Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1992, Page 5
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992.
5
Fréttir
Alþingi finnur leið til spamaðar:
Ræstingarkonur
lækka í launum
„Vissulega lækka þessar ræsting-
arkonur í launum en ræstingartíðni
hjá þeim er líka miklu minni en áður
var. Það hefur verið brýnt vandlega
fyrir þeim að fara eftir verklýsingu
og við munum fylgjast gjörla með
framvindu þessa máls,“ sagði Ragna
Bergmann, formaður verkakvenna-
félagsins Framsóknar, við DV.
Mikil óánægja hefur verið meðal
ræstingarkvenna Alþingis vegna
þess að þær hafa verið á mismun-
andi kjörum. Að sögn Rögnu var
upphaf málsins það að tímamælt
ákvæði var sett á í ræstingunni fyrir
nokkrum árum. Samkvæmt því er
tímakaup í dagvinnu 393 krónur og
í næturvinnu 474 krónur. Þegar þetta
gerðist voru fyrir konur sem unnu í
tímavinnu. Þar er tímakaupið 506
krónur.
„Þegar tímamælingin gekk í gildi
neituðum við að viðurkenna hana,“
sagði Ragna. „Það varð úr að þær
sem voru fyrir héldu sinni tíma-
vinnu. Nýrri konumar fóru hins veg-
ar á tímamælt ákvæði og voru þar
af leiðandi lægri. Þessi misjöfnu kjör
ollu mikilli óánægju meðal kvenn-
anna. Við héldum því fund með þeim
þar sem mælingin á ýmsum húsum
var endurskoðuð."
Tíu konum af fjórtán var í fram-
haldi af þessu sagt upp 31. janúar
síðastliðinn með þriggja mánaða fyr-
irvara og því fororði að um endur-
ráðningu yrði að ræða hjá þeim sem
það vildu. Fjórar kusu að ráða sig
annars staðar. Að auki er ein þeirra
á tímakaupi en hún á sex mánaða
rétt þannig að hennar kjör koma
ekki til endurskoðunar fyrr en eftir
þann tíma. Konurnar eru nú allar
komnar á tímamælt ákvæði, utan
þessi eina. Að sögn Rögnu var sú
breyting gerð með fullu samþykki
verkakvennafélagsins.
-JSS
3 2% lauiialiækkun?
\Tei og þó!
21" sharp sjónvai't)stæki á
ótrúlegu verði
Þátttaka íslands 1 Evrópska efnahagssvæðinu:
Kostar á ári um 200 milljónir
- þar af ríflega 60 milljónir til styrktar fátækum Evrópuríkjum
Samkomulag náðist um skiptingu
sameiginlegs kostnaðar EFTA-ríkj-
anna vegna EES á ráðherrafundi
EFTA, sem fram fór í Reykjavík í
vikunni. Notast er við reikniformúlu
sem tekur mið af þjóðarframleiðslu
landanna. Samkvæmt henni verða
útgjöld íslands vegna starfsemi
EFTA um 200 milljónir á ári. í ár
nema þessi útgjöld 48 milljónum.
Að sögn Jóns Baldvins Hannibals-
sonar utanríkisráðherra hækka bein
útgjöld íslands til EFTA einungis um
nokkrar milljónir í kjölfar EES.
Stærsta hluta útgjaldaaukans segir
hann að megi rekja til samstarfs
EFTA-ríkjanna og Evrópubanda-
lagsins á sviði rannsókna og þróun-
ar. Hluti þeirra fjármuna muni hins
vegar skila sér til baka vegna þátt-
töku íslendinga í þessum verkefnum.
Þá verði framlag íslands í Þróunar-
sjóð EFTA um 60 milljónir á ári.
Sjóðnum er ætiað að styðja við bakið
á vanþróuðum ríkjum í Evrópu-
bandalaginu.
Þó árleg útgjöld íslands til EFTA
aukist á annað hundrað milljónir í
tengslum við EES þá er tahð að þau
muni skila sér margfalt til baka í
formi tohalækkana á íslenskum sjáv-
arafurðum í Evrópubandalaginu.
Samkvæmt útreikningum utanríkis-
ráðuneytisins myndu þessar toll-
greiðslur lækka um tvo milljarða á
ári sé tekið mið af útflutningi síðasta
árs.
í tengslum við EES munu margar
nýjar EFTA-stofnanir taka til starfa,
þar á meðal EFTA-dómstólhnn og
EftirUtsstofnun EFTA. Þá munu
EFTA-ríkin og Evrópubandalagið í
sameiningu reka stofnanir á borð við
EES-ráðið, EES-nefndina, þing-
mannanefnd EES og ráðgjafamefnd
EES.
-kaa
NICAM STERIO FLATURSKJÁR
TEXTAVARP
SUPERVIDEO EURO SCARTTENGI
VI5RI) AÐITR 103.600
VERÐLfEIiKll 33.700
STAIHiRIim mi 69.900
HVERFISCÖTU 103: SÍMI25999
Nú um helgina
verður stórsýning á
Nissan bílum
frá kl. 14-17
á Betri bílasölunni
Selfossi og að
Sævarhöfða 2
Reykjavík.
Úrval góðra bíla
svo allir ættu
að geta fundið
bíl við sitt hæfi.
Notaðir
bílar metnir
á staðnum.