Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1992, Page 14
14
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRjALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð i lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Aðgerðir gegn Belgrad
Talið er, að meira en tvö þúsund hafi beðið bana og
yfir níu hundruð þúsund manns hafi flúið heimili sín í
tveggja mánaða bardögum í Bosníu-Hersegóvínu. Ríkið
hefur lýst yfir sjálfstæði, en stjórnin í Belgrad reynir
að hnekkja því. Serbar heyja þarna útþenslustríð gegn
múhameðstrúarmönnum og Króötum og njóta stuðn-
ings hersins, sem áður var sambandsher Júgóslavíu.
Tímabært er, að Sameinuðu þjóðimar grípi til aðgerða
gegn stjórninni í Belgrad eins og gert var gagnvart írök-
um í fyrra.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti fyrir
helgina aðild Bosníu-Hersegóvinu ásamt Slóveníu og
Króatíu, sem einnig tilheyrðu Júgóslavíu áður fyrr.
Serbar hafa reynt hervald gagnvart öllum þessum ríkj-
um. í Króatíu er í gildi viðkvæmt vopnahlé síðan í jan-
úar. Serbar eru meginhluti sambandshersins. Stríðið í
Bosníu-Hersegóvínu er ódulbúið landvinningastríð
Serba. Reynt er að innhma ríki, sem hefur lýst yfir sjálf-
stæði sínu eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Stríðið í Bosníu hefur verið miklu verra en íslending-
ar munu yfirleitt gera sér grein fyrir. Ofríkið er engu
minna en ofríki íraks var gegn Kúveit. Það stöðvuðu
hersveitir Sameinuðu þjóðanna, og Kúveit varð frjálst.
Menn telja yfirleitt, að Persaflóastríðið hafi verið rök-
rétt afleiðing hemáms Kúveits. En í Bosníu hefur eyði-
legging orðið miklu meiri en var í Kúveit, íjöldamorð
tíðari og flóttamannastraumurinn ekki minni. Full-
komnum vopnum hefur verið beitt gegn varnarlausu
fólki.
Nærri helmingur íbúa Bosníu-Hersegóvínu eru mú-
hameðstrúarmenn, múslímar. Serbar eru 28 prósent og
Króatar 16 prósent. Serbar hyggjast yfirtaka allar serb-
neskar byggðir 1 Bosníu eins og þeir gerðu í þeim þriðj-
ungi Króatíu, sem þeir ráða eftir útþenslustríð sitt í því
ríki.
Júgóslavía hefur sundrazt. Ríkisstjórnin í Belgrad er
sem fyrr kommúnistastjórn. í krafti þeirrar stefnu
freistar stjórnin að hindra frelsi nýju ríkjanna. Yfir-
gangurinn í Belgrad flæmdi Slóveníu og Króatíu úr sam-
bandinu, síðan Makedóníu og nú Bosníu-Hersegóvínu.
Aðrar þjóðir verða að hindra, að þessari kommúnista-
stjórn heppnist ætlunarverk sitt.
Evrópubandalagið og aðrir hafa reynt að miðla mál-
um, en vopnahléssamningar hafa jafnóðum verið brotn-
ir. Engar líkur eru til þess, að stjórnin í Belgrad láti af
sjálfsdáðum af ofríki sínu gagnvart nágrannaríkjunum.
Hafi verið rök fyrir því, að Sameinuðu þjóðirnar gripu
í taumana í Kúveit, þá væru afskipti þeirra nú eðlileg,
láti stjórnin í Belgrad ekki segjast. Þá væri rökrétt að
beita Serbíu refsiaðgerðum, svo sem algeru viðskipta-
banni, banni við flugsamgöngum og frystingu á banka-
innstæðum í öðrum ríkjum. Jafnvel slíkar aðgerðir
kynnu að reynast of veikburða, og þá verða Sameinuðu
þjóðirnar að beita hervaldi eins og gert var í írak 1 fyrra.
Vestræn ríki hafa verið svifasein í málefnum Bosníu-
Hersegóvínu. En þolinmæði þeirra er að þrjóta. Þess
sjást merki, að jafnvel Bandaríkjastjóm kunni að fást
til þátttöku í meiri háttar aðgerðum til að stöðva yfir-
gang Serba. Stjórnin í Washington hefur verið mjög treg
til. Við minnumst þess, að Bandaríkin höfðu að lokum
forystuna í baráttunni við stjórnina í írak, og enn er
forystu þeirra þörf. Blóðbaðinu í Bosníu-Hersegóvínu
verður að linna.
Haukur Helgason
Herforusta fer
halloka fyrir
fólki og kóngi
í febrúar í fyrra framdi forusta
herafla Tælands valdarán undir
forustu Suchinda Kraprayoon, yf-
irhershöfðingja landhersins, og
steypti af stóli stjórn óbreyttra
borgara sem studdist við þjóðkjörið
þing. Þetta var sautjánda valdarán
tælenskra herforingja á sex áratug-
um sem liðnir eru frá því einveldi
konungs var afnumið.
Valdarán þetta hefur nú dregið
þann dilk á eftir sér að hermenn
hafa verið látnir brytja niður fólk
svo tugum ef ekki hundruðum
skiptir í miðborg Bangkok. Horfði
í enn meira blóðbað þegar Bhumi-
bol Adulyadej Tælandskonungur
tók til sinna ráða. Hann áminnti
Suchinda knékrjúpandi í beinni
sjónvarpsútsendingu og setti þar
jafnan honum stjómarandstöðu-
leiðtogann Chamlong Srimuang,
sem hershöfðinginn hafði skömmu
áður látið varpa í fangelsi.
Fréttamenn í Bangkok segja ríkj-
andi skoðun þar að eftir þessa at-
burði hafi Suchinda sett svo niður
að ólíklegt sé að hann tolli við völd
nema skamma hríð. Hafði enda
gætt andstöðu við aðfarir hans í
herforustunni áður en konungur
lét til sín taka.
Kreppan, sem enn ríkir í tælensk-
um stjómmálum, kom upp eftir
þingkosningar 22. mars. Fimm
flokkar á bandi herforingjaklík-
unnar, sem stjórnað hafði landinu
frá valdaráninu í fyrra, fengu
nokkum meirihluta, 195 þingsæti
af 360. Stjómarandstöðuflokkar
náðu þó mun betri árangri en spáð
hafði verið þar sem herinn og
bandamenn hans ráða í rauninni
lögum og lofum víða á landsbyggð-
inni.
Sérstaka athygli vakti frammi-
staða flokksins Phalang Dharma
en foringi hans er áðurnefndur
Chamlong Srimuang. Frambjóð-
endur hans hirtu nær hvert einasta
þingsæti í Bangkok og næsta ná-
grenni.
Chamlong er fyrrverandi hers-
höfðingi en af allt öðru sauðahúsi
en þeir sem mest hafa látið að sér
kveöa og notað forréttindi herfor-
ustunnar og tök hennar á land-
stjóminni til að raka saman fé á
mútugreiðslum frá atvinnurekstri
og verndarfé frá fíkniefnasölum og
vændishringum. Chamlong
ástundar fábrotna lifnaðarhætti
búddamunka. Hann vann sér
óhemju vinsældir fyrir héraðs-
stjóm í Bangkok og nágrenni. Jafn-
framt því að bæla niður fjármála-
spillingu eftir föngum hreinsaði
hann borgina og fegraði til mikilla
muna.
Flokkamir fimm á bandi her-
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
stjórnarinnar tilnefndu fyrst til
forsætisráðherra foringja þess
stærsta, Sammaki Tham. Sá er
vellauðugur kaupsýslumaður að
nafni Narong Wongwan. Þá kom
það babb í bátinn að talsmaður
utanríkisráðuneytis Bandaríkj-
anna kunngerði að Narong hefði
verið neitaö um vegabréfsáritun til
Bandaríkjanna í fyrrasumar vegna
vitneskju um tengsl hans við fíkni-
efnasölu.
Tæland hefur lengi verið helsti
óopinber bandamaður Bandaríkj-
anna í Suðaustur-Asíu og sérstak-
lega hafa tengsl milli herforustu
landanna verið náin. Þótt fíkni-
efnaeftirlit Tælands lýsti því yfir
að það byggi ekki yfir neinni vitn-
eskju sem benti til að sakargiftir
bandarískra yfirvalda á hendur
Narong hefðu við rök að styðjast
var endirinn sá að hann varð að
draga sig í hlé.
í Bangkok var haft fyrir satt að
mál þetta væri ein af refjum herfor-
ingjaklíkunnar. Philip Shenon,
fréttamaður New York Times, hef-
ur eftir erlendum sendimanni í
borginni að best geti hann trúað
að herforingjar hafi komiö tfl
bandarískra yfirvalda gögnum sem
svertu Narong í þeirri vissu að
málið yrði opinbert við tilnefningu
hans til forsætisráðherraembættis.
Eftir slíkt hneyksli væri greið leið
fyrir einhvern úr þeirra hópi að
hlaupa í skarðið.
Og viti menn, flokkamir sem
höfðu tilnefnt Narong sneru við
honum baki og völdu í staðinn fyr-
ir forsætisráöherraefni Suchinda
yfirhershöfðingja og valdaránsfor-
kólf. Hershöfðinginn hafði ekki
boöið sig fram til þings. Verið hafa
uppi háværar kröfur um stjórnar-
skrárbreytingu á þá leið að ráð-
herrar skuli vera úr röðum kjör-
inna þingmanna. Við útnefningu
Suchinda mögnuðust þær um allan
helming.
Chamlong tók forustu í barátt-
unni með því að hefja mótmæla-
svelti úti fyrir stjómarráðinu í
Bangkok. Brátt dreif að múg og
margmenni til að votta málstað
hans stuðning. Ekki bætti úr skák
að það kom í hlut annars hershöfð-
ingja, Issarapong Noonpakdi, að
tilkynna tilnefningu nýja forsætis-
ráðherrans. Sá er mágur Suchinda
og hefur verið innanríkisráðherra
í fráfarandi bráðabirgðastjóm
hersins. Þar á ofan var kunngert
að hann tæki nú við yfirhershöfð-
ingjastöðunni sem Suchinda varð
að segja af sér til að verða forsætis-
ráöherra.
Þegar mannijöldinn í miðborg
Bangkok, sem mótmælti valdatöku
Suchinda, var farinn að skipta
hundruðum þúsunda sáu stuðn-
ingsmenn hans á þingi sitt óvænna
og komust að samkomulagi við
stjómarandstöðuna um stjórnar-
skrárbreytingu. Skyldi þar kveðið
á um að forsætisráðherra yrði val-
inn úr hópi þingmanna og þannig
um hnúta búið að Suchinda yrði
að segja af sér að fáum mánuðum
liðnum.
í trausti á þetta samkomulag fékk
Chamlong mannfjöldann til aö láta
af mótmælastöðu en um leið og
þrýstingnum var aflétt kom í ljós
að Suchinda og hans menn hugðust
ganga á bak orða sinna um stjórn-
arskrárbreytingu. Jafnskjótt komu
Chamlong og hans menn á vett-
vang á ný en þá greip Suchinda til
óyndisúrræða, lýsti yfir neyðar-
ástandi, lét hermenn skjóta á mót-
mælendur og elta þá uppi um mið-
borg Bangkok með misþyrmingum
tvær nætur í röð. Þúsundir voru
teknar höndum, Chamlong fyrstur.
Blóðsúthellingum linnti og föng-
um var sleppt eftir að konungur tók
í taumana. Stjómmálakreppunni í
Tælandi er þó hvergi nærri lokið.
Þingið á að koma saman á mánu-
dag til að ræða stjórnarskrárbreyt-
ingar.
Vandséð er hvernig Suchinda get-
ur hangið við völd eftir aö hann
hefur bersýnilega bakað sér van-
þóknun konungsfjölskyldunnar
sem Tælendingar flestir hafa í há-
vegum, segir fréttaritari breska
útvarpsins BBC. Þar að auki sýna
atburðir síðustu vikna að tælensk
millistétt, sem mjög hefur vaxið
fiskur um hrygg á síðari árum,
hyggst ekki láta bjóða sér hefð-
bundna herdrottnun í landsmál-
um. Og efnahagsuppgangur er háð-
ur erlendri fjárfestingu og ferða-
iðnaði sem hvort tveggja þyrri við
upplausnarástand.
Magnús T. Ólafsson
Tælenskir stjórnmálaleiðtogar krjúpa fyrir konungi sínum í beinni sjónvarpsutsendingu frá konungshöllinni
í Bangkok. Bhumihol konungur (t.h.) ávarpar Suchinda forsætisráðherra (í miðið) og Chamlong stjórnarand-
stöðuleiðtoga (t.v.). Símamynd Reuter