Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
3
Fréttir
Kröfur 1 gjaldþroti íslenska stálfélagsins nema 1,8 milljörðmn:
Tvö erlend fyrirtæki
sýna þrotabúinu áhuga
- Iðnþróunarsjóður og Búnaðarbankinn stæðu á þurru \ið sólu
„Þaö standa yfir viöræður við tvo
aðila sem sýnt hafa íslenska stálfé-
laginu áhuga en hvorugur hefur
komið með tilboð. Bæði þessi dæmi
eru mjög spennandi þó að þau séu
mjög ólík,“ segir Helgi Jóhannesson,
bústjóri í þrotabúi íslenska stálfé-
lagsins í Kaplahrauni.
Kröfuhafar í þrotabúið funduðu í
Amsterdam í síðustu viku og ræddu
hugsanlega sölu. Tvö erlend fyrir-
tæki, Hamburger Stahlwerke í
Þýskalandi og St. Louis Cold Drawn
í Bandaríkjuniun, hafa sýnt áhuga á
að kaupa og starfrækja verksmiðj-
una. Samningaviðræður standa yfir
og mun það koma í ljós á næstu
tveimur vikum hvort samningar
nást við annað hvort fyrirtækið.
Þriðja og síðasta uppboð á eignum
þrotabúsins hefur verið auglýst 12.
júní.
Samkvæmt efnahagsreikningi ís-
lenska stálfélagsins í mars 1991 voru
eignir þess tæpar 30 milljónir doll-
ara, eða um 1,7 milljarðar íslenskra
króna. Kröfur í búið eru hins vegar
um 1,8 miiljarðar.
Stærstu íslensku kröfuhafarnir eru
Iðnþróunarsjóður og Búnaðarbanki
íslands. Ásamt sænska SE-bankan-
um eru kröfur þessara aðila á fyrsta
veðrétti. Samtals hljóða þær upp á
um 280 milljónir krónur. Kröfur á
öðrum veðrétti eru samtals upp á 712
milijónir. Helstu kröfuhafarnir eru
SE-bankinn ásamt hollenska bank-
anum Mees & Hope og sænski Nord-
bankinn.
Fulltrúar bandaríska fyrirtækisins
koma hingað til lands á morgun,
þriðjudag, til að kynna sér aðstæður.
Nýr togari, Örfirisey RE, bættist í íslenska fiskiskipaflotann á dögunum. Það
er Grandi hf. sem keyti þennan 800 lesta frystitogara frá Færeyjum. Fyrirhug-
að er að gera togarann út á veiðar fiskitegunda sem eru utan kvóta, svo
sem búra, langhala og úthafskarfa. Grandi hf. keypti þrjú skip til að úrelda
á móti Örfirisey RE en það eru togarinn Elín Þorbjarnardóttir, Röst og
Akurey. Hér á myndinni tekur Brynjólfur Bjarnason á móti Trausta Eyjólfs-
syni, skipstjóra á örfirisey, við komu skipsins til Reykjavíkur. DV-mynd S
EININGABREF 1
Raunávöxtun
s/. 3 mánuði
8,0%
KAUPÞING HF
LöggHt verðbréfafyrirtœki
Kringlunni 5, sími 689080
í eigu tíúnadarbanka Ísíands ogsparisjóðanna
Samkvæmt heimildum DV hafa þeir
þegar reifað þá hugmynd að greiða
kröfuhöfiun á fyrsta veðrétti að fullu
skuldir búsins en semja við aðra
kröfuhafa. Ljóst er að stærsti hluti
krafna á öðrum veðrétti myndi þá
tapast. Iðnþróunarsjóður og Búnað-
arbankinn myndu hins vegar hafa
sitt á þurru.
Hugmyndir Bandaríkjamannanna
ganga út á aö starfrækja verksmiðj-
una með svipuðum hætti og hefur
verið en auka lítilsháttar fullvinnslu
stálsins. Gangi þetta eftir gæti stál-
framleiðsla hafist að nýju í verk-
smiöjunni þegar næsta haust. Fyrir-
tækið hefur meðal annars sérhæft
sig í vinnslu stáls í öxla og dempara
í bifreiðar.
Af hálfu þýsku aðilanna hafa litlar
sem engar þreifingar farið fram um
Eldur í eldavél
Jón Þórðaison, DV, Rangárþingi:
Eldur kom upp í Sóló-eldavél á
bænum Haukadal á ofanverðum
Rangárvöllum nýlega. Rafkynding er
í húsinu en Sóló-vélin höfð í eldhús-
inu til vara. Hugðist húsfreyjan
skerpa á ylnum í húsinu en ekki vildi
betur til en svo að véhn yfirfylltist
af olíu sem lak út á gólf.
Furðu litlar skemmdir urðu á hús-
inu þótt eldtungumar stæðu upp úr
skorsteini hússins með reykröri og
út um trekkspjaldið.
hugsanlegt kaupverð. Ljóst er þó að
tilboð þeirra myndi hljóða upp á
lægri upphæð en þær 570 milljónir
sem kröfuhafar hafa þegar sætt sig
við að selja fyrirtækið á.
Samkvæmt heimildum DV hafa
Þjóðverjarnir fremur hug á aðstæð-
um og raforkuverði hér á landi held-
ur en sjálfri verksmiðjunni. Hug-
myndir þeirra ganga út á að tífalda
afkastagetu verksmiðjunnar, úr 50
þúsund tonnum á ári í 500 þúsund
tonn. Verði af þessum áformum
myndi það þýða að hingað til lands
yrðu flutt allt að 480 þúsund tonn af
brotamálmi á ári enda faila einungis
um 20 þúsund tonn til hér á landi.
-kaa
SR-1500
1,2 m
aiskur, stereo
móttakari m/þrá&i.
fjarstýringu,
pólfesting,
pólskip"
lagsuösmagnari
(LNB 0,8 dB)
fmm
gervihnattadiskur
og móttökutæki
M 82.480,-
Stgr.verb: 74.230,-
25% útborgun:
20.620,-kr. og a&eins
Vfir 30 stöbvar meö fjölbreyttu
efni á ýmsum tungumálum
kr. á mán. í
24 mán. m/Munaláni*
SKIPHOLT119
SÍMI29800
Þú færð ekki betra verð
á góðum hornsófa.
Líttu inn og skoðaðu fallega hornsófa
í mörgum stærðum, litum og gerðum.
»r
Húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199