mikilvægt að forystumenn fái tæki- færi til að stinga saman nefium í húsinu án þess að ég hafi af því nokk- ur afskipti. Menn em þá á staðnum og hafa meiri tíma til að tala saman. Ég reyni eðlilega að greiða fyrir viiji menn halda slíka skyndifundi. í fjölmiðlum em hins vegar oft mynd- ir af mönnum við aö eta og drekka. Fólk heldur kannski að ég sé bara að ala sjálfan mig og aðra. Áöur fyrr vom samningafundir haldnir á Loft- leiðahótelinu. Þar vom veitingar til staðar en ekki hér. Þegar ég kom hér í húsið stóð til að gera regluleg kaffi- og matarhlé en það gengur bara ekki í ströngum samningalotum. Því veröur að hafa kaffi og einhverja næringu á staðnum fyrir mannskap- inn.“ Láta menn blása - En hvemig gengur þetta fyrir sig viö sjálft samningaborðið? Maður sér fyrir sér þar sem þú gengur nánast á milli manna þegar andrúmsloftíð er orðið spennt og stór orð látinn falla. „Ég lærði af Torfa Hjartarsyni að þó öldur rísi og menn kastí einhveiju fram, sem er allt aö því óviður- kvæmilegt, þýði ekki alltaf að sussa. Menn verða að fá að blása út. Ég verð stímdum að líða alls kyns hnútukast við borðið sem ég er alls ekki sáttur við. Það getur einnig beinst að mér sjálfum. Það er ekki annað að gera en taka því. Starf sáttasemjara er átakastarf í eðli sínu og því fýlgja auðvitað gusur. Sem betur fer hafa afar sjaldan orðið eftir- mál þó slíkt hafi komið fyrir. Við erum jú öll mannleg og getum hlaup- ið á okkur í hita leiksins." ÞórarinnV. Þórarinsson: Mjög sam- starfsfús „Hæfileikar Guðlaugs sem rík- issáttasenýara hafa kannski einna hélst felist í því að skapa gott andrúmsloft í kringum sig og laða menn ti! samtala frekar en að hann liafi troðið mönnum um tær með sínum akoðunum. Hann er mjög samstarfsfús við menn og hann hefur skilgreint sitt embætti alveg hárrétt: Aö hann eigi að fa menn til aö sætt- ast en ekki aö vera með eilífa skothríö tillagna. Ef sáttasemjari gerðist tiilögubanki tapaði hann fljótt trúnaði, Á hinn bóginn hef- ur Guðiaugur haft þor til að koma inn í málin þegar á hefur þurft að halda,“ sagöi Þórariim V. Þór- arinsson, formaður VSÍ. - Það skerst þá stundum í odda þeg- ar menn hafa vakað sólarhringunum saman? „Já. Þegar samningalotur eins og þessi standa yfir, þar sem tekist er á um kjama málsins fimm sólarhringa í röð, em menn lítt sofnir og það reynir eðlilega á taugamar. En það er einmitt við þau skilyrði, þegar menn em hvað þreyttastir, að ganga þarf frá hlutum sem em virkilega viðkvæmir. Reyndar er þá stundum erfitt að komast hjá því að vitleysur séu gerðar og ég játa að það hefur komið fyrir hjá mér.“ - Nú hefur hver sinn háttínn á til að komast í gegnum langar og strangar samningalotur. Sem dæmi er nefnt að Torfi Hjartarson hafi drif- ið menn í bridge til að brjóta fundina upp og hvíla hugann smástund. „Þegar sáttanefndir vom starfandi, fyrir 1982, var mjög mikið spilað. Það er enn spilað mikið í hléum. Vissu- lega hefur hver sinn stíl. Þegar ég tók við af Torfa sagði ég að erfitt væri að fara í fótin hans og ég stend við þau orð enn í dag. Torfi er mikill persónuleiki og mannkostamaður. Á ytra borðinu er hann kannski hijúf- ur og kaldur en afskaplega hjartahlý persóna innst inni. Ég er kannski uppburðarminni, hef minn eigin stíl sem stundum á betur við og stundum verr. Þeir sljómendur, sem ekki hafa neinn stíl, em ekki miklir stjómend- 11T< “ Badmintonfélagar - Hvemig ferð þú í gegnum þetta, kominn fast að sjötugu? Gerirðu eitt- hvað til að halda þér í formi? „Ég vildi gjaman gera mun meira til að halda mér í formi. Ég spila badminton og hef gert það með sömu félögum frá 1948. Eg sakna þess hins vegar að geta ekki farið eins mikið út í náttúruna og ég geröi áður. Þessi hópur, sem spilaði badmin- ton, var mjög virkur í þá daga og í dag höldum við enn saman sem bad- mintonfélagið Fuglar. Þetta er góður félagsskapur. Við fógnum afmælum hver annars saman með konunum, sem einnig spiluðu badminton. í þessum hópi em Kristján Benja- mínsson, Gunnar Petersen, Kristján Benediktsson og Sigurgeir Jónsson. Lengst af vora bræðumir Ragnar og Pétur Georgssynir með en em hættir nú. Seinna bættust Ragnar Haralds- son húsgagnasmiðameistari og Gísh Guðmundsson hjá Tryggingamið- stöðinni í hópinn. Þetta er mjög sam- hentur hópur sem spilar ailtaf tvo klukkutíma á miðvikudagskvöld- um. Það hefur reyndar komið fyrir að ég hef ekki komist vegna anna í legur 1 umgengni og hugsunar- samur um að allir í húsinu hafi sæmilega aðstöðu. Þaö skíptir miklu máh þegar setið er í löng- um lotum og oft erfiðum aam- skiptum manna i mihi. Hann hef- ur mikla reynslu af sáttastarfi sem sáttasemjari frá 1979 og þar áður í sáttanefndum. Þaö vom samningsaðilar sem fóra sameig- inlega fram á þaö við Guölaug á sínum tíma aö hann tæki starf ríkissáttasemjara að sér vegna góðrar reynslu af honum í sátta- nefiidunum. Til aö sáttasemjari geti sinnt sínu hlutverki þarf hann að vera hugmyndaríkur og laginn aö tala menn til og Guð- laugi hefúr tekist það prýðilega," sagöi Ásmundur Stefánsson, formaður ASÍ. starfinu og það hefur mér þótt mjög miður.“ Ætlaði í jarðfræði Guðlaugur er kvæntur Kristínu Hólmfríði Kristinsdóttur skrifstofu- manni. Þau eignuðust fjóra syni en einn þeirra er látinn. „Það er svo merkilegt að synir mín- ur hafa allir farið út á svið sem ég hef haft áhuga á. Elsti sonur minn fór í nám sem ég ætíaði mér að stunda á sínum tíma. Ég hafði mik- inn áhuga á jarðfræði og landafræði og hafði fengið styrk frá mennta- málaráðuneytinu til þess að stunda nám i þeim greinum. Én þá var stríð- ið enn í gangi svo ég afsalaði mér styrknum. Sonur minn fékk svipað- an styrk síðar, lærði jarðfræði og kennir hana núna við háskólann í Ósló. Tveir yngri synir mínir hafa síðan farið í auglýsinga- og fjölmiöla- bransann. Sá yngsti, Styrmir, vinnur hjá Fróða og hefur skrifað greinar í tímarit en Þorvaldur vinnur í auglýs- ingabransanum, hjá Hvíta húsinu. Ég vann reyndar við vikublaðið Fálkann í 10 ár. Þá var manni boðiö að vera viöstaddur ýmsa merkilega viðburði eins og vígslu Þjóðleikhúss- ins. Ég sá þá íslandsklukkuna og Nýársnóttina. Maður tengdist þá fjöl- breytilegum viðburðum á sama hátt og blaðamenn gera í dag.“ Frá Grindavík Guðlaugur er fæddur 13. október 1924, að Jámgerðarstöðum 1 Grinda- vík. Hannr ólst upp í Grindavík og vann ungur þau störf sem til féllu. Um ævina hefur Guðlaugur gegnt fjölmörgum störfum. Hann var rekt- or Háskóla íslands í sex ár, 1973- 1979. Sáttasemjari varð hann 1979 en hafði fram að því verið vararíkis- sáttasemjari hjá Torfa Hjartarsyni. Hann útskrifaðist sem viðskipta- fræðingur frá Háskólanum 1950, var

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.