Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1992, Side 2
2
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992.
Fréttir
Sjávarútvegsráðherra duglegastur að koma lagafrumvörpum í gegnum þingið:
Krataráðheirar komu
örfáum málum í gegn
- miðað við þau stjómarfrumvörp sem boðuð voru í stefnuræðu síðastliðið haust
Miðað við þá málaskrá sem Davíð
Oddsson forsætísráðherra lét fylgja
með stefnuræðu sinni við upphaf
Alþingis í haust hefur Þorsteinn
Pálsson, dómsmála- og sjávarútvegs-
ráðherra, veriö í sérflokki ráðherra
við að fá sín lagafrumvörp í gegnum
Alþingi. Forsætisráðherra boðaði í
fylgiskjaiinu að frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu væru væntanleg 7
frumvörp sem lögð yrðu fram á Al-
þingi í vetur. Þorsteinn Pálsson fékk
hins vegar 10 frumvörp afgreidd um
sjávarútvegsmál. Og sem dóms- og
kirkjumálaráðherra fékk hann af-
greidd 9 frumvörp af 17 boöuöum.
Svo virðist sem ráðherrar Alþýðu-
flokksins hafi ekki verið eins harðir
að koma sínum málum í gegnum
þingið. Boðuð voru 6 frumvörp frá
utanríkisráöherra en ekkert frum-
varp var afgreitt frá því ráðuneyti á
Alþingi.
Boðuð voru 10 frumvörp frá Jóni
Sigurðssyni sem iðnaðarráðherra en
ekkert var afgreitt. Boöuð voru 19
frumvörp frá Jóni sem iðnaðarráð-
herra en 4 voru afgreidd.
Frá Eiði Guðnasyni voru boðuö 15
frumvörp en eitt var afgreitt.
„Það er staðreynd að dugnaður
þingnefnda og metnaður formanna
þeirra ræður meiru um afgreiðslu
þingmála, hvort heldur eru laga-
Málaskrá forsætisráðherra
samþykkt
stjórnarfrumvörp
og
Sighvatur Þorsteinn Friðrik Jóhanna Halldór Davíð ÓlafurG. Jón Eiður JónB.
Björgvinsson Pálsson Sophusson Sigurðard. Blöndal Oddsson Einarsson SigurðssonGuðnason Hannibals,
frumvörp eða þingsályktunartillög-
ur, en ýtni ráðherra við að koma
frumvörpum í gegn. Sjálfsagt getur
ýtni þeirra ráðið einhveiju en aldrei
úrslitum. Það gera þingnefndirnar
og formenn þeirra,“ sagði Eiður
Guðnason umhverfisráðherra í sam-
tali við DV.
Hann benti einnig á að sum frum-
vörp sem færu til þingnefnda væru
mjög flókin og tímafrek. Stundum
þyrfti að ræða við tugi manna um
málið en í öðrum tilfellum einn eða
tvo. Eins væri ekki sama hvort um
algerar nýjungar væri að ræða, eins
og flest sem varðar umhverfisráðu-
neytíð, eða hvort aðeins væri um að
ræða breytingar eða viðauka við
eldri lög.
Ekki náðist í Jón Sigurðsson iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, sem er er-
lendis, né Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra. Guðmundur Ein-
arsson, aðstoðarmaður Jóns Sig-
urðssonar, tók í mjög sama streng
og Eiður Guðnason. Hann benti líka
á að iönaöar- og viðskiptaráðherra
væri meö í vinnslu fjölmörg mál sem
tengdust EES-samningunum og
kæmu til meðferðar um leið og þeir.
Þaö skal þó tekið fram að þau mál
voru ekki á fylgiskjali Davíðs Odds-
sonar forsætísráðherx'a sem fyrr er
vitnað til. -S.dór
Lögreglan segist vart vera búin að reka bilstjóra í burtu af gangstéttinni við ÁTVR í Austurstræti þegar næsti
ökumaður sé búinn að leggja þar. • DV-mynd BG
Óánægja lögreglu meö óæskilega umferö viö ÁTVR í Austurstræti:
Bflar á gangstétt og
ölvað fólk fyrir utan
Lögregluyfirvöld eru mjög ósátt
viö ástand sem skapast hefur á síð-
ustu mánuðum við áfengisútsölu
ÁTVR í Austurstræti. Brögð hafa
verið aö því aö viðskiRtavinir hafi
lagt bílum sínum uppi á gangstétt
fyrir utan Ríkið, það er vinstra meg-
in miðað við umferðina í Austur-
stræti. Auk þess segir lögregla aug-
Ijóst að ölvað fólk og útígangsmenn
séu famir aö haida mikið til í mið-
bænum, nálægt Ríkinu - áður hefðu
útigangsmenn haldið til í nágrenni
Lindargötuxíkisins en nú hafi hópur-
inn fært sig niöur í miðbæ og Austur-
stræti.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns
voru borgaryfirvöld vöruð við þessu
ástandi þegar í september, það er
áður en verslun ÁTVR var opnuð í
Austurstræti. Svörin, sem lögreglan
fékk, að sögn Ómars, voru á þá leið
að lögreglan þyrftí ekki að hafa
áhyggjur eða velrn vöngum yfir ólög-
legum bifreiðastöðum sem trufluðu
umferð og aö áfengisútsala í Austur-
strætí myndi ekki hafa áhrif á um-
ferð ölvaðs fólks í götunni og næsta
nágrenni, áhyggjuefni lögreglunnar
myndi ekki rætast.
Omar sagöi við DV í gær að bent
hefði veriö á og varað hefði verið við
framangreindum atriðum á sam-
starfsnefndarfundi með borgaryfir-
völdum í september. Ómar sagði að
gangandi lögregluþjónar hefðu verið
á ferðinni í Austurstræti, sérstaklega
á álagstímum, en þeir væru vart
búnir að reka bílstjóra í burtu af
gangstéttinni við ÁTVR þegar næsti
ökumaður væri búinn að leggja fyrir
utan til að fara í Ríkið og sækja sér
hinn eftirsótta vökva.
Borgarráð hafnaöi nýlega tillögu
þess efnis að grindverk yrði sett við
gangstéttir fyrir framan ÁTVR til að
hindra ólöglegar bifreiðastöður sem
hefðu truflandi áhrif á umferð fót-
gangandi sem akandi vegfarenda.
-ÓTT
Júlíus Hafstein borgarfulltrúi:
Þessar áhyggjur
eruóþarfar
„Ég minnist þess að lögreglan
bentí á þann möguleika að þetta
gæti gerst. Við höfðum ákveðið að
áfengisverslunin sé gott innlegg í
endurlifgun og enduruppbyggingu í
gamla miðbænum. Menn gerðu sér
gréin fyrir því að jafnvel þótt góður
hugur stæði til þess gæti þetta haft
einhverja takmarkaða annmarka í
fór með sér. Þeir eru auðvitað þessir
en mér finnst þetta ekki vandamál
sem er til tjóns eða skaða. Þetta eru
óþarfa áhyggjur," sagði Júlíus Haf-
stein borgarfulltrúi um þá óánægju
sem fram hefur komið af hálfu lög-
regluyfirvalda um vandamál tengd
ÁTVR í Austurstrætí.
Júlíus sagði að ef í ljós kæmi að
—*----------------
Framtíð Austurstrætis:
Undirskriftir frá
18 þúsund manns
bílum yrði of mikið lagt á gangstéttir
vinstra megin við götuna yrði að taka
á því með einhveijum hætti. ,J>að er
rétt að skoða það viö tækifæri en ég
held að við þurfum að gefa þessu
meiri tíma,“ sagði Júlíus.
„Útigangsmenn hafa löngum sótt í
miðbæinn, sérstaklega að sumarlagi.
Eg tel því að því sambandi sé ekki
um stórkostíegt vandamál að ræða.
Afstaöa borgarinnar hefur ekkert
breyst. Við óskuðum eftir því á sín-
imi tíma við fjármálaráðuneytiö aö
áfengisverslun yrði í miðbænum.
Það hefur ekkert komið fram sem
gefur ástæðu til að endurskoöa það.“
-ÓTT
„Eg er ekki búinn að fara 1 gegn-
um þennan bunka af undirskrift-
um. Þetta hefur legið frammi í
verslunum, sjoppum og kvöldsöl-
um og ég veit að fólk hefur skrifað
undir þetta. Eftir skjóta yfirferð
sýnist mér aö það séu böm og ungl-
ingar sem hafa veriö þátttakendur
í því. Auðvitað hafa þau rétt til að
láta sitt álit í ljós. Málið þarf hins
vegar að skoða í víðara samhengi
og taka tillit til þeirra radda sem
koma frá eigendum verslana og
fulltrúum stofnana," segir Markús
Örn Antonsson borgarstjóri.
Borgarstíóra var í fyrradag af-
hentur undirskriftalistí með 18
þúsund nöfnum þar sem mælst er
til að Austurstræti verði aftur gert
aö göngugötu. Gatan var opnuö í
tilraunaskyni til sex mánaða í des-
ember síðastiiönum. Að sögn
Markúsar vill hann ekki taka af-
stöðu til undirskriftanna fyrr en
búið er að meta reynsluna af opn-
un. -kaa