Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1992, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1992, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992. Sérstæð sakamál Leyndarmáliö í reykháfnum Þegar fór að bera á fölskum tíu og tuttugu punda seðlum í London og fleiri stöðum á Suður-Englandi vorið og sumarið 1978 sannfærðist lögreglan um að skipulögð glæpa- samtök stæðu að baki dreifing- unni. Seðlamir voru vel gerðir og það hvemig þeir vom notaðir bar vitni um skipulag. Það var í maí sem vart varð við fyrstu seðlana á krám og í verslun- um í vesturhluta London. Hálfum mánuði síðar fór svo að bera á sams konar seðlum á nokkmm stöðum á suðurströnd Englands. Mátti rekja slóð þeirra sem þeim dreifðu. Peningafalsaramir létu þó aldrei meira frá sér af folsku seðlunum á hveijum stað en svo að þeir vöktu ekki grunsemdir. Svo héldu þeir áfram ferð sinni. Þegar þeir vom komnir til Brighton var ljóst að þeir höfðu komið í umferð þrjátíu og sjö þúsund pundum. Rannsóknarlögreglan komst skömmu síðar að því að líklega bæru tveir menn ábyrgð á dreifing- unni. Höfðu þeir notað fólsku seðl- ana til að kaupa allt frá vindhngum til bíla. Ekta seðlar fyrirfalska Þegar um smáinnkaup var að ræða greiddu mennimir með fölsk- um seðlum en fengu ekta til baka. Og keyptu þeir bíla staðgreiddu þeir þá með fölskum seðlum en seldu svo ef til vill í næstu borg fyrir ekta. Margir bílasalar þóttust hafa gert góð kaup þegar þeir greiddu fjögur þúsund pund fyrir bíl sem peninga- falsararnir höfðu keypt daginn áð- ur fyrir sex þúsund. En falsararnir vom hæstánægðir því þannig hafði þeim tekist að skipta sex þúsund fölskum pundum fyrir fjögur þús- und í ófalsaða seðla. Og áöur en sá sem selt haföi bíl- inn komst í bankann með pening- ana og fékk þar að vita að hann væri með falska seðla vom kaup- endurnir á bak og burt. En skyndilega hættu fólsku seðl- amir að koma fram. Rannsóknar- lögreglumennimir, sem fengið höfðu máhð til meðferöar, gátu sér th um að falsaramir hefðu ákveðið að fara sér hægt um hríð eða þá að þeir væm að prenta nýja seðla. Og í ljós kom að það síðamefnda virtist rétt. Þegar kom fram á mitt sumar fór aftur að bera á fólsku seðlunum. í þetta sinn komu þeir fram í Essex og Norfolk. Brátt höfðu fundist sextíu þúsund pund í fölskum seðlum. Ótti Margir smákaupmenn og bílasal- ar urðu fyrir barðinu á peninga- fölsumnum og brátt greip um sig ótti meðal bflasala á þessum slóð- um. Þeir þóttust hvarvetna sjá falska peningaseðla og ekki létti það rannsóknarlögreglumönnun- um leitina. Lögreglan fór nú að handtaka ýmsa kunna menn úr undirhei- munum og má segja að næstum því hver einasti sem var á sakaskrá og þótti koma tfl greina væri yfir- heyrður. En enginn þeirra sem spurður var virtist hafa neina vitn- eskju um falsarana. Þegar kom fram í október hættu fölsku seðl- arnir að koma fram á ný. Þar kom svo að leggja varð málið á hilluna. Ákvað rannsóknarlögreglan að hefja ekki rannsókn að nýju fyrr en fleiri falskir seðlar fyndust. Mánuði síðar gerðu tveir menn tilraun til að ræna flutningavagn. Þeir vora handteknir og reyndust vera Jack Stratford, fjörutíu og sjö ára, og félagi hans Leo Withers, sem var þremur ámm yngri. Má segja að þeir hafi verið staðnir að verki. Málið kom fyrir rétt í febrú- ar 1979 og fékk hvor um sig átta ára fangelsi. Jack Stratford hafði áður setið í fangelsi. Eftir að hann fékk frelsið eftir þá vist lofaði hann konu sinni að nú skyldi hann leggja öh afbrot á hilluna. Þetta loforð tók frú Strat- ford mjög alvarlega svo að þegar hann fékk nýja dóminn sagði hún skihð við hann og fór híeim til móð- ur sinnar með syni þeirra tvo. Milli múrsteina En frú Stratford lét sér ekki nægja að flytjast heim tfl móöur sinnar. Hún seldi hús þeirra hjóna. En þótt Jack Stratford sæti í fang- elsi átti hann fullan rétt á helmingi þess fjár sem fékkst fyrir húsið og þar er kona hans var heiðarleg lagði hún þann hluta inn á banka- reikning manns síns. En í fangelsinu sóttu margs kyns áhyggjur að Stratford og Withers. Þaö vora nefnilega þeir sem falsað höfðu peningaseölana sem komið höfðu fram svo víða á suður- og vesturhluta Englands. Haustið 1978 höfðu þeir gert hlé á dreifinguni af því þeir óttuðust að verða gripn- ir. En til þess að tryggja að enginn fyndi þá seðla sem þeir áttu tfl eða myndamótin sem notuð vora við prentunina ákváðu þeir aö finna góðan geymslustað. Jack Stratford hafði áður verið múrari. Hann lagði svo aukalag múrsteina utan um reykháfinn í húsi sínu og milli þess og lagsins undir setti hann seðlana og mótin. En nú var húsið komið í annarra hendur. Ránið í þau sex ár sem þeir félagar, Startford og Withers, sátu í fangels- inu varð þeim oft hugsað tfl folsku seðlanna. Er þeir fengu reynslulausn, tveimur ámm áður en þeir höfðu tekið út fangelsisdómana, tóku þeir strax að leggja á ráðin um hvemig þeir kæmust yfir „fóldu verðmæt- in“. Húsið sem þau Stratfordhjón höfðu átt hafði tvívegis skipt um eigendur á þessum sex árum. Nú bjuggu i því Kenneth og Adrian Lee og þeim fannst það draumahús. Jack Stratford lét gera þeim kaupt- ilboð en því var hafnað. Gerði hann þá fleiri og betri tilboð en þeim var sömuleiðis hafnað. Þótti þeim Stratford og Withers nú horfa illa. íhuguðu þeir hvað væri tfl ráða. Loks komust þeir að þeirri niðurstöðu að eina leiðin til að komast yfir fölsku seðlana og myndamótin væri að sækja þau, hvað sem það kostaði. Að kvöldi 25. júlí 1985 var hringt dyrabjöllunni á húsi þeirra Ken- neths og Adrian Lee. Þegar Ken- neth lauk upp var hann sleginn niður. Ógnuðu tveir grímuklæddir menn þeim hjónum með skamm- byssu, ráku þau inn í setustofu og bundu þar. Síðan fóm gestimir óboðnu upp á háaloft. Undarlegar aðfarir Þar sem þau sátu bundin í setu- stofunni heyrðu þau Kenneth og Adrian mikinn hávaða á háaloftinu og var sem verið væri að brjóta eitthvað niður. Nokkru síðar komu mennirnir niður og litu inn í setu- stofuna tfl að sannfæra sig um að hjónunum heföi ekki tekist að losa af sér böndin. Tók Kenneth þá eftir því að annar þeirra var með tösku sem þeir höföu ekki haft með sér þegar þeir komu. Var hún greini- lega ekki í eigu þeirra hjóna. Um hálftíma eftir að mennirnir tveir fóru tókst Kenneth að losa sig. Þegar honum hafði tekist það leysti hann böndin af konu sinni en hringdi síðan á lögregluna. í fyrstu vakti þetta innbrot mikla furðu. Á borði lágu veski Kenneths og í því nokkur hundruð pund, en við því höfðu þjófarnir ekld hreyft. Kom svo í ljós við athugun að þeir myndu ekkert hafa haft með sér að frátalinni töskunni. Rannsókn á háaloftinu hafði þá sýnt að þar hafði verið brotinn niður ytri vegg- ur utan um reykháfinn og hlaut taskan því að hafa verið geymd þar. Það tók rannsóknarlögregluna svo ekki langan tíma að geta sér til um að taskan hefði verið í eigu fyrri eigenda hússins. Leitin Skamman tíma tók að leiða í ljós hverjir höfðu átt húsið áður. Og þegar lögreglan sá nafnið Jack Stratford var tekin fram mynd af honum úr skjalaskáp og hún sýnd Kenneth Lee. Þótti honum útlit mannsins kunuglegt því það haföi einmitt verið hann sem hafði gert svo margar tilraunir til að kaupa húsið. Ljóst var að þeir Startford og Withers héldu saman sem fyrr og hófst nú að þeim umfangsmikfl leit. Voru myndir af þeim sendar á allar lögreglustöðvar á Englandi og brátt bámst um það boð frá lögreglunni í Birmingham að fyrirspurnir á gistihúsum þar hefðu leitt tfl þess að starfsfólk eins þeirra hefði skýrt frá því að þar væru tveir menn sem svömðu til myndanna, en þeir höfðu látið skrá sig undir nöfnun- um Halhday og Lyons. Höföu þeir komiö þangað daginn eftir innbrot- ið í hús þeirra Leehjóna. Handtakan Segja má að þeir Stratford og Withers hafi verið teknir í rúminu og þegar leitað var í farangri þeirra komu í ljós 57 þúsund pund í fólsk- um peningaseðlum og vel gerð myndamót sem greinilega höfðu verið notuð við prentun seðlanna. Megnið af fólsku seðlunum hefur nú veriö eyðflagt. Nokkrir em samt notaðir við kennslu í lögregluskó- lanum og myndamótin eru á safni lögreglunnar. Stratford og Withers fóru aftur í fangelsi. í þetta sinn fékk hvor um sig tuttugu ára dóm. Það verður því komið fram yfir aldamót áður en þeir fá frelsið á ný en þá verða þeir komnir á þann aldur að óhk- legt er tahð aö þeir leggi framar fyrir sig afbrot.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.