Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Page 22
38
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
Sviðsljós
DV
Það er um að gera að hafa varann á gegn óprúttnum sölumönnum
Yarist óprúttna sölumenn
íbúi á Langholtsvegi í Reykjavík
hringdi á neytendasíðu DV og kvart-
aði undan óprúttnum sölumanni sem
bauð honum þröskuld og sparkjárn
til sölu og kvaðst einnig geta tekið
að sér verkið. í þessu íbúahverfi eru
mörg gömul hús sem þarfnast lag-
færingar. Algengt er að skipta þurfi
um þröskuld á útidyrahurðum í
þessu hverfi vegna þess að þeir
gömlu eru lúnir og vilja leka.
íbúanum leist strax vel á að nýta
sér þessa þjónustu, enda lengi verið
ætlun hans að skipta um þröskuld.
En hann hafði smávara á sér, kann-
aði sambærilegt verð hjá bhkk-
smiðju og hvað blikksmiðir tækju
háa greiðslu fyrir verkið. Kom þá í
ljós að sölumaðurinn ætlaði sér mun
hærri upphæð fyrir verkið, svo mun-
aði þúsundum króna. Munaði þar
sáralitlu að íbúinn léti plata sig og
var hann hvekktur mjög en þó feginn
að hafa ekki látið plata sig.
Blaðamaður hafði samband við
Neytendur
Neytendasamtökin og spurðist fyrir
um hvort sölumennska af þessu tagi
væri ekki ólögleg.
„Það eru alltaf að koma upp tilfelli
um óprúttna sölumenn. Það eru eng-
in lög sem ná yfir þess konar starf-
semi. Það má selja hvað sem er en
menn verða bara að passa sig á að
láta ekki plata sig í viðskiptum. Eina
sem hægt er að gera er að biðja fólk
að vara sig á sölumönnum og kaupa
ekki nema menn hafi verðsaman-
burð. Það er til dæmis ekkert við það
að athuga aö biðja sölumanninn að
koma aftur viku síðar þegar menn
eru búnir að athuga máhð.
Það getur vel verið að sölumenn
séu með vöru sem er á ágætis verði,
en það er einnig mjög algengt að
reynt sé að selja á verri kjörum eða
hærra verði en gengur og gerist.
Aðalatriðið er að hafa ahtaf varann
á,“ sagði Elva Björk Benediktsdóttir,
kvörtunardeild Neytendasamtak-
anna,ísamtaliviöDV. -ÍS
Áfram bann á kred-
itkort hjá ÁTVR
Nýveriö tilkynntu olíufélögin að
þau tækju upp greiöslukortaþjón-
ustu fyrir viðskiptavini sína. Á
flestum afgreiðslustööum er nú
hægt að nota greiðslukort en at-
hygli vekur að engin breyting hefur
orðið á afgreiðslumáta hjá Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins. Greiðsla
með kreditkorti hefur hingað til
þótt öruggur viðskiptamáti og sölu-
aðilar oft tekið þannig greiðslu
fram yfir annan greiðslumáta.
Samt sem áöur hefur ekki verið
talin ástæða th þess að taka
greiðslukort ghd hjá áfenginu.
Blaðamaður hafði samband við
ÁTVR og spurðist fyrir um hvort
breytingar stæðu til.
„I áfengislögunum stendur að
Áfengisverslunin og útsölur henn-
ar megi einungis selja gegn stað-
greiðslu. Þegar að debetkortunum
kemur, sem verður væntaniega
bráðlega, þá munu þau verða tekin
gild á útsölustöðum ÁTVR. Á deb-
etkortunum er gert ráð fyrir að
allar úttektir verði beint út af bók
og það því túlkað sem staðgreiðsla.
Það þarf lagabreytingu th þess
að breyta lögum um kreditkort og
ekki líklegt að af henni verði,“
sagði Þór Oddgeirsson, aðstoðar-
forstjóri ÁTVR, í samtaíi við DV.
-ÍS
í áfengislögunum stendur að einungis sé heimilt að selja gegn stað-
greiðslu og kreditkortin falla ekki undir þá skilgreiningu.
DV-mynd GVA
Bobby (John Trovolto) er staurblankur einstæSur faSir sem
leitar skjótfengins gróbo í öngstrætum Chicagi-borgar.
Framtiðarhorfur eru engar en til að sjó dóttur sinni farborða
grípur hann til þess róðs að vinna fyrir gangsterinn móg
sinn. Bobby er sjaldan heima og dóttir hans vingast við
stóran hund sem hún finnur dauðvona í húsasundi. Tryggð
hundsins við telpuna ó eftir að koma gangsterunum í koll.
<
<
<
<
<
<
<
<
*
Nick Styles (Denzel Washington), nýliði í lögreglunni
gómar kaldrifjaðann sólsjúkan morðingja, Blake (John
Lithgow). Þó fær Nick stöðuhækkun en Blake situr P
fangelsi, hatursfullur og hefnigjarn. Blake tekst að sleppa
úr fangelsinu og setur dauða sinn ó svið. Síðan hefst
hann handa við að leggja líf Nicks í rúst ó sjúklegan hótt
og óumflýjanlegt uppgjör fylgir í kjölfarið...
ÚTGÁFUDAGUR: 26. MAÍ.
Robin Williams og Jeff Bridges fara með aðalhlutverk í
þessu nútimaævinlýri og eru hreint fróbærir í leikstjórn
Terry Gilliam. Jeff leikur frægan útvarpsmann sem er 6
leið í raesið og Robin leikur róna sem leitar Kaleiksins
helga. Orlög þeirra tvinnast saman þegar
úlvarpsmaðurinn ókveður að hjólpa rónanum í leit sinni
að kaleiknum helga sem niðurkominn er í húsi auðjöfurs
nokkurs i New York.
ÚTGÁFUDAGUR: í BYRJUN JÚNÍ.
S* K* í* F* A* N
myndbönd
Það eru liðin fimm ór siðan kvikmyndabrellumaðurinn Rollie
Tyler (Brian Brown) og lögreglumaðurinn Leo MCarty (Brian
Dennehy) hjólpuðust að við að nó 15 milljónun dala fró
mafiunni með brögðum og brellum. Rollie er nú hættur i
kvikmyndabrellunum og einbeitir sér að framleiðslu
ævintýralegra leikfanga. Lögreglan biður hann um hjólp við
að hafa hendur í hóri morðingja. Morðinginn kemst undan
og hyggst nó sér niðri ó Rollie. Só eini sem getur hjólpað
honum er gamli refurinn Leo. Brótt komast þeir ó snoðir um
mikið samsæri, sem bæði lögreglan og mafian er flækt i.
ÚTGÁFUDAGUR: 29. MAÍ.