Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1992, Page 32
44
LAUGARDAGUR 23. MAl 1992.
Ég er lifandi sönn-
im þriðj a kynsins
- Christie Elan-Cain hefur umbreytt líkama sínum í tvíkynja - hvorki kvenkyns né karlkyns
Anna Hildux Hfldibrandsd., DV, London;
„Ég vil aö þaö sé litið á mig sem
þriöja kynið því aö það er þannig
sem mér líður,“ segir hin 34 ára
Christie Elan-Cain í viðtali við
breska blaðið Independent.
Christie hefur gengið undir margar
erfiðar skurðaðgerðir og farið í
geislameðferðir til að láta drauma
sína um að verða tvíkynja rætast.
Það er flestum erfitt að skilja þá
löngun að vilja vera tvíkynja eða
hvorugt kynið. í huga fólks tengist
slíkt fremur mýtum og fantasíum
eða skilgreiningum á formlausri
tísku níunda áratugarins. Erfið-
leikamir við að skilja hugtakið
kristallast í vanmætti okkar við að
skilgreina fyrirbærið. Christie er
ekki ánægð með að vera kölluð
„hún“. „Hann“ er augljóslega ekki
viðeigandi heldur. Þá er aðeins eft-
ir „það“ eða „þau“ sem henni fmnst
jafnslæmt. Christie hefur enga
lausn aðra en þá „að fólk noti nafn-
ið mitt.“
„Ég hugsa um sjálfa mig sem tví-
kynja og kynskipting í þeim skiln-
ingi að ég upplifi mig ekki þess
kyns sem ég var fædd.“
En eins og talsmaður fyrir stuðn-
ingi við hóp kynskiptinga hefur
bent á er umtalsverður munur á
þessu tvennu. „Kynskiptingar eru
þeir einstaklingar sem finnst þeir
vera „lokaðir" í röngum líkama.
Við getum huggað okkur við það
að við vitum aö við viljum vera
gagnstæða kynið. Tvíkynja fólk
deihr ekki þeirri tilfinningu, það
sækist eftir ástandi sem ekki er til
í náttúrunni. Ástandi sem við get-
um ekki gert okkur í hugarlund."
Hataði brjóstin á sér
Christie viðurkennir að hún hafi
ekki lagt upp meðþá fyrirætlan að
verða tvíkynja. „Ég vissi hvað ég
vildi gera en það var ekki fyrr en
ég hafði látið fjarlægja legið og
bijóstin með skurðaðgerðum að ég
uppgötvaði af hverju ég vildi láta
gera þetta.“ Henni hafði liðið eins
og nauðbeygðri til að losna við
bijóstin á sér. „Ég hataði þau,“ seg-
ir hún.
Christie fór fyrst til læknis á
einkastofu í þessum tilgangi árið
1984. „Það voru mistök. Hann vildi
ekki gera þetta og var mjög vand-
ræðalegur yfir öllu saman. Hann
sagði: „Þú gerir þér grein fyrir að
þetta er misþyrming." Christie seg-
ist hafa verið algjörlega niðurbrot-
in og gefist upp um sinn. Persónu-
legir erfiðleikar urðu síðan til þess
að henni fannst hún alls ekki geta
Christie Elan-Cain er i fyrsta skipti tilbúin að eiga í sambandi við karlmann: „En ég yrði að vera örugg um
að hann væri tengdur mér sem tvíkynja persónu en ekki sem konu.“
lifað lengur í þessum líkama.
Eftir aðra misheppnaða tilraun
til að finna lækni skrifaði hún að
lokum angistarfullt bréf til stjóm-
anda eins af vinsælum ráðlegging-
arþáttum í útvarpi þar sem hún
hótaði að vinna sjálfri sér mein ef
hún fengi ekki lausn sinna mála.
„Kvöld eitt hringdi útvarpsmaður-
inn í mig og gaf mér upp símanúm-
er á nokkrum læknastofum."
Þannig fann Christie lækni sem
gat uppfyllt óskir hennar en það
hafði tekið rúmlega 5 ár og kostaði
yfir 4 þúsur.d pund. En að vakna
án bijósta „var gleðilegasta stund
lífs míns.“
Tveimur árum seinna lét hún
taka úr sér legið og þótti henni það
fullkomna umbreytinguna (þótt
hún hafi í huga að láta fjarlægja
eggjastokkana. líka.)
„Ég lét gera það í almenna kerf-
inu. Ég átti von á langri baráttu en
eftir að ég kvartaði yfir hve þján-
ingarfullar blæðingarnar væru hjá
mér var ég send til ráðgjafa sem
sýndi máh mínu skilning."
Christie útskýrði aldrei fyrir
neinum í ferhnu að áform hennar
væru að verða tvíkynja. „Ég var
hrædd um að verða ekki tekin al-
varlega." Og henni tókst að komast
hjá allri ráðgjöf sem þeir sem íhuga
kynskiptingu þurfa aö fara í gegn-
um með því að fara á einkastofur.
„Ég gat ekki afborið að þurfa að
sannfæra einhvem um hvað ég
konu. Og það er nokkuð erfitt."
Margir starfandi sérfræðingar og
læknar á þessu sviði virðast jafn
ringlaðir og þorri almennings þeg-
ar rætt er um tvíkynja einstakl-
inga.
Donald Montgomery, ráðgefandi
geðlæknir á Charring Cross
sjúkrahúsinu í London, segir: „Ég
hygg aö þetta myndi falla undir
skilgreininguna kyntruflun en mér
finnst orðið tvíkyn, sem er kastað
fram mjög kærifieysislega, óþægi-
legt. Það virðist ekki vísa til af-
markaðs læknisfræðilegs ástands á
neinn hátt.“
I þætti í BBC var nýlega giskað á
að til væru 10 þúsund tvíkynja ein-
staklingar í heiminum. En læknar
eru tortryggnir og hafa bent á að
tölur yfir kynskiptinga tengist
þeim fjölda fólks sem hefur sótt um
eða farið í aðgerð í heilbrigðiskerf-
inu og spyrja: „Hvemig er hægt að
finna út fjölda einstaklinga í hópi
sem kemur ekki inn í heilbrigðis-
þjónustuna?"
En Christie staðhæfir að ósýni-
leiki tvíkynja einstakhnga hafi
meira að gera með afneitun en
nokkuð annað. „Fyrir nokkmm
áratugum, áður en aðgerðir fyrir
kynskiptinga hófust, hefur fólk átt
við sama skilgreiningarvanda að
stríða.“
Christie hefur enn ekki kynnst
neinum sem farið hefur í ámóta
aögerð og hún. Stutt frásögn henn-
vildi. Eg vildi að það væri mín
ákvöröun."
Jákvæð viðbrögð
Christie segir viðbrögð vina
sinna hafa verið mjög jákvæð en
hún er varkár, sérstaklega hvað
varðar kynferðisleg sambönd. „Ég
held að það sé eina sviðið sem mér
finnst ég einangruð á. Mér finnst
ég í fyrsta skipti tilbúin til að eiga
í sambandi við karlmann," segir
Christie sem hefur lifað sem lesbía
í mörg ár. „En ég yrði að vera ör-
ugg um að hann væri tengdur mér
sem tvíkynja persónu en ekki sem
ar í sjónvarpsþætti ohi skjótum og
miklum viðbrögðum frá fólki sem
lýsti hluttekningu sinni og henni
hefur verið óskað til hamingju í
klúbbum og úti á götu. „Einn ná-
ungi sagði að hann hefði beðið
hálfa ævina eftir að heyra einhvern
segja það sem ég sagði.“
Læknir að nafni Reid segir: „Ég
hef haft tvo sjúkhnga sem hafa lýst
sjálfum sér sem tvíkynja en þeir
reyndust kynskiptingar sem ekki
voru búnir að sætta sig við þá löng-
un að umbreytast í annað kyn.“
Montgomery segir: „Það er vinsælt
að álykta að kyntruflun tengist ein-
göngu kynskiptingum en í raun
birtist hún í mörgum myndum. Ég
hafði ungan mann til meðferðar
sem hótaði líka að misþyrma sjálf-
um sér vegna mikillar óbeitar á lík-
ama sínum."
Tískufyrirbæri
„Mér sýnist að þetta sé nánast
dýrkun, þjóðfélagsmál," segir Reid
og tekur þannig saman skoðun
margra sérfræðinga á fyrirbærinu.
Það leikur lítill vafi á að þetta er í
tísku núna. Christie, sem á sér
David Bowie og Annie Lennox fyrir
hetjur, er greinilega heima í vin-
sælustu „gay“ og átrúnaðarklúbb-
unum sem henni líkar vegna þess
að „þeir skírskota til einstakUngs-
ins: þú getur það sjálfur." En hún
undirstrikar að aðgerðin hjá sér sé
ekki bara tískufyrirbrigði. Hún
gerir greinarmun á fólki sem ein-
ungis hefur tvíkynja tilfinningar
og þeim sem, eins og hún, vilja láta
umbreyta líkama sínum.
Christie nýtur þess að rugla fólk
í ríminu „þannig að það viti ekki
hvers kyns ég er“ og það er auðsjá-
anlegt að hún er heilluð af tilhugs-
uninni um hve einstök hún er. „Við
erum svo fágæt tegund," segir hún
í hrifningartón.
„Viðbrögð hennar viö þeirri
bjargföstu trú margra að það sé
ekkert „þriðja kyn“ tíl eru þrjósku-
kennd. „Ég er lifandi sönnun þess.
Enginn hefur rétt tfi þess að segja
að ég sé ekki tfi.“
Henni finnst hún heppin að lifa á
þeim tímum sem slíkar aðgerðir
eru mögulegar og viðurkennír að
henni finnist hún á undan sinni
samtíð.
Hún vonar að með því að koma
fram skapi hún ööru tvíkynja fólki
möguleika á að tjá tilfinningar sín-
ar. „Ég vil að fólk viti að fyrirbær-
iö er til svo að einstaklingar eins
og ég þurfi ekki að þykjast vera
annaðhvort kvenkyns eða karl-
kyns allt sitt líf.“
t