Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1992, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992.
43
Eftir ótal árangurslitlar heimsóknir næturlækna kom loks I Ijós að Karitas litla var með astma. Astma er
langalgengasti langvarandi sjúkdómur hjá börnum en 5% barna á skólaaldri eru talin vera haldin honum.
Reykingar eru mjög slæmar fyrir astmasjúklinga og er brýnt að foreldrar slíkra barna hætti að reykja.
Astma hjá
bami
Hún var skírð á páskum, liðlega
ársgömul, og látin heita Karitas
eftir móðurömmu sinni. Karitas
eldri hélt nöfnu sinni undir skím
og táraðist nokkrum sinnum undir
tilkomulítilh og flatri ræðu prests-
ins. Móðir barnsins var að sjálf-
sögðu viðstödd en faðir þess var
útiásjó.
Þau hittust á krá við Laugaveg,
voru saman í nokkra mánuði en
shtu samvistum. Hún var þá ólétt
og hann á leið í sambúð með ann-
arri þungaðri stúlku. í fylhngu
tímans fæddist Karitas yngri og
bjuggu bæði móðir og barn hjá
Karitas eldri sem var fráskilin,
drykkfelld saumakona í lágreistu
húsi í Þingholtunum. Móðirin
starfaði í tískuverslun.
Að lokinni skírn var boðið upp á
kafli og kökur heima hjá sauma-
konunni. Gestirnir dáðust að bam-
inu en höfðu þó á orði að hún hó-
staði mikið og andaði skringilega.
„Hún er alltaf með kvef,“ sagði
móðirin unga og þrýsti baminu að
bijósti sér.
Karitas eldri tók undir þetta,
drafandi röddu, enda hafði hún
drukkið púrtvín ósleitilega allan
daginn.
Um nóttina varð að kaha til
lækni. Hóstinn hafði þá aukist
mjög og barnið virtist standa á önd-
inni. Læknirinn var hæglátur mað-
ur á besta aldri, stuttkhpptur í grá-
leitri Melka-úlpu, sænskum
óburstuðum fótlaga skóm og snjáð-
um molskinnsbuxum.
Móðirin sagði honum að barnið
hefði margoft verið kvefað á hðnu
ári. Mikill fjöldi vaktlækna hafði
drepið niður fæti á heimihnu,
sveiflað hlustpípu og gefið baminu
bragðvondar mixtúrur vegna
meintsbronkítis.
„Þetta er að setja mig á höfuðið,"
sagði hún mæðulega og horfði
gagnrýnum augum á blettótt poly-
estershpsi læknisins.
Hann brá hlustunarpípu sinni á
loft og skellti á hina nýskírðu Ka-
ritas. Stúlkan var mjög móð,
háhgrét, stundi og andaöi með
miklum erfiðismunum.
Amman var komin á bleikan
frotté-náttslopp og rauðleita inni-
skó. Hún var orðin ákaflega drukk-
in og hélt langa ræðu yfir læknin-
um um mistök sem starfsbræöur
hans á Norðurlandi hefðu gert sig
seka um á upphafsárum seinni
heimsstyijaldar.
„Þeir drápu hann afa,“ sagði hún,
snökkti og saug frekjulega upp í
nefið. „Faröutilíjandans," bætti
hún við, „við munum sjá um hana
nöfnu mína einar!“
Læknirinn leit hana veraldar-
vönum augum, brosti kuldalega og
hélt áfram að hlusta barnið.
„Hún er með astrna," sagði lækn-
irinn. „Ég vil leggja hana inn á
barnadeild!" Hann shðraði hlust-
unarpípuna niður í læknatöskuna,
rukkaði fyrir vitjunina og fór.
Karitas yngri var keyrð niður á
Landspítala ásamt móður sinni en
Karitas eldri sat eftir og söng: „Ó,
sæla heimsins svalahnd!" fyrir grá-
leitan postulínshund sem horfði á
hana blíðum, skilningsvana aug-
um. Á sjúkrahúsinu var htla telpan
sett í súrefnistjald og henni voru
gefm margvísleg lyf. Hún jafnaði
sig fljótt og var komin heim á 4.
degi.
Algengur sjúkdómur
Astma er langalgengasti langvar-
andi sjúkdómur hjá bömum en 5%
barna á skólaaldri em talin vera
haldin honum. Vöðvalag sem um-
lykur lungnapípurnar dregst sam-
an og slímhimna, sem hylur þær
að innan, þykknar og bólgnar af
bjúg. Mikið shm myndast inni í
gangi lungnapípanna. Þetta þreng-
ir að loftflæðinu í lungunum og
veldur því að lungun virðast full
af lofti sem kemst ekki út. Útöndun
lengist og verður hvæsandi og más-
andi. Sjúkhngurinn virðist standa
áöndinni.
Astma leggst misþungt á fólk,
sumir fá væg einkenni eins og
hósta og htils háttar óþægindi en
aðrir fá veruleg andþyngsli sem
endað geta í öndunarbilun.
Orsök þessara veikinda er óljós.
Ofnæmi veldur þó einkennum hjá
stómm hluta barna á skólalaldri
Álæknavaktmni
en er ekki eins algengt hjá ungum
bömum. Hjá öllum börnum með
astma koma einkenni fram þegar
þau fá kvef eða aðrar loftvegasýk-
ingar. Ahs konar önnur ósérhæfö
áreiti geta komið af stað astmaein-
kennum, eins og kaldur og þurr
vindur, mikhl loftraki eða sterk
lykt eins og af málningu, ódýrum
rakspíra eða vinnukonuvatni.
Reykingar em mjög slæmar fyrir
astmasjúklinga og er brýnt að for-
eldrar slíkra barna hætti að reykja.
Astma er arfgengur sjúkdómur og
má oft fmna í ættum þessara bama
aðra ofnæmissjúkdóma.
Meðferðin felst í því að forðast
allt sem ofnæmi getur valdið auk
lyfla. Lyf sem slaka á vöðvum í
lungnapípunum, svokahaðir beta-
örvarar (Ventolín, Bricanyl), em
mikið notuð. Sterar em notaðir
þegar einkennin em sem verst og
mikU bólga og bjúgur í slímhimn-
unum. Astmalyf eru yfirleitt gefm
sem innöndunarlyf.
Af öðrum aðgerðum má nefna
bólusetningu gegn sjúkdómum
eins og inflúens'u og mishngum
sem valdið geta einkennum hjá
astmakrökkum.
Horfumar fara eftir ýmsu. Ung-
böm, sem ekki hafa ofnæmi, eru
flest laus við astmað fyrir skólaald-
ur. Vandinn er oft sá að þessi börn
fá ekki rétta sjúkdómsgreiningu og
margir læknar gefa þeim fúkalyf
eins og þau væm með bronkítis en
slík lyf duga skammt á astma.
Vaktlæknar þeir sem heimsótt
höíðu þær Karitasar í Þingholtun-
um höfðu einmitt falhð kyhiflatir í
þannleiðapytt.
Hvað varð
um Karitas?
Karitas htla hresstist fljótlega en
á næstu áram fékk hún nokkrum
sinnum slæm astmaköst. Hún var
sett á innöndunarlyf daglega og
tókst á þann hátt að halda einkenn-
unum að mestu niðri. Móðir henn-
ar trúlofaðist tveimur árum síðar
ofbeldishneigðum múrara af vest-
firskum ættum og eignaðist með
honumtvostráka.
Faðir Karitasar skildi við sam-
býhskonu sína og fór að búa með
fráskihnni stúlku frá Thailandi.
Karitas eldri fór í áfengismeðferð
sem mistókst. Hún gekk eftir það í
söfnuð ofsatrúarmanna og frelsað-
ist. Nokkram sinnum reyndi hún
að reka astmað úr barnabarni sínu
með fyrirbænum ogbænasöngen
allt kom fyrir ekki. Hún var hætt
að syngja fyrir postulínshundinn á
síðkvöldum en sat stundum á mál-
þingi með nokkrum trúbræðram
sínum og ræddi kenningar Páls
postula um alkóhóhsma.
Glöggskyggni læknirinn, sem
kom um nóttina, gerðist heilsu-
gæslulæknir úti á landi, keypti sér
nokkra hesta og hóf tilkomuhtinn
búskap. Eitt sinn reyndi hann fyrir
sér í prófkjöri stjómmálaflokks en
féh smánarlega. ÖU stefna þau sitt
í hverja áttina og hafa fyrir löngu
gleymt þessari nótt endur fyrir
löngu þegar fundum þeirra bar
saman fyrir leik forlaganna og
glettniguðanna.
Mælingastofa málara
óskar eftir reikningsglöggum manni til mælingastarfa.
Umsóknir sendist til Mælinga- og endurskoðunarskrif-
stofu málara, Lágmúla 5,108 Reykjavík, fyrir 29. maí.
Neyðarvakt tannlækna
Símanúmer hjá neyðarvakt tannlækna á höfuðborg-
arsvæðinu misprentaðist í nýrri útgáfu símaskrárinn-
ar. Neyðarvaktin er opin laugardaga og helgidaga frá
kl. 10-12 og rétt símanúmer er 681041. Fólki er
bent á að færa númerið inn á síðu 1 í símaskránni
1992.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39 - 108 Reykjavík - Sími 678500 - Fax 686270
Ný félagsmiðstöð aldraðra í Arbæ
Félagsmiðstöð aldraðra, Hraunbæ 105, verður opin
fyrir aldraða í hverfinu laugardaginn 23. maí frá
kl. 10.00-12.00.
Kaffiveitingar.
öldrunarþjónustudeild
Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar
Tívolí
LYSTIGARÐUR
OPIÐ DAGLEGA
Hveraportið, markaðstorg, opið alia sunnudaga.
Stórt tívolítæki „hrærivélin" gangsett um helgina.
Lúðrasveit leikur á sunnudaginn.
Til okkar er styttra en þú heldur.
I tívolí er alltaf gott veður
Tívolí, Hveragerði
N JÓTTU ÞESS AÐ VERA TIL!
Comdt taktu j á Se þátt í Ifoss um hvít Sunnusælunni asunnuna með okki og r!
* Við bjóðum gistingu í sumarhúsum, þrjár
nætur í 2 manna stúdíóíbúðum með upp-
búnum rúmum. Verð 4.500 kr. á mann.
* Fjölskyldutilboð á tjaldsvæðinu. Verð 500
kr. f. tjald.
* Morgunverðarhlaðborð. Verð 600 kr. á
mann.
* Hestaferð í sveitinni laugardag, 2 klst.
Verð 3000 kr. á mann.
* Grillveisla laugardagskvöld. Verð 1.500
kr. á mann.
* Dansleikur með „Skriðjöklum" eftir mið-
nætti sunnudagskvöld. Fordrykkur inni-
falinn. Verð 1.500 kr. á mann.
* Frítt í sundlaugina og heitu pottana!
hóPe/
SBFOS
Eyravegi 2
Sími 98-22500
lESTHUSHl
B 98-22999