Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1992, Page 46
58
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992.
Afmæli
Stefán Guðmundsson
Stefán Guömundsson alþingismað-
ur, Suðurgötu 8, Sauðárkróki, verð-
ur sextugur á morgun.
Starfsferill
Stefán fæddist á Sauðárkróki og
ólst þar upp. Hann lauk gagnfræða-
prófi á Sauðárkróki 1949 og iðn-
skólaprófi þar 1951, lauk sveinsprófi
í húsasmíði 1956 og öðlaðist meist-
araréttindi 1959.
Stefán stofnaði ásamt fleiri Tré-
smiðjuna Borg hf. á Sauðárkróki
1963 og var framkvæmdastjóri
hennar 1963-71. Hann var síðan
framkvæmdastjóri Útgeröarfélags
Skagfirðinga 1971-81.
Stefán var bæjarfulltrúi á Sauðár-
króki 1966-82, situr í stjórn Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins, síðar
Byggðastofnunar, síðan 1980 og var
formaður hennar 1983-87. Þá situr
Stefán í stjórn Kaupfélags Skagflrð-
inga og Fiskiðju Sauðárkróks hf. og
í stjórn Steinullarverksmiðjunnar
hf. Stefán hefur verið alþingismaður
fyrir Framsóknarflokkinn á Norð-
urlandi vestra síðan 1979.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 16.2.1957 Hrafn-
hildi Stefánsdóttur, f. 11.6.1937,
verslunarmanni. Hún er dóttir Stef-
áns Vagnssonar, skrifstofumanns á
Sauðárkróki, og konu hans, Helgu
Jónsdóttur húsmóður.
Börn Stefáns og Hrafnhildar eru
Ómar Bragi, f. 2.6.1957, vöruhús-
stjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga,
kvæntur Maríu Björk Ingvadóttur
fréttamanni og eru börn þeirra Stef-
án Arnar og Ingvi Hrannar; Hjördís,
f. 2.9.1962, dómarafulltrúi á Sauðár-
króki, gift Kristni Jens Siguijóns-
syni, stud. theol., og er dóttir þeirra
Marta Mirjam; Stefán Vagn, f. 17.1.
1972, nemi við Fjölbrautaskólann á
Sauðárkróki.
Systkini Stefáns eru Sigurbjörg,
f. 6.4.1920, húsmóðir á Akranesi, var
gift Björgvini Bjarnasyni, f. 12.7.
1915, d. 10.12.1989, bæjarfógeta;
Sveinn, f. 3.8.1922, deildarstjóri hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðár-
króki, var kvæntur Ragnhildi Ósk-
arsdóttur, f. 21.12.1935, d. 31.5.1991,
húsmóður; Anna Pála, f. 2.9.1923,
húsmóðir á Sauðárkróki, var gift
Ragnari Pálssyni, f. 16.4.1924, d. 29.9.
1987, bankastjóra Búnaðarbankans
á Sauðárkróki; Árni, f. 12.9.1927,
skólastjóri ÍKÍ á Laugarvatni,
kvæntur Hjördísi Þórðardóttur, f.
5.6.1926, húsmóður; Hallfríður, f.
29.1.1931, lyfjatæknirí Reykjavík,
gift Agli Éinarssyni, f. 24.10.1929,
bifreiðastjóra.
Foreldrar Stefáns; Guðmundur
Sveinsson, f. 11.3.1893, d. 19.10.1967,
skrifstofustjóri og fulltrúi hjá Kaup-
félagi Skagfirðinga, og kona hans,
DýrleifÁrnadóttir, f. 4.7.1899, hús-
móðir.
Ætt
Guðmundur var sonur Sveins, b.
á Hólií Sæmundarhlíö, Jónssonar,
hreppstjóra á Hóli og Hafsteinsstöð-
um, Jónssonar. Móðir Sveins var
Sigríður Magnúsdóttir, hreppstjóra
á Halldórsstöðum í Laxárdal, Ás-
mundssonar, b. þar Sölvasonar.
Móðir Guðmundar var Hallfríður,
systir Sigurlaugar, móður Jakobs
Benediktssonar, fyrrv. forstöðu-
manns Orðabókar HÍ. Hallfríður
var dóttir Sigurðar, b. á Stóra-
Vatnsskarði, Bjarnasonar, skyttu á
Sjávarborg, Jónssonar. Móðir Hall-
fríöar var Ingibjörg Sölvadóttir,
hreppstjóra á Skarði, Guðmunds-
sonar.
Dýrleif var dóttir Árna á Sauðár-
króki Magnússonar, b. í Utanverðu-
nesi, Árnasonar. Móðir Árna var
Sigurbjörg Guðmundsdóttir, vinnu-
manns á Hafsteinsstöðum, Jónsson-
ar. Móðir Sigurbjargar var Guðrún
Gísladóttir, prests á Ríp, Oddssonar,
prests á Miklabæ, sem þaðan hvarf
sem frægt er, Gíslasonar, biskups
Magnússonar. Móðir Dýrleifar var
Anna Rósa Pálsdóttir, b. á Syðri
Brekkum, bróður Margrétar, ömmu
Hermanns forsætisráðherra, fóður
Steingríms, fyrrv. forsætisráðherra.
Bróðir Páls var Þorkell, faðir Þor-
Stefán' Guðmundsson.
kels veðurstofustjóra, og afi Sigur-
jóns Rist vatnamælingarmanns.
Páll var sonur Páls Þórðarsonar, b.
í Viðvík, bróður Jóns á Ytrahvarfi,
langafa Guðjóns B. Ólafssonar, for-
stjóra SÍS. Móðir Páls var Sigríður
Guömundsdóttir, systir Jóhönnu,
langömmu þeirra bræðra Hall-
gríms, fyrsta forstjóra SÍS, Sigurðar,
forstjóra SÍS, og Aðalsteins Krist-
inssonar, forstjóra innflutnings-
deildar SÍS. Móðir Önnu Rósu var
Dýrleif Gísladóttir, b. í Flatatungu
á Kjálka, Stefánssonar.
Stefán er aö heiman á afmælisdag-
inn.
Páll V. Jónsson
Til hamingiu með
afmælið 23. maí
Páll Vídalin Jónsson, fyrrum út-
vegsbóndi á Þórustöðum á Vatns-
leysuströnd, Lækjarkinn 26, Hafn-
arfirði, er áttræður í dag.
Starfsferill
Páll er fæddur á Litlu-Hellu á Hell-
issandi og ólst upp að Hellu á Beru-
vík, Gufuskálum, Spör í Eyjafjarð-
arsveit og á Fossi, milli Sands og
Ólafsvíkur. Hann sótti skóla um
nokkurra vikna skeið á fiórtánda
ári.
Páll fór fyrst til sjós 10 ára gamall
á mótorbáti frá Sandi og á ferming-
ardaginn flutti hann alfarinn að
heiman er hann fór á skonnortuna
Fortuna frá Þingeyri. Páll var oftast
til sjós upp frá því að undanskildum
tíu árum eftir stríö er hann vann
hjá Vegagerðinni sem vélamaður.
Páll bjó að Þórustöðum 1957-86 og
stundaði lítilsháttar búskap og
trilluútgerð öll sumur. Hann hefur
verið búsettur í Hafnarfirði undan-
farin ár.
Fjölskyida
Páll kvæntist 1936 Hrefnu Guðna-
dóttur, f. 20.6.1916, húsmóður. For-
eldrar hennar: Guðni Jónsson frá
Eyrarbakka og Þorlákshöfn, sjó-
maður og bóndi, og Margrét Brynj-
ólfsdóttir, ferjukona á Ölfusá, búsett
á Óseyrarnesi. Guðni og Margrét
slitu samvistum.
Páll og Hrefna eignuðust fiögur
börn: Grétar Vídalín, f. 18.10.1936,
útgerðarmaður í Sandgerði, maki
Fanney Haraldsdóttir, þau eiga þrjú
börn og sex barnabörn; Kolbrún
Angela, f. 2.2.1938, d. 25.5.1940; Sig-
uijón Aron, f. 20.10.1948, vélstjóri á
sænsku olíuskipi, maki Marianne
Olsen; Guðni Rúnar, f. 24.2.1950,
útgerðarmaður í Sandgerði, maki
Herdís Hallgrímsdóttir, þau eiga
eina dóttur.
Systkini Páls; Anna Herdís, f. 3.7.
1910, búsett í Hveragerði; Valgerður,
f. 23.8.1913, búsett í Bandaríkjunum;
Haraldur, f. 1914. d. 1914; Kornelía,
f. 1915, d. 1919; Guömundur, f. 26.4.
1917, búsettur á Akranesi. Hálf-
systkini Páls, sammæðra: Andrés
Jóhannsson, f. 1919, d. 1919; Helga
Jóhannsdóttir, f. 21.7.1921, d. 1991,
var búsett í Bandaríkjunum; Magn-
ús Jóel Jóhannsson, f. 20.11.1922,
búsettur í Reykjavík; Ásgeir Jón
Jóhannsson, f. 1.9.1925, búsettur í
Hafnarfirði; Ingibjörg Jóhannsdótt-
ir, f. 28.12.1928, búsett á ísafirði.
Foreldrar Páls voru Jón Guð-
mundsson, f. 19.7.1881, d. 24.7.1918,
frá Bjamastöðum í Dalasýslu,
Páll Vídalín Jonsson.
barnakennari, og Sigríður Ólöf
Andrésdóttir, f. 20.10.1880, d. 12.1.
1969, húsmóðir og saumakona, þau
vora búsett á Litlu-Hellu á Hellis-
sandi, að Hellu á Beruvík og Gufu-
skálum.
Ætt
Sigríður Ólöf var dóttir Andrésar
Brynjólfssonar, frá Heiðarbæ á
Ströndum, og Herdísar Þorsteins-
dóttur, frá Kjörvogi á Ströndum.
Jón var sonur Guðmundar Stef-
ánssonar, frá Bjarnastöðum, og Val-
gerðar Brandsdóttur, frá Níp á
Skarðsströnd.
75 ára
Guðmundur Eyjólfsson,
Húsatóftum II, Skeiðahreppi.
Knútur Bjarnason,
Kirkjubóli, Þingeyrarhreppi.
70ára
Elías Sigurjónsson,
Ásvallagötu 69, Reykjavík.
60ára
Ásmundur Valdemarsson,
Halldórsstöðum I, Bárðdæla-
hreppi.
Snjólaugur Þorkelsson,
Hjarðarholti 1, Akranesi.
Jónína Gunnarsdóttir,
Fossgötu 7, Seyðisfiröi.
Anna Hjaltested,
Langholtsvegi 179, Reykjavík.
Hreinn Hauksson,
Bræðratungu 11, Kópavogi.
50 ára
Runólfur G. Þórðarson,
Eyktarási 10, Reykjavik.
Sólrún Jóhannesdóttir,
Lindarbraut 14, Seltjamamesi.
Valgarður Jóhannesson,
Efstalandi4, Reykjavík.
Elín Guðrún Hafberg,
Kelduhvammi 12a, Hafnarfirði.
Sigurður Olgeirsson,
Uppsalavegi 22, Húsavik.
Ottó B. Jakobsson,
Ásvegil.Dalvík.
40 ára
Halldór Sigþór Harðarson,
Heiðvangi32, Hafiiarfirði.
Jóhanna Magnúsdóttir,
Ártúnum, Bólstaðarhlíðarhreppi.
Sigurður Vilhjálmsson,
Álakvisl 100, Reykjavík.
Sverrir Sigurðsson
Eyþór Guðmundsson
Eyþór Guðmundsson málarameist-
ari, Selbrekku 12, Kópavogi, varð
sextugurígær.
Starfsferill
Eyþór er fæddur á Efstu-Grund í
V-Eyjafiallahreppi í Rangárvalla-
sýslu og ólst þar upp fyrstu árin en
í Reykjavík eftir það. Hann lærði
málaraiðn hjá Agli Marberg Guð-
jónssyni í Reykjavík 1949-53. Eyþór
lauk prófi frá Iðnskólanum í
Reykjavík og sveinsprófi 1954 og
fékk meistarabréf þremur árum síð-
ar.
Eyþór hefur ávallt starfaö við iðn
sína ef undanskilið er tímabil hjá
byggingarfyrirtækinu Borgarsteini
sem hann var hluthafi í.
Eyþór sat í stjóm Verkamannabú-
staðanna í Kópavogi á síðari hluta
áttunda áratugarins.
Fjölskylda
Eyþór kvæntist 27.12.1959 Þórdísi
Sigurðardóttur, f. 19.1.1939, hjúkr-
unarfræðslustjóra hjá Kleppsspíta-
lanum. Foreldrar hennar: Sigurður
Ólafsson múrarameistari og Guð-
björg Guðbrandsdóttir húsmóðir.
Börn Eyþórs og Þórdísar: Grétar
Þór, f. 29.9.1959, stjórmhálafræðing-
ur og framkvæmdastjóri í Reykja-
vík, sambýliskona hans er Lára Ósk
Garðarsdóttir skrifstofumaður, þau
eiga eina dóttur; Sigurður, f. 5.8.
1965, málari í Reykjavík, kona hans
er Erla Hauksdóttir, þau eiga tvö
böm; Guðrún Hulda, f. 10.2.1974,
menntaskólanemi í Reykjavík, unn-
usti hennar er Jón A. Elíasson nemi;
Guðmundur Björn, f. 19.8.1975,
menntaskólanemi í Reykjavík.
Bræður Eyþórs: Arinbjöm, f. 22.5.
1932, rennismiður í Brisbane í Ástr-
alíu, maki Ragnheiður Jónsdóttir,
þau eiga tvö böm; Ásmundur, f. 20.9.
1945, menntaskólakennari í Reykja-
vík, Ásmundur á eitt barn.
Foreldrar Eyþórs: Guðmundur
Ásgeir Bjömsson, f. 10.12.1906, d.
3.9.1976, frá Efstu-Grund, verka-
maður hjá SS, og Guðmunda
Ágústsdóttir, f. 12.4.1908, frá Hamri
Eyþór Guðmundsson.
í Svínavatnshreppi í A-Húnavatns-
sýslu, verkakona.
Eyþór dvelur nú hjá tvíburabróð-
ursínumíÁstralíu.
Sverrir Sigurðsson pípulagninga-
meistari, Dragavegi 11, Reykjavík,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Sverrir fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann hóf nám í pípulögn-
um 1960 hjá Kristni Auðunssyni,
lauk þar sveinsprófi og starfaði síð-
an hjá honum til 1974 en Sverrir
hefur meistararéttindi frá 1967.
Hann hóf sjálfstæðan rekstur 1974
og starfaði þá um tíma fyrir Breið-
holt hf. en hefur starfrækt eigið fyr-
irtækifrál974.
Sverrir hefur verið meðhjálpari
og kirkjuvörður í Grensáskirkju
síðaníárslokl982.
Fjölskylda
Sverrir kvæntist 7.9.1963 Sonju
Berg, f. 1.7.1943, húsmóður. Móðir
hennar er Þóra H. Jónsdóttir en
Sonja ólst upp hjá fósturforeldrum
á Fáskrúðsfirði, þeim Óskari Jóns-
syni og Oddnýju Þórarinsdóttur.
Böm Sverris og Sonju em Sigurð-
ur Sverrisson, f. 11.6.1963, pípulagn-
ingamaður í Reykjavík, kvæntur
Áslaugu Halldórsdóttur, f. 16.3.1962,
húsmóður og eiga þau eina dóttur,
Sonju Berg, f. 19.4.1986; Þóra H.
Sverrisdóttir, f. 4.7.1967, húsmóðir
á Fáskrúðsfirði, gift Ólafi G. Reynis-
syni, f. 1.11.1964, verkstjóra og em
Sverrir Sigurðsson.
böm þeirra Guðrún S. Ólafsdóttir,
f. 27.7.1984, og Rúnar S. Ólafsson,
f. 26.8.1986; Oddný Ósk Sverrisdótt-
ir, f. 10.1.1973, búsett í foreldrahús-
um.
Bræður Sverris: Sigurður E. Sig-
urðsson, f. 1936; Garðar Sigurðsson,
f. 1937; Guðmundur Sigurðsson, f.
1940; Gunnar Sigurðsson, f. 1947.
Foreldrar Sverris: Sigurður Guö-
mundsson, f. 1901, d. 1982, pípulagn-
ingamaður í Reykjavík, og kona
hans, Guðrún Eggertsdóttir, f. 1914,
húsmóðir.
Sverrir tekur á móti gestum á
heimiii sínu, Dragavegi 11, milli
klukkan 16.00 og 19.00 á afmælisdag-
inn.