Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1992, Síða 33
53
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992.
Helgarpopp
Sólar-upprás
Síöan skein sól hefur haft sig lítið
í frammi síöustu mánuði. Hljómveit-
in var ein fárra sem ekki voru með
hljómplötu á jólamarkaðinum og að
undanskildum desembermánuð hef-
ur hljómsveitin dæst síðan í október
enda úthaldið orðið langt.
Nú þegar vor er í lofti og sól skríð-
ur hærra á himnafestinguna skríður
hljómsveit úr híði. Nýr trymbill er
sestur viö húðimar og nýtt efni
hrannast upp. Til að kynnast betur
innanbúðarmálum Sólarinnar hitti
blaðamaður þá Helga Bjömsson
söngvara og Jakob Magnússon
bassaleikara og innti þá fyrst eftir
nauösyn þess að pústa og brottfor
Ingólfs Sigurðssonar trommuleikara
úr hljómsveitinxú.
Frí til að lofta út
„Frí er til þess aö lofta út svita og
ólykt,“ segir Helgi og hann heldur
áfram. Ingólfur vildi breyta til, en
það tengist ekki á neinn hátt ósam-
komulagi innan hljómsveitarinnar.
Hann ákvað að reyna fyrir sér í
hljómsveitinni OrgiU þar sem hann
á æskuvini og félaga. Hann var búinn
að spila með þeirri hljómsveit sam-
fara vera sinni í Sólinni um nokkurt
skeið og því þurfti Orgill að sníða
sína dagskrá aö því sem Sólin var
að gera á hverjum tíma. Slíkir
árekstrar vom orðnir tíðir og því
varð hann að velja á milli sveitanna.
Sá sem fyllir skarð Ingólfs er mjög
frambærilegm- trymbill, Hafþór
Guðmundsson, sem leikið hefur með
hljómsveitunum Sprakk, Eldfuglin-
um og Hunangstunglinu.
Því er ekki að neita að það var
komin ákveðin vinnuþreyta í mann-
skapinn enda höfðum verið að nær
linnulaust frá 1989. Menn koma
ferskir úr svona fríi og maður fmnur
þaö, betur en oft áður, hvað það er
gaman að spila. í svona fríi nær
maður iika betur að melta það sem
hljómsveitin hefur verið að gera. Slík
naflaskoðun er nauðsynleg."
Nýmarkmið
Jakob Magnússon segir hljóm-
sveitina hafa komið saman á nýjan
leik í lok mars og þá var byrjað að
æfa upp nýtt prógramm, bæði gömul
lög sem hljómsveitin átti í fórum sín-
um auk nýrra laga. Skömmu fyrir
páska fór hljómsveitin í hljóðver og
tók upp fimm lög, þar af tvö sem
stendur til að gefa út í Englandi í
sumar. „Það komu tveir pródúsentar
frá Bretlandi og unnu meö okkur
fyrstu tvær vikumar í apríl. Það
dæmi er ávöxtur ferðar okkar til
Englands í haust þar sem við spiluð-
um á nokkrum klúbbum. Það var
maður frá litlu, óháðu útgáfufyrir-
tæki, Diva, sem sá okkur á Mean
Fiddler-klúbbnum og lýsti áhuga á
samstarfi. í kjölfarið komu þessir
pródúsentar og tóku upp lögin Seven
out og God Burger Two (vinnuheiti)
í Stúdíó Sýrlandi."
- Hvað rekur menn af stað í útgáfu
í útlöndum?
„Ný takmörk, ný verkefni til að
sigrast á. í rauninni erum við búnir
að gera flest það sem hægt er að gera
á þeim litla markaði sem ísland er.
Það er ákveðin endurtekning í því
aö starfa eingöngu hér heima, án
þess að viö séum að gera lítið úr
því. Við getum auövitað haldið áfram
að gefa út plötur og farið sumar-
hringinn um landið en metnaðurinn
mipnkar eftir því sem maður gerir
það oftar. Þegar við komum fram hér
á landi getum við gengið út frá því
sem vísu að allavega helmingur tón-
leika- eða ballgesta hafi heyrt í okkur
áöur. Áskorunin er því ekki eins
mikil og hún var þegar við vorum
að byija. Við erum að reyna að víkka
út starfssviöið meö því að líta út fyr-
ir landsteinana."
- Síðan skein sól á fulla ferð eftir frí og mannabreytingu
og sérstaklega ánægjulegt að heyra
hvemig hin ýmsu lög öðlast nýtt líf
þegar hleypt er í þau krafti.“
Tónleikaferðir
lífsspursmál
Útþrá Sólarinnar á sér engin tak-
mörk og næstu daga axlar hljóm-
sveitin malinn og heldur í lautarferð
til kóngsins Kaupinhafnar.
„Við ætium að skreppa í heilsubót-
arferð til Kaupmannahafnar og spila
fyrir íslendingafélagið í ijaldbúðum
úti í skóg. Það stóð til að við myndum
spila á einhveijum Utlum stöðum í
Danmörku og einnig vom hugmynd-
ir uppi um spilerí á Hróarskelduhá-
tíðinni. Við komumst hins vegar að
því aö kokið leyfði ekki svo stóra
bita, þannig að við létum þær hug-
myndir sigla."
Síðan skein sól hefur hringferð um
ísland þann 15. maí og verður Ara-
tunga fyrsti viðkomustaðurinn.
Hljómsveitin verður svo á faralds-
Umsjón:
Snorri Már Skúlason
Hljómsveitin Síðan skein sól.
Troða upp á einni
stærstu
rokkhátíð Englands
Síðan skein sól ætlar ekki einungis
að gefa út smáskífu í Englandi í sum-
ar. Sveitin gengur skrefinu lengra
og verður meðal gesta á hinni virtu
Reading-rokkhátíð skammt vestur af
London í lok ágúst. Á meðal hljóm-
sveita, sem þar troða upp, em Nir-
vana, Jesus Jones og Ástralinn frá-
bæri, Nick Cave.
„Upptroðsla Sólarinnar á Reading
er tilkomin vegna ferðarinnar til
Englands sl. haust, en einnig hefur
Jakob Frímann, menningarfulltrúi í
London, verið sveitinni innan hand-
ar með þá tónleika. Hljómsveitin
stefnir á að spila á klúbbum víðs
vegar um England dagana í kringum
Reading-hátíðina. “
- Hvað heitir hljómsveitin í útlönd-
um ?
Það koma vöflur á Helga og Jakob
við spuminguna og greinilegt að
skírnarfonturinn hefur ekki verið
brúkaður. Eftir léttar rokur og hug-
myndastorm við hringborðið tekur
Helgi Bjömsson af skarið.
„Það hefur eitt og annaö verið nefnt
í þessu sambandi. Þegar við vomm
í London í haust komum við fram
undir nafninu Here Comes the Sun.
Þau nöfn, sem koma til greina fyrir
sumarið, eru SS Soul og Sex Puftins.
Hvaö verður leíðir tíminn í ljós.“
Harðara yfirbragð
Síðan skein sól verður með tvö lög
á safhplötu í sumar auk þess sem
hljómsveitin á eitt lag í kvikmynd
Júlíusar Kemp, Veggfóðri. Plata með
lögum úr kvikmyndinni verður gefin
út í lok júní.
- Er tónlist Sólarinnar að breytast?
„Það er erfitt að segja. Við erum
Síðan skein sól og hlaupumst ekki
Tindan því merki. Jú, ef maður hugs-
ar út í það þá er tónlistin að verða
harðari. Við höfum leyft okkur ansi
margt á okkar ferli. Tónlistin hefur
sveiflast frá hressilegu rokki yfir í
órafmagnaðar ballöður og allt þar á
milli. Það sem við höfum verið að
fást við síðustu vikur er meö harðara
yfirbragði en oftast áður. Það er
meiri keyrsla og harðari tónn.
Undanfarið höfum við verið að út-
setja gamlar ballöður upp á nýtt og
þar höfum við leyft okkur aö rokka
lögin upp með hráum gítarleik og
auknu trukki. Það er skemmtileg iðja
fæti í allt sumar og mun spila um
hveija helgi fram á haust.
„Það er mjög erfitt að halda hljóm-
sveit úti nema að fara í hringferð um
landið á sumrin, sérstaklega ef menn
ætla að hafa þetta að atvinnu. Þaö
lifir enginn á plötuútgáfu hérlendis,
nema kannski Bubbi Morthens.
Hljómsveitir verða að sækja fólkið á
landsbyggðinni heim. Það er líka
mjög hollt fyrir hljómsveitir að fara
í slíka túra. Böndin verða þéttari og
betri auk þess sem þannig gefst kjör-
iö tækifæri á að fá viðbrögö fólksins
við nýjum lögum.“
Síöan skein sól hefur í hyggju aö
taka upp stóra plötu á hausti kom-
anda og taka þátt í plötuslagnum fyr-
ir næstu jól. Fram að þeim tíma hef-
ur sveitin í mörg hom að líta og ljóst
að þeir Helgi, Jakob, Eyjólfur Jó-
hannsson gítarleikari og nýi hös-
maðurinn, Hafþór Guðmundsson,
verða reynslunni ríkari effir ævin-
týri sumarsins.
KORTHAFAR
fá 15% afslátt eins og þeir sem greiða smáauglýsingar út í hönd
með beinhörðum peningum. Það eina sem þú þarft að gera er
að hringja og smáauglýsingin verður færð á kortið þitt. það er
gamla sagan: Þú hringir, við birtum og það ber árangur!
Smáauglýsingadeild DV er opin:
Virka daga kl. 9.00-22.00
Laugardaga kl. 9.00-18.00
Sunnudaga kl. 18.00-22.00
Athugfð:
Auglýsing I helgarblað DV þarf að berast
fyrir kl. 17.00 á föstudag.
SMÁAUGLÝSINGAR
SÍMI63 27 00