Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Qupperneq 10
10
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
Ódýrar hillur fyrir heimili, geymslur
og vinnustadi. Innlend framleidsla
HF.OFNASMIÐJAN
Háteiqsvegi 7, s 21220. 105 Reykjavik
Úúönd
Thomas Klestil fagnar sigri eftir að hafa verið kosinn forseti Austurríkis. Hann er eftirmaður Kurt Waldheim.
Símamynd Reuter
Forsetakosnlngamar í Austurríki:
Thomas Klestil
vinitur stórsigur
Hinn nýi forseti Austurríkis,
Thomas Klestii, sagði á sunnudaginn
eftir að hafa náö kosningu að hann
vildi gjarnan halda að honum hefði
tekist að bijóta upp flokkaskipting-
una í Austurríki. Klestil er eftirmað-
ur Kurt Waldheim.
Taldi Klestil að hann hefði sigrað
í kosningunum vegna eigin mann-
kosta og þar að auki hefði hann ein-
beitt sér að málefnalegri umræðu og
ekki beitt neinum brögðum í kosn-
ingabaráttunni. Hefur enginn forseti
Austurríkis frá þvi í síðari heims-
styrjöldinni veriö kosinn með jafn-
miklum yfirburðum. Fékk hann 57
prósent atkvæða en andstæðingur
hans, Rudolf Streicher, fékk 43 pró-
sent atkvæöa.
Klestil, sem telur sig óflokksbund-
inn, lofaði að sameina Austurríki og
sagði að álit hins almenna borgara
ætti að vega þyngra á metunum en
það sem stjórnmálaflokkarnir segja.
Hinn nýi forseti Austurríkis fædd-
ist árið 1932 og er yngstur fimm
systkina. Hann starfaði síðan í 18 ár
sem stjómarerindreki í Bandaríkj-
unum og hefur látið þau orð falla um
ár sín vestan hafs að Bandaríkja-
mönnum hefði þótt hann öfgasinnað-
ur vinstrimaður.
Hann starfaði einnig hjá Samein-
uöu þjóðunum á ámnum 1978 til 1982
og var sendiherra Austurríkis í
Bandaríkjunum næstu fimm ár þar
á eftir. Síöustu fimm ár hefur hann
starfað fyrir utanríkisráðuneytið.
Kurt Waldheim, sem nú fer frá, var
útskúfaður algjörlega meðal leiötoga
Vesturlanda eftir aö kom í ljós að
hann hafði þagað yfir þeim tíma þeg-
ar hann var foringi í þýska hernum.
Leiddi þetta til þess að hann fékk
aldrei leyfi til aö koma til Bandaríkj-
anna.
Reuter
Ástandið í Bosníu-Hersegóvínu:
Loksins friður í Sarajevo
- júgóslavneski herinn tygjar sig til brottfarar
Fylkingar íslama og Serba héldu
loksins friðinn í Sarajevo í morgun
en júgóslavneski herinn er nú að
tygja sig til brottfarar úr borginni.
Að sögn blaðamanna á svæðinu var
nóttin róleg fyrir utan eina og eina
íbúar Sarajevo standa í biðröð til að geta keypt mat og aðrar nauðsynjavör-
ur. Rólegt var þar í nótt en júgóslavneski herinn er nú að tygja sig til
brottfarar. Símamynd Reuter
sprengmgu.
Brottför hersins, sem stjórnað er
af Serbum, kemur í kjölfar ákvörö-
unar vestrænna þjóða að beita Serb-
íu þvingunum vegna hemaðargerð-
anna í Bosníu. Kanada t.d. hefur
ákveöið að afturkalla lendingarleyfi
júgóslavneska flugfélagsins. Kana-
dísk stjórnvöld hafa einnig kaUað
sendihema landsins heim frá
Belgrad og krafist fundar í öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna til að ræða
hvemig hægt sé að skera á viðskipta-
sambönd Serba.
Um það bil 300 hermenn og ættingj-
ar þeirra fóm frá Sarajevo í nótt og
komu sér fyrir í brynvörðum vögn-
um íjóra kilómetra fyrir utan borg-
ina. „Við fórum án þess svo mikið
að skot hlypi af,“ sagði Nedeljko
Boskovic herforingi. „Við gerum ráð
fyrir að halda brottflutningunum
áfram á morgun. Ef báðir aðilar
standa við sinn hlut samningsins þá
ætti verkinu að vera lokið innan
fárra daga.“
Bosnískir íslamar og Króatar hafa
sakað herinn um að veita Serbum
aðstoð í stríöinu gegn þeim. Hafa um
2.250 manns fallið í valinn eftir aö
bardagar hófust í mars og einnig
hefur stríðið skapað mesta flótta-
mannavandamál í Evrópu frá dögum
síðari heimsstyrjaldarinnar.
Reuter
Morðumfjölgar
íJapan
Morðum fer nú ört flölgandi í
Japan. Hafa sjö morð verið fram-
in þar þaö sem af er þessum mán-
uði og hafa þau ekki veriö þetta
mörg í einum mánuöi í 40 ár.
Talsmaöur lögreglunnar í
Tokyo sagði að orsök morðanna
væru skyndilegar efhahags-
þrengingar eftir mikiö blóma-
tímabil. Er rannsóknarlögreglan
í borginni nú með 15 raorð og eitt
mannrán á sinni könnu, miðað
við 17 slík mál allt árið í fyrra.
En það er ekki aðeins morötíön-
in sem menn hafa áhyggjur af
heldur fer þeim nú íjölgandi í
Japan sem stytta sér aldur vegna
fjármálanna. Varð 31 prósent
fjölgun á sjálfsvígum milli ár-
anna 1990 og 1991 en þau voru
1660 í fyrra
Kaþólskirprest-
arættuað
kvænast
Mikill meirihluti kaþólskra
manna á Írlandi er þeirrar skoð-
unar að kirkjunnar raenn ættu
að hafa leyfi til að kvænast. Þetta
kom fram í könnum sem birt var
á laugardaginn.
Voru það 69 prósent aöspurðra
sem fannst að prestarnir þyrftu
ekki að vera skírlífir. Auk þess
voru 60 prósent þeirrar skoðunar
að það ætti að leyfa kvenfólki að
gerast prestar. Um helmingur
haföi misst virðinguna fyrir ka-
þólsku kirkjunni vegna hneyksl-
ismáls sem upp kom nýlega. Kom
i ljós að prestur einn átti 17 ára
son með bandarískri konu.
Eituriyfjabarón
handtekinn
Maður frá Kolumbíu, sem tal-
inn er vera einn forsprakka Me-
delhn eyturlyfjahringsins, var
handtekinn í Mexíkóborg um
helgina ásamt m'u öðrum.
Komu handtökurnar í kjölfar
mikillar rannsóknar á dreifikerfi
eiturlyfia í Mexíkóborg og borg-
inni Guadalajara sem þekkt er
fyrir mikla umferð eiturlyfia.
Stjórnendur dreifikerfisins not-
uðu leyniflugvelli í Panama, Gu-
atemala og Honduras til að
smygla miklu magni af kókaíni
frá Kólumbíu til Bandaríkjanna.
Varaðvið þriðju
heimsstyrjöld-
inni
Utanríkisráðherra Armeníu,
Raffi Hovannisyan, varaði við þvi
að ef Tyrkir færu að skipta sér
af stríði Armena við Azera gæti
það leitt til þriðju heimsstyrjald-
arinnar. Sakaði hann jafnframt
Tyrki um aö efna til óeirða á
landamærum Armeniu og Nak-
hichevan, sjálfstæðs svæðis í Az-
erbadjan sem líggur að Armeníu,
Tyrklandi og íran.
Forseti Nakhichevan, Geidar
Aliyev, hefur lýst yfir vopnahléi
á þessu svæði til að stöðva stríð
við Armena sem staðið hefur í
viku.
Forseti Tyrklands, Turgut Ozal,
hefur sagt að Tyrkjum bæri
skylda til aö senda herafla til
Nakhichevan til hjálpar Azerum.
Varnarmálaráð-
herrannrekinn
Pólska þingið hefur rekið varn-
armálaráðherra landsins, Jan
Parys, fyrir að hafa haldið þvi
frara aö starfsmenn forsetans,
Lech Walesa, hafi reynt að múta
hernum.
Deilur milli Parys og Walesa
upphófust svo að segja um leið
og sá fyrrnefndi tók við embætti
ídesembersíðastliðnum. Reuter